Morgunblaðið - 17.02.1988, Síða 17
Morgunblaðið/PPJ
Panama vélar í Reykja vík
Fyrir nokkru áttu tvær nýjar flutningaflugvélar af gerðlnni
CASA 212 viðkomu á Reykjavíkurflugvelli. Þær vöktu athygli
manna þar sem þær voru merktar flugher Panama í bak og
fyrir. Flugvélar þessar eru framleiddar af CASA-verksmiðjunum
á Spám og geta þær flutt um 24 fullbúna fallhlífarhermenn eða
2,8 tonn af hergögnum.
AUKEFNI EÐA EITUR
Athugasemd frá Hollustuvernd ríkisins
Vegna fréttar í Helgarpóstinum
um „Eiturát íslendinga", sem birt-
ist í blaðinu fímmtudaginn 11. febr-
úar 1988, vill Hollustuvemd ríkisins
koma með eftirfarandi athuga-
semdir.
1. Samkvæmt upplýsingum frá
Franska sendiráðinu, verður að telja
þau gögn sem Helgarpósturinn not-
ar sem heimild fyrir fréttinni fölsuð.
2. Fréttamaður Helgarpóstsins,
Freyr Þormóðsson, ræddi við starfs-
mann Hollustuvemdar ríkisins
varðandi reglur um notkun aukefna
hér á landi og eftirlit með notkun
þeirra. Efnisleg atriði varðandi til-
greind aukefni í þeirri skýrslu sem
fréttamaður hafði undir höndum
voru ekki rædd, en fram kom að
það væri skýrsla frá frönsku há-
skólasjúkrahúsi í Chaumont.
Starfsmaður Hollustuvemdar ríkis-
ins tjáði þá fréttamanninum að
stofnunin hefði áður fengið fyrir-
spumir um aukefni vegna upplýs-
inga sem fram kæmu í skýrslu frá
frönsku sjúkrahúsi. Var frétta-
manni bent á, að ef um sömu
skýrslu væri að ræða, þá kæmu þar
fram upplýsingar sem væm rangar.
Meðal annars var bent á að þar
væm skaðlaus efni talin til efna sem
gætu verið krabbameinsvaldandi.
3. Stofnunin taldi eðlilegt, sbr.
framanritað, að fréttamaður Helg-
arpóstsins hefði afíað sér gagna um
réttmæti þeirra upplýsinga sem
fram koma í áðumefndri skýrslu.
Frétt Helgarpóstsins getur augljós-
lega valdið neytendum óþarfa
áhyggjum og söluaðilum og fram-
leiðendum ómældum skaða. Því er
brýnt að athugasemdir þessar kom-
ist á framfæri eins fljótt og auðið
er og verður að átelja vinnubrögð
af þessu tagi.
omRon
AFGREIÐSLUKASSAR
ÚTLITIÐ - VÉLIN - TÆKNIN OG
INNRÉTTINGIN - ALLT ER BYGGT Á
SKYNSEMI, FEGURÐARSKYNIOG
UMFRAM ALLT JAPANSKRI
ÚTSJÓNARSEMIOG HUGVITI.
★ Snerpa og einstakir aksturseiginleikar.
★
★
★
★
★
★
★
Farþegarýmið og þægindin slík, að menn trúa ekki að þeir sitji í
Skipt, fellanleg aftursæti skapa alhliða skutbíl til sendiferða.
Bensíneyðsluna tekur varla að nefna.
Fullkomin sjálfskipting 4ra eða 5 gíra beinskipting.
Framhjóladrif eða 4x4.
Sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólum.
DAIHATSUGÆÐIOG ÞJONUSTA SEM ALLIR ÞEKKJA.
BRIMBORG H/FÁrmúla 23. Símar: 685870 - 681733