Morgunblaðið - 18.12.1987, Síða 41
41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Margföld myndgæði
Reuter
Sjónvarpsmyndin, sem japanska stúlkan er að virða fyrir sér, er send út með svokallaðri HDTV-tækni og
er miklu skýrari en venjulegar sjónvarpssendingar, gefur raunar kvikmynd á breiðtjaldi ekkert eftir. Jap-
anska ríkisútvarpið kynnti þessa tækni fyrr í mánuðinum en ráðgert er, að það hefji reglulegar útsendingar
árið 1990. í Evrópubandalagsríkjunum hafa menn nokkrar áhyggjur af, að japanska kerfið verði almennt
lagt til grundvallar í þessari tækni vegna þess, að það er fyrr á ferðinni en önnur. Evrópumenn telja auk
þess, að þeirra HDTV-kerfi sé betra.
Þýskaland:
Saksóknari sakaður um
að syngja nasistasöngva
Koblenz, Reuter.
VESTUR-ÞÝ SKUR fylkissak-
sóknari, sem hefur verið ásakað-
ur um að heilsa að sið nasista
og syngja nasistasöngva fyrir
framan starfsbræður sina, verð-
ur sviptur embætti sinu og
honum útvegað annað starf
þangað til rannsókn hefur farið
fram á máli hans.
Horst Leisen, saksóknara í
Rheiniand-Pfalz-fylki með aðsetur
í Trier, hefur einnig verið bannað
að fjaila um pólitísk afbrot eins og
sakir standa, samkvæmt heimildum
úr dómskerfinu. Hans Joachim
Ullrich, yfirsaksónari fylkisins og
stjómandi rannsóknarinnar, kvað
upp þann úrskurð að yrði Leisen
áfram í Triers-dómsumdæminu
myndi það vera „skaðlegt fyrir
ímynd saksóknaraembættisins".
Dagblaðið Frankfurter Rund-
schau skýrði frá því að byijað hefði
verið að rannsaka mál Leisens þeg-
ar starfsfélagar hefðu sagt frá því
að hann hefði síðustu þijú ár verið
vanur að heilsa með Hitlers-kveðju
og syngja söngva frá nasistatíma-
bilinu í samkvæmum.
Leisen varð þekktur fyrir ötul-
leika í málsókn sinni gegn grænfrið-
ungum og öðrum vinstrisinnum,
sem reyndu að stöðva manntalið í
Vestur-Þýskalandi fyrr á þessu ári.
Bandaríkin:
Fyrrum ráðgjafi Reagans
fundinn sekur um lygar
Waahington, Reuter.
MICHAEL Deaver náinn vinur
Ronalds Reagan Bandaríkjafor-
seta og fyrrum háttsettur ráð-
gjafi innan Hvita hússins var á
miðvikudag fundinn sekur um
Sikiley:
Mafían bítur frá sér
þrátt fyrir ýmis áföll
þijár af fimm ákærum um eið-
svaraar lygar. Deaver á nú allt
að fimmtán ára fangelsi yfir
höfði sér.
Deaver sem er 49 ára gamall
sagði af sér í maí árið 1985 sem
aðstoðarstarfsmannastjóri Hvíta
hússins og sneri sér að rekstri eigin
ráðgjafarfyrirtækis. Snemma á
þessu ári var farið að rannsaka
feril Deavers innan Hvíta hússins.
Mál var höfðað á hendur honum í
mars á þessu ári og var hann sakað-
ur um að hafa borið ljúgvitni
frammi fyrir rannsóknamefnd á
vegum þingsins sem kannaði fyrir-
greiðslupólitík háttsettra embættis-
manna. Deaver er sakaður um að
hafa gert sér tengsl sín við forset-
ann að féþúfu.
og konu hans dæmdir til lífstíðar.
Það sem mestu réði um sakfell-
ingu mafíósanna var vitnisburður
Tommaso nokkurs Buscetta, sem
er fyrrverandi liðsmaður glæpafé-
lagsins. Hann er fyrsti Mafíumaður-
inn, sem hefur rofið „omerta",
þagnareið leynifélagsins, svo heitið
geti og hefiir lögreglan nú mun
meiri innsýn í þennan neðanjarðar-
heim glæpanna en fyrr.
Lögreglan er þó fyrst til þess að
játa að upplýsingar þeirra eru úr
sér gengnar, þvf aðallega var flallað
um starfsemi Mafíunnar fram að
1983, en þá lauk baráttu innan
samtakanna sem kostaði 600
manns lífið. Þeir segja að Greco og
aðrir helstu glæpaforingjar þeir,
sem dæmdir voru á miðvikudag,
hafi tapað áhrifum og nú ráði
óþekktur maður mestu í málum
hennar.
Sjálfur segist Deaver harma
hvemig komið sé og að hann hafi
verið fómarlamb drykkjusýki og
eipn metorðagimdar. Hann hefur
eigi að síður ákveðið að áfrýja
dómnum. Deaver hefur verið náinn
samstarfsmaður og ráðgjafi fbr-
setahjónanna frá árinu 1966 er
Reagan varð ríkisstjóri í Kalifomíu.
Eftir að Reagan varð forseti léf
Deaver sér annt um ímynd hans
og stjómaði meðal annars gerð fræ-
grar kvikmyndar í tileftii 40 ára
afmælis innrásarinnar í Normandí.
Þar mátti sjá forsetann fremstan í
hópi leiðtoga bandamanna sem
komu saman í Frakklandi til að
minnast innrásarinnar í Normandí
6. iúní árið 1944.
I yfirlýsingu frá Reagan sem
gefin var út eftir að dómur var upp
kveðinn í máli Deavers segir meðal
annars: „Okkur Nancy þykir miður
að heyra úrskurð kviðdómsins".
Reuter
Roh Tae Woo veifar sigri
hrósandi til stuðningsmanna
sem söfnuðust saman fyrir
framan höfuðstöðvar stjórn-
arflokksins.
Suður-Kórea:
Japanir
fagna kosn-
ingu Roh
Tae Woos
438 helstu liðsmenn dæmdir í fangelsi
Palermo^ Reuten
YFIRVÖLD á Ítalíu hafa nú unn-
ið mesta sigur sinn gegn Mafí-
unni, hinum illræmdu
glæpasamtökum, því að á mið-
vikudag voru 438 liðsmenn
hennar dæmdir í fangelsi, þar
af 19 til lífstíðar. Af þessum 19
eru sjö meðlimir „ráðsins“, sem
fer með æðsta vald í málefnum
Mafíunnar. Lögregla og dómarar
segja þó að enn sé langt í land
með að takist að kveða óþjóðalýð-
inn niður, því nýrrar forystu sé
skammt að leita. Þetta stóð
heima, þvi Mafían lét til skarar
skríða nokkrum klukkustundum
eftir að dómur féll og lét drepa
einn þeirra, sem sýknaðir voru.
ítölsk blöð fjölluðu ýtarlega um
„afhöfðun" Mafíunnar, en þegar til
kom var það Antonio Ciulla, sem
gerður var höfðinu styttri. Hann
fékk í sig níu skot, sem þrír eða
fjórir leigumorðingjar veittu honum
þegar hann ætlaði að fagna sýknu
sinni.
í kjölfar morðsins veltu menn því
fyrir sér hvort þama væri hafin ný
„Mafíustyijöld" um hver skyldi taka
við, en aðrir bentu á að Ciulla væri
af fjölskyldu, sem hefði verið að
missa áhrif að undanfömu og hefði
því fáum staðið hætta af honum.
Réttarhöldin eru mesta áfall
Mafíunnar til þessa. Meðal þeirra,
sem hnepptir voru í lífstíðarfang-
elsi, var æðsti yfirmaður Mafíunnar
(Capo de tutti capi), Michele Greco,
sem hefur auknefnið Páfinn, en
einnig voru morðingjar lögreglufor-
ingjans Carlo Alberto Dalia Chiesa
Seoul, Reuter.
JAPÖNSK stjómvöld fögn-
uðu í gær niðurstöðum
forsetakosninganna í Suður-
Kóreu. I yfirlýsingu frá
Noburu Takeshita forsætis-
ráðherra Japans Japans
segir meðal annars: „Ég er
viss um að íbúar Suður-
Kóreu munu beita hyggind-
um og hugrekki og tryggja
að forsetinn komist friðsam-
lega til valda í febrúar.“
Talsmaður Japansstjórnar
sagði að stjórnin vonaði að í
kjölfar kosninganna fylgdi
bætt sambúð ríkjanna.
Kim Dae Jung og Kim Young
Sam sem töpuðu í kosningun-
um í fyrradag sökuðu stjóm-
völd um að hafa falsað
niðurstöður kosninganna. Kim
Young Sam lýsti niðurstöðuna
ómark og hvatti landslýð „til
að rísa upp pg binda endi á
herstjóm Chun Doo Hwans
(fráfarandi forseta) og Roh Tae
Woos.“ Útvarp stjómvalda i
Suður-Kóreu sagði frá því í gær
að um það bil tvö þúsund mót-
mælendum hefði lent saman við
lögreglu í borginni Kwangju.
Þýsku ríkin skipt-
ast á listaverkum
ÞÝSKU ríkin tvö skiptast nú á
listaverkum og er ætlunin að öll
listaverk sem flutt voru á brott
milli landanna í heimsstyijöld-
inni síðari verði flutt aftur á sinn
upprunalega stað. Vestur-þýsk
listasöfn eiga að skila 140 mál-
verkum til Austur-Þýskalands og
Austur-þjóðveijar eiga að senda
290 málverk til Vestur-Þýska-
lands. Málverkin sem skipst
verður á eru metin á um 200
milljónir þýskra marka.
Ríkin tvö ákváðu í nóvember á
síðasta ári að skiptast á gögnum
úr skjalasöfnum. Nú verður skipst
á málverkum, teikningum og
þiykkimyndum, en höggmyndum
og vísindasöfnum sem flutt voru til
í öiyggisskyni verður skilað aftur
á sinn upprunalega stað síðar.
Verk eftir Anselm Feuerbach og
.Lovis Corinth eru talin skara fram
úr þeim verkum sem send verða til
Vestur-Þýskalands. Nokkur mjög
verðmæt verk, þar á meðal tré-
skurðarverk eftir Albrecht Dúrer
og málverk eftir Lukas Cranach
eldri, Edvard Munch og Max Lieb-
erman, verður skilað til safna og
listhúsa í Austur-Þýskalandi.
Vestur-þýskir gagnrýnendur
hafa haldið þvf fram að næstum
öll þau verk sem skila eigi til Aust-
ur-Þýskalands hafi verið lagfærð
fyrir mikla flármuni, en sum verk-
anna sem flytja eigi vestur hafi
reynst í mjög slæmu ástandi þegar
þau hafi verið rannsökuð í Þýska-
landi.
German Features.
Til vinstri má sjá málverk Edvards Munch, „Portrait of Dr.
Linde,“ sem málað var 1904, en það verður sent frá MOnchen
til Austur-Þýskalands.