Morgunblaðið - 18.12.1987, Side 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987
Frá Klettsvík í Vestmannaeyjum þar sem laTÍnn hefur náð Noregsvexti. Morgunbiaðið/Sigurgcir jðnaason
Sjókvíaeldi:
Miklu betri vöxtur
en áður hefur þekkst
hér við land
- segir Páll Gústafsson framkvæmdastjóri fSNO um
eldið í Vestmannaeyjum
Stefnt að framleiðslu á sandhverfu í Kelduhverfi
„ÞETTA hefur verið á tilrauna-
stigi þjá okkur en nú erum við
loksins að ijúka undirbúningi und-
ir eðlilegan rekstur," sagði Páll
Gústafsson framkvæmdastjóri
fiskeldisfyrirtíekisins ÍSNO hf.
ÍSNO hf. er sú fiskeldisstöð sem
mesta reynslu hefur af sjókvíaeldi
hér við land og hefur síðustu árin
framleitt meirihluta þess lax sem
á markað hefur farið frá íslenska
fiskeldinu. Fyrirtækið stefnir nú
að framleiðslu á sandhverfu í
Kelduhverfi.
ÍSNO er með matfískeldi í Lónum
í Kelduhverfí og framleiðir þar 120
tonn á ári. í Vestmannaeyjum er
fyrirtækið að byggja upp aðstöðu til
sjókvíaeldis. Framleiðslan í ár verður
um 100—120 tonn í ár, 250 tonn á
næsta ári og 400 tonn á árinu 1989,
ef allt gengur að óskum. Samfara
þessu eru reknar tvær seiðastöðvar,
önnur í Lónum en hin á Öxnalæk í
Ölfusi. Fimmti rekstrarþátturinn er
hafbeit í Kelduhverfínu. Sú starfsemi
hefur verið á tilraunastigi í 7 ár án
þess að farið hafí verið út í hafbeit
í stærri stfl.
Úrganginum dælt á
land í Lónum
Páil lýsir starfseminni í Lónum og
Vestmannaeyjum nánar þannig:
„Lónin eru merkilegur staður og
fæstir gerðum við okkur grein fyrir
því í upphafí hvað náttúran er flók-
in. Rennslið í gegn um Lónin er 19
rúmmetrar á sekúndu. Mikið af vatn-
inu kemur undan hrauni, 10—11
gráðu heitt, þannig að Lónin eru að
mörgu leyti heppileg til sjókvíaeldis.
Það hefur sýnt sig að eldið gengur
upp, þó ekki hafi það gerst áfalla-
laust. Við höfum lent í óhöppum
vegna veðurhæðar og frosts sem við
voru ekki viðbúnir í upphafí en höfum
lært af reynslunni og m.a. endur-
baett kvíamar mikið.
Við höfum takmarkað svigrúm í
Lónunum. Þetta er lokaður fjörður
og erum við hræddir við botnmengun
út frá kvíunum. Við höfum leyst þau
mál með því að dæla óhreinindunum
á land og haldið þannig jafnvægi.
Úrgangurinn hefur verið notaður
sem áburður á sandana. Ekki er
ætlunin að auka sjókvfaeldið þama
enda hefur höfuðmarkmið okkar með
starfseminni í Lónunum verið að
byggja þar upp hafbeit."
Hafbeit í stórum
stíl undirbúin
„Áriega hefur verið sleppt 20 þús-
und seiðum og mismunandi stofnar
notaðir við það og mismunandi að-
ferðir. Nú teljum við okkur vera
komna með eigin stofn í hafbeitina,
kynslóð af stofni sem búin er að fara
tvisvar sinnum í hafíð og skila sér
til baka. Upphaflega er þessi stofn
kominn úr Laxá í Aðaldal, en einnig
höfum við prófað aðra stofna, svo
sem KollaQarðarstofninn. Endur-
heimtur í hafbeitinni hafa verið á
bilinu 4—7% og meðalþunginn mun
meiri en sunnanlands og vestan, eða
4,3 kg. Út úr þessum hafbeitartil-
raunum undanfarin 7 ár hefur komið
ákveðið mynstur sem við ætlum að
gera tilraunir með á næstu þremur
árum með því að sleppa þrefalt fleiri
seiðum en áður, eða 60 þúsund seið-
um. Einkum prófum við mismunandi
sleppiaðferðir þar sem við höfum
grun um að seiðin séu fæða fyrir
margar tegundir, svo sem sel og
fugl, og mikil afföll verði strax eftir
sleppingu. Þá þurfum við að endur-
bæta endurheimtutæknina, sem
reynst hefur erfið, með því að byggja
upg gildrur.
Ég tel að þessar endurheimtur eigi
að vera nægilegar til að byggja upp
arðsama hafbeit. Hins vegar heftir
eftirspum eftir seiðum verið svo mik-
il og verðið hátt að hagkvæmara
hefur verið að selja seiðin en sleppa
þeim í hafbeit. Það er hins vegar
ekki valkostur til lengri tíma litið."
Of mikil áhersla
á erfðamengiin
„Við höfum verið að rækta upp
eldisstofn með ákveðnum aðgerðum
og teljum okkur nú vera búnir að
koma upp íslenskum stofni sem hent-
ar ágætlega í matfiskeldi.
Kynþroskinn er seinna á ferðinni en
í öðrum íslenskum fiski og vöxturinn
ágætur.
Árið 1984 fengum við heimild til
innflutnings á 15 lítrum af hrognum
frá Noregi. Þeim var haldið í einangr-
un í ár í Hafnarfírði áður en við
fluttum þau í Lónin. Þessi fískur
varð söluvara í vor og var meirihíuta
hans slátrað. Hann er í fyrsta skipti
kynþroska núna. Ekki er enn vitað
hvort við fáum að selja hrognin hér
innanlands en ef leyfí fæst ekki eig-
um við tryggan markað f Noregi.
Fiskur af þessum stofni er að öllu
leyti mun betri til eldis.
Ætlunin er að blanda þessum
stofíii við þann íslenska. Ég hef ekki
neinar áhyggjur af erfðamengun. Sá
fískur sem hugsanlega sleppur úr
kvfum á ekki neina möguleika úti f
náttúrunni. Hann og forfeður hans
hafa alið allan sinn aldur í vernduðu
umhverfí og á ekki neina möguleika
á að bjarga sér. Að auki verða flest
óhöppin að vetrarlagi og drepst fisk-
urinn þá fljótlega vegna kulda í
sjónum. Okkur finnst of mikil áhersla
lögð á þessa erfðamengun, og alger-
lega án tileftiis. Undanfarin ár og
áratugi hefur stofnum eftirlitslaust
verið blandað á milli vatnasvæða.
Aðalgallinn við umræðuna er að of
lítið er vitað um það sem menn kalla
erfðamengun."
Fullkomnar aðstæður
í Vestmannaeyjum
„Við byijuðum með kvíaeldi í
Klettsvík f Vestmannaeyjum í ágúst
á síðasta ári. Þá settum við út 56
þúsund 50—60 gramma seiði. Þau
eru nú orðin 3 kg eftir 14 mánuði
og reiknum við með að slátra þeim
í byijun næsta árs. í vor settum við
út tæp 100 þúsund seiði og er sá
fískur að nálgast kílóið. Við þekktum
ekki aðstæður og lentum í ákveðnum
byijunarörðugleikum sem tekist hef-
ur að yfírstfga.
Reynslan af Vestmannaeyjum er
góð það sem af er. Engin þau vanda-
mál hafa komið upp sem ekki hefur
verið hægt að yfirstíga. Ætlunin er
að auka framleiðsluna upp í 400 tonn
á þessum stað, en aðstaéður eru ekki
til að framleiða öllu meira þama.
Við höfum fengið mjög góðan vöxt
í kvfunum, miklu betri en við höfum
þekkt áður hér við land og alveg
sambærilegan við það sem er í Nor-
egi og Skotlandi til dæmis. Kjörhiti
er á sjónum á þessu svæði og eru
Vestmannaeyjar ef til vill eini staður-
inn sem er ftillkominn á landinu þar
sem hægt að koma við hefðbundnum
sjókvfum. En á það verður að líta
að tækninni fer ört fram og það
getur vel verið að komin verði tækni
til að nota á stöðum sem nú er talið
ómögulegt."
Spenntur fyrir
strandeldinu
Páll sagðist vera bjartsýnn á
Páll Gústaf sson með 40 punda hrygnu sem alin var í Lónum í Keldu-
hverfi.
Morgunblaði#/RAX
Unnið við lógun laxa hjá ÍSNO í Kelduhverfi.
framtíð fískeldisins hér á landi. Þrátt
fyrir að hans fyrirtæki hafí mest
stundað sjókvfaeldi kvaðst hann allt-
af hafa verið spenntur fyrir strand-
eldishugmyndinni. ÍSNO er aðili að
undirbúningsfélagi sem hefur undir-
búið stóra strandeldisstöð á Reykja-
nesi, nálægt Sjóefnavinnslunni. „Við
höfum trú á þessu dæmi en höfum
ekki enn getað sannfært flársterka
erlenda aðila um ágæti hennar enn
sem komið er. Norðmenn hafa verið
að velta strandeldinu mikið fyrir sér
en mér virðist sem þeir séu að fjar-
lægjast þessa hugmynd aftur. Því
veldur fyrst og fremst verðið á laxin-
um. Verðlagið hefur verið hátt flest
undanfarin ár en menn telja að það
muni lækka á næstu árum og fari
ef til vill niður fyrir það sem nauðsyn-
legt er til að geta staðið undir hinum
míkla stofnkostnaði sem þarf að
leggja út í við fískeldisstöð á landi."
Sandh verfueldi
í Kelduhverfi?
„Við erum nú einkum að spá f
aðrar tegundir en lax. Til dæmis
höfum við mikinn áhuga á að gera
tilraunir með eldi á sandhverfu í
Kelduhverfinu og nota til þess hitann
sem þar er.“
Norska fiskeldisfyrirtækið A/S
Mowi á tæpan helming í ÍSNO á
móti íslendingum en norska stórfyr-
irtækið Norsk Hydro á Mowi. Norsk
Hydro á þijú önnur fískeldisfyrirtæki
í Irlandi, Skotlandi og á Spáni. Fyrir-
tækið á Spáni er með sandhverfueldi
og sagðist Páll vera f viðræðum við
Norsk Hydro um samstarf um sand-
hverfuna. Einnig væri hann í
sambandi við físksjúkdómayfírvöld
þvf ekki væri hægt að gera þetta án
þess að fá leyfí til að flytja inn lif-
andi físk.
Fiskeldisstöðvamar sem Norsk
Hydro á hafa með sér mikið sam-
starf og tekur ÍSNO fullan þátt í því
og nýtur upplýsinga og tilrauna til
jafns við hinar stöðvamar þrátt fyrir
að fslendingar eigi meirihluta f félag-
inu. Páll sagði að þetta samstarf
væri mikils virði og kæmi sér vel
fyrir ÍSNO.
- HBj.