Morgunblaðið - 18.12.1987, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Gjaldskrá raf- og hitaveitu:
Hækkar um 4,78%
Taxtar endurskoðaðir héðan í
frá á þriggja mánaða fresti
GJALDSKRÁR rafveitu og hita-
veitu Akureyrar hækka frá og
með 1. janúar næstkomandi um
4,78% og er hækkunin í samræmi
við hækkun byggingarvísitölu.
Stefna veitunefndar er að fylgja
byggingarvísitölunni eftir allt til
árains 1992 og verður gjaldskráin
endurskoðuð héðan í frá á þriggja
mánaða fresti í samræmi við
breytingar á byggingarvísi-
tölunni. Verðlagsbreytingum
Gerð fiskihafnar-
gijótgarðs:
Tilboði Norður-
verks hf. tekið
SEX TILBOÐ bárust í gerð fiski-
hafnargijótgarðs sem rísa á
norðan núverandi togarabryggju
Útgerðarfélags Akureyringa.
Hafnarstjóm hefur samþykkt að
taka lægsta tilboðinu, sem kom
frá Norðurverki hf., upp á
10.334.210 kr. Það er 74,4%
af kostnaðaráætlun, sem nemur
13.881.500 krónum. Áætlunin var
unnin af Verkfræðistofu Norður-
lands hf.
Hallgrímur Skaptason á Akur-
eyri átti næstlægsta tilboðið upp á
11.671.820 krónur, sem er 84,1%
af kostnaðaráætlun. Fossverk sf. á
Selfossi bauð í verkið 11.877.700
krónur, sem er_85,6% af upphaf-
legri áætlun. Ýtan sf. á Ákur-
eyri bauð í verkið 16.466.500 krón-
ur, sem er 18,6% yfir kostnaðar-'
áætlun. Rein sf. í Hafnarfírði bauð
17.238.800 krónur, sem er 24,2%
yfir áætlun og Hagvirki hf. í Hafn-
arfírði bauð í verkið 17.840.000
krónur, sem fór 28,5% yfír áætlun.
Búist er við að framkvæmdir við
gijótgarðinn hefjist upp úr áramót-
um og er áætlað að framkvæmdum
verði lokið að þremur árum liðnum.
verði þá mætt með jöfnum hætti.
Gjaldskráin var lækkuð um 20%
síðastliðið sumar, en með því að
miða hana við byggingarvísitölu, er
talið að hægt verði að ná skuldum
fyrirtækisins niður fyrir tvo milljarða
króna að Qórum árum liðnum, eða
árið 1992. Skuldir Hitaveitu Ákur-
eyrar nema nú um það bil 2,2
milljörðum króna.
Síðast hækkuðu hita- og rafveitu-
taxtar á Akureyri þann 1. nóvember
sl. Aðrar hitaveitur munu hafa tekið
tíðari endurskoðanir á gjaldskrám
sínum. Til dæmis hefur Hitaveita
Akraness- og Borgarfjarðar ákveðið
að endurskoða gjaldskrár sínar á
mánaðarfresti.
í hádegismat á dagheimilinu Flúðum .
Morgunblaðið/GSV
Dagvistargjöld hækka um 15%:
Langur biðlisti eft-
ir dagvistarplássi
Dagvistargjöld á Akureyri hækka um 15% frá og með ára-
mótum I samræmi við fjárhagsáætlun bæjarins 1988. Fyrir
dagheimilisvist greiða einstæðir foreldrar 5.150 krónur, en
aðrir greiða fyrir sömu vistun 7.600 krónm-. Fyrir fjórar
stundir á leikskóla greiðist frá og með áramótum 3.250 krón-
ur og fyrir fimm stundir verður mánaðargreiðslan 4.000
krónur. Gjald fyrir svoköUuð hádegisbörn verður 4.900 krón-
ur.
Alls bíða nú 342 böm eftir
plássi á dagvistarstofnunum Akur-
eyrarbæjar. Utan Glerár eru 173
böm á biðlista og á Brekkunni og
á Eyrinni eru þau 169. Á dagvist-
un Akureyrarbæjar hætta 132
böm á næsta ári, þar af 14 vegna
þriggja ára reglu og hin vegna
aldurs.
Eftir áramótin verður nýtt dag-
heimili, Sunnuból við Sunnuhlíð,
opnað og getur það tekið við um
það bil 25 bömum í vistun. Hvorki
hefur þó fengist forstöðukona né
fóstrur til að starfa við nýja heimil-
ið. Þá áætlar Hvítasunnukirkjan
að opna dagvistun norðan Höfða-
hlíðar snemma á næsta ári.
Félagsmálastofnun Akureyrar-
bæjar mun sjá um innritun bama
á dagheimili þeirra, en að öðm
leyti mun kirkjan reka heimilið.
Líklegt er talið að gjöld verði í
samræmi við önnur dagvistargjöld
á Akureyri. „Þessi heimili leysa
engan veginn þá miklu þörf sem
er á dagvistarrými í bænum þó
biðlistinn komi til með að styttast
eitthvað fyrst um sinn. Það bætist
alltaf við hann á móti,“ sagði
Hulda Harðardóttir forstöðukona
í Síðuseli í samtali við Morgun-
blaðið.
Tónlistarskólinn:
Jólatónleikar strengja-
deildar og blásarasveita
Jólatónleikar strengjadeildar
Tónlistarskólans á Akureyri
fara fram í kvöld, föstudags-
kvöld, kl. 20.30 í Akureyrar-
kirlgu.
Allar strengjasveitir Tónlistar-
skólans leika á tónleikunum, en
þær eru þijár talsins. Fluttur
verður konsert í G-dúr fyrír lágf-
iðlu og hljómsveit eftir Telemann.
Einleikari með hljómsveitinni
verður Brynhildur Sigurðardóttir
lágfiðlunemandi. Konsert í d-moll
fyrir tvær fiðlur eftir J.S. Bach
verður leikin. Einleikarar verða
Matthías Stefánsson fiðlunemandi
og Þrúður Gunnarsdóttir fiðlu-
nemandi. Auk þessa verka verður
fjöldi annarra verka á efnis-
skránni. Stjómendur sveitanna
eru: Guðrún Þórarinsdóttir,
Magna Guðmundsdóttir og Mic-
hael J. Clarke. Aðgangur er
ókeypis.
Jólatónleikar Blásarasveita
Tónlistarskólans á Akureyri verða
í Akureyrarkirkju sunnudaginn
20. desember og hefjast kl. 14.00.
Fjórar blásarasveitir leika á tón-
leikunum undir stjóm Atla
Guðlaugssonar, Norman H. Denn-
is og Roar Kvam. Á efnisskránni
verða jólalög ásamt annarri tón-
list, sem sveitimar hafa æft að
undanfömu. Aðgangur er einnig
ókeypis.
Mikið hefur verið um uppsagnir
fóstra á undanfömum vikum og
mánuðum, en nú stendur yfír
starfsmat á vegum Akureyrarbæj-
ar og Starfsmannafélagsins á
störfum fóstra. Hulda sagði að
fóstrur biðu átekta eftir því hvað
út úr starfsmatinu kæmi.
Sigurður J. Sigurðsson bæjar-
fulltrúi sagði að verið væri að
kanna störf fóstranna og hvort
einhveijar smugur leyndust þar til
að færa þeim launaleiðréttingar í
þá átt sem þær vonuðust sjálfar
til. „Fóstrur eru mjög stórhuga í
kröfum sínum og í þeirra hugum
er þessi barátta ekki aðeins spurn-
ing um einn til tvo launaflokka
eða svo, heldur miklu meira en
það. Hinsvegar treysti ég mér
ekki til að segja um hvort þær
hafa rök fýrir sínum kröfum,"
sagði Sigurður.
Vöruhús
járn og glervörudeild
Akureyri
BETRA VÖFFLUJÁRN
FRÁ úirirt=t=f=ici
allt sem þarf til að gleðja heila fjölskyldu.
V-þýsk gæðavara sem endist og endist....
Piltur og stúlka
Leikstjóri: Borgar Garðarson
Lcikmynd: Öm Ingi Gíslason
Lýsing: Ingvar Bjömsson
Tónlist: Jón Hlöðver Áskelsson
Frumsýning nnnan dag
jólakl. 17.00
2. sýning sunudaginn
27. des. kl. 20.30
3. sýning þriðjudaginn
29. des. kl. 20.30
4. sýning miðvikudaginn
30. des. kl. 20.30
5. sýning fimmtudaginn
7. janúarkl. 20.30
6. sýning föstudaginn
8. janúar kl. 20.30
7. sýning laugardaginn
9. janúarkl. 18.00
8. sýning sunnudaginn
10. janúarkl. 15.00
Ath. brcyttan sýningartíma.
Forsala aðgöngumiða hafin.
Gjafakortift gleðor - tllvalin jólogjöf.
1f Æ MIÐASALA
mmm 96-24073
LöKFéLAG AKUR6YRAR
Heitar vöfflur og
stóraukið úrval af
smurðu brauði.
Kíktuviðí
kaffitímanum.
„GAUKURAKUREYRAR“
1. flokks matur
á teríuverði
EKTA PIZZUR
OpiÓ um helgar
frákl. 11.30-03.00
Virka daga
Jrákl. 11.30-01.00
v/Ráðhústorg
Allir íZebra
Diskótek
é 2 hæðum
Ath! 18 ára aldurstakmark.
Veltlngastaöur. Hafnarstrætl ÍOO. simi 25500
TILBOÐ BAUTANS í DESEMBER
INNKAUPADISKURINN
(kaldir kjötréttir og
fiskréttur) ásamt súpu og
salatbar.
Kr. 450,-
ÍKAFFINU
Búðarápsdiskurinn
(snitta, kökusneiö og kaffi)
Kr. 180,-
Hafnarstræti 92 - Sími 21818.