Morgunblaðið - 11.11.1987, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11 NÓVEMBER 1987
Hvanneyri:
Minningarguðsþjónusta
um séra Eirík Albertsson
Að loknum héraðsfundi minntist
sr. Bjöm Jónsson á Akranesi, sr.
Eiríks í Hvanneyrarkirkju. Sr.
Eiríkur fæddist á Torfumýri í
Skagafírði, tók guðfræðipróf 1917
og var síðan sóknarprestur í Hest-
þingaprestakalli í Borgarfírði til
1944, er hann varð að láta af störf-
um sökum heilsubrests. Á árunum
1921 til 1926 var hann í tvö ár
skólastjóri Hvítárbakkaskóla og rak
unglingaskóla á Hesti.
Hvannatúni í Andakíl.
í TENGSLUM við héraðsfund
Borgarfjarðarprófastsdæmis var
sr. Eiríks Albertssonar dr. theol.
minnst í Hvanneyrarkirkju.
Hann fæddist 7. nóvember 1887
og þjónaði Hestþingaprestakalli
alla sina embættistíð.
Hann varð fyrstur íslenskra guð-
fræðinga doktor í guðfræði við
Háskóla íslands 1939. Ritgerð hans
fjallaði um sr. Magnús Eiríksson,
sem var prestur og kvénréttinda-
maður á síðustu öld. Eftir Eirík
liggja nokkrar bækur um guðfræði-
leg og söguleg efni. Kvæntur var
hann Sigríði Bjömsdóttur frá
Miklabæ og varð þeim 9 bama
auðið. Hann lést í Reykjavík 11.
október 1972.
Við athöfnina lék Bjami Guð-
ráðsson organisti á orgel, kór
Hvanneyrarkirkju söng og Ragna
Bjamadóttir söng einsöng. Berg-
þóra Sigurðardóttir las ritgerð sína
um langafa sinn. Hún birtist í blaði
fermingarbama á Akranesi 1987.
Systkinin Guðjón Jónsson og Hall-
dóra Jónsdóttir lásu úr nýútkominni
bók, Ár og dagar í víngarði drott-
ins. Bókin kemur út í tilefni 100
ára afmælis sr. Eiríks, afa þeirra.
í lok athafnarinnar í kirkjunni þjón-
aði Agnes M. Sigurðardóttir
sóknarprestur Hvanneyrarpresta-
kalls fýrir altari.
Gestir þáðu kaffíveitingar í boði
sóknamefndar Hvanneyrarkirkju
og Bændaskólans á Hvanneyri.
- D.J.
Kór Hvanneyrarkirkju söng.
Morgunbiaðið/Diðrik Jðhannsson Björn Jónsson sóknarprestur á Akranesi.
Nýtt verk eftir Atla Heimi
frumflutt í Dómkirkjunni
Hvanneyrarkirkja
Lokatónleikar Tónlistardaga
Dómkirkjunnar verða í kvöld, 11.
nóvember, kl. 20.30. Þar verður
frumflutt tónverk eftir Atla
Heimi Sveinsson „Vetrarmynd
úr kirkjunni" en það var samið
sérstaklega fyrir þessa Tónlist-
ardaga.
Verkið samdi Atli Heimir við
kvæði Knuts Ödegards, en íslenska
þýðingu gerði Einar Bragi.
Flytjendur verksins eru félagar
úr Dómkómum ásamt aðstoðarfólki
og hljóðfæraleikurum úr Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Einnig verður
flutt kór- og orgeltónlist eftir Cesar
Franck. Anna Sigríður Helgadóttir
og Elín Sigurvinsdóttir syngja ein-
söng og Guðni Guðmundsson leikur
íns.
Atli Heimir Sveinsson
Akranes:
Mínningabók um dr. Eirík
Albertsson komin út
Akranesi.
HÖRPUÍJTGÁFAN á Akranesi
hefur sent frá sér bókina „Ár
og dagar i víngarði drottins,,.
Hér er um að ræða minninga-
bók sem gefin er út í tilefni af
þvi að 7. nóvember nk. eru liðin
100 ár frá fæðingu dr. theol.
Eiríks Albertssonar. Bókin er
jafnframt minningabók um
konu hans, Sigriði Björnsdótt-
ur.
Efni bókarinnar er að nokkm
leyti sýnishom af ritstörfum þeirra
hjóna, en þau vom báðir góðir rit-
höfundar, og eins em greinar og
ritgerðir sem aðrir rita um þau.
Séra Eiríkur var fyrsti íslending-
urinn sem lauk doktorsprófí í
guðfræði við Háskóla Islands.
Hann var prestur í Hestþingapre-
stakalli í Borgarfírði á ámnum
1917 til 1944 og bjó þau ár að
Hesti í Borgarfírði. Auk prest-
starfans var hann bóndi og einnig
skólastjóri Hvítárbakkaskóla um
skeið. Hann gegndi jafnframt fjöl-
mörgum öðmm trúnaðarstörfum
og var um skeið settur prófastur
í Borgarfjarðarprófastsdæmi.
Böm þeirra hjóna standa að
hluta til að útkomu bókarinnar og
sonur þeirra, Jón Eiríksson, fyrr-
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Útgefandi ásamt þrem sonum þeirra dr. Eiríks og Sigríðar talið frá
vinstri: Jón Eiríksson, Grétar Eiríksson, Ragnar Eiríksson og Bragi
Þórðarson hjá Hörpuútgáfunni.
verandi skattstjóri, ritar m.a. í
bókina endurminningar frá upp-
vaxtarárum þeirra systkina.
Bókin er 165 blaðsíður að stærð
og prentuð í Prentverki Akraness.
Kápumynd er eftir þýska málar-
ann Verleger.
í tilefni af aldarafmæli séra
Eiríks verður héraðsfundur Borg-
arfjarðarprófastsdæmis haldinn á
Hvanneyri sunnudaginn 7. nóvem--
ber. Jaftiframt verður hátíðar- og
minningarsamkoma í Hvanneyrar-
kirkju og hefst hún kl. 15.00.
Fjölbreytt dagskrá verður. Að lok-
inu kirkjuathöfn verða kaffíveit-
ingar í Bændaskólanum á
Hvanneyri í boði skólans og sókn-
amefndar Hvanneyrarkirkju.
- JG
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Þórhallur Ólafsson
Selfoss:
Nýr ritstjóri
að Suðurlandi
Selfossi.
NÝR ritstjóri hefur tekið við hér-
aðsblaðinu Suðurlandi, Þórhallur
Ólafsson tæknifræðingur á Sel-
fossi. Blaðið kom út síðastliðinn
miðvikudag, litprentaðar átta
síður.
Útgefandi Suðurlands er kjördæ-
misráð Sjálfstæðisflokksins ( Suður-
landskjördæmi. Blaðið kemur út
hálfsmánaðarlega og er sent inn á
hvert heimili og gefíð út í 6.500 ein-
tökum.
— Sig. Jóns.
Úrval ljóða
eftir Brecht
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur
sent frá sér bókina Bertolt
Brecht, Kvæði og söngvar
1917-1956, úrval ljóða hans í bún-
ingi sextán íslenskra þýðenda.
Einungis um þriðjungur ljóðanna
hefur áður birst á prenti.
Þorsteinn Þorsteinsson annaðist
útgáfuna og þýðir mikinn hluta ljóð-
anna í bókinni. Auk þess ritar hann
inngang um ljóðskáldið Bertolt
Brecht. Af öðrum þýðendum má
nefna skáldin Halldór Laxness, Sigf-
ús Daðason, Þorgeir Þorgeirsson,
Þorstein frá Hamri og Þórarinn Eld-
jám. Úrvalið hefur að geyma á
annað hundrað ljóða, þ.ám. safn
söngva úr leikritum Brechts.
A kápubaki bókarinnar segir m.a.:
„Öll mikil kvæði hafa heimildar-
gildi," sagði Bertolt Brecht eitt sinn.
— Ljóð hans eru eftirminnilegri vitn-
isburður um nútímann en flest annað
í ljóðagerð tuttugustu aldar. Þau eru
öðrum þræði átakanleg saga styij-
alda, útlegðar og stéttabaráttu. Um
leið vitna þau um djarfmannlega
leit gáfaðs listamanns og þrotlausa
baráttu fyrir mannúðlegri og betri
heimi."
Kvæði og söngvar 1917-1956 er
120 bls. Prentsmiðjan Oddi hf.
prentaði. Ólafur Pétursson hjá Auk
hf. hannaði kápu.
J'í
rJ
UA