Morgunblaðið - 19.07.1987, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 19.07.1987, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1987 B 21 Reuter Jainapresturinn Acharya Muny Mahendra kynnir Þjóðveijann Mark- us Mossner fyrir fyrrum forseta Indlands, Zail Singh. Mjög fair aðrir en Indverjar hafa játast undir jainisma til þessa. ■s«s Meinleysi og meinlæti Markus Mossner, 24 ára gam- all Vestur-Þjjoðveiji, hefur heitið því að kremja ekkert kvikindi sem lífsanda dregur undir fótum sér né verða á neinn hátt valdur að dauða lifandi veru, ekki einu sinna hinna smæstu örvera í and- rúms loftinu. Hann hefur nefnilega gerst gildur meðlimur í söfnuði jain- ista á Indlandi. Jainismi er skyldur hindúisma og eru játendur hans um fjórar miljónir, næstum allir í Indl- andi. Prestar söfnuðarins segjast gjarnan vilja útbreiða jainisma víðar um heiminn en þar sem trúin bann- ar þeim að ferðast öðruvísi en fótgangandi eiga þeir ekki auðvelt um vik. Jainismi hefur að sögn prestanna varðveist óbreyttur í 2500 ár. Játendur jainisma skiptast í tvær fylkingar, Shwetamara, eða hvítstakka og Digambara eða loft- stakka, en þeir ganga um naktir þar sem föt bera að þeirra mati vott um efnishyggju. Mossner tilheyrir fylkingu Shew- tamara og gengur því um hvítklæddur. Jainistar ganga ávalt um með sóp til að sópa jörðina fyr- ir framan sig svo að þeir stigi ekki á skorkvikindi og kremji þau til bana. Sumir ganga líka með grímur fyrir andlitinu til þess að þeir andi ekki að sér örverum úr andrúmsloft- inu og verði þeim þannig að aldur- tila. „Ég fékk áhuga á jainisma eftir að hafa lesið um líf Mahatma Gandi“ segir Mossne. „Hann var undir áhrifum frá boðskap jainista um meinleysi og andstyggð á hvers konar ofbeldi". Þegar Mossner ját- aðist undir jainisma skipti hann um nafn og var honum gefið nafnið Saman Swayan, sem þýðir Sá sem veit, vegna þess hversu vel hann hafði lesið sér til um trúna. Við athöfnina vann hann þess heit að ástunda skírlífi, eta ekki kjöt, tak- marka eigur sínar við þijá hvíta kyrtla og kynna sér enskar þýðing- ar á höfuðritum jainisma næstu þijá mánuðina. Eftir reynslutímann tekur hann síðan ákvörðun um það hvort hann snýr aftur til Þýska- lands eða gerist prestur og verður áfram í Indlandi. Jainistaprestar, sem eru nokkur þúsund, fylgja mjög ströngum siða- reglum. Þeir láta plokka allt hárið af höfðinu á sér og stunda alls kyns meinlætalifnað eins og að sitja tímunum saman og íhuga í brenn- andi sólarhita. Shri Tulsi, presturinn sem vígði Mossner til jainisma þurfti að ganga 600 km vegalengd, frá Gujarat- fylki til Nýju-Dehli. Hann er 73 ára gamall og segist hafa gengið meir en 100 þúsund km frá því hann var útnefndur æðsti prestur jainista, aðeins 22 ára gamall. Allir sem játa jainisma eiga að virða reglum- ar um meinleysi og fátækt og segist Tulsi hafa ástundað fullkomið skírlífi frá því hann tók jaintrú, aðeins 11 ára gamall. „Prestamir verða að vera öðrum fordæmi í meinlætalífi og ég hef þurft að svipta nokkra embætti vegna kæru- leysislegrar hegðunar" segir Tulsi. Helagasti staður jainista er þorp- ið Stavanabelagola í Karnataka- fylki þar sem 17 metra há stytt af spámanninum Gomateswara stend- ur. A tólf ára fresti koma jainistar af öllu Indlandi gangandi þangað til þess að taka þátt í mikilli trúar- hátíð. Síðasta hátíð var 1981, á 1000 ára afmæli styttunnar og er talið að meir en ein miljón jaina hafi verið viðstaddir. COSPER — Gaili við húsið? Nei, þú veist alltaf hvaðan vindáttin er. OKKAR VERÐ Ný lambalæri 383.-kr.kg. Lambahryggur 372.-kr.kg. Lambaslög 70.-kr.kg. Lambairampartar 292.-kr.kg. Lambasúpukjöt 327.-kr.kg. Lambakótilettur 372.-kr.kg. Lambalærissneiðar 497.-kr.kg. Lambagrillsneiðar 294.-kr.kg. Lambasaltkjöt 345.-kr.kg. Lambaskrokkar 1. flokkur 264,50kr.kg. lægra en hjá öðrum J25.-kr.kg. ^arineraðar kótilettur 401 kr.kg. Marineraðar íærissneiðar 548.-kr.kg. Mari neruð rif 178.-kr.kg. Hangilcjöts/seri 480.-kr.kg. Hangiiýötsframpartar úrb 32l-kr.kg. Han*®s'#iúrbei„að S68.-kr.kg. Hangikjötsframpartar 487.-kr.kg. Lambahamborgarhryggur 487.-kr.kg. Londonlamb Sl4.-kr.kg. KJÓTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2.s. 686SII AGFA-f-3 Alltaf Gæðamyndir __• 77/88cm VINKIL-FELLIHURÐIR 68/88cm ál-plexigler kr. 12.051,00 hvitt ál-plexigler kr. 13.819,00 68/90cm ái-röndótt gler kr. 25.661,00 hvltt ái-röndótt gler kr. 29.473,00 77/88cm ál-hamraó gler kr. 20.556,00 hvftt ál-hamrað gler kr. 23.639,00 BAÐKARS-RENNIHURÐIR 160/172cm ál-plexigler kr. 13.945,00 Sendm } póstkröfu. verd m htnd a/fc ál-hamraö gier kr. 16.609,00 hvltt ál-hamrað gler kr. 19.118,00 ál-röndótt gler kr. 21.266,00 hvltt ál-röndótt gler kr. 24.255,00 HLISA SMIÐJAN 77/88cm ál-plexigler kr. 12.691,00 hvltt ál-plexigler kr. 14.590,00 SÚDARVOGI 1-5-104 REYKJAVÍK SÍMI 687700 • PÓSTHÓLF 4200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.