Morgunblaðið - 17.02.1988, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 17.02.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988 31 k. Snjóflóð við ,Jarðgöngin “ Snjóflóð féll um helgnna Dalvíkurmegin við Ólafsfjarðarmúlann þar sem jarðgöngunum er ætlað að vera. Unnið var að mokstri strax á mánudagsmorgun, en búið hafði verið að merkja staðsetn- ingu opsins inn í fjallið. Ljósmyndari Morgunblaðsins á Ólafsfirði, Svavar B. Magnússon, tók mynd- ina á leið sinni í gær, en þá hafði að mestu verið hreinsað til. r~ 1 * : JPS * ^ ft Starfsmenn Slippstöðvarinnar við störf í gær. Morgunblaðið/GSV Slíppstöðin segir upp fastri yfírvinnu Smíði 110 íbúða hafin á síðasta ári HAFIN var smíði 110 íbúða á siðasta ári, en aðeins 28 íbúða árið áður. Af þeim 110 ibúðum, sem framkvæmdir voru hafnar við, voru þijú einbýlishús, þijú raðhús með sextán íbúðum og fimm fjölbýlishús með 91 ibúð. Alls var fullgerð 21 íbúð á árinu, sex einbýlishús og fimmtán rað- húsaíbúðir. í árslok voru fokheldar eða lengra komin 29 einbýlishús, 27 raðhúsaíbúðir og 72 íbúðir í fjöl- býlishúsum. Skemmra á veg komin voru í árslok sex einbýlishús, tíu raðhúsa- íbúðir og 41 íbúð í fjölbýl- ishúsum. Samkvæmt upplýsingum frá byggingafulltrúa Akureyrarbæjar voru hafnar framkvæmdir á ýmsum öðrum byggingum en fbúðarhús- næði á árinu 1987. Má í því sam- bandi riefna íþróttahús við Bugðu- síðu, tvö fiugskýli við Eyjafjarðár- braut, safnaðarheimili við Eyrar- landsveg, verkstæðishús við Fiski- tanga, stórmarkað KEA við Glerár- götu, viðbygging við Hótel KEA, golfskálann að Jaðri, tvær birgða- skemmur við Krossanes, iðnaðarhús við Óseyri 22 og fleira. A árinu var lokið við fram- kvæmdir á Seli I og II, bensínstöð- um Shell og Esso við Hörgárbraut og stöð Esso við Drottningarbraut, viðbyggingu í Kirkjugarði, kvik- myndahúsi við Geislagötu, fjórða áfanga Verkmenntaskóla, annan áfanga Síðuskóla auk birgða- skemma við Krossanes og fleira. Hafnarnefnd Dalvíkur: Telur fjárveitingn Ktilsvirðingn við sjávarútveg ^ Dalvík. Á SÍÐASTA fundi hafnarnefndar á Dalvík voru bókuð harðorð mót- mæli við afgreiðslu fjárveitinga- valdsins á fjárbeiðni hafnamefnd- ar til framkvæmda árið 1988. Nefndin telur fjárveitinguna litils- virðingu við sjávarútveg á Dalvík og segir jafnframt að „mótmæli þessi séu byggð á þeirri margit- rekuðu og gffurlegu áhættu sem núverandi mannvirki eru í og þeirri augljósu staðreynd að fyrir- sjáanlegt er að ef ekkert verður að gert, þá mun sú aðstaða sem skipum er búin i höfninni, standa vexti bæjarfélagsins fyrir þrif- um“. Enda þótt lagfæringar hafi verið gerðar á hafnarmannvirkjunum á síðustu árum er höfnin ekki nægjan- lega vel í stakk búin til að taka við auknum flutningum og umferð. Á fjárlögum þessa árs er einungis 500.000 krónum varið til hafnar- framkvæmda á Dalvík þrátt fyrir að bæjaryfirvöld hafi reynt að gera fjár- veitingavaldinu grein fyrir hve alvar- legt ástand sé að skapast í höfninni. Á þessu ári er ráðgert að skipa- stóll Dalvíkinga stækki verulega, tvö ný skip munu koma í stað annarra minni og nýir bátar hafa verið keypt- ir til staðarins þannig að viðlegu- pláss mun skerðast verulega. Lag- færa þarf gijótvöm á norðurgarði ^ og gera endurbætur á enda hans en þessi hluti hafnarinnar er í mikilli hættu ef mikinn sjó gerir. Þá þarf að grafa upp úr höfninni svo stór flutningaskip eigi betra með að at- hafna sig þar. Á siðasta ári jókst umferð um Dalvíkurhöfn verulega, einkum um- ferð vöruflutningaskipa. Alls voru skipakomur 205 en það er um 14% aukning frá fyrra ári og jukust vöru- flutningar um Dalvíkurhöfti um 17% á milli ára. Nú í janúar haifa 20 skip haft viðkomu sína á Dalvík en á sama tíma í fyrra voru skipin sex. Landað- ur afli í Dalvíkurhöfn nam 12.653 tonnum en það er mjög svipað magn og árið 1986. Bolfiskafli jókst en rækjuafli minnkaði. v, Á árinu 1987 var flutt út um Dalvíkurhöfn 13.141 tonn, að sjálf- sögðu mest fiskafurðir. Er þetta um 31,8% aukning frá árinu 1986. Inn- flutningur var hinsvegar nánast sá sami og á fyrra ári eða 11.200 tonn. Á síðustu tveimur árum hefur skipa- komum íjölgað um nær helming. Þessi mikla aukning umferðar um höfnina helgast að hluta til af því að Eimskipafélagið hefur nú vikulega viðkomu á Dalvík og þá hafa ná- grannabyggðir í auknum mæli notað höfnina til út- og innflutnings. Fréttaritari Flylja inn hluta í nýsmíði vegna skorts á málmiðnaðarmönnum SLIPPSTÖÐIN á Akureyri hefur sagt starfsmönnum sinum upp fastri yfirvinnu ótímabundið vegna verkefnaskorts tímabund- ið. Ákvörðun þessi var í fyrstu tilkynnt trúnaðarmönnum á mánudag og í kjölfarið haldin starfsmannafundur þar sem ákvörðunin var tilkynnt form- lega. Gunnar Skarphéðinsson starfs- mannastjóri Slippstöðvarinnar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að venjan hefði verið sú að átta tímar hefðu verið unnir í dag- vinnu og einn í yfirvinnu, frá 16.00 til 17.00, en eftir breytingarnar nú ynnu menn aðeins dagvinnuna, frá 8.00 til 16.00. Gunnar átti von á að þetta ástand myndi vara fram yfir páska, en þá væri von á fleiri verkefnum. Hann sagði að uppsagnimar kæmu við meginþorra starfsfólks Slippstöðv- arinnar, alls um tvö hundruð manns, eða alla þá er ekki starfti við skrifstofustörf. Skrifstofufólk hefur ekki notið fastrar yfírvinnu hjá Slippstöðinni. Gunnar sagði að aðeins einu sinni áður hefði þurft að grípa til þessa ráðs á sl. tuttugu árum. Slippstöðin er um þessar mundir að hefja smíði á nýjum 200 tonna togara og í bígerð er að hefja smíði annars slíks innan tíðar. Fyrirtækið þarf hinsvegar að flytja inn hluta skipsins frá Svíþjóð þar sem ekki fást nægilega margir málmiðnaðar- menn til starfa. „Við erum fyrst og fremst með þessu að hraða upp- byggingu skipsins svo aðrir verk- hópar, svo sem rafvirkjar, trésmiðir og vélvirkjar, komist að. Hjá Slipp- stöðinni starfa á annað hundrað málmiðnaðarmenn og sagði Gunnar að það vantaði milli 30 og 40 í við- bót ef vel ætti að vera. Við þurfum að flytja inn botnhluta og síður tog- arans frá Svíþjóð. Þetta kemur í hlutum til landsins og verður sett saman af starfsmönnum Slipp- stöðvarinnar. Með þessu er ekki verið að taka vinnu af neinum. Það er eingöngu verið að kaupa vinnu að utan sem ekki er til í landinu," sagði Gunnar. Hann sagði að búast mætti við auknum verkefnum með vorinu og um miðjan apríl væri von á togaran- um Vestmannaey VE í Slippstöðina, en skipið hefur undanfarið verið í breytingum í Póllandi. Gunnar sagði að Vestmannaey yrði siglt til Akureyrar frá Póllandi vegna þess hve verki Pólveijanna hefði seinkað mikið, en verið er að breyta togar- anum í .frystiskip. Fyrirtæki til sölu Hin stórglæsilega fiskverslun Sjávargull á Akureyri ertil sölu. Upplýsingar eru veittar hjá Eignakjöri, s. 96-26441 og Fasteigna- og skipasölu Norðurlands, s. 96-25566.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.