Morgunblaðið - 18.12.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
4
Hæstiréttur:
Magnús Þ. Torfason
lætur af störfum
FORSETI íslands hefur veitt
Magnúsi Þ. Torfasyni, hæsta-
réttardómara, lausn frá
störfum að eigin ósk frá 1.
janúar 1988 að telja.
Magnús sagði í gær að hann
hvorki gæti né vildi segja til um
hvaða verkefni biðu hans nú.
„Fyrst um sinn ætla ég að sétj-
ast í þennan helga stein, en ég
finn mér þó örugglega eitthvað
að sýsla við,“ sagði hann. „Það
fylgir því auðvitað viss söknuður
að kveðja Hæstarétt eftir langa
dvöl þar, en ég hef verið þar
meira og minna í 31 ár, því á
meðan ég var prófessor við
Háskólann var ég varadómari
við réttinn. Ég óttast þó ekki
iðjuleysi þó ég hverfí þaðan nú.“
Magnús Þ. Torfason fæddist
þann 5. maí 1922 á Halldórs-
stöðum í Laxárdal. Hann lauk
prófí frá lagadeild Háskóla Is-
lands árið 1949. Að loknu prófi
varð hann fulltrúi í viðskipta-
ráðuneytinu og fulltrúi hjá
borgardómaranum í Reykjavík
árið 1951. Hann var við fram-
haldsnám í Kaupmannahöfn
veturinn 1954-1955 og var skip-
aður prófessor við lagadeildina
árið 1955. Magnús var settur
hæstaréttardómari tímabundið
árið 1960 og skipaður dómari
við réttinn árið 1970. Frá árinu
1972 hefur hann verið próf-
dómari við lagadeild Háskóla
íslands og frá árinu 1973 hefur
hann verið prófdómari við pró-
Magnús Þ. Torfason
fraun héraðsdómslögmanna.
Hann var í flögur ár forseti
Hæstaréttar, árin 1976, 1977,
1985 og 1986. Eiginkona hans
er Sigríður Þórðardóttir og eiga
þau sjö böm.
VEÐURHORFUR í DAG, 18.12. 87
YFIRLIT á hádegi í gær: Austan og norð-austanátt á landinu, all-
hvass eða hvass á norðanverðum Vestfjörðum og við suðurströnd-
ina, en annars staðar hægari. Sunnan- og aústanlands var rígning,
en súld víða norðanlands. Á norðanverðum Vestfjörðum ver snjó-
koma.
SPÁ: Austan- og norð-austanátt — vfða allhvöss eða hvöss um
vestanvert iandíð, en mun hægari í Öðrum landshlutum. Sunnan-
og austantands verður víða súld eða rigning, en slydda eða snjó-
koma vestanlands, annars staðar úrkomulítið. Hiti 4—6 stig sunnan-
og austanlands, en um frostmark vestan til á landinu.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á LAUQARDAG OG SUNNUDAG: Norö-austanátt og
snjókoma eða slydda á Vestfjörðum, en austan- eða suð-austan-
átt og víða ringing í öðrum landshlutum, einkum þó um sunnanvert
landiö. Hiti 4—6 stig syðst á landinu, 1 -3 stig noröanlands en frost
norðantil á Vestfjörðum.
1 o Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ÍAKN:
PÉUÍOdN,
^ Vindörin sý
o Heiðskírt
a
Á
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * #
ý Skúrir
— Poka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OQ Mistur
—Skafrenningur
Alskýjað
* * * * Snjókoma
* * *
Þrumuveður
m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hlti v*Aur Akureyrl 1 >1*10080 Raykjavfk t tkýjaá
Bargen 1 Mttakýjað
Halsinkl +8 akýjað
Jan Mayen +17 snjóél
Kaupmannah. 2 ikýjaft
Narssarsauaq +9 skýjaft
Nuuk +10 skafrennlngur
Osló +11 léttskýjaft
Stokkhólmur +6 hélfakýjað
Þórsþöfn 8 rlgning
Algarve 18 léttskýjaft
Amsterdam 11 þokumftða
Aþena 17 akýjaft
Barcekma 17 rykmlstur
Berlfn 2 rigning
Chicago +7 skýjaft
Feneyjar 7 þokumóða
Frankfurt 11 rfgnlng
Glasgow 8 rtgnlng
Hamborg 2 súld
Las Palmas 27 hal&skfrt
London 13 rlgning
LosAngeles 10 skúr
Lúxemborg 10 rignlng
Madrfd 12 þokumftða
Malaga 20 Mttskýjað
MaHorca 19 akýjaft
Montreal +10 léttekýjaft
NewYork vantar
Parft 13 rignlng
Róm 17 þokumftða
Vfn 0 rigning
Washington 3 skýjað
Wlnnlpeg +1« Skýjaft
Valencfa 20 akýjaft
Sjávarafurðadeild SÍS:
Flytur út 650 tonn
af laxi að verðmæti
180 milljónir kr.
SJÁVARAFURÐADEILD SÍS
áætlar að flytja út 650 tonn af
laxi á næsta ári, að nettóverð-
mæti um 180 milljónir kr. Á
þessu ári er verðmæti útflutts
lax á vegum deildarinnar um
50 milljónir kr., og er deildin
stærsti útflutjandi á laxi frá
landinu, að því er fram kemur
í fréttatilkynningu frá sjávaraf-
urðadeOdinni.
Sjávarafurðadeildin flytur um
45 tonn af ferskum laxi með flugi
til Frakklands í þessari viku. Áður
hefur deildin selt 93 tonn af fersk-
um laxi í Frakklands, en þar hefur
aðalmarkaðssvæði deildarinnár
verið fyrir lax síðan útflutningur
hófst í maí síðastliðnum.
Laxinn fer á markað í Bou-
logne, sem er aðaldreifíngarstöð
fyrir lax í Frakklandi. Laxinn sem
fór í þessari viku er seldur óslægð-
ur og er hann frá tveimur stöðvum,
íslandslaxi hf. við Grindavík og
INNLENT
Snælaxi hf. í Grundarfírði. Sam-
kvæmt frétt sjávarafurðadeildar
er markaðsverðið 271 króna fob
að meðaltali. Ferskur óslægður lax
er þannig 6—7 sinnum verðmæt-
ari en ferskur þorskur í gámum.
Horfið verði
frá vöru-
gjaldi á kökur
MEIRIHLUTI fjárhags- og við-
skiptanefndar efri deildar hefur
lagt fram breytingartUlögu við
frumvarp til laga um vörugjald
þess efnis að horfið verði frá
álagningu vörugjalds á kökur.
Fyrir þessari breytingu gefur
meirihluti nefndarinnar upp tvær
meginástæður. í fyrsta lagi að
álagning vörugjalds á innlenda
kökuframleiðslu myndi valda erfið-
leikum í innheimtu þar sem t.d.
brauðvörur eru undanþegnar gjald-
inu og kæmu því_ upp margvísleg
tafsöm álitamál. í öðru lagi taldi
meirihluti neftidarinnar sýnt að eftir-
lit með framkvæmdinni yrði mjög
erfítt þar sem gjaldendur eru mjög
margir.
Jólabókasalan
meiri en í fyrra
BÓKASALAN hefur verið heldur
meiri það sem af er jólavertíðar
en í fyrra, að sögn Eyjólfs Sig-
urðssonar, formanns félags
bókaútgefenda. Bókaverslanir
hófu greiðslukortatimabOið fyrr
en venjulega, eða 10. desember,
og gæti það hafa haft áhrif í þá
átt að salan færðist framar í
mánuðinn. Um 30-40% jólabóka
eru greiddar með kreditkortum.
„Það er spuming hvort greiðslukor-
tauppákoman hefur flýtt sölunni
svo einhveiju nemi,“ sagði Eyjólfur
Sigurðsson. „Ef ekki, þá er ljóst
að um vaxandi bókasölu er að ræða
frá því í fyrra. Ég held að þessi
breyting hafi ekki eins mikil áhrif
og margir halda, ég hef það á til-
fínningunni að um aukna sölu sé
að ræða, en það kemur ekki í ljós
fyrr en eftir 18. desember."
Sala bóka í desember hefur verið
um 75-80% af heildarbókasöiu árs-
ins, að sögn Eyjólfs, og þar af hafa
um 60% selst síðustu dagan fyrir
jól. Aðalsöludagurinn undanfarin
ár hefur verið síðasti laugardagur
fyrir jól, en um 700 þúsund bækur
seldust allt árið í fyrra.
Fjórtán sækja um
sterf hitaveitustj óra
Jóhannes Zoéga lætur af störfum
JÓHANNES Zoöga hitaveitu-
stjóri lætur af störfum 1. janúar
næstkomandi fyrir aldurs sakir.
Umsóknarfrestur um starfið er
útrunninn og hafa fjórtán sótt
um starfið.
Jóhannes hóf störf hjá Hitaveitu
Reykjavíkur 1. apríl 1962 en hafði
áður starfað sem fostjóri Land-
smiðjunnar í 10 ár og hjá Hamri
hf.
Umsækjendur um starf hita-
veitustjóra eru: Jón Steinar
Guðmundsson, Gunnar Axel
Sverrisson, Jón Leví Hilmarsson,
Einar Tjörvi Elíasson, Garðar
Sverrisson, Sigurður Bjarki Magn-
ússon, Karl Ragnars, Ami
Gunnarsson, Axel Bjömsson, ólaf-
ur G. Flóvenz, Gísli Júlíusson,
Wilhlem Valberg Steindórsson,
Jónas Elíasson og Gunnar Krist-
insson.
Jóhannes Zoega