Morgunblaðið - 18.12.1987, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Fyrstu geisla-
diskamir með
íslenskum og
erlendum
flytjendum
æðri tónlistar
Á hljómplötu
(valdir kaflar):
Pol.0010
Á tveimur
geisladiskum:
Pol. 008-9
Saga
Pólýfónkórsins
í þrjátíu ár
Fallegbók, spennandi lesning
og merk heimild. Saga Pólýfón-
kórsins í 30 ár og umdeilds
stjómanda hans. Hvert var tak-
mark hans, hver voru Iaun
hans og hefur hann „keypt sér
sess með listamönnum?“
JÓLAGJAFIR
MEÐ
VARANLEGT
GILDI:
Frægasta verk Handels, Messías, ætti að vera í plötu-
safninu á hveiju heimili. Þessar nýjustu útgáfur
Pólýfónkórsins eru í sérflokki. Gildi þeirra er varan-
legt og þær verða safngripir er tímar líða.
POLYFONKORINN
HIK segir
upp kjara-
samningum
HIÐ íslenska kennarafélag hefur
sagt upp kjarasamningum sínum
við ríkisvaldið og tekur uppsögn-
in gildi frá og með 1. janúar
næstkomandi.
í samþykkt fulltrúaráðs HÍK um
uppsögnina er minnt á að ákvæði
um starfskjaranefnd í síðustu kjara-
samningum og verkefni hennar var
forsenda þess að félagsmenn sam-
þykktu kjarasamning aðila frá 30.
mars síðastliðnum. Síðan segir:
„Stjóm félagsins og fulltrúaráð litu
þá svo á að af hálfu stjómvalda
væri um að ræða loforð um endur-
bætt og réttlátt launakerfi fyrir
kennara, launakerfi sem tæki mið
af þeirri starfstilhögun sem sam-
félagið krefur kennara um. Fulltrú-
aráðið treystir því að fjármálaráð-
herra gangi til samninga við HÍK
með það að leiðarljósi að þessi kerf-
isbreyting verði nú til lykta leidd á
viðunandi hátt“.
Starfskjaranefnd lauk störfum
fyrir nokkmm vikum síðan. í kjara-
samningi aðila er gert ráð fyrir
viðræðum í framhaldi af niðurstöð-
um hennar og heimild fyrir HÍK
að segja upp samningnum, sem gilti
til ársloka 1988.
Framsóknarkonur:
Lýsa
áhyggjum
vegnaverð-
hækkana
LANDSSAMBAND framsóknar-
kvenna lýsir áhyggjum sínum
vegna fyrirhugaðra hækkana á
verði hollustuvara svo sem ávöxt-
um, grænmeti og fiski vegna
álagningar söluskatts.
Stjóm LFK telur að hækkun á
verði þessara matvara samtýmist
ekki stefnu ríkisstjómarinnar um
mótun manneldis- og neyslustefnu
sem verið hefur eitt helsta baráttu-
mál Landssambands framsóknar-
kvenna. Landssambandið bendir á
þá leið að hluti af tekjum vegna
söluskatts verði notaður til niður-
greiðslu á verði hollustuvara.
(Fréttatilkynning.)
HVÍTA RÓSIN
Inge Scholl
Ásamt fáeinum vinum dreifðu systkinin Hans og Sophie
Scholl flugritum til námsmanna í Suður - Þýskalandi á árun-
um 1942-43, þar semhvatt vartilandspyrnugegnstjórnnas-
ista. Þau guldu fyrir með lífi sínu: 18. febrúar 1943 féllu þau
í hendur Gestapo, og voru líflátin með fallöxi fjórum dögum
síðar.
"Hvíta rósin" var dulnefni andspyrnuhópsins. Inge Scholl
rekur þessa uggvænlegu atburði af áhrifaríkri næmni. Einar
Heimisson þýddi bókina en Helgi Hálfdanárson þýddi
ljóðin.
Bókaúfgáfa
/V1ENNING4RSJÓÐS
SKÁLHOLTSSTÍG 7« REYKJAVlK • SlMI 621822
Q
O
ö
öd
O'
W
Þd
pu