Morgunblaðið - 18.12.1987, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
21
Sakamál endurmetið
Békmenntir
Erlendur Jónsson
Ásgeir Jakobsson: FANGINN OG
DOMARINN. Þáttur af Sigurði
skurði og Skúla sýslumanni. 240
bls. Skuggsjá. 1986.
»Hann drap ekki mann,« segir
Ásgeir Jakobsson. Sigurður skurður
var saklaus að því sem á hann var
borið. Sigurður varð eigi að síður
landsfrægur vegna málsins. En það
var ekki vegna sjálfs sín: »Yfírvöld-
in varðaði ekkert um Sigurð, nema
til að nota mál hans ■...«
Ásgeir Jakobsson fer hér ná-
kvæmlega ofan í Skúlamál að því
er Sigurð varðar, meintan bana-
mann Salómons Jónssonar. Hvatinn
að því að Ásgeir tekur sér fyrir
hendur að rannsaka málið er sá
fyrst og fremst að hann telur að
hallað hafí verið réttu máli, strax
í upphafí og síðan árin í gegnum,
vegna þeirrar samúðar og lýðhylli
sem Skúli Thoroddsen naut í and-
ófí sínu gegn landshöfðingjavald-
inu. »Skúli Thoroddsen kastaði
höndum til rannsóknar sinnar
vegna þiýstings frá einróma al-
menningsáliti og vegna anna og'
krankleika.«
Ásgeir bendir á að viðumefnið
skurður hafí strax vakið tortiyggni
meðal almennings, þótt benda til
að persónan væri skuggaleg og til
alls vís. En skurður hafí Sigurður
að öllum líkindum verið kallaður
vegna þess að hann hafí verið af-
kastamikill við hvalskurð. Sigurður
hafí verið ofsafenginn og hávær
drukkinn og þá skotið fólki skelk í
bringu. Hafí hann þá átt til að vaða
hús úr húsi með hávaða og fyrir-
gangi. En ofbeldi / verki hafí lítt á
hann sannast um ævina.
Salómon telur Ásgeir, og hefur
þá meðal annars læknisvottorð að
leiðarljósi, að sofnað hafí og síðan
látist uppi á heiði vegna ölvunar,
þreytu og kulda. Líkskoðun fór
ekki fram þegar í stað »enda bend-
ir útlit sáranna ásamt þeim
Ásgeir Jakobsson
músaskít, sem er í kring um þau,
til þess, að þau séu eftir mýs,«
stendur i læknisvottorði.
Sigurði var sleppt eftir langvar-
andi yfirheyrslur hjá Skúla sýslu-
manni og hélt þá til síns heima.
En þá báðu nágrannar yfírvaldið
að losa sig við hann úr byggðarlag-
inu. Ekki bætti það úr skák fyrir
sakbomingnum.
í þeim heiftarlegu og langvinnu
deilum, sem Skúlamál ollu, snerist
almenningsálitið um land allt á sveif
með Skúl,a. Því fylgdi að Sigurður
var óyggjandi talinn manndrápari
þó svo að ekkert sannaðist á hann.
Sama máli gegndi um Lárus H.
Bjamason sem sendur var vestur
til að rannsaka embættisfærslu
sýslumanns, hans hlutur varð að
sama skapi neikvæður. Ásgeir segir
að hann hafí verið skapofsi, en eng-
inn refur.
Lárus tók allt málið upp að nýju
eftir að hann kom vestur, yfír-
heyrði þá Sigurð og aðra sem talið
var að veitt gætu upplýsingar um
málið. Ekkert kom þó nýtt fram í
þeirri rannsókn sem benti til að
Sigurður væri banamaður Saló-
mons.
Þá hefur Ásgeir athugað stað-
hætti alla og eins kvatt til menn
sem nákunnugir em á slóðum þeim
þar sem atburðir gerðust. Rekur
hann þar með leið þá sem honum
þykir sennilegast að Salómon hafí
gengið og útskýrir hvemig á því
stóð að hann hvarf skyndilega sjón-
um Sigurðar sem gekk nokkum
spöl á eftir honum. Salómon hafí
þá hratað fram af heiðarbrún og
niður eftir hjamskafli miklum sem
þar muni háfa legið; þar sem hann
síðan fannst látinn.
Skúlamál hurfu ekki ofan í gröf-
ina með sýslumanni og sakbomingi.
Theodora, kona Skúla, lifði mann
sinn, og lifði lengi og bjó að orðstír
manns síns. Afkomendur Skúla
urðu þjóðkunnir menn sumir hveij-
ir, meðal annars vegna þátttöku í
stjómmálum. Nafn Skúla, andófs-
mannsins gegn konungsvaldinu,
kom því upp annað kastið og tengd-
ist þá, óbeint, stjómmálabaráttunni
á líðandi stund. Hinn góði málstað-
ur Skúla varð með tímanum
óhagganleg söguleg staðreynd, ekki
hvað síst þar eð sýnt þótti að hann
hefði verið flaemdur frá embætti
af pólitískum ástæðum.
En jafnvel réttlætismál geta haft
ýmsar hliðar. Og kviðdómur al-
menningsálitsins getur verið skeik-
ull eins og aðrir dómar. Ásgeir
Jakobsson leitast hér með við að
fínna málsbætur þeim manninum
sem verst varð úti í moldviðri því
sem þyrlaðist upp þegar hinir
áhrifamiklu landstólpar tókust á
fyrir hundrað ámm. Hlutlaust telst
ritið ekki fremur en annað sem
hingað til hefur verið skrifað um
Skúlamál. Og seint verður sakleysi
Sigurðar sannað úr því sem komið
er — fremur en sekt hans forðum!
En bókin er byggð upp á haldgóð-
um og ýtarlegum rannsóknum, er
vel skrifuð og varpar nýju ljósi á
málið.
Artemis
SLOPPAR
Opiðídag:
Sætúni 8 kl. 10-13
Kringlunnikl. 10-16
Heimilistæki hf
!af!a^R/ETI 3 KRINGLUNN. - SÆTUN, 8 - SIMI 69 15 00
l/A Í SOMUftgM*
PHIttPS
Tvær sjónvarpsstöðvar eru barnaleikur
fyrir Philips HQ-VR 6542 myndbandstækið -
tæki sem svarar kröfum nútímans.
• Þráðlaus fjarstýring
• Sjálvirkur stöðva leitari
• 16 stöðva forval
• Upptökuminni í 14 daga
fyrir 4 skráningar
• Skyndiupptaka óháð
upptökuminni
• Myndleitari i báðar áttir
• Frysting á ramma
• Og ótal fleiri möguleikar
sem aðeins Philips kann tökin á
• Verðið kemur pér á óvart.
BIRGIR