Morgunblaðið - 18.12.1987, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Matthías Á. Mathiesen um flugstöðina:
Niðurskurður 1983
var óraunhæfur
— stækkun nauðsynleg og eðlileg
Hér fer á eftir í heild ræða
sú sem Matthías Á. Mathiesen,
samgöngnráðherra, flutti við
umræðu á Alþingi í gær um fiug-
stöðvarmálið:
Allt frá upphafí framkvæmda við
byggingu nýrrar flugstöðvar á
Keflavíkurflugvelli hafa heyrst
gagnrýnisraddir um stöðina. Eink-
um hafa það verið óánægðir vinstri
menn sem virðast syrgja það einna
helst að með flugstöðinni verður í
fyrsta skipti fullur aðskilnaður milli
almennrar umferðar um flugvöllinn
og starfsemi vamarliðsins. Aðstæð-
umar fyrir opnun flugstöðvarinnar
gáfu þeim tækifæri til að draga upp
ranga mynd af sambýli vamarliðs-
ins og þjóðarinnar. Eftir aðskilnað
almennrar flugumferðar og starf-
semi vamarliðsins verður ekki unnt
að skírskota til þeirrar röngu mynd-
ar lengur í áróðri svokallaðra
„hemámsandstæðinga". Þessu
fagna vitaskuld allir aðrir en þeir
sem höfðu pólitíska hagsmuni af
óbreyttu ástandi.
Eftir að í ljós kom á síðastliðnu
vori að kostnaður við flugstöðina
var kominn fram úr upphaflegri
áætlun var Ríkisendurskoðun falið
að gera úttekt á byggingarkostnaði
og öðrum þáttum í sambandi við
framkvæmdina. Ein helsta niður-
staða þeirrar könnunar er sú að það
markmið hafi náðst að byggja flug-
stöð sem uppfyllir allar eðlilegar
starfrænar og útlitslegar kröfur.
Þetta er mergur málsins og það
tókst á aðeins 4 árum. Það er á
hinn bóginn gagnrýnt f skýrslu
Ríkisendurskoðunar hve mikill
munur er á raunkostnaði og kostn-
aðaráætlun 1981 og það er rót
þeirrar umræðu sem nú á sér stað
um málið.
Umræðan snýst fyrst og fremst
um framangreindan mismun en það
hefur einnig verið vikið að öðrum
þáttum eins og þeim, að flugstöðin
sé alltof stór, of dýr og jafnvel að
ekki hafi legið á að taka hana í
notkun sL vor.
Þá hefur komið fram gagnrýni á
lántöku yfirstandandi árs sem voru
'umfram áætlanir í upphafí ársins.
Það fer ekki hjá því að þessi atriði
komi til umQöllunar við verklok svo
viðamikils mannvirkis og eðlilegt
að gerð sé úttekt á því hvemig stað-
ið hefur verið að verki á öllum
sviðum framkvæmda og ijármögn-
unar.
Upphaf framkvæmda
við flugstöðina
Ég mun hér á eftir lýsa framan-
greindum þáttum eins og þeir koma
mér fyrir sjónir og vík þá að sjálf-
sögðu fyrst að upphafí málsins.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar er
byggð eftir teikningum og áætlun-
um sem í öllum aðalatriðum voru
til staðar þegar á árinu 1980 og
unnið hafði verið að undirbúningi
og áætlanagerð allt frá árinu 1968.
Fyrir þrýsting ýmissa stjómarliða
á árunum 1980—83 var fyrstu
framkvæmdaáætlun breytt og fyr-
irhuguð flugstöð minnkuð frá því
sem ráðgert hafði verið. Kostnað-
aráætlun upphaflegrar byggingar
hljóðaði upp á 57 millj. Banda-
ríkjadala en endurskoðuð kostnað-
aráætlun dags. 13. mars 1981, var
að fjárhæð 42 millj. Bandarflqadala.
Hvort tveggja er miðað við verðlag
í janúar 1981 og 15% verðbólgu á
verktímanum sem var áætlaður 2V2
ár.
Svo sem alkunna er var ekkert
aðhafst í málinu á árunum 1981 til
1983 er ríkisstjóm Steingríms Her-
mannssonar tók við völdum og Geir
Hallgrímsson varð utanríkisráð-
herra. Sú töf á framkvæmdum hafði
vissulega verið til óþurftar af ýms-
um ástæðum og réð henni pólitísk
þröngsýni manna sem ekki aðeins
vildu koma í veg fyrir smíði nýrrar
flugstöðvar heldur héldu uppi um
líkt leyti sérstakri krossför gegn
Flugleiðum. En á þessum tíma áttu
Flugleiðir í tímabundnum örðug-
leikum vegna samdráttar í Atlants-
hafsfluginu.
Sem dæmi um þröngsýni þá sem
orsakaði framangreinda töf má
geta þess að einn helsti andstæðing-
ur framkvæmda við flugstöðina,
Ólafur Ragnar Grímsson, taldi á
árinu 1982 í séráliti nefndar um
flugstöðvarmálið, að framtíðar-
þróun farþegafjölda um Keflavíkur-
flugvöll yrði með þeim hætti að
nægilegt væri að miða bygginguna
við 300 þúsund farþega á ári sem
„algert hámark á þessum áratug",
eins og hann sjálfur komst að orði,
en nær væri þó að áætla að far-
þegafjöldinn yrði aðeins um 200
þúsund farþegar á ári hveiju. I
þessu sama séráliti taldi Ólafur
Ragnar útilokað annað en að það
tæki um 10—16 ár að reisa flugstöð
eins og þá sem nú hefur risið á 4
árum.
í ljósi raunverulegrar þróunar
farþegafjöldans um flugvöllinn eru
þessi orð hjákátleg. Aðeins fimm
árum síðar er farþegafjöldinn orð-
inn um 750 þúsund farþegar á ári
og eru þó þijú ár eftir af áratugn-
um.
Það ber að skoða þann niður-
skurð sem var ákveðinn á flugstöð-
inni í tíð ríkisstjómarinnar
1980—83 í Ijósi slíks þrýstings frá
Alþýðubandalaginu. Meðal atriða í
niðurskurðinum voru þessi:
— Reykskynjamar voru felldir
niður. __
— Ýmsum viðvömnarkerfum var
sleppt.
— Þijár landgöngubrýr vora
felldar niður, landgangar minnkaðir
og viðbótarlandgangi sleppt.
— Snjóbræðsla var felld niður.
Að auki vora framkvæmdir utan-
húss minnkaðar og ákveðið að ljúka
ekki frágangi á vissum svæðum.
Breytingar á upp-
haflegri áætlun
Það kom hins vegar snemma í
ljós þegar framkvæmdir hófust á
grandvelli samkomulags stjómar-
flokkanna frá 1983 um byggingu
flugstöðvar að þessi niðurskurður
var óraunhæfur.
Vegna framangreinds vora tekn-
ar ákvarðanir á áranum 1983—85
um viðbætur sem voru nauðsynleg-
ar til þess að flugstöðm kæmi að
tilætluðum notum. Einnig miðuðu
viðbætumar að því að unnt yrði að
auka tekjur af flugstöðinni og
styrkja þannig rekstrarlegar undir-
stöður byggingamnar en afrakstr-
inum af henni var frá upphafi ætlað
að standa undir þeim lánum sem
tekin voru til framkvæmdanna.
Samkvæmt skýrslu Ríkisendur-
skoðunar er óumdeilanlegt að
ákvarðanir um þessar viðbætur
vora teknar af þar til bæram stjóm-
völdum. Samkvæmt lögum nr.
45/1984 um byggingu flugstöðvar
á Keflavíkurflugvelli var utanríkis-
ráðherra falið að fara með yfirstjóm
byggingar flugstöðvarinnar og
tengdra mannvirkja. í skýrslu
Ríkisendurskoðunar um byggingu
flugstöðvarinnar kemur fram að í
upphafí hafi verið talið að þessar
viðbætur rúmuðust innan áætlunar
m.a. vegna hagstæðra tilboða og
gengisþróunar á þessum tíma.
í skýrslunni segir ennfremur að
allar umræddar viðbætur „séu til
staðar" og hvað kostnað snerti hafí
flest atriðin byggst á útboðum og
sé hann því eðlilegur.
Meðal atriða sem hér um ræðir
er eftirtalið:
— Stækkun landgangs og land-
gangshúss.
— Stækkun kjallara.
— Landgöngubiýr.
— Snjóbræðslukerfí.
— Ræsibúnaður fyrir flugvélar.
— Skyggni.
— Hússtjómarkerfí.
Auk þess ákváðu Flugleiðir að
flytja flugvélaeldhús sitt úr stöðinni
og því fylgdi gífurlegur kostnaður
vegna endurhönnunar.
Eg var ekki utanríkisráðherra á
þessum tíma en það er skoðun mín
að viðbætumar hafi verið nauðsyn-
legar og átt sér eðlilegar skýringar.
Á þessum tíma lágu fyrir nýjar töl-
ur um þróun farþegafjölda sem
sýndu allt aðra mynd en þá sem
var höfð til hliðsjónar þegar ákveð-
ið var að minnka flugstöðina frá
upphaflegri áætlun á árinu 1981.
Til dæmis um þetta er sú staðreynd
að á byggingartíma flugstöðvarinn-
ar hefur farþegum fjölgað úr 450
þúsund á árinu 1983 í um 750 þús-
und á þessu ári en það er aukning
upp á hvorki meira né minna en
65%.
Ég hygg að óhætt muni að full-
yrða, miðað við þróun umferðar á
undanfömum áram um Keflavíkur-
flugvöll, að þess verði ekki langt
að bíða að talað verði um stækkun
flugstöðvarinnar. Um útlit og gerð
stöðvarinnar geta menn vissulega
haft mismunandi skoðanir.
En ekki verður um það deilt að
með tilkomu hennar hefiir orðið
mikil brejrting til hins betra. Það
er ekki svo lítil landkynning að flug-
stöðin skuli nú vera talin ein sú
besta í Evrópu. Slíkt mun vitaskuld
hafa góð áhrif á ferðamanna-
strauminn til landsins. Þetta era
alit atriði sem skipta máli og menn
verða að hafa í huga
Mismunur raunkostn-
aðar og áætlunar
Eins og ég gat um í upphafi
hefur gagnrýnin á flugstöðina eink-
um beinst að þeim mismun sem er
á kostnaðaráætlun eins og hún var
eftir að byggingin hafði verið skor-
in niður og endanlegum kostnaði
þeirrar flugstöðvar sem nú er risin.
Það era einkum þijár skýringar á
þessum mismun.
í fyrsta lagi er það staðfest í
skýrslu Ríkisendurskoðunar að
framangreindar viðbætur auk ófyr-
irsjáanlegar magnaukningar í
framkvæmdum skýri muninn að
mestu leyti. Viðbætumar einar era
að fjárhæð rúmar 600 milljónir
króna.
í öðru lagi varð gengisþróun afar
óhagstæð framkvæmdinni á síðustu
tveimur áram öndvert við það sem
menn höfðu gert ráð fyrir. Sam-
kvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar
er gengistapið á framlagi Banda-
ríkjamanna um 236 milljónir króna.
Hér er um að ræða misgengi á þró-
un gengis Bandaríkjadals annars
vegar og byggingarvísitölu hins
vegar.
I þriðja lagi varð verðbólgan hér
innanlands meiri á síðari hluta
byggingartímans en talið var þegar
Matthías Á. Mathiesen
framkvæmdir hófust árið 1983.
Rétt er að ræða aðeins nánar
þennan síðastanefnda þátt til að
skýra hve verðbólgan getur skekkt
alla útreikninga og áætlanir um
kostnað við svo stórar framkvæmd-
ir. Eins og ég gat um var upphafleg
áætlun byggingarkostnaðar frá
1981 42 milljónir Bandaríkjadala
en það var á verðlagi ársins 1983
1.174 milljónir króna með áætluð-
um verðhækkunum sem námu 238
milljónum króna. Hækkun kostnað-
ar vegna verðbólgu hér innanlands
reyndist hins vegar 1.162 milljónir
króna en samtals er bókfærður
kostnaður orðinn 2.483 milljónir
króna miðað við upphaflegu áætl-
unina en það þýðir að upphafleg
kostnaðaráætlun jafngildi um 68
milljónum Bandaríkjadala á núver-
andi gengi.
Fjárlagagerð
ársins 1987
Þá vil ég víkja að ijármálum
byggingarinnar á jrfirstandandi ári
en um mitt ár kom fram sú fjárvönt-
un sem er upphaf þeirrar umræðu
sem nú fer fram.
Við fjárlagagerð ársins 1987
gerði byggingamefndin utanríkisr-
áðuenjrtinu og ijárlaga- og hag-
sýslustofnun gerin fyrir áætlaðri
lántökuþörf vegna byggingarinnar
á árinu 1987 að ijárhæð 520 millj-
ónir króna. Það er sú fjárhæð sem
samþykkt var í lánsfjárlögum. Þeg-
ar kom fram á árið 1987 kom í ljós
að þessi fjárhæð dugði engan veg-
inn til að ljúka framkvæmdinni og
að mistök höfðu átt sér stað af
hálfu byggingamefndar við undir-
búning fjárlaga.
Skýringar sem fram hafa komið
á þessu, m.a. í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar, era að miklar magn-
brejrtingar komu fram sem stöfuðu
af vanáætlun í útboðum og einnig
hefur Ríkisendurskoðun bent á önn-
ur mistök við hönnun innréttinga
og hönnunarstjóm. Þá áttu sér
einnig stað mistök í fjárhagsáætlun
ársins varðandi framlag Banda-
ríkjamanna, sem var oftnetið. Til
viðbótar kom ýmis ófyrirséður
kostnaður og gengistap.
Ég vil taka það fram að um leið
og utanríkisráðunejrtinu var kunn-
ugt um þá umframfjárþörf, sem
skapast hafði af framangreindum
ástæðum, var leitað eftir heimild
fyrir bráðabirgðalántöku eins og
fram kemur í bréfi ráðunejrtisins
til íjármálaráðuneytisins hinn 29.
apríl sl. Fyrsttaldi byggingamefnd-
in að umframljárþörfin væri um
480 milljónir króna en síðar kom í
ljós að fjárhæðin sem vantaði var
allmiklu hærri eða um 869 milljónir
krnoa.
Opnunardagnr flug- '
stöðvarinnar
Þá vil ég víkja að fullyrðingum
sem fram hafa komið þess eftiis að
verkinu hafí verið hraðað og það
unnið á einhvem hátt út frá pólitísk-
um sjónarmiðum. Upphaflega var
ætlunin að verkinu yrði lokið á fjór-
um áram og flugstöðin yrði tekin
í notkun í apríl 1987. Gerður var
samningur við Bandaríkjamenn í
ágúst 1983 um að flugstöðin yrði
tilbúin í apríl 1987. Greiðsla á fram-
lagi Bandaríkjamanna var við það
miðuð svo og allir verksamningar
sem síðar vora gerðir.
Þegar framangreindar viðbætur
höfðu verið ákveðnar leitaði bygg-
ingamefndin eftir áliti Almennu
verkfræðistofunnar á því hvort
verktími sá sem ætlaður var fyrir
innréttingar yrði fullnægjandi án
veralegrar aukavinnu og þar með
hvort tímasetningar skv. samningn-
um við Bandaríkjamenn stæðust.
í svari verkfræðistofunnar frá
október 1985 kemur skýrt fram að
verktíminn yrði nægilegur og þar
er einnig lýst þeirri áætlun sem
unnið var eftir á lokastigum verks-
ins og miðaðist við opnun flugstöðv-
arinnar í apríl í vor. Ég tók við
embætti utanríkisráðherra 26. jan-
úar 1986 og í júlí það ár óskaði ég
eftir áliti byggingamefndar um
stöðu framkvæmda með tilliti til
þessarar áætlunar um opnun og í
svari nefndarinnar í september er
staðfest að áætlanir um verklok um
standast. Allar fullyrðingar um
tengsl milli kjördags og opnunar-
dags flugstöðvarinnar era því
ómerkilegur pólitískur áróður.
Margar ástæður hvöttu menn
áfram til að skila verkinu á tilskild-
um tíma. Ástandi gömlu flugstöðv-
arinnar hafði t.d. verið lýst sem
„lífshættulegu" í skýrslu slökkvi-
liðsstjórans á Keflavíkurflugvelli
frá árinu 1982.
Ég hef áður vikið að þróun um-
ferðar um flugvöllinn en gamla
flugstöðin hefði aldrei annað þeirri
umferð sem var um nýju flugstöðina
í sumar. Þá varð opnun flugstöðvar-
innar til þess að tekjur fóra að
koma inn af flugstöðinni en heildar-
telqur af henni á næsta ári era
samtals áætlaðar 625 milljónir
króna.
Með opnun byggingarinnar var
jafnframt komið í veg fyrir að
vaxtakostnaður hlæðist upp á ónot-
að mannvirki en slíkt er því miður
alltof oft raunin um opinberar fram-
kvæmdir á íslandi. Þá má heldur
ekki gleyma þeim kostnaði sem
hlotist hefði af því að breyta öllum
verksamningum vegna byggingar-
innar sem vora miðaðir við framan-
greinda tímasetningu.
Það var því til mikils að vinna
að koma þessar arðbæra fram-
kvæmd í gagnið sem fyrst.
Sérstaða flug-
stöðvajrinnar
I skýrslu Ríkisendurskoðunar um
byggingu flugstöðvarinnar kemur
fram að nauðsjmlegt sé að vanda
betur til áætlanagerðar og annars
undirbúnings við slikar stórfram-
kvæmdir í framtíðinni. Um leið og
ég tek undir nauðsyn þess verð ég
þó að segja að mér virðist sem ekki
hafí gætt nægilegrar sanngimi í
umfjöllun ýmissa aðila um málið
að undanfömu.
Hér er um að ræða framkvæmd
þar sem unnið var eftir sérstakri
samþykkt ríkisstjómar og á grand-
velli sérstakra laga sem sett vora
um bygginguna og gerði ráð fyrri
sérstakri fjármögnun hennar.
í Ijósi framangreinds tel ég það
miður að í kringum málið hefur
verið þyrlað upp pólitísku moldviðri
þar sem tilgangurinn virðist vera
sá að sverta alla þá sem að verkinu
hafa staðið. Að hluta til er hér um
að ræða aðgerðir andstæðinga
byggingarinnar; úrtölumanna sem
sjá ofsjónum yfír byggingu flug-
stöðvarinnar sem þó horfir til heilla
fyrir þjóðina.
Flugstöðin er í dag talin af er-
Iendum sérfræðingum í hópi bestu
flughafna í Evrópu og Ríkisendur-
skoðun hefur staðfest að flugstöðin
uppfylli allar eðlilegar starfrænar
og útiitslegar kröfur.