Morgunblaðið - 19.07.1987, Síða 15

Morgunblaðið - 19.07.1987, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1987 B 15 Konur sem menn elska - konur sem menn yfirgefa lí ENIDVE Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Connell Cowan og Melvyn Kinder:Women Men Love. Women Men Leave. Útg. Clarkson N. Potter 1987. VANDAMÁLAbækur eða öllu heldur sérhannaðar og lærðar út- skýringar á vandamálum okkar, fyrst og fremst á samskiptasvið- inu, eru mörgum eftirsóknarverð lesning. Kannski ekki beinlínis vegna þess við búumst við, að úr öllum flækjum greiðist, tjáskipta- legs- og tilfinningalegs eðlis, og hvað þetta nú allt er. En það vek- ur hjá okkur dálitla öryggiskennd, ef við fáum einhvers konar full- vissu fyrir því, að það sé einhver sem skilur vandamálið okkar. Það er sjálfsagt misjafnlega erfitt við- fangs. Það getur meira að segja verið við höfum alls ekki gert okk- ur grein fyrir vandamálinu fyrr en lesum við kafla í bók. Og kom- umst að þeirri niðurstöðu, að höfundur er að huga að einhverju, sem við könnumst við. Þá lesum við þann kafla með öðru hugar- fari, fjálglegar og af meiri forvitni. Það er ekkert að því. En væri ekki ráð að konur legðu orð í þenn- an umræðubelg líka. Bækur þessarar gerðar virðast nær alltaf skrifaðar af karlmönnum. Því skyldu konur ekki skrifa frá sínum bæjardyrum. Og segja frá karl- mönnum, sem elska of mikið. Samanber fræga bók um „Women Who Love Too Much“. Við þurfum að láta víkja að því, hvemig skyn- samlegast væri að koma fram við karlmann með þessi einkenni. Og hvað með mennina sem konur elska - og yfirgefa þó. Það er mesta furða að konur skuli ekki hafa reynt að ná jafnvægi í að búa til bækur með þetta meginþema. Því að alltaf seljast þessar bækur, hvort sem okkur, mönnum/konum líkar það betur eða verr. Og karl- mönnum veitti altjend ekki af smáleiðsögn í tjáskipta og tilfinn- ingamálunum, eftir flestum þeirra að dæma. Höfundar þessarar bókar eru báðir doktorar í kliniskri sálar- fræði. Þeir sendu frá sér í fyrra bókina „Smart Women, Foolish Choices" sem var skrifað um í Kr.3390 »þó bendum ••• Lilir: Rautt, Ijósbrúnt, millibrúnt, Ijósblátt. Tegnr. 2098 Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! þessum dálkum. Þar fjölluðu þeir- eins og titillinn gefur til kynna - um hina brennandi spurningu allra kvenna( segir á kápusíðu):,, Hvað vilja menn í raun og veru? Og af hveiju verður karlmaður ástfang- inn af ÞESSARI konu, en ekki hinni og hvað er það við hana, sem veldur því að Hann vill una hjá Henni alla sína ævidaga? í þessari bók „ Women Men love. Women Men Leave “ er hald- ið áfram á þeirri braut, sem þeir doktorarnir mörkuðu í hinni fyrri og sú bók varð metsölubók víða. Þeir lýsa því á býsna almennan hátt og ekki frumlegan, hvemig konan eigi að vera til að fæla ekki manninn frá sér. Sem er auð- vitað fróðlegt, en kannski ekki algilt. Kjarni málsins er sá,í þeirra augum, að það er konan, sem getur ráðið því, hvernig þessi mál skipazt. Svo virðist sem þeir hafi Why men are DRAWN TO WOMEN WHAT MAKES THEM WANT TO STAY DR. CONNELL COWAN & RlaPÍÍIlSIMflM ekki trú á að karlmenn geti haft* nein áhrif þar á, ef kona skilur vandamálið og ákveður að leysa það. Bókinni er skipt í tvo megink- afla og þeir höfundar skrifa vel og skilmerkilega. Aftast eru svo nokkur próf sem við getum tekið til að reyna að komast að því, í hvaða ástandi við erum, varðandi samskiptin við karlmennina og hvaða líkur eru á að þeir yfirgefí okkur eða verði hjá okkur. Þeir félagar hafa greinilega mjög gam- an af því að tjá sig um málið og það gefur bókinni aðgengilegan blæ. Þessi bók er engin himna- speki, en það er allt í lagi að glugga í hana. Og sem oftar þyk- ir mér titillinn það bezta. ^ GEFÐU ÞER „ GOÐANTIMA ÁÐUR EN ÞÚ FERÐ ÚRIANDI. Gjafir og glaðningur til vina, ættingja og viðskiptavina erlendis. Afþreyingarefni fyrir ferðina. fslensk matvara hefur um áraraðir glatt íslendinga erlendis. Reyndar eru íslensk matvæli löngu orðin annað ogmeira en „þjóðlegsérviska“. Lostæti á borð við hangikjöt, reyktan lax, kavíar og íslenska osta hefur ósjaldan skákað dýrindis réttum á borðum útlandanna. íslenskt sælgæti nýtur mikilla vinsælda handan hafsins. Þér er óhætt að hafa talsvert magn með þér - það verðurfljótt aðhverfa (stingdu strax undan eftirlætistegundinni þinni.) Minjagripir oghandverk eiga alltaf vel við. Það er sama hvert tilefni ferðarinnar er eða við hvern þú átt stefnumót á erlendri grund. íslenskt handverk er gjöfsem gleður. Bækur um ísland. Glæsilegar gjafir við flest hugsanleg tækifæri. Einstök landkynning sem gaman er að fletta með áhugasömum lesendum. Blöð og tímarit fvrir ferðina. Öll nýjustu dagblöðin með glóðvolgum, íslenskum fréttum. Tímarit og bækur til að lesa á leiðinni og í ferðinni. Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Keflavíkurflugvelli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.