Morgunblaðið - 17.02.1988, Page 16

Morgunblaðið - 17.02.1988, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988 Holiday Inn hótelið: Hlutafjáraukning nemur nú 50 milljónum króna Gert ráð fyrir 50 til 100 milljónum í viðbót AUKNING hlutafjár í fyrirtæki Guðbjöms Guðjónssonar, eig- anda Holiday Inn hótelsins við Sigtún, nemur nú um 50 milijón- um króna og er gert ráð fyrir 50 til 100 milljón krónum til við- bótar, að því er Guðbjöm sagði í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að kaupendur hlutabréf- anna væri hópur manna, sem þeir Sigurður Siguijónsson lög- maður og Páll G. Jónsson for- sijóri væru í forsvari fyrir og hefðu þeir tveir nú þegar tekið sæti í stjóra fyrirtækisins. Guðbjöm sagði að ekki væri end- anlega frágengið hvetjir gengju inn í fyrirtækið ásamt þeim Sigurði og Páli. Hann gat þess jafnframt að umfjöllun ýmissa fjölmiðla varðandi þetta mál hefði verið villandi og í sumum tilfellum beinlínis rangur. Nefndi hann sérstaklega umfjöllun Helgarpóstsins síðastliðinn fimmtu- dag og sagði að þar hefði ekki ver- ið farið rétt með staðreyndir. „Það er ekkert leyndarmál að það er verið að auka hlutafé, en því fer fjarri að ég sé að selja fyrirtækið eins og þar er gefið í skyn. Þeir hefðu getað fengið allar upplýsing- ar um stöðu þessara mála ef þeir hefðu gert svo lítið að tala við mig, sem þeir sáu ekki ástæðu til. Það var enginn kaupsamningur undir- ritaður í byijun janúar, eins og seg- ir í Helgarpóstinum, og gert er ráð fyrir að hlutafjáraukningin verði 100 til 150 milljónir, en ekki 200 milljónir eins og þar segir. Ég sé heldur ekki ástæðu til að vera að nefna einhver nöfn varðandi kaup á hlutabréfum fyrr en frá því hefur verið gengið, “ sagði Guðbjöm. Hann sagði að kostnaður við byggingu hússins hefði farið nokk- uð fram úr áætlun, sem hefði með- al annars stafað af auknum kröfum frá Holiday Inn hótelkeðjunni svo og verðbólgu innanlands. „Þó er þetta hús ódýrt að mínum dómi, miðað við ýmsar aðrar sambærileg- ar byggingar. Húsið ákaflega vel hannað og vei teiknað og'fullnægir öllum þeim kröfum sem gerðar em til góðra hótela í dag, en miðað er við að þetta verði sex stjömu hót- el. Forstjórar frá Holiday Inn, sem hafa verið hér, hafa bent mönnum á, sem em að byggja hótel erlend- is, að líta á þetta hús." Guðbjöm sagði að reksturinn hefði gengið mjög vel og nýting verið mun meiri en áætlað var. „Rekstrarlega lítur þetta vel út, og tengslin við Holiday Inn-samsteyp- una hafa reynst mjög vel. Sam- kvæmt meðaltali frá síðasta ári vom bókanir í gegnum þá um 27% og fer stöðugt vaxandi. Sem dæmi get ég nefnt að af tíu bókunum í gærdag vom sex í gegnum þá og svona er þetta daglega. Ég held því að að þróunin í hótelrekstri hér á landi í framtíðinni hljóti að verða sú að fleiri aðilar fari út í slíka samvinnu við erlendar hótelkeðjur," sagði Guðbjöm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.