Morgunblaðið - 17.02.1988, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988
Afkoma ríkissjóðs 1987:
Veikleikamerki í hagstj órn
að halli ríkissjóðs minnkaði ekki í góðæri
Morgunblaðið birtir hér á eftir
í heild fréttatilkynningu frá fjár-
málaráðuneytinu um afkomu
ríkissjóðs á sl. ári:
Framvinda efnahagsmála á árinu
1987 var að mörgu leyti dæmigerð
fyrir íslenska þjóðarbúskapinn.
Tvennt setti mestan svip á þróunina.
Annars vegar aukin framleiðsla í
flestum greinum atvinnulífsins, eink-
um í versiunar- og þjónustugreinum
svo og byggingariðnaði. Þessu fylgdi
afar mikil hækkun tekna. Jafnframt
átti mikill hallarekstur á ríkissjóði,
auknar erlendar lántökur og útlána-
þensla í bankakerfínu dijúgan þátt
í að kynda undir þessari þróun. Þetta
skapaði aftur mikla útgjaldaþenslu
Vélsmiðjur
i
I:.. 4
SUSTAMID nælon og
pólyethylen í stöngum til
smíða á hverskonar véla-
hlutum o.fl.
G.J. Fossberg
vélaverslun hf.
Skúlagötu 63 - Reykjavík
Símar 18560-13027
hér innanlands með þeim afleiðing-
um, að verðbólga fór ört vaxandi,
eftir því sem á árið leið, og viðskipta-
hallinn gagnvart útlöndum fór úr
böndunum.
Á fyrstu mánuðum ársins 1987
varð ljóst, að hallinn á ríkissjóði
stefndi mun hærra en fjárlög gerðu
ráð fyrir, eða í allt að 3.400 m.kr.
samkvæmt áætlun í maímánuði. Með
þeim tekjuöflunaraðgerðum, sem ný
ríkisstjóm greip til á miðju sumri,
var hins vegar áætlað, að hallinn
gæti lækkað niður í 2.700 m.kr. Á
haustmánuðum var jafnvel talið, að
hallinn gæti orðið enn minni, eða um
2.300 m.kr., meðal annars vegna
þeirra tekjuöflunaraðgerða, sem
ríkisstjómin beitti sér þá fyrir.
Nú liggja fyrir bráðabirgðatölur
um afkomu A-hluta ríkissjóðs á árinu
1987 (sjá meðfylgjandi greinargerð).
Þessar tölur sýna halla á rekstrar-
reikningi upp á rúmlega 2.700 m.kr.
Þetta er nokkru lakari útkoma en
búist var við síðastliðið haust, en það
stafar fyrst og fremst af mun meiri
vaxta- og launagreiðslum á síðustu
mánuðum ársins en þá var gert ráð
fyrir. Hallinn nemur um 1,3% af
áætiaðri landsframleiðslu. Til saman-
burðar má nefna, að árið 1986 nam
rekstrarhallinn tæplega 1.900 m.kr.,
eða sem svarar til 1,2% af lands-
framleiðslu.
Heildartekjur ríkissjóðs námu
tæplega 49 milljörðum króna í fyrra,
eða tæplega 6 milljörðum, 14%,
meira en áætlað hafði verið á fjárlög-
um ársins. Heildargjöld urðu 51,7
milljarðar og höfðu líka hækkað um
tæplega 6 milljarða króna frá fjárlög-
um, eða um 13%.
Skýringin á hækkun tekna og
gjalda umfram Qárlög er í meginat-
riðum Qórþætt. I fyrsta lagi hækk-
uðu laun í landinu — og þar með
einnig launaútgjöld ríkissjóðs — á
síðasta ári mun meira en gert var
ráð fyrir við afgreiðslu fjárlaga. í
öðru lagj voru innlendar veltubreyt-
ingar miklu meiri en búist var við.
í þriðja lagi hækkaði verðlag tals-
vert umfram áætlanir. f fjórða lagi
má rekja einn fimmta hluta hækkun-
ar tekna umfram fjárlög til tekjuöfl-
unaraðgerða ríkisstjómarinnar
síðastliðið sumar og hasut.
Hækkunin milli ára, þ.e. frá 1986
tii 1987, er rétt undir 30%, bæði á
tekju- og gjaldahlið. Til samanburðar
má nefna, að almennt verðlag hækk-
aði um rúmlega 24% á sama tíma-
bili, en laun eru talin hafa hækkað
um tæplega 40% á mann. Þar sem
þjóðartekjur eru taldar hafa hækkað
um svipað hlutfall, má segja, að
heildarumsvif ríkisins — mæld sem
hlutfall tekna og gjalda af lands-
framleiðslu — hafí haldist óbreytt
milli áranna 1986 og 1987, nálægt
fjórðungi.
Hallinn varð svipaður bæði árin,
eða sem svarar til um 1V4 af lands-
framleiðslu. Þannig má segja, að á
síðasta ári hafi tekist að halda ríkis-
búskapnum á svipuðu róli og árið
1986, hvað þetta snertir. Hins vegar
verður það að teljast veikleikamerki
í innlendri hagstjóm, að ekki skuli
hafa tekist að draga úr halla ríkis-
sjóðs í þvi góðæri, sem einkenndi
íslenskan þjóðarbúskap á síðasta ári.
Fjármál A-hluta ríkis-
sjóðs á árinu 1987
1. Afkoma:
Rekstrarafkoma A-hluta ríkis-
sjóðs á árinu 1987 var neikvæð um
2.725 m.kr., eða sem nemur 1,3% af
landsframleiðslu. Þetta er töluvert
betri útkoma en gert var ráð fyrir á
fjárlögum, en þá var áætlað, að hall-
inn gæti numið allt að 1,7% af lands-
framleiðslu, eða 800 m.kr. meiri.
Lánahreyfingar. Talsverðar
sviptingar urðu í lánamálum ríkis-
sjóðs á síðasta ári. Þannig dró bæði
úr lántökum og lánveitingum miðað
við næsta ár á undan. Útstreymi af
lánareikningi nam um 5.673 m.kr.
Þetta skiptist þannig, að veitt lán og
hlutafé voru 2.845 m.kr., greiddar
afborganir umfram innheimtar 1.004
m.kr. og útstreymi á viðskiptareikn-
ingum 1.824 m.kr. Innstreymi á lána-
reikningum nam 7.678 m.kr. Þar af'
voru innlendar lántökur 5.523 m.kr.,
en erlendar 2.155 m.kr. Mikil um-
skipti urðu á lántökuhliðinni, þar sem
lántökur erlendis minnkuðu um meira
en helming frá árinu 1986. Aftur á
móti jukust lántökur innanlands um
40%. Samanborið við árið 1986 lækk-
uðu erlendar lántökur um 2.849
m.kr., en lántökur innanlands jukust
um 1.629 m.kr. Heildarhreyfmgar á
lánareikningi árið 1987 sýna þannig
2.005 m.kr. innstreymi umfram út-
streymi, eða sem nemur 1% af lands-
framleiðslu, samanborið við 2.600
m.kr. árið 1986, 1,6% af landsfram-
leiðslu. Sjá töflu I.
Greiðsluafkoma A-hluta ríkis-
sjóðs var á árinu 1987 neikvæð um
720 m.kr., eða sem nemur 1,4% af
útgjöldum ríkissjóðs. í endurskoðaðri
áætlun um afkomu ríkissjóðs frá því
í október 1987 var hins vegar gert
ráð fyrir, að greiðsluhreyfingar yrðu
því sem næst í jafnvægi. í aðalatrið-
um má skýra þessa neikvæðu
greiðslustöðu út frá verri útkomu
rekstraraðila.
2. Aðgerðir i rikisfjármálum
Á síðasta ári urðu mikil umskipti
í fjármálum ríkisins. Við afgreiðslu
fjárlaga var gert ráð fyrir, að tekju-
halli yrði 2.843 m.kr. Þegar ný ríkis-
stjóm tók við völdum, var ljóst, að
þróunin í Qármálum ríkisins og verð-
lagsmálum hafði færst mjög til verri
vegar og mikil þensla í þjóðfélaginu.
Þá var áætlað, að halli á ríkisbú-
skapnum gæti orðið á bilinu 3.500—
4.000 m.kr.
Til þess að draga úr verðbólgu og
viðskiptahalla og koma á betra sam-
ræmi milli þjóðarútgjalda og þjóðar-
tekna greip ríkisstjómin strax í upp-
hafi til margháttaðra aðgerða, sem
meðal annars fólust í eftirfarandi:
— Undanþágum frá söluskatti var
fækkað og lagður sérstakur lægri
söluskattur á ýmis matvæli og
þjónustu.
— Lagtvarásérstaktbifreiðagjald.
— Viðbótarskattur var lagður á inn-
flutt kjamfóður.
— Ríkisábyrgðargjald var hækkað
og lagt lántökugjald á erlendar
lántökur.
— Hækkun lífeyrisgreiðslna og
bamabótaauka.
Áætlað var að aðgerðir þessar
skiluðu ríkissjóði rúmum milljarði í
auknar tekjur á árinu 1987. Á móti
var gripið til tekjujafnandi aðgerða
með hækkun lífeyrisgreiðslna og
bamabótaauka. Þessum aðgerðum í
ríkisflármálum var fylgt eftir með
frekari ráðstöfun á sviði peninga-
og lánamála, meðal annars með
hækkun vaxta á spariskírteinum og
með því að frysta hluta af endur-
greiðslum uppsafnaðs söluskatts til
sjávarútvegs inni á bundnum reikn-
ingi, þannig að þær greiðslur færu
ekki út í hagkerfíð.
Þótt þessar aðgerðir hafa styrkt
stöðu ríkissjóðs verulega, var ljóst,
er kom fram á haust, að þær héldu
ekki nægilega aftur af vexti þjóðar-
útgjalda. Jafnframt því var innlendur
spamaður minnkandi. Því voru
ákveðnar frekari aðgerðir á tekju-
hliðinni, sem fólust í eftirfarandi:
— Innflutningsgjald af bílum var
hækkað.
— Hækkun verðs á áfengi og tóbaki
um 8%.
Jafnframt var gripið til ýmissa
ráðstafana í peninga- og lánsfjármál-
um til að efla innlendan spamað.
Með þessum aðgerðum var þess
vænst að rekstrarhalli ríkissjóðs
næðist niður í 2.300 m.kr.
Þróun verðlags
Þróun launa og verðlagsmála í
fyrra var mjög frábrugðin því sem
gert var ráð fyrir við afgreiðslu fjár-
laga fyrir árið 1987. Þetta endur-
speglast í samanburði á niðurstöðum
og fjárlagatölum og er nauðsynlegt
að hafa í huga, þegar verið er að
bera þessar stærðir saman.
. Eftirfarandi yfírlit sýnir breyting-
ar helstu verðvisitalna milli ársmeð-
altala 1986 og 1987 eins og þær
urðu í raun, samanborið við forsend-
ur flárlaga. Sjá töflu II.
Yfírlitið sýnir, að verðhækkanir
milíi ára hafa orðið 5—6% umfram
forsendur íjárlaga. Enn meiri munu
varð á tölum um hækkun frá upp-
hafi til loka árs, þar sem verðlag
- Útkoma 1986 Tafla I Fjárlög Endursk. 1987 maí Endursk. áætl. okt. Útkoma 1987 Breyting ’86-*87 %
1. Tekjur 38.235 43.029 45.160 47.600 48.963 28,1
2. Gjöld 40.111 45.872 48.560 49.900 51.688 28,9
3. Tekjur umfram gjöld -1.876 -2.843 -3.400 -2.300 -2.725
4. Lánahr. útstreymi 6.296 3.230 4.937 4.677 5.673 -9,9
Afborganir, nettó 3.750 1.430 1.430 1.430 1.004 -73,2
Veitt lán 1.493 1.420 1.940 1.680 1.972 32,1
Hlutafé 89 80 844 844 873
Viðsk.reikn., nettó 964 300 723 723 1.824 89,2
5. Lántökur 8.897 6.150 7.394 6.800 7.678 -13,7
Innlendar 3.893 4.450 4.450 4.880 5.523 41,9
Erlendar 5.004 1.700 2.944 1.920 2.155 -56.9
6. Lánahreyfingar
nettó (5.-4.) 2.601 2.920 2.457 2.123 2.005
7. Greiðsluafkoma
ríkissjóðs (6.+3.) 725 77 -943 -177 -720
Tafla II Meðalhækkun milliára Hækkun frá upphaf i til loka árs
Fjárlös: Útkoma Frávik Fjárlöff Útkoma Frávik
% % % % % %
Framfærsluvísitala 11,5 18,8 6,5 7,5 24,3 15,6
Byggingavísitala 12,5 17,7 4,6 7,5 17,5 9,3
Lánskjaravísitala 12,5 18,1 5,0 7,5 24,1 15,4
Atvmnutekjur 20,0 39,0 15,8 9,0 30,0 19,3
Tafla III
- Mismunur
Fiárlög Endursk. Útkoma okt. áætl. Útkoma Breyting
1987 október 1987 og útkomu 1986 1986-1987
1. Tekjur alls 43.029 47.600 48.963 1.363 38.235 % 28,1
1.1 Beinir skattar 6.626 6.301 6.292 -9 5.525 13,9
Eignaskattur 1.271 1.296 1.191 -105 889 34,0
Tekjuskattur 5.355 5.005 5.101 96 4.636 10,0
1.2 Óbeinir skattar 33.749 38.544 39.865 1.311 29.485 35,2
Sölugjald 17.430 19.610 20.227 617 14.443 40,0
Aðflutningsgj. 5.264 6.174 6.648 474 5.031 32,1
Framl. og innfl.sk. 2.308 2.509 2.524 15 2.069 22,0
Hagn. ÁTVR 2.650 3.200 3.200 2.430 31,7
Skattar af launagr. 3.290 3.543 3.553 10 2.683 32,4
Þungask. og bifr.
eftirlitsgjöld 863 1.190 1.142 -48 824 38,6
Aðrir óbeinir sk. 1.944 2.318 2.628 310 2.005 i 31,1
1.3 Arðgr. og vaxtatekjur 2.654 2.755 2.816 -61 3.225 -12,7
Fjárlöar Endursk. Útkoma okt.áætl. Útkoma Breyting
1987 október 1987 og útkomu 1986 1986-’87
i. Almennur rekstur 18.741 20.921 22.146 1.121 13.374 % 63,9
Laun 14.825 16.742 17.800 1.053
önnur gjöld - sértekj. 3.916 4.179 4.346 167
2. Neyslu- og rekstrar- tilfærelur 16.800 18.354 18.303 51 17.405 5,6
Lífeyristrygg. 6.360 7.140 7.151 11 5.035 42,0
Sjúkratrygg. 4.235 4.515 4.325 -190 4.874
Niðurgr. og útfl.bætur 1.890 2.410 2.544 134 2.087 21,9
Annað 4.310 4.289 4.283 -6 5.409 26,3
3. Vextir 3.620 3.650 4.289 639 3.916 9,5
4. Viðhald 1.134 1.208 1.200 -8 946 29,0
5. Fjárfesting 5.577 5.767 5.750 33 4.471 30,8
Samtals 45.872 49.900 51.688 1.788 40.111 28,9