Morgunblaðið - 17.02.1988, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988
Framsóknarflokkurinn:
Agreiningur um breytmg-
ar á búvörulögunum
GUÐMUNDUR G. Þórarinsson
þingmaður tilkynnti á þingflokks-
fundi Framsóknarflokksins á
mánudag að hann hygðist leggja
fram breytingartillögu við búvöru-
lögin á AJþingi um að undanskilja
egg og kjúklinga verðlagsákvæð-
um búvörulaganna. Þetta gengur
þvert á stefnu Framsóknarflokks-
' ins og segist Steingrímur Her-
mannsson formaður flokksins telja
það ákaflega slæmt ef stjómar-
þingmenn færa að bera fram
frumvörp um viðkvæm mál á borð
við þetta.
í samtali við Morgunblaðið I gær
sagði Guðmundur G. Þórarinsson að
hann væri nú að yfirfara lögin og
athuga með hvaða hætti væri hægt
að bera fram breytingartillögu við
þau þannig að kjúklinga- og eggja-
framleiðsla falli ekki undir verðlagn-
ingu og kvótafyrirkomulag. „Það er
ekki einfalt að sjá hvemig á að gera
þetta en ég vonast til að það verði
hægt núna um helgina," sagði Guð-
mundur.
Hann sagðist eingöngu vera að
halda fram eigin skoðunum á þessum
málum. „Ég tel að við séum á villigöt-
um að setja þessa framleiðslu í kvóta-
kerfi. Þetta á að mínu mati ekki sam-
leið með hefðbundnum landbúnaði
því kjúklingaræktin er orðin iðnaður.
Þetta er verksmiðjuframleiðsla og
fóðrið, sem notað er, er allt innflutt.
Ég sé ekki hvar menn enda ef þetta
verður sett undir kvóta. Verður þá
verktakastarfsemi eða innflutningur
næst?“ sagði Guðmundur G. Þórar-
insson.
Steingrímur Hermannsson for-
maður Framsóknarflokksins sagðist
telja það ákaflega slæmt ef stjómar-
þingmenn bæru fram eigin frumvörp
í svo viðkvæmum málum sem þetta
væri. „Menn hafa sæst á það á reyna
að koma landbúnaðinum út úr þess-
um offramleiðsluerfiðleikum á skipu-
legan máta á grundvelli þessara laga
og þama em kjúklinga- og eggja-
bændur eingöngu að sækja sinn rétt
sem þeir eiga samkvæmt lögunum
og geta eingöngu sótt ef þeir em
sammála um það. Og það hafa þeir
verið. Ég vona að svona miðstýring
vari sem styst en ég held ekki að það
sé betra að komast út úr henni eftir
lögmálum fmmskógarins þar sem
hver étur undan öðrum," sagði
Steingrímur.
Guðmundur viðurkenndi að senni-
lega væm ekki margir innan flokks-
ins sér sammála um þetta enda færi'
hann ekki fram á það. „Ég held að
það sé einmitt galdurinn að menn
hafi sínar skoðanir um hvað sé best
og lifi í samræmi við það,“ sagði
hann.
Steingrimur sagði aðspurður að
það væri vissulega óþægilegt fyrir
ríkisstjómina ef einstakir þingmenn
hennar fæm eigin leiðir, eins og
nokkuð hefði borið á Þannig vildi
þó oft verða þegar ríkisstjómir hefðu
mikinn meirihluta því þá fyndist
mönnum þeir vera fijálsari.
I/EÐURHORFUR í DAG, 17.2.88
YFIRLIT I gnr: Yfir Austurlandi var 1.023 mb hæð 6 hreyfingu
austur en á vestanverðu Grænlandshafi var vaxandi 978 mb lægð
á leið norð-austur. Milli Færeyja og Noregs var minnkandi 997
mb lægö sem þokaðist austur. Veður fer hlýnandi (blli, en kólnar
nokkuð víða vestanlands.
SPÁ: í dag, miðvikudag, verður suð-vestlæg átt á landinu, víða
kaidi eða stinningskaldi. Él veða um sunnan- og vestanvert landið,
en léttskýjað norð-austanlands. Hlti nálægt frostmarki.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FIMMTUDAQ: Suð-vestanátt og hiti víða nálægt frost-
marki. Snjó- eða slydduéi um vestanvert landið en bjart veöur
austanlands.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Sunnan- og suð-vestanátt og aftur heldur
hlýnandi í bili. Rigning eða slydda um sunnan- og vestanvert landlð,
en úrkomulítið norö-austanlands.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* « *
* * * * Snjókoma
* * #
■J 0 Hftastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, » Súld
CX5 Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að fsl. tíma
Akursyrí Rsykjsvfk hrtl +« +2 veður lóttakýjað
Bsrgen 2 altkýjaó
Helslnkl 1 þokumóða
JanMayen +2 þokumóða
Kaupmannah. 3 þokumóða
Narssarstuaq +4 snjókoma
Nuuk +6 anjókoma
Osló 2 súld
Stokkhólmur 2 þokumðða
Þórshöfn 3 skúr
Algarve 11 rignlng
Amsterdam e skýjað
Aþena 7 •kýi*ö
Barcelona ii mlstur
Beríin 6 mlstur
Chlcago +7 skýjað
Feneyjar 9 heiðsklrt
Frankfurt 4 mlstur
Qlasgow 7 akúr
Hamborg e mlstur
LasPalmas 17 skýjað
London 8 Wttskýjað
Los Angeles 10 þoka
Lúxemborg 6 mlstur
Madrid 7 nlairóUA BiSKyjao
Malaga 0 rignlng
Malloroa 16 skýjað
Montreal +3 alskýjað
NewYork vantar
Paris 9 þokumóða
Róm 14 halðskfrt
Vin 6 miatur
Washington 3 alskýjað
Wlnnlpeg +10 alskýjað
Valencla 12 þokumóða
Morgunblaðið/Bjami
Starfsfólk Tinnu hf. sat og spilaði bingó þegar ljósmyndari Morgun-
blaðsins leit inn í saumastofuna í gær, því vinna liggur þar nú niðri
vegna verkefnaskorts.
Saumastofan Tinna
verkefnalaus
Saumastofan Tinna hf. í Kópa-
vogi er nú verkefnalaus og lagð-
ist öll vinna þar niður á mánu-
dag. Um 40 manns vinna hjá fyr-
irtækinu, en starfsfólki hefur
ekki verið sagt upp.
Að sögn Unnar S. Björnsdóttur,
framkvæmdastjóra Tinnu, eru
helstu orsakir verkefnaleysisins
þær að ekki hafa náðst samningar
við Sovétmenn um kaup á ullarvör-
um. Því gæti Álafoss hf. ekki látið
nein verkefni frá sér þrátt fyrir að
Tinna sé eitt af örfáum fyrirtækjum
sem Álafoss hf. hefur sagst ætla
að hafa í viðskiptum á þessu ári.
„Það hefur verið sama og ekkert
að gera hjá okkur síðan í nóvem-
ber,“ sagði Unnur, „og ef þessir
samningar takast ekki hlýtur það
að leiða af sér fjöldauppsagnir í
þessari atvinnugrein.“ Unnur sagði
að Álafossverksmiðjumar á Akur-
eyri hefðu gripið til þess ráðs að
senda starfsfólk heim tvo daga vik-
unnar og hún sagðist hafa heyrt
að aðrar saumastofur hygðust grípa
til sama ráðs á næstunni. „Línumar
verða að fara að skýrast á næstu
dögum eða vikum, því fyrirtækið
ber ekki svona stöðvun til lengdar,"
sagði Unnur.
Alafoss hf .vill taka
erlent rekstrarlán
JÓN Sigurðsson viðskiptaráð-
herra hefur nú til athugunar
hvernig best sé að ieysa rekstrar-
vandamál Álafoss hf. Lands-
bankinn hefur fyrir hönd fyrir-
tækisins sótt um að taka erlent
rekstrarlán og mun upphæð þess
vera rúmar 200 milljónir króna.
Lántökubeiðni þessi var lögð fyr-
ir ríkissljómarfund í gær. í samtali
við Morgunblaðið sagði Jón Sig-
urðsson að þótt búið væri að endur-
skipuleggja fjárhag fyrirtækisins
og auka eigið fé þess með auknu
hlutaflárframlagi rlkisins og Sam-
bandsins, þá hefði komið ( ljós að
enn væri við talsverða rekstrarörð-
ugleika að etja. Ekki væri búið að
fullfjármagna reksturinn og fyrir-
tækið hefði enn ekki náð samkomu-
lagi við viðskiptabanka þeirra
tveggja fyrirtækja sem mynduðu
það, gamla Álafoss og ullariðnar-
fyrirtæki Sambandsins.
Jón sagði að staða fyrirtækisins
væri vissulega slæm í bili, aðallega
vegna óvissu um sölu afurða til
Sovétríkjanna og verð á þeim vörum
sem þangað hafa verið seldar.
Kjami málsins væri því undir hvetju
þessi framleiðsla risi. Hann sagði
að þetta mál hefði verið til athugun-
ar undanfarið og þar á meðal um-
sókn Álafoss um taka erlent lán til
að brúa bilið í rekstrinum. Jón sagð-
ist einnig hafa rætt við bankastjóra
Landsbankans og væri nú að at-
huga hvemig best væri að leysa
málið í samráði við þá og sljóm
fyrirtækisins.
Hafísinn:
Siglingaleiðir að
mestu greiðfærar
SIGLINGALEIÐIR virtust vera
að mestu greiðfærar úti fyrir
öllu Norðurlandi siðdegis í gær,
nema fyrir Horn. Samkvæmt
upplýsingum sem hafísrann-
sóknadeild Veðurstofu íslands
barst í gærmorgun var þá ófært
við Hælavíkurbjarg, leiðin vestan
við Rauðanúp á Melrakkasléttu
gat verið hættuleg skipum og
einnig var talið að leiðin suð-
vestur af Straumnesi gæti verið
ófær í myrkri. Gert er ráð_£yrir
batnandi ástandi þvi spáð er suð-
vestanátt i dag og vestanátt þeg-
ar liður á daginn.
í fyrrinótt var íshrafl og allstórir
jakar á reki við Rauðanúp á Mel-
rakkasléttu og áfram í vesturátt
Og virtist þetta geta verið hættulegt
skipum.
Hofsjökull var á siglingu við
Skaga um klukkan átta (gærmorg-
un. Þar voru þá dreifðir ísjakar á
siglingaleið og (sspangir og þéttan
ís að sjá 10 sjómdur norður af
Skallarifi.
Eldvík, sem var á siglingu frá
Rit að Hælavíkurbjargi ( gærmorg-
un, tilkynnti staka og smáa jaka
vst á norðanverðu ísafjarðardjúpi.
Ishrafl og gisnar spangir voru þá
á siglingaleið fyrir Straumnes. Var
þá ófært við Hælavíkurbjarg, en
þaðan lá ísspöng ( norðvestur sem
séð varð.
Hafrannsóknaskipið Ámi Frið-
riksson fór í gær frá Kálfsham-
arsvík á Ströndum að Siglunesi og
þaðan í átt til Grímseyjar. Sam-
kvæmt upplýsingum frá skipinu var
íslaust ( Húnaflóa og úti fyrir
Skagafirði og í átt til Grfmseyjar.
Grímseyjarsund var einnig íslaust.
En frá öðm skipi sáust í gærmorg-
un ísjakar og smáspangir til norð-
vestur frá Grímsey.
Hofsjökull, sem staddur var um
2 sjómílur suðvestur af Straum-
nesi, tilkynnti síðdegis (gær að leið-
in væri talin ófær í myrkri. Skipið
hafði farið þama í björtu og var
komið á auðan sjó.