Morgunblaðið - 11.11.1987, Qupperneq 70
^70
MORGUNBLABIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1987
HANDKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNIN
Jóhann Ingl Gunnarsson.
„Mætum
Víkingum
þábaraí
undan-
úrslitum"
- segirJóhann Ingi
Gunnarsson hjá Ess-
en, sem mætir Steua
Búkarest
„ Nei, þetta fór ekki eins og við
vildum, enda eru draumar yfir-
leitt ansi fjarri raunveruleikan-
um. Draumaandstæðingurinn
var Víkingur, en við fengum
. 4 Steua Búkarest," bætti Jóhann
Ingi við.
Um möguleika Essen gegn hinu
sterka rúmenska liði sagði
Jóhann Ingi: „Eftir að hafa slegið
út lið á borð við Emp>or Rostock
þá er ég hvergi banginn. Leikmenn
Empor ætluðu sér stóra hluti í
keppninni, sigur og ekkert annað,
en svo réðu þeir ekki við Essen.
Annars er þetta rúmenska lið senni-
lega það sterkasta í keppninni
ásamt ZSKA, mótheijum Víkinga,
og f liði Steua eru þrír af bestu
landsliðsmönnum Rúmena með
Stinga sjálfan í broddi fylkingar.
Steua tapaði fyrri leik sfnum í
^ síðustu umferð gegn Redbergslid
frá Svfþjóð með 5 marka mun, en
Stinga var meiddur. Liðið vann svo
heimaleikinn 28-21. Við eigum hei-
maleikinn á undan og það er verra,"
sagði Jóhann Ingi.
FÉLAGSLÍF
Herra-
kvöld
Víkings
Hið árlega herrakvöld Víkings
verður haldið í Domus Medica
við Egilsgötu föstudaginn 20. nóv-
ember. Húsið opnar klukkan 19:30
og skömmu síðar hefst kvöldverð-
ur. Aðgöngumiðar fást hjá stjóm
félagsins, deildarformönnum og
fulltrúaráði og eru Vfkingar hvattir
til að fjölmenna sem endranær.
Af hveiju ætti Víkingur
ekki að eiga möguleika?
- segir Hallur Hallsson, formaður handknattleiksdeildar Víkings. Mótherj-
ar Víkinga eru meistarar Rússlands, ZSKA Moskva
Stuðningsmonn Vfkings vöktu mikla athygli f Kolding í Danmörku.
„ZSKA er náttúrulega sá mót-
herji sem við hefðum síst viljað
lenda á móti, en þetta er liður
í þessu lotteríi sem við tökum
þátt í í Evrópukeppninni. Það
verður að bíta á jaxlinn og taka
þessu eins og öðru,“ sagði
Hallur Hallsson formaður
handknattleiksdeildar Víkings í
samtali við Morgunblaðið í
gær, en þá dróst Víkingur gegn
sovéska meistaraliðinu ZSKA
frá Moskvu í þriðju umferð
Evrópukeppni meistaraliða.
Hallur hélt áfram: „Annars get
ég ekki séð að það sé ástæða
til að örvænta. Af hveiju ætti
Víkingur ekki að eiga möguleika?
Landslið okkar eru svipuð að styrk-
leika og þeir urðu á eftir okkur á
síðasta heimsmeistaramóti. Ferða-
lagið verður að vísu rosalegt og
leikurinn úti erfíður, en heimaleik-
urinn verður án efa rosalegur
hörkuleikur eins og alltaf þegar
Víkingur leikur heimaleiki sína í
Evrópukeppi. Víkingsliðið hefur sjó-
ast gríðarlega í svona leikjum, enda
verið í Evrópukeppni samfleytt f tíu
ár. Tvö síðustu árin höfum við kom-
ist í 8-liða úrslit og 1985 í undanúr-
slit. Síðan f fyrra höfum við svo
endurheimt Sigurð Gunnarsson og
olli hann straumhvörfum fyrir okk-
ur, enda fylgdi honum gífurleg
Ieikreynsla."
Hallur fór svo nánar út í möguleik-
ana: „Sko, sjáðu til, Víkingur mætti
Gdansk í 8-liða úrslitum á sfðasta
keppnistímabili og við vorum þá að
koma upp með heldur óleikreynt
lið. Samt var staðan þannig þegar
flórði hálfleikurinn var að hefjast,
að staðan var jöfn. Þeir tóku okkur
ekki fyrr en á endasprettinum.
Síðan fóru þeir og afgreiddu eigi
ómerkilegra lið en Metaloplastica
með sjö marka mun. Þess má geta,
að í umferðinni á undan höfðum
við sigrað svissneska liðið St.
Othmar mjög örugglega. StOthmar
var svo að enda við að slá út so-
véska liðið l.mai frá Moskvu í
keppninni nú. Við erum betri nú
en þá, þannig að við gefum mögu-
leika á sigri ekki frá okkur. ZSKA
þykir trúlega sigurstranglegra liðið,
en það skýrist ekki fyrr en síðari
leikurinn hefur verið flautaður af.“
Tveir heimskunnir hand-
knattleiksmenn leika með
rússneska félaginu ZSKA
Moskva, mótheijum Víkings.
Það eru landsliðsmennimir
snjöllu Alexander Rimanov, sem
er sterkur lfnumaður og stór-
skyttan Mikael Vasiliev.
Þjálfari liðsins er fyrrum lands-
liðsmaður Rússlands, Krapzov.
Hann var á sínum tíma einn
besti homamaður heims.
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Framkvæmda-
stjóri Brann
hótaði að hætta
- efTeituryrði ekki ráðinn
Teitur
fetarí
fofspor
Karls
- semþjálfari
í Noregi
Toitur Þórðarson, som hof-
ur veriö ráAfnn þjálfari
Brann, er annar íslendingur-
inn som þjálfar norskt 1.
deildarliA í knattspyrnu.
Tertur fetar f fótspor Karls
Guðmundssonar fyrrum
iandsliðsþjálfara og leik-
manns úr Fram. Karl þjálfari
Lilleström þegar félagið
varð Noregsmeistari 1959.
Karl fékk þjálfaratilboð frá
Brann 1960. Hann hafnaði
því þar sem hann hafði ráðið sig
sem kennara í Reykjavík og
Karl Guðmundsson
Tækninefnd KSÍ var þá stofnað
undir sijóm Karls.
„Það er gott að vera þjálfari í
Noregi þegar vel gengur. Það
væri gott fyrir Teit ef Brann
myndi byija vel undir hans
stjóm. Norðmenn eru fljótir að
snúa bakinu við mönnum þegar
illa gengur. Ég var heppinn þeg-
ar ég var í Noregi. Ég vona að
Teitur verði eins heppinn hjá
Brann,“ sagði Karl.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
norska fyrstu deildar liðsins
Brann í Noregi hótaði að hætta
ef Teitur Þórðarson yrði ekki
ráðinn þjálfari liðsins. Frá
þessu er greint í norsku blöð-
unum f gær og jafnframt sagt
að Brann hafi ráðið rétta þjálf-
arann, þar sem Teitur er.
Mikil ánægja ríkir með ráðn-
inguna, en samningur Teits
og Brann er til tveggja ára frá og
með næstu áramótum, en þriðja
árið er opið. Sam-
Frá kvæmt norsku
Jóni Óttari dagblöðunum em
Karissyni forráðamenn Brann
1 oregi ánægðir með samn-
inginn, þó þeir hafi þurft að fara
fram úr fjárhagsáætlun og er sagt
að greiðlega hafí gengið að fá Teit
lausan frá Skövde í Svíþjóð, en þar
var Teitur samningsbundinn út
næsta keppnistímabil.
Brann er sem kunnugt er eitt
stærsta og ríkasta félag á Norður-
löndum, en árangurinn hefur látið
á sér standa. Reyndar hefur verið
mikið basl hjá liðinu undanfarin ár.
Það hefur unnið sig upp í fyrstu
deild eitt árið og fallið það næsta,
en á nýafstöðnu móti hélt Brann
sér í fyrstu deild og er stefnt hærra
næsta keppnistímabil.
Ekki er ljóst hvort einhveijar breyt-
ingar verði á liðinu, en óttast er
að Bjami Sigurðsson og Erik Soler
fari frá félaginu. Bjami hefur feng-
ið freistandi tilboð frá Gautaborg ,
og Soler frá AGF í Danmörku, en
Brann gerir örugglega allt til að
halda þeim og eins að fá nýja menn.
Firmakeppni HK
Keppni verðursunnudaginn 15. nóvemberí
íþróttahúsi Digraness.
5 lið eru í hverjum riðli.
Þátttökugjald kr. 5000. Upplýsingar í síma 622164
eftirkl. 18.00 (Ari).
KNATTSPYRNA / 3. DEILD
Ámi Stefánsson til ísafjarðar?
Isfirðingar sem leika í 3. deild- þjálfun ÍBÍ næsta sumar. ið í vandræðum með markvörð
inni í knattspymu næsta sumar Ami þjálfaði og lék með Neista og hyggjast nú slá tvær flugur f
hafa verið í viðræðum við Áma frá.. Hofsósi í 4. deild sl. sumar. einu höggi með því að fá Ama
Stefánsson, fyrrum landsliðs- Áður þjálfaði hann Tindastól frá sem þjálfara og markvörð.
markvörð, um að hann taki að sér Sauðárkróki. ísfírðingar hafa ver-