Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987 B 29 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS tíUHtuiÆiUÚaUiJL „Það er bráðnauðsynlegt að draga úr umferðaröngþveiti í Reykjavík og hvetja fólk til að nota strætis- vagna í stað einkabíla" Fjallaskór Ósviknir DACHSTEIN meó tvöföldum saumum, nlð-sterkum gúmmlsóla, vatnsþéttri reimingu. Framleiddir I Austurrfki og sérstaklega geróir fyrir mikið álag og erfiöar aóstæóur. FALKINN SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 Félklnn ®r styrktaraölU islenska ólympiullóslns i Seoul1988 Fjölgið ferðum strætisvagna - það eiga ekki allir kost á að ferðast með einkabílum Kæri Velvakandi. Mig langar til að taka undir það sem skrifað hefur verið í Velvak- anda að undanfömu um fækkun strætisvagnaferða í Reykjavík í sumar. Það er bráðnauðsynlegt að draga úr umferðaröngþveiti í Reykjavík og hvetja fólk til að nota strætisvagna í stað einkabíla, en það verður ekki gert með því að þvinga fólk til að bíða í allt að 20 mínútur eftir vagni. Og hvað með það fólk sem ekki á þess kost að ferðast með einkabíl- um, svo sem unglinga sem þurfa að mæta stundvíslega í vinnu í sum- ar? 0g mæður ungra bama sem em flestar bíllausar á virkum dögum? „Stöndum vörð um öryggi þjóðarinnar“ Til Velvakanda. Greinilegt er að það hallar undan fæti fyrir þeim sem gert hafa það að baráttumáli sínu að íslendingar segi sig úr NATO eða réttara sagt, þeir em orðnir næsta fáir. Að vísu er til sértrúarflokkur sem enn styð- ur þessa skoðun og hefur bitið hana í sig þó allar röksemdir mæli gegn henni. „Illu heilli fer sá er ræður heimskur her,“ segir Jónas Hallgrí- msson í einu ljóða sinna og þessi orð komu mér í hug er ég fylgdist með sjónvarpsumræðum um aðild íslands að NATO miðvikudags- kvöldið 10. júní. Það hvarflaði þá að mér hvað hefði gerst ef forkól- far Alþýðubandalagsins hefðu náð völdum eða næðu völdum í utanrík- ismálum þjóðarinnar. Sjálfsagt myndi þeirra fyrsta verk vera að svipta þjóðina öllum vömum og lýsa yfir hlutleysi. Slíku ástandi sem þá skapaðist mætti líkja við að taka þátt í rússneskri rúllettu og ekki yrði skemmtilegt að búa við slíkt óvissuástand. Vonandi veljast ábyrgir menn til að stjóma utanrík- ismálum okkar framvegis eins og verið hefur. Stöndum vörð um ör- yggi þjóðarinnar. Við ættum að hugsa okkur um tvi- svar áður en við felum slíku fólki stjóm utanríkismála — þó vissulega geti verið að það meini allt vel. Kjósandi Mér fyndist mjög erfitt að bíða í svona langan tíma með mínum þremur bömum - lítil böm þola ekki að bíða. SVR gerir okkur varla kleift að gefa öndunum á Tjöminni eða bara að skoða okkur um í mið- bænum í sumar. Við verðum bara að halda okkur heima. Það mætti líka nefna erlenda ferðamenn sem koma hingað í sum- ar. Er ekki stefnt að bættri þjónustu hérlendis fyrir ferðamenn? Varla tel ég fækkun strætisvagnaferða vera skref í rétta átt, því ég tel strætis- vagnakerfið í Reykjavík mjög lélegt samanborið við það sem gerist í stórborgum í útlöndum. Við vitum öll að þetta er bflaþjóð- félag sem við lifum í, en það má samt ekki gleyma þeim mörgu sem eru bfllausir. Fáum vagnana helst á 10 mínútna fresti - og sem fyrst! Anna Cosser HEILRÆÐI Ekki virtist Ólafí Ragnari eða Margréti bregða neitt við þau rök sem færð voru fyrir áframhaldandi veru íslands í NATO. Þau virtust treysta því að einhliða afvopnun Vesturveldanna dygði til að hættan á kjamorkustríði yrði úr sögunni. Kynniö ykkur voAurapána áöur an ýtt ar úr vör. Fylgist m*ö vaört 09 vindum og tafliö akki I tvtaýnu. Kynniö ykkur siglingaroglur og stt- ar ataöbundnar aöstjaöur. Hvolfl bétnum, þé royniö aö komast á kjöl og vsfcja á ykkur athygli. Muniö tilkynningsskyldu. — Ssgöu ábyrgum aöila hvar þú atlir aö sigla — hvort þú atlir og hva- nar þú ráögsrir aö koma aftur. Fjölbreytt úrval garðhúsgagna a frábæru verði: Gagnvarið tré — reyr — stál eða plast Alltaf besta verðið i Bústofni. BÚSTOFN Smiöiuvegi 6, Kópavoqi símar 45670 — 44544.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.