Morgunblaðið - 18.12.1987, Síða 11

Morgunblaðið - 18.12.1987, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987 11 MANNLIF Á MIÐÖLDUM Békmenntir Erlendur Jónsson Bjarni Guðnason: SÓLSTAFIR. Skáldsaga. 226 bls. Svart á hvitu. Reykjavik, 1987. Bjami Guðnason er að ýmsu kunnur — öðru en skáldsagnaritun. Sólstafir er því bók sem kemur á óvart. Þó er ekki hægt að segja að Bjami færi sig langt frá sérgrein sinni. Hann er prófessor i bókmennt- um og sem slikur handgenginn miðöldunum. Sólstafir gerast i Evr- ópu á miðöldum þegar klerkaveldi drottnar öðm ofar og kirkjan og trúin setja mark sitt á daglegt líf. Trúin! — ætli við mundum ekki allt eins kalla það hjátrú. Kristnin fól ekki í sér kærleiksboðskap eins og nú. Kirkjan táknaði fyrst og fremst vald, ofurvald. Bjami er ekki fyrsti fræðimaður- inn sem klæðir fræði sin svona í skáldskaparbúning. Ég minni á Eld- vígsluna sem Jónas Kristjánsson sendi frá sér fyrir nokkmm ámm. Hér er þó um tvö gerólik skáldverk að ræða. Stundum er sagt að kennari kunni of mikið og kemur mér það i hug við lestur þessarar skáldsögu. 'Hún er dálitið strembin aflestrar, því er hreint ekki að neita. Ástæðuna tel ég öðm fremur þá að höfundinum hafí láðst að setja sig í spor venju- legs lesanda sem á vitanlega erfiðara með að hverfa fyrirvaralaust aftur i rökkur löngu liðinna alda en pró- fessor í miðaldafræðum. Bjami Guðnason byggir sögu sína ekki upp eins og hefðbundið sögu- legt eða epískt skáldverk heldur vinnur hann verkið upp líkar því sem hann væri að setja saman nútima- sögu, samtöl em til að mynda mörg og hraði í frásögn. Vissulega er margt jákvætt um Sólstafí að segja. Samtölin em viða hnyttin, skopskyn höfundar fer ekki framhjá neinum, stíllinn er sem heild liflegur, málið vandað og blæbrigða- rikt, og að minum dómi hæfilega fymt; stundum dálitið léttúðugt. Og svipmót persóna skemmtilega ýkt. Þessir góðu kostir njóta sín þó varla sem skyldi. Gmnnurinn er ein- hvern veginn ekki nógu stöðugur; höfundurinn er of ákafur, fer svo geyst að manni getur reynst erfítt Nauðgað Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Már Kristjónsson: Konur og völd. Reykjavíkursaga. Útg. Skjaldborg 1987 Á kápusíðu segir að í sögunni sé fjallað á hispurslausan hátt um Kerf- ið, sem allir vita um, en enginn þekki til hlítar. ..ástalífið sem frá sé greint sé ekki í miklu samræmi við framtí- ðardrauma saklausra stúlkna. Stundum er alveg bráðnauðsyn- legt að fá leiðsögn á borð við þessa. Ef ég hefði til að mynda ekki lesið þessi orð á kápunni, hefði ekki verið vinnandi vegur fyrir mig að fá botn í um hvað þessi bók snýst. Ég veit þó ekki enn til hvers hún er skrifuð né hveijir ættu að hafa af henni gagn, og það er erfítt að sjá hverjir ættu að hafa gaman af henni. Sennilega höfundurinn þó. Hér em allsráðandi einhvers konar órar úr kolli höfundar. Gott og vel. Allar bækur em það að einhveiju leyti. Og geta verið ágætar fyrir sinn hatt. En sem betur fer em bækur oft ágætir órar og hafa í sér upp- haf, samfellu, niðurlag. Eða þetta er stokkað upp og allt úr lagi fært. Það getur flest átt rétt á sér, svo fremi menn kunni til verka. En því er ekki fyrir að fara hér. Það er meira en hugsanlegt að einhveijir mér glöggari geti lesið út Bjarni Guðnason að fylgja honum eftir í hraða frá- sagnarinnar. Okkur íslendingum ættu miðald- imar að vera öðmm fremur hug- stæðar. Á miðöldum byggðist landið. Og á miðöldum urðu til allar okkar »fornbókmenntir«. Á meginlandi Evrópu féll lífið í annars konar farveg. Þar vom ekki færðar í letur bókmenntir í líkingu við íslendingasögur; en þeim mun meira byggt; stórkirkjur og kastal- ar. Og þar var sprottinn upp vísir að borgum með tilheyrandi borgar- lífí. Persónumar í Sólstöfum geta bmgðið sér á krá svo dæmi sé tek- ið. Frá Evrópu þágum við riddara- sögumar. Einhvers staðar segir þar frá Blánkiflúr, sem var drottning Flóres konungs í Frakklandi, minnir mig. í Sólstöfum er júngfrú sem heitir Blánkifíúr og leikur þar ærið hlutverk. Þar er og sveinninn Pétur, sem ratar í marga raun. Og þar er biskup og rannsóknardómari: per- sónur sem miðaldamaðurinn hafði veður af svo ekki sé meira sagt! Og þar er lika sölumaður helgigripa, og ' græðir vel. Þó Sólstafír sé vel skrifuð saga er hún sem heild of framandi til að maður geti notið hennar, að minnsta kosti við fyrsta lestur. Með rólegri stn og ýtarlegri leiðsögn höfundar hefði lesandanum veist auðveldara að átta sig f þeirri Qarlægu veröld sem þar er bmgðið fyrir sjónir og skilið betur persónur sögunnar, orð þeirra og athafnir. Og þekking höf- undar hefði komist betur til skila. á pappír Már Kristjónsson úr þessu sögu kannski bara ádeilu um kerfið. Mér fannst þessi saga aðallega leiðindaþmgl, trúarsukk og uppáferðir. Ekki þannig að hneyksli vegna efnisins, heldur hvemig það er meðhöndlað. Það er eins og mig minni, að ég hafí orðið að lesa bók eftir þennan höfund fyrir nokkmm ámm. Haldi hann áfram framleiðslu mun ég biðj- ast undan þeim leiðindum. JÓLAMYND Fyrsta jólamynd Regnbogans 1987 AÐ TJALDABAKI „The Fourth protocol“ EF „FJÓRÐA SAMKOMULAGIÐ" ER BROTIÐ ER EKKI UM NEINA AÐVÖRUN AÐ RÆÐA? AÐEINS SPRENGING..." - Æsispennandi njósnamynd, byggð á sögu eftir spennusagnahöfundinn fræga FREDERIC FORSYTH (DAGUR SJAKALANS), með úrvalsleikurum í óskahlutverkum: MICHAEL CAINE - PIERCE BROSMAN. Leikstjóri JOHN MACKENZIE (Long Good Friday). Sýnd kl. 3 - 6.30 - 9 og 11.15. „Það er ekki langt síðan skáktölv- ur voru taldar einföld leikföng sem gætu aldrei veitt skákmönn- um verðuga keppni. Ör tækni- þróun og framfarir í forritun hafa svo sannarlega breytt því. Nútíma skáktölvur eru viður- kenndar í heimi skáklistarinnar og eru ekki aðeins notaðar til að kynna nýliðum undirstöðuatriði; þær eru ekki síður mikilvægar við áframhaldandi þjálfun viður- kenndra skákmanna." VERÐ FRÁ 3.600 kr. (stgr.) Styrkleiki; frá 1400 - 2100 ELO stig Stigstillingar frá 8-32 Minni: 5 k - 32 k Innbyggð klukka OQEEIMn Knrcu iu Ármúla 23, sími 91-687870 Laugavegi 91, sími 91-627870 essemm/siA 17.03
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.