Morgunblaðið - 18.12.1987, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
9
BOSS
KEIMUR FYRIR KARLMENN
Clara Laugav.-Clara Kringlu-Sævar Karl
Laugav.-Sævar Karl Kringlu- Hygea-Mirra-
Topptískan-París-Nana-Holts apótek-Snyrti-
vörubúðin Glæsibæ-Rakarastofan Suðurlandsbr.
10-Apótek Keflavíkur-Andorra Hafnarfirði-
Snyrtihöllin Garðabæ-Hilma Húsavík-Vörusal-
an Akureyri-Krisma ísafirði.
VIGDÍS GRIMSDÓTTIR
áritar bók sína
KALDAUÓS
íverslunokkar ídag kl. 16-18.
Sendum áritaöar bækurí póstkröfu.
EYMUNDSSON
Austurstræti 18
PELSINN
Kirkjuhvoli simi 20160
Athugasemdir Ólafs G. Einarssonar
Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
hefur ýmislegt að athuga við efni Staksteina í gær. í athuga-
semd, sem hann hefur sent Morgunblaðinu af því tilefni, óskar
hann sérstaklega eftir því, að hún birtist í Staksteinum. Hér
með er orðið við þeim óskum og birtist athugasemd þingflokks-
formannsins hér á eftir. Jafnframt er í Staksteinum í dag fjallað
lítillega um skrif Tímans um vaxtamál að undanförnu.
Frumkvæðið
var Morgnn-
blaðsins
í alhugasemd þeirri,
sem Ólafur G. Einarsson
sendi Morgunblaðinu i
gær, segir;„Undarieg
þóttí mér útlegging Stak-
steina Morgunblaðsins í
gær á heldur ómerkilegri
frétt, sem eftir okkur
Páli Péturssyni var höfð
dagrinn áður nm að
mögulega þyrfti að halda
þingfundi milli jóla og
nýárs. Ég kemst ekki hjá
að gera hér athugasemd-
ir.
Fyrst er sagt, að það
veki furðu, að formenn
þingflokka skuli í sjálfu
sér teþ'a þetta frásagnar-
vert Sannleikurinn er sá,
að okkur þótti þetta ekk-
ert frásagnarvert. Öðru
máli gegndi með útseiid-
ara Morgunblaðsins.
Honum virtist talsvert
niðri fyrir að fá það
fram, hvort við værum í
raun að hugsa um fundi
milli jóla og nýárs. Frum-
kvæðið að fréttinni var
þvi Morgunblaðsins en
ekki okkar þingflokks-
formanna.
Skýringin á áhuga
Morgunblaðsins að fá
fram svör okkar við
spuraingunni er nú kom-
in í ljós:
1. Morgunblaðið
þurfti að fá tækifæri til
að lýsa yfir furðu sinni
á, að þingflokksformenn-
irnir skyldu te\ja þetta
frétt (sem þeir ekki
töldu).
2. Morgunblaðið
þurfti að koma því að,
að raunveruleg ástæða
fyrir svörum okkar væri
sú, að við þyrftum að
koma á framfæri þeirri
hótun til þingmanna, að
ef þeir ekki væru liprir
við afgreiðslu mála, yrði
þeim refsað með funda-
höldum milli jóla og
nýárs. Þessi speki er al-
gjörlega kokkuð á
Morgunblaðinu.
3. Siðan talar svo
Morgunblaðið um, að við-
horf okkar þingmann-
anna séu langt á eftir
tímanum, raunar spura-
ing hversu langt við
séum komnir inn í 20.
öldina. Þar með hefur
Morgunblaðið búið til
frétt og útskýrt, en eign-
ar öðrum.
Má ég svo að lokum
koma þessu að:
Mér sýnist ekkert
sjálfsagðara en halda
þingfundi milli jóla og
nýárs ef ekki tekst að
ljúka afgreiðslu mála
fyrir jól. Ljóst er, að slíkt
kemur sér illa fyrir
ýmsa, en við því er ekk-
ert að gera. Vinnuálag
hefur að visu verið mikið
að undanförau á þing-
menn, en ég sé það á
Morgunblaðinu og veit
að það er skoðun
margra, að þingmönnum
sé það rétt mátulegt að
alrila nú einu sinni dálitlu
vinnuframlagi. Vinnan
þjaki þá ekki svo nyög
ella.
En m.a.o. hefur Morg-
unblaðið nokkra samúð
með starfsfólki Alþingis?
Álagið á þann hóp er
meira en á nokkurri ann-
arri skrifstofu og illt til
þess að vita, ef það fær
ekki notið jólahelgar eða
venjulegra vinnudaga
fram að áramótum.
Og svo að lokum, kæri
Matthías og Styrmir. Má
ég biðja ykkur að birta
þessa athugasemd á góð-
um stað, ekki á siðu 39
eins og um daginn, þegar
ég þurfti að gera athuga-
semd við frétt á siðu 2 i
blaðinu. Hvemig væri að
birta þetta i Stakstein-
um? Þeir eru mikið
lesnir.
Gaman væri svo að
vita hvað Morgunblaðið
hefði sagt ef svarið við
spurningu blaðsins hefði
verið, að fundir milli jóla
og nýárs kæmu ekki til
greina. Hefðu viðbrögð
blaðsins ekki orðið hin
sömu við því svari og því
einu gilt hveiju við svör-
uðum?
Svo óska ég ykkur
gleðilegra jóla. Vonandi
reynist spölurinn frá
Reynimel eða Marbakka
ykkur ekki erfiður í vinn-
una milli jóla og nýárs.
Sumir eiga lengri leið en
láta sig samt hafa það.
Með vinsemd,
Ólafur G. Einarsson."
Eru vextir
of háir?
Tíminn hefur að und-
anförau fjallað nokkuð
um vexti og telur þá of
háa um þessar mundir. f
einum af ritstjórnardálk-
um blaðsins i gær segir
mju: „Núna síðustu dag-
ana hafa verið að heyrast
alvarlegar aðvaranir frá
ýmsum frammámönnum
í islenzku atvinnulifi
vegna þess hve vextir og
annar Qármagnskostn-
aður er farinn að hækka
gífurlega. Svo er
skemmst af að segja að
fjármagnskostnaðurinn
er orðinn svo hár, að það
stefnir i hreinan voða hjá
fyrirtælgunum og Jjóst
er, að fjöldi þeirra stefnir
ekki í neitt annað en
hreint gjaldþrot, ef svo
heldur áfram sem nú
stefnir. Hér er (jóslega
hið alvarlegasta mál á
ferðinni, sem ekki fer á
milli mála að taka verður
á . . . Nú verður hvað
sem það kostar að draga
úr þenslunni og lækka
vextina. Hér þarf hvorki
meira né minna en þjóð-
arátak. Annars er voðinn
vís.“
Það er rétt hjá Timan-
um, að vextir eru háir
hér á fslandi nú. En það
er önnur hlið á þessu
máli. Hvað íim hagsmuni
sparifjáreigenda?
Verðkr.
1.845,'
stgr.
VALHUSGOGN
Ármúla 8, sími - 82275.
(MBO)
VASATÖLVUR