Morgunblaðið - 18.12.1987, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Nýr prófessor
víð læknadeildina
DR. EINARI Stefánssyni augn-
lækni hefur verið veitt prófess-
orsembættið i augnlæknisfræði
við Háskóla íslands. Hann hefur
verið langdvölum vestur í
Bandaríkjunum við nám og
störf. Hefur hann verið aðstoð-
arprófessor við augndeild
Duke-háskólans í borginni Dur-
ham, en sá háskóli er heims-
kunn menntastofnun.
Einar er fæddur 1952, borinn
og bamfæddur Reykvíkingur, son-
ur Stefáns Péturssonar lögfræð-
ings í Landsbankanum og konu
hans, Bryndísar Einardóttur. Kona
Dr. Einar Sigurðsson prófessor
Einars er Bryndís Þórðardóttir
kennari og félagsráðgjafi og eiga
þau fjögur böm.
Einar varð stúdent frá MR vorið
1972, hóf þá nám í læknadeild
Háskóla íslands og lauk þaðan
embættisprófí árið 1978. Meðfram
læknisnáminu stundaði hann nám
í stærðfræði og eðlisfræði við
raunvísindadeildina í tvo vetur. Að
loknum störfum hér heima á
kandidatsári hvarf hann til frekara
náms í Bandaríkjunum. Hann inn-
ritaðist til náms í lífeðlisfræðideild
Duke-háskólans í Durham og lagði
stund á lífeðlisfræði augans næstu
tvö árin, en að þeim loknum árið
1981 varði hann doktorsritgerð um
lífeðlisfræði augans. Afram hélt
hann námi við Duke-háskólann
næsta ár. Hóf hann þá nám í augn-
læknisfræði við augndeild háskól-
ans. Því sémámi lauk hann árið
1984.
Á næsta ári hóf Einar störf hjá
heilbrigðisstofnun Bandaríkja-
stjómar í Washington, en hélt aftur
til starfa við Duke-háskólann.
Hann hefur starfað við augndeild-
ina þar síðan og var í ársbyijun
1987 gerður að aðstoðarprófessor
við deildina.
Á náms- og starfsferli sínum
hefur Einar hlotið margvíslegavið-
urkenningu. Hefur hann hlotið
ijölmarga styrki til náms og vís-
indarannsókna. Eftir hann liggur
mikill fjöldi vísindalegra ritgerða á
sviði augnlæknisfræðinnar, sem
hann ýmist hefur unnið að sjálf-
stætt eða í félagi við bandaríska
augnlækna og vísindamenn, en
meðal þeirra em margir hinna
kunnustu augnlækna þar vestra.
Framtíð
Tívolís-
ins ræðst í
ársbyrjun
„ÉG GET ekkert um það sagt
nú hvort forráðamenn skemmti-
garðsins Tívolí í Hveragerði
óskar eftir greiðslustöðvun eða
gjaldþrotaskiptum, en fyrirtækið
á vissulega í erfiðleikum," sagði
Ólafur Ragnarsson hrl., einn eig-
enda fyrirtækisins.
Tívolíinu var lokað fyrir nokkru
að kröfu tollstjóra, þar sem fýrir-
tækið hafði ekki staðið skil á
söluskatti. Ólafur sagði að eigend-
umir þyrftu að taka ákvörðun um
framtíð fyrirtækisins og það yrði
að öllum líkindum gert strax í byij-
un næsta árs.
Blönduós:
Kveikt á
jólatrénu
frá Moss
Blönduósi.
ÞAÐ dylst engum að jólin nálg-
ast óðfluga og fyrir okkur
Blönduósinga er einn þáttur í
jólaundirbúningum ómissandi,
en það er þegar kveikt eru ljósin
á jólatrénu.
Jólatréð er gjöf frá Moss, vinabæ
Blönduóss í Noregi, og var það að
þessu sinni sett upp við nýju kirkj-
una og voru ljósin tendruð sl.
sunnudag að viðstöddu Qölmenni.
Það var Aðalbjörg Ingvarsdóttir
sem afhenti tréð fýrir hönd gef-
enda, en Haukur Sigurðsson sveit-
arstjóri veitti trénu mótttöku fyrir
hönd Blönduósinga. Kirkjukórinn
söng jólasálma undir stjóm Sigurð-
ar Daníelssonar og jólasveinamir
úr Langadalsfjalli komu í heimsókn.
— Jón Sig.
Jólakveðjur
til Alaborgar
JÓLAKVEÐJUR til íslendinga í
Álaborg verða lesnar f íslend-
ingaútvarpinu þar á Þorláks-
messu sendanda að kostnaðar-
lausu.
Kveðjumar verða að hafa borist
fyrir 20. desember. Kveðjumar
skulu vera merktar: Jólakveðjur —
Útvarp, c.o. Unnar Thordarson,
Hemingvej 13 — 126, 9220 Aal-
borg Ást, Danmark.