Morgunblaðið - 17.02.1988, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988
Ávarp utanríkisnefnda Æðsta ráðs
Sovétríkjanna:
Ovenjulegt að fara
þannig fram hjá utan-
ríkisþj ónustunni
- segir Eyjólfur Konráð Jónsson
AVARP utanríkisnefnda Æðsta
ráðs Sovétríkjanna sem sovéski
sendiherranna á íslandi afhenti
formanni utanrikismálanefndar
Alþingis fyrir helgi, var rætt á
fundi utanríkismálanef ndar á
mánudag og dreift til allra þing-
Dæmdur fyr-
ir kynferð-
isafbrot
Hæstiréttur kvað í gær upp
dóm í máli ákæruvaldsins gegn
manni sem sakadómur Hafnar-
fjarðar hafði dæmt í 3'/2 árs
fangelsi fyrir kynferðismök við
3«/2 árs stjúpdóttur sína. Meiri-
hluti Hæstaréttar taldi sannað
að maðurinn hefði gerst sekur
um verknaðinn en taldi refsingu
hæfilega ákveðna 2*/2 árs fang-
elsi.
Guðmundur Skaftason hæsta-
réttardómari skilaði sératkvæði um
málið og vildi sýkna ákærða. Hann
hefði Staðfastlega neitað við alla
rannsókn málsins að vera sekur um
verknaðinn.
Meirihluti Hæstaréttar átaldi í
dómi sínum héraðsdómara fyrir
drátt sem orðið hefði á rekstri
málsins í héraði. Ekki verði séð að
neitt hafí verið aðhafst í málinu frá
11. júní 1985 til 2. desember 1986.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómaramir Magnús Thoroddsen,
Guðmundur Jónsson, Hrafn Braga-
son og Sigúrður Líndal prófessor.
manna eftir það. Áður hafði
formaður nefndarinnar skýrt
forseta Sameinaðs þings, forsæt-
isráðherra og utanríkisráðherra
frá skjalinu.
Eyjólfur Konráð Jónsson formað-
ur utanríkismálanefndar ~ sagðist
hafa lagt á það áherslu á fundi
utanríkisnefndar að málið yrði at-
hugað í nánu samráði við utanríkis-
ráðuneytið og óskað eftir að það
beitti sér fyrir sambandi við hin
ríkin sem ávarpinu væri beint til.
Hann sagði að málið hefði verið lítið
rætt á fundinum. „Fundurinn með
sendiherranum og afhending
ávarpsins kom mér á óvart, því það
er óvenjulegt að mínu mati og fleiri
að fara þannig fram hjá utanríkis-
þjónustunni,“ sagði Eyjólfur þegar
leitað var álits hans á málinu.
Morgunblaðið/Ól.K.Mag
Snjórinn hverfur
EPTIR snjókomuna á höfuðborgarsvæðinu s.l. sunnudagskvöld sat snjór á tijám og og gerði þau tilkomu-
mikil að sjá. Ekki hreyfði vind á mánudaginn og hélst jólasvipur á trjánum þar til síðdegis í gær að snérist
til sunnanáttar og byijaði að rigna og hvarf þá snjórinn af tijánum eins og dögg fyrir sólu.
Forseta íslands boðið til Sovétríkjanna:
Ekki hefur náðst sam-
komulag um dagsetningar
Tilboð Flugleiða
óaðgengilegt
- segir Kristján
Thorlacius
TILBOÐ sem Flugleiðir gerðu
VR og BSRB um orlofsferðir til
útlanda í gær er óaðgengilegt
og töluvert hærra en tilboð Lion
Air frá Lúxemburg, að sögn
Kristjáns Thorlacius, formanns
BSRB.
Kristján vildi ekki nefna neinar
tölur í þessu sambandi, því samn-
ingaviðræður væru enn á viðkvæmu
stigi. Ferðanefíidir BSRB og VR
funduðu um málið í gærkvöldi, en
ákvörðun um næstu skref í málinu
iá ekki fyrir, að sögn Kristjáns.
Svar við tilboði Lion Air verður að
liggja fyrir í næstu viku.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið,
að frú Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands, þiggi boð um
opinbera heimsókn til Sovétríkj-
anna. Hins vegar hefur stjórnin
ekki fallist á þá ósk sovéska
sendiherrans i Reykjavík, að for-
setinn fari til Moskvu sunnudag-
inn 28. febrúar og vill að fundin
verði önnur dagsetning. Var
þetta samþykkt ágreiningslaust
á fundi ríkisstjórnarinnar á
fimmtudaginn i síðustu viku.
Þrátt fyrir- þá niðurstöðu sagði
sovéski sendiherrann, að ekki
væri unnt að hnika dagsetning-
um. Kom málið aftur fyrir ríkis-
stjórnina í gær og var fyrri nið-
urstaða hennar staðfest. Ráð-
herrar Alþýðuflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins voru sammála
um að halda fast við fyrri
ákvörðim ríkisstjómarinnar en á
hinn bóginn hefur Steingrímur
Hermannsson, utanríkisráð-
herra, látið í ljós þá skoðun, að
forsetinn eigi að þiggja boðið
núna og afhenti ritara ríkis-
stjómarinnar bókun þess efnis
eftir að stjómarfundi var slitið.
Sovéski sendiherrann í
Reykjavík, Igor N. Krassavin, sneri
sér til Steingríms Hermannssonar,
utanríkisráðherra, miðvikudaginn
10. febrúar og tilkynnti honum, að
Sovétstjómin vildi bjóða forseta ís-
lands í opinbera heimsókn til Sov-
étríkjanna og gæti Míkahil Gorb-
atsjov, aðalritari sovéska kommúni-
staflokksins, hitt forsetann að máli
í Moskvu mánudaginn 29. febrúar.
Fór sendiherrann þess eindregið á
leit, að skjót svör bæmst við þessu
boði. Þegar utanríkisráðherra
skýrði frá því á ríkisstjómarfundi á
fímmtudag var það samhljóða nið-
urstaða ríkisstjómarinnar, að
þiggja bæri boðið en fresturinn
væri of skammur og ætti að leita
samkomulags við Sovétmenn um
aðra dagsetningu. Þegar utanríkis-
ráðherra kynnti þessa niðurstöðu
fyrir sovéska sendiherranum sl.
föstudag, var það svar hans, að
þetta væri eini dagurinn, sem Gorb-
atsjov hefði til að hitta forseta ís-
lands, þannig að annað hvort yrði
að taka boðinu núna eða ekki. Vildi
utanríkisráðherra þá, að gengið
yrði að kostum Sovétmanna en ráð-
herrar Alþýðuflokks og Sjálfstæðis-
Tannlæknanemar
harma teningakast
Á FUNDI í Félagi íslenskra
tannlæknanema í fyrradag var
samþykkt yfirlýsing þar sem
segir m.a. að félagið harmi þá
aðferð að láta teningskast ráða
niðurröðun nemenda f sæti. Fé-
lagið mun reyna að fá reglugerð
Háskólaráðs um þetta atriði
breytt, en er hins vegar sam-
þykkt þeirri ákvörðim ráðsins
að takmarka fjölda nemenda við
Ríkisstjórnin kemst ekki
lengnr hjá efnahagsaðgerðum
— segir Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra
STEINGRÍMUR Hermannsson
utanríkisráðherra og formaður
Framsóknarflokksins segir að
ríkisstjórnin komist ekki hjá þvi
lengur að taka á efnahagsvand-
anum og að þvf leyti sé hann
sammála því sem Guðmundur G.
Þórarinsson þingmaður Fram-
sóknarflokksins segir í viðtali við
Alþýðublaðið um helgina. Þar
segir Guðmundur að Framsókn-
arflokkurinn geti ekki stutt rikis-
stjómina lengur nema hún gripi
til aðgerða sem jafni hallann á
viðskiptum við útlönd og ef ekki
verði búið að gripa til slikra að-
gerða með sumrinu segist Guð-
mundur verða að endurskoða
stuðning sinn við stjórnina.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Steingrímur að því væri ekki að
neita að óróleiki væri mikill, ekki
aðeins í Framsóknarflokknum held-
ur einnig um allt land vegna efna-
hagsástandsins. „Það eru frystihús
að stöðvast og annar atvinnurekst-
ur. Það er slæmt hve samningar
dragast mjög og okkur fínnst það
vera orðin mikil spuming hvé ríkis-
stjómin getur beðið Iengi eftir
samningum því það er mjög alvar-
legt ástand að skapast í útflutnings-
atvinnuvegunum.
Að auki stefnir hér í viðskipta-
halla upp á 10 milljarða, samkvæmt
síðasta mati Þjóðhagsstofnunar.
Þenslan er síðan enn vaxandi frek-
ar en minnkandi, samkvæmt þeim
upplýsingum sem við höfum fengið.
Við teljum þetta allt saman vera
mál sem ríkisstjómin geti ekki leng-
ur komist hjá að taka á, þannig að
að þessu leyti er ég sammála Guð-
mundi G. Þórarinssyni. Ég er hins-
vegar ósammála svona yfírlýsing-
um eins og hann gaf í Alþýðublað-
inu,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son.
sjö. Háskólaráð fjallar á
fimmtudaginn um mál tann-
læknanemans sem náði ekki að
komast inn á annað ár eftir að
teningskast var látið ráða úrslit-
um.
Orðrétt er samþykkt fundarins
þannig: „Félag íslenskra tann-
læknanema styður heilshugar þá
ákvörðun Háskólaráðs að fjöldi
nema á hverju námsári í Tann-
læknadeild Háskóla íslands skuli
miðast við töluna sjö. Ef fleiri en
sjö nemendur eru á hveiju náms-
ári skerðist æfingatími hvers nema
og hætta er á verri námsárangri
eða jafnvel að nemum seinki í
námi.
FÍT harmar hinsvegar þá aðferð
að niðurröðun nema í sæti á fyrsta
námsári sé ákveðin á jafn lág-
kúrulegan hátt og með teninga-
kasti eða öðru slíku.
FÍT mun reyna að fá þessari
furðulegu reglugerð breytt. Þessi
reglugerð hefur verið í gildi síðan
1979 þegar Háskólaráð samþykkti
hana með öllum greiddum atkvæð-
um nema einu. Það er ekki fyrr
en nú, niu árum seinna, sem á
hana reynir og sjá menn þá fyrst
hve óréttlát hún er.
FÍT vonar að leiðindamál það
sem nú er komið upp hljóti mál-
efnalegar umræður og farsæla
lausn í Háskólaráði Háskóla ís-
lands."
flokks töldu eðlilegt að halda fast
í ákvörðun ríkisstjómarinnar og
ræða um nýjar dagsetningar við
Sovétmenn.
Samkvæmt hugmyndum Sovét-
manna er ætlunin að forseti Islands
dveljist fimm daga í Sovétrikjunum.
Ef forsetinn hefði hitt Gorbatsjov
29. febrúar hefði heimsóknin staðið
sömu daga og efrit er til fundar
forystumanna ríkja Atlantshafs-
bandalagsins í höfuðstöðvum
bandalagsins í Bmssel en hann
sækja forsætisráðherrar og ut-
anríkisráðherrar ríkjanna. Það er
hefð og föst venja, að utanríkisráð-
herra fylgi forseta íslands í opin-
bemm heimsóknum, en íslenskur
þjóðhöfðingi hefur aldrei sótt Sov-
étríkin heim. Vegna fundarins í
Bmssel mun sú hugmynd hafa kom-
ið fram, að utanríkisráðherra yrði
aðeins í fylgd forseta fyrstu sólar-
hringa ferðar hennar eða annar
ráðherra færi í hans stað, svo að
unnt yrði að fara að óskum Sovét-
stjómarinnar. Lagðist forsætisráð-
herra gegn slíkum ráðagerðum.
Sjá einnig viðtöl við Þorstein
Pálsson og Steingrim Her-
mannsson á miðopnu.
í dag
BLAO B