Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 22
8£ a 22 B V8CI tVÍÖl Vf HII0ACrJHHU8 ,<3IQAJHMU030M MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987 Fjórtán félagar úr Skiðadeild Víkings sem hjóluðu inn i Húsafell um hvitasunnuhelgina og söfnuðu áheitum til að fjármagna æfingaferð til Noregs. Hjóluðu í Húsafell Nokkrir krakkar úr Skíðadeild Víkings afrekuðu það um hvítasunnuhelgina að hjóla alla leið inn í Húsafell og aftur til baka. Markmiðið með þessarri hjólreiðaferð var að safna peningum fyrir æfíngaferð til Nor- egs, sem fyrirhuguð er um næstu áramót. Að sögn eins úr hópnum, Þórðar Hjörleifssonar, tókst að safna um 300 þúsund krónum í áheitafé og eru þau mjög ánægð með það. Las allar Arbækur Ferðafélagsins - segir „Meistarinn“ af Stöð 2 Hún heitir Ragnheiður Erla, og er um það bil að_ ljúka námi í guðfræði við Háskóla íslands. Þessi unga kona vakti athygli sjónvarps- áhorfenda þegar hún sigraði með glæsibrag í spumingaþættinum „Meistarinn", á Stöð 2, á sunnudags- kvöldið fyrir viku síðan. Ragnheiður valdi sér landafræði íslands sem sérsvið og sýndi þar frábæra frammistöðu. Blaðamaður Morgunblaðsins heimsótti Ragnheiði á heimili for- eldra hennar, Bjama Bjamasonar og Ölmu Thorarensen, í Skeijafírðin- um í Reykjavík. Ragnheiður sagðist hafa hugleitt að velja sér íslenskar háplöntur (lágplöntur em t.d. mosi og sveppir) sem sérsvið, en þar sem hún var í próflestri og lítill tími til undirbúnings valdi hún frekar landa- fræðina. „Það hefði e.t.v. verið auðveldara að velja þrengra sérsvið en ég hef mjög mikinn áhuga á íslenskri landafræði og taldi mig standa þar nokkuð vel að vígi“ sagði Ragnheiður. „Ég _tók mig til einu sinni og las allar Árbækur Ferðafé- lags íslands með kortum og hef mikið ferðast um landið. Maður lær- ir mest með því að fara á staðina og fá þannig tilfínningu fyrir um- hverfinu. Það er mikilvægt að gefa sér góðan tíma ef maður vill kynn- ast landinu og ég er alltaf að uppgötva nýja hluti". Ragnheiður hefur einu sinni áður tekið þátt í spumingakeppni, en það var árið 1973, í þáttum Jónasar Jón- assonar í ríkisútvarpinu, sem nefndust „Þekkirðu land". Hún var þá aðeis 21 árs gömul og vakti at- hygli þar sem hún bar sigurorð af Degi Þorleifssyni sem verið hafði ósigrandi. Ragnheiður er með próf í líffræði frá Háskóla íslands og nam einnig söng í Vínarborg í þijú ár. Hún hef- ur mikinn áhuga á bókmenntum og ljóðlist. „Ég hef gaman af því að finna ljóð um ákveðna staði á landinu og fara síðan á staðinn til að fínna stemmninguna í ljóðinu; hvemig umhverfíð hefur áhrif á manneskj- una og mótar hana“ sagði Ragn- heiður. „Þó það hafi vissulega tekið dálít- ið á taugamar að taka þátt í svona spumingaleik í sjónvarpi þá hafði ég mjög gaman af því. Það hafa margir reynst tregir til að taka þátt í þessu; fólk er hrætt við að standa á gati og finnst það verða sér til skammar. Ég lít fyrst og fremst á þetta sem skemmtilegan leik. Tilvilj- un getur ráðið því hver fer með sigur af hólmi, spumingamar em mislang- ar og misþungar og fólk á miserfitt með að-standa sig undir því álagi sem fylgir því að koma fram í sjón- varpi. Svona þættir ero auðvitað fyrst og fremst til skemmtunar fyrir áhorfendur og ástæðulaust að taka þá of hátíðlega". I ■ m Reuter Spánski nautabaninn Jose Antonio Ruiz, líka kallaður Spartakus, sýnir hér glæsileg tilþrif; eða öllu heldur nautið, sem stingur sér kollhnís fyrir framan hann. Nautaat á Spáni Hin umdeilda þjóðaríþrótt Spánveija, nautaatið, getur oft reynst hættulegt og jafnvel lífshættulegt. Oftast ero það nautin sem týna lífinu í slagnum, en það getur líka farið illa fyrir nautaban- anum eins og þessar myndir sýna. Hann varð að fá óeirðalögregl- una til liðs við sig, þessi óheppni nautabani, en áhorfendur tóku að kasta í hann öllu lauslegu til að láta í ljósi óánægju sína með slaka frammistöðu hans í atinu. COSPER loSoa COSPER — Nú veit ég hvað ÁST er, ég fletti því upp í orðabók.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.