Morgunblaðið - 18.12.1987, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Seölayeski
Mikið úrval - vönduð vinna.
Nafnagylling
á meðan beðið er.
oitsQ -PYNGJAN
i£durvöruh\^-/' Hverfisgötu 52, 2. h. Sími 21458.
Skápur: Breidd 100 cm, dýpt 41 cm,
hæð 48 cm.
Eigum margar aðrar gerðir af skápum
undir tækin og tilheyrandi, til dæmis
á kr. 3.200 skáp sem er 60 cm breið-
ur, 39 cm djúpur og 98 cm hár.
húsgagnaHðHin
©
REVKJAVlK
CD
CU> PIONEER
KASSETTUTÆKI
Lesandanum verð-
ur að líða vel
Rætt við Kristján Jóhann Jónsson rithöfund
Með þessum tveimur skáldsögum mínum hef ég venð að leit-
ast við að endumýja skáldsöguformið en líka vonað að þær væru
jafn skemmtilegar aflestrar eins og gamla góða skáldsagan. Le-
sandanum verður að líða vel, við sem framleiðum og seljum
bækur verðum að bjóða vöru sem menn hafa ánægju af. Þetta
sagði Kristján Jóhann Jónsson en hann hefur skrifað tvær skáld-
sögur. Sú fyrri, Haustið er rautt, kom út fyrir sex árum og sú
næsta, Undir húfu tollarans, er nýlega komin út. Kristján stund-
aði nám í bókmenntum og íslensku við Háskóla íslands og hefur
síðan sinnt ýmsum störfum, þó aðallega kennsiu.
Kristján Jóhann Jónsson hef-
ur búið í Noregi undanfarin ár
og hann er spurður hvernig sé
að sitja þar við skriftir.
-Það er gott að búa í Noregi.
Undanfarin ár hef ég unnið lítil-
lega við að kenna ísienskum
bömum þar norsku og íslensku
en ritstörfin hafa þó verið aðal-
verkefni mitt. En með því að
kenna tvo eða þrjá daga. í viku
hef ég það góðar tekjur að ég get
hina dagana sinnt ritstörfum.
Annars væri þetta ekki hægt og
brauðstritið næði yfirhöndinni.
Maður verður að fá góðan tíma
til að sinna ritstörfum sé það á
annað borð ætlunin.
Ertu þá mjög skipulagður við
verkið?
Reyni að vera agaður
-Ég reyni að vera mjög agað-
ur! Það er alltaf verst að byija á
verkinu, byrja á nýrri sögu, nýjum
kafla, á nýju dagsverki. Mér hefur
reynst best að beita mig þeim aga
að setjast við og heQ'a vinnu.
Ekki bíða eftir að einhver óskil-
greindur andi komi yfír mig.
Vissulega getur farið svo að þá
sé ég að skrifa eitthvað sem síðan
lendir í ruslinu. En það gerir ekki
svo mikið til meðan verkinu í heild
miðar áfram. Það er ekki svo frá-
leitt þegar um 200 blaðsíðna
handrit er að ræða að eitthvað
þurfí að vinna oftar en einu sinni.
Þessa sögu er ég búinn að taka
í gegn ijórum eða fímm sinnum
og er það meira en ég hef áður
gert. En ég er óhræddur við það
og reyni að vanda til verka við
ritstörfin.
Hvemig færðu hugmyndir?
Benda kunningjarnir þér á eitt-
hvað og ertu búinn að skipu-
leggja söguna út i æsar þegar
þú skrifar?
-Vissulega koma ýmsir með
ábendingar, spyrja í gamni eða
alvöru hvort ég geti ekki skrifað
um þetta eða hitt. Það gengur
hins vegar ekki því rithöfundur
verður að fá hugmyndimar sjálf-
ur, annars skilur hann ekki þessar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Kristján Jóhann Jónsson
hugmyndir. Eins og ég sagði er
kannski mesta máiið að hefja
verkið. Þá liggur fyrir eins konar
beinagrind að söguþræði og hvaða
persónur munu koma við sögu.
Ég get síðan spunnið söguna
áfram í stærstu dráttum, endur-
skoða vissa kafla og breyti og
bæti.
Þurfa lesendur þínir að bíða
aftur í sex ár eftir nýrri sögu?
-Það er aldrei að vita. Ég vil
að minnsta kosti ekki láta einn
eða neinn reka á eftir mér, hvorki
lesanda né útgefanda. Þegar ég
skrifa sögu vil ég taka allan þann
tíma sem þarf til að ljúka verkinu
og þá skiptir ekki öllu máli hvort
um er að ræða tvö, fjögur eða sex
ár.
Hins vegar get ég alveg upp-
lýst að næsta hugmynd liggur
fyrir og trúlega líða ekki sex ár
þar til næsta saga verður tilbúin.
Ég kýs hins vegar að fara ekki
nánar út í þá sálma S bili.
Gott að skrifa í Noregi se-
girðu en er það ekkert slæmt
að skrifa íslenska sögu í þess-
ari fjarlægð? -Ekki held ég
það nú en vissulega getur komíð
fyrir að fjarlægðin skapi vissa
erfiðleika þó að ég hafí ekki orðið
fyrir því. En maður saknar ís-
lands og kunningjanna og verður
stundum leiður á að tala stöðugt
norsku. Ég vona líka að menntun
mín í íslensku verði tii þess að
ég verði ekki fyrir neinum áhrifum
af málinu.
Fyrri bók Kristjáns, Haustið
er rautt, fékk allgóða dóma og
varð hún meðal annars tílefni
mikilla skrifa um bókmennta-
gagnrýni. Kristján er spurður
hvað honum finnist um gagn-
rýni og bókaumfjöllun:
Öll umfjöllun af hinu
góða
-Öll umfjöllun um bækur er af
hinu góða að mínu viti en ég held
þó að hinir svokölluðu ritdómar
um bækur sem birtast í blöðunum
þessar vikumar séu komnir út í
öfgar. Gagnrýnendum er ætlað
að lesa ókjör af bókum á fáum
vikum og leggja dóm á þær. Mér
fínnst ótrúlegt að það geti verið
vandlega gert þegar þeir þurfa
að standa þannig við færibandið
og framleiða þetta efni. Það væri
miklu nær að velja úr, láta gagn-
rýnendur um að skrifa um þær
bækur sem þeim fínnst þess verð-
ar og láta hinar eiga sig.
Verða þá ekki einhverjir
móðgaðir sem fá ekki umfjöil-
un?
-Vissulega má það vera en ég
held að rithöfundar myndu alveg
vilja taka þessari áhættu. Þessi
skyldugagmýni þar sem ritdóm-
arar hreyta einhveiju úr sér á
mettíma getur varla verið vel
ígrunduð.
Hvað geturðu sagt almennt
um söguna Undir húfu toilar-
ans án þess að segja of mikið?
-Nú, þetta er eins konar hetju-
saga, aðalpersónur eru tvær en í
kringum þær kemur fram íjöldi
annarra persóna og allt gerist
þetta í samtímanum. Margar
þessara persóna eru ekki alltaf í
þeim hlutverkum sem hæfa þeim
best.
Ég vona að menn kunni vel við
það form að ég læt suma þræðina
eftir óhnýtta. Þá vona ég líka að
með ákveðnu stflbragði í sögunni
hafi-mér tekist að koma einhveij-
um lesendum á óvart.
Neysla áfengis á vinnustöð-
um vandamál í bjórlöndum
segir í ályktun umdæmisstúku IOGT
í SAMBANDI við bjórfrumvarp
það sem nú liggur fyrir Alþingi
vill haustþing umdæmisstúkunn-
ar nr. 1 rifja upp það sem á eftir
fylgir:
1. Þess eru engin dæmi að áfeng-
isböli hafí verið hnekkt með hóf-
semdarfélögum eða með því að
auðvelda fólki aðgang að hinum
veikari áfengistegundum enda þótt
það hafí oft verið reynt.
2. í öllum bjórlöndum er neysla
áfengis á vinnustöðum og í vinnu-
tíma vandamál sem fylgir því að
kostur er áfengra drykkja sem
menn telja meinlitla og varast því
ekki.
3. Af umræðu í fjölmiðlum hér á
landi er ljóst að ýmsir telja áfengan
bjór svo saklausan að þeir munu
naumast eða alls ekki líta á hann
sem áfengi, heldur nánast sem
meinlausan drykk til svölunar og
hressingar.
4. Erfítt er að meta hvers konar
áfengisneysla er hættulegust en
dagleg neysla er algeng þar sem
léttari tegunda er neytt og dagleg
neysla veldur margs konar heilsu-
spjöllum og býður þeim áfengissýki.
5. Flutningsmenn frumvarpsins
telja sjálfír að áfengisneysla í heild
hljóti. að aukast þegar bjórinn bæt-
ist við það sem fyrir er. Heilbrigðis-
stofnun Sameinuðu þjóðanna, sem
Island er aðili að, telur fullvíst að
tjón og heilsuspjöll af völdum
áfengis standi í beinu sambandi við
heildameyslu þess.
6. Ef svo færi að bjórinn yrði
leyfður og í fyrstu seldur í útsölum
áfengisverslunarinnar yrði þess
skammt að bíða að háværar raddir
krefðust þess að hann yrði fáanleg-
ur á sérhveijum verslunarstað þar
sem einhver vildi selja hann.
(Fréttatilkynning)