Morgunblaðið - 14.06.1987, Page 31

Morgunblaðið - 14.06.1987, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987 B 31 Stjörnubíó: Roy Scheider og Ann-Margret saman í sakamálamynd Það borgar sig ekki að halda fram- hjá. Það er a.m.k. niðurstaðan af reynslu Harry Mitchells (Roy Scheider) í sakamálamyndinni 52 Pick-Up sem fjallar um fjárkúgun og græðgi. Leikstjóri hennar er John Frankenheimer en myndin er byggð á metsölubók Elmore Leon- ard, sem sjálfur skrifar handritið að myndinni ásamt John Steppling. Með aðalhlutverkin í myndinni fara Roy Scheider og Ann-Margret ásamt Vanity og John Glover. Það er Cannonfyrirtæki þeirra Mena- hem Golan og Yoram Globus sem framleiðir. Harry Mitchell, velstæður fyrir- tækjaeigandi og eiginmaður, vissi ekki af því að stelpan sem hann hélt framhjá með var send í fangið á honum af fjárkúgurum sem kvik- mynduðu samband þeirra vel og rækilega. Þeir sýna honum kvik- myndina og heimta peninga fyrir hana. En Mitchell gefur ekki eftir. Honum er þá sýnd önnur kvik- mynd. Framhaldsmyndin sýnir þegar stelpan er tekin og skotin til bana með byssunni hans Harry. Nú gæti hann veriö dæmdur fyrir morð og fjárkúgararnir heimta ■ meiri peninga frá honum. En menn — hefðu átt aö hugsa sig tvisvar um áður en þeir fóru að kássast uppá Harry. Leikstjórinn, John Frankenheim- er, hóf feril sinn í skemmtiiðnaðin- um með því að labba sig inná skrifstofur CBS-sjónvarpsstöðvar- innar í New York þar sem hann var ráðinn aðstoðarleikstjóri á grundvelli reynslu sem hann hafði aflað sér í gerð heimildarmynda í flughernum. Þetta var árið 1954. Hann vann við samtalsþætti og loks leiklist. Hann leikstýrði sam- tals 152 sjónvarpsleikritum á sex árum en fyrstu bíómyndina sína gerði hann árið 1956, The Young Stranger. Árið 1961 gerði hann tvær frægar: The Birdman of Alc- atraz með Burt Lancaster og The Manchurian Candidate eftir sögu Richard Condon. Hann fluttist til Evrópu og bjó þar í næstum tíu ár og vegnaöi ekki sérlega vel fyrr en hann flutti aftur til Banda- ríkjanna um miðjan áttunda ára- tuginn og gerði The French Connection II og svo hryðjuverka- myndina Black Sunday. Hann las skáldsögu Elmore Leonard og þóttist sjó í henni gott efni í kvikmynd. Hann bað um- boðsmann sinn um að komast að því hvort boðiö hefði verið í kvik- myndaréttinn af því hann vildi kaupa hann sjálfur. „Þegar hann sagði mér að Cannon ætti rétt- inn,“ segir Frankheimer, „spurði ég þá hvort ég gæti tekið þátt í gerð myndarinnar og þeir jánkuðu því að bragöi." Frankenheimer er mikill aðdá- andi Leonard og segir að hann sé einn af tveimur eða þremur bestu sakamálahöfundum sem nú eru uppi. íslandsmótið 2. deild ÞRÓTTUR - ÍBÍ á Valbjarnarvelli í kvöld kl. 20.00. Þróttur Sem sjómör ht ítflefnlsj SAMf V SAME dum öl inum 1< iillaósl ómani 3AND ÍSLENSKRA S ivarafur 1ANDSHÚSINU REYK llum indsins dr íadagsins 4MVINNUFÉLAGA ðadeild JAVÍK SÍMI 28200 y Myndbanda- skáparnir vinsælu Verð kr. 9.900. staðgr. VALHÚSGÖGN Ármúl. 8. .imar 82275 - 685575. V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiöill! l| || Bráðsnjallt hjálpartæki fyrir JP heimilið og smærri fyrirtæki. Með K.E.W. Hobby ganga öll þrif fyrir sig á mettíma og erfið verk verða leikur einn. Þú getur þvegið bílinn, bátinn, húsið, gluggana, eða nánast hvað sem er. Einnig getur þú sandblásið t.d. gamla málningu og ryð o.fl. Með í pakkanum fylgir hreinsiefni og bílabón. Afmæl isti I boð kr. 27.596.*" X Með allt að sex jöfnum mánaðargreiðslum FYRIR STOFNANIR OC FYRIRTÆKI — þekking - úrval - þjónusta — 6 Hreinsiefni • Pappir • Vélar • Áhöld • Einnota vörur • Vinnufatnaöur • Ráögjöf • O.fl. o.f|. Réttarhálsi2 - 110R.vik - Simar31956-685554 VILDARKJÖR I m V/SA 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.