Morgunblaðið - 11.11.1987, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1987
67
Bjórfrumvarpið:
Þingmenn til að leysa vandamál
- ekki að skapa þau
Til Velvakanda.
Margboðað bjórfrumvarp er
komið fram á alþingi, það er frum-
varp um að leyfa bruggun, innflutn-
ing og sölu á áfengum bjór. Enginn
nefndi bjór á nafn fyrir kosningar
svo ef þingmenn samþykkja hann
nú svíkjast þeir í rauninni aftan að
kjósendum. Vegna þessa og líka er
þetta alvarlegt og örlagaríkt mál á
skilyrðislaust að verða um það þjóð-
aratkvæðagreiðsla.
Paul Schluter, forsætisráðherra,
sagði í þingræðu fyrir skömmu að
bjórdrykkja væri að eyðileggja
dönsku þjóðina, það þyrfti að hefj-
ast handa og gera eitthvað í
málunum. Og þó Paul Schliiter sé
engin þjóðhetja hefur hann áreiðan-
lega drjúgum meira af heilbrigðri
skynsemi en allir þessir bjórfrum-
varpsmenn.
Fyrir nokkru skrifaði Tómas
Helgason, prófessor og yfírlæknir,
grein í Morgunblaðið um bjórmálið
og færði óhrekjandi rök fyrir því
að það áfengismagn sem þjóðin inn-
byrði mundi stóraukast með til-
komu bjórsins og studdist þá meðal
annars við reynslu annarra þjóða.
Og afleiðingin yrði að bæði and-
legri og líkamlegri heilsu þjóðarinn-
ar mundi hraka til muna. Enginn
vitiborinn maður hefur reynt að
hnekkja rökum Tómasar Helgason-
ar. Hitt er rétt og satt að þessi
innflutningur á bjór til landsins er
algerlega ólíðandi, enda salan í
fríhöfninni og eins bjórinnflutning-
ur áhafna skipa og flugvéla alveg
tvímælalaust lögbrot.
Ég skora á dómsmálaráðherra
að fara þess á leit við Hæstarétt
að hann úrskurði í þessu máli, því
þó hver einasti maður í landinu viti
að þessi bjórinnflutningur sé lög-
brot mundi úrskurður frá Hæsta-
rétti hafa úrslitaáhrif. Jón Baldvin
mundi bregðast fljótt við og loka
fyrir bjórsöluna í fríhöfninni, enda
hægt að komast þangað f loftinu.
En hvað sem öllu öðru líður hafa
alþingismenn engan siðferðislegan
rétt til að tvöfalda áfengisneyslu í
landinu í einni svipan. Og ef þeir
hafa ekki manndóm til að fella þetta
frumvarp er þjóðaratkvæðagreiðsla
í raun réttri hrein og bein skylda.
Bindindismenn og aðrir bjórand-
stæðingar eru sundurleitur hópur
en samt verður það vel munað í
næstu kosningum hvemig menn
greiða atkvæði í þessu máli. Þing-
menn verða að gera sér það ljóst
að þeir voru kosnir til að leysa
vandamál, m.a. að kveða niður verð-
bólguna, versta vágest þjóðarinnar,
en ekki til að skapa önnur, auka
drykkjuskap, óreglu og hverskonar
vandræði sem nóg er af fyrir.
Ingi Jónsson
Hver orti?
Eftirfarandi vísur bárust Vel-
vakanda á dögunum og vill
sendandinn gjaman fá að vita
hver er höfundur þeirra og eins
hvort vísumar séu fleiri.
Svívirða viljirðu saklausan mann
þá segðu engar ákveðnar skammir um hann.
En láttu það samt í veðrinu vaka
að hann hafi unnið til saka.
En ef einhver vill að þú sannir þá sök
þá seg að til séu nægjanleg rök.
En náungans bresti þú heizt viljir hylja,
það hljóti hver sannkristinn maður að skilja.
Geymið lyf þar sem börn ná ekki tiL
Leður
— LUX
Þýsku homsófamirog sófasett-
in í leður-lúx efnunum eru
komin aftur á hreint ótrúlega
láguverði.
Sjáið til dæmis sófasettið
hérámyndinni
tegund: Padúa 3+2+1.
Það kostar kr. 69.860.-
ákr. 64.180.-
Í7fallegum litum.
Það borgar sig að líla til okk-
arstraxídag.
Útborgun með Visa og Euro í
12mánuði.
húsgagmriwllin
REVKJAVlK
MQBLER