Morgunblaðið - 17.02.1988, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1988
47
SJÁLFBOÐALIÐAR RAUÐA KROSSINS
Frá Flúðum til Eþíópíu
Einar Karl Friðriksson.
Að hluta til
ævintýraþrá
Blaðamaður hitti að máli tvö
þeirra sem sóttu námskeiðið, Ástu
Þórdísi Guðjónsdóttur og Einar
Karl Friðriksson.
Ásta Þórdís er 22 ára afgreiðslu-
stúlka í Hagkaupum. „Þetta var að
hluta til ævintýraþrá og að hluta
til löngun til að gera eitthvað nyt-
samlegt," sagði hún um tildrög
þess að hún sótti um að fara til
Eþíópíu. „Áður en ég fór vissi ég
ekkert um starf Rauða krossins,
allt sem ég kom fram á námskeið-
inu var alveg nýtt fýrir mér. Um
Afríku vissi ég einnig fátt, lítið
meira en það sem kunningjar mínir
frá Afnku höfðu sagt mér. Ég geri
mér þó vonir um að ef ég komist,
Rauði kross íslands hélt helgina
5.-7. febrúar námskeið fýrir
ungt fólk á aldrinum 18-25 ára sem
áhuga hefur á að fara til Eþíópíu
og starfa sem sjálfboðaliðar með
eþíópíska Rauða krossinum. Starfið
þar mun m.a. verða fólgið í vemdum
vatnsbóla, gróðursetningu og heil-
brigðisfræðslu.
Um 80 manns sóttu um að fara
og úr þeim hópi voru valin 16 ung-
menni. Stefnt er að að uppundir
helmingur þeirra fari út á þessu
ári og því næsta ef að vel tekst til
með starfíð, áætlað er að fyrstu tvö
fari í júlí. Þau sátu námskeið á
Flúðum þar starfsemi Rauða kross-
ins var kynnt allýtarlega, fjallað
um störf sjálboðaliða á vegum
Rauða krossins, staðhætti og
ástand gróðurs í Gojjam-héraði þar
sem sjálfboðaliðamir munu dveljast
og síðast en ekki síst um hvemig
koma eigi þeirri vitneskju á fram-
færi sem sjálfboðaliðamir öðlast.
Námskeiðið fór að stærstum hluta
fram á ensku.
Fyrirlesarar vom fulltrúar Rauða
krossins; Hólmfríður Gísladóttir,
Jakobína Þórðardóttir, Hannes
Hauksson og Bima Stefnisdóttir.
Auk þeirra ræddu þeir Bjöm Frið-
fínnsson, formaður Flóttamannar-
áðs RKÍ, Stefán Jón Hafstein,
sendifulltrúi, Þorvaldur Öm Áma-
son, frá Menntamálaráðuneytinu og
Úlfur Ragnarsson, bifvélavirki, við
sjálfboðaliðana.
Seinni hluti námsskeiðins verður
haldinn í Reykjavík fyrstu helgina
í mars og þar verður aðaláherslan
lögð á að heilbrigðisfræðslu, vemd-
un vartnsbóla og reynslu sjálf-
boðaliða sem starfað hafa í Eþíópíu.
í millitíðinni sækja sjálfboðaliðamir
skyndihjálpamámskeið.
Kvöldvaka að hætti Rauða krossins, Jónas Valdimarsson og Ásta
Þórdís Guðjónsdóttir syngja um ævintýri Óla litla. Við fætur þeirra
sitja Jóhann Búason og Einar Karl Friðriksson.
Séð yfir hluta þátttakenda.
Ásta Þórdis Guðjónsdóttir.
þá geti ég lært eitthvað. Námskeið-
ið hefur verið gagnlegt það sem af
er, ég er margs vísari og því ánægð.
Ekki sagði Ásta neitt hafa komið
sér beinlínis á óvart á námskeiðinu
þó vissulega hefði margt forvitni-
legt komið fram. í því sambandi
nefndi hún sérstaklega gróðurrækt-
arverkefni það sem Ungliðahreyf-
ing Rauða krossins hefur starfað
að undanfarið. Hún hefði mikinn
áhuga á að taka þátt í því.
En gerir þú þér vonir um að
komast til Eþíópíu? „Það er ómögu-
legt að segja nokkuð um en ég fer
örugglega þangað, fyrr eða síðar.
Mig langar til að kynnast menningu
Eþíópíubúa af eigin raun.“
Fór ekki eingöngu á
námsskeiðið til að
verða sendur út
Einar Karl Friðriksson er ekki
alveg ókunnur málefnum Rauða
krossins, því hann er formaður
Ungliðahreyfíngarinnar, URKÍ,
auk þess sem hann starfar nú að
sérverkefni fyrir Rauða krossinn.
Einar er 19 ára og því yngsti þát-
takandinn. Hann sagðist hafa haft
nokkra hugmynd um hvað_yrði fjall-
að um á námskeiðinu. „Eg fór til
þess að fræðast svolítið um starf
Rauða krossins í þróunarlöndum,"
sagði hann. „Ég hef töluverðan
áhuga á að komast til þróunarlanda
en líkumar á því eru ekki miklar.
Þeir sem á námskeiðinu eru hafa
flestir meiri lífsreynslu en ég.“
Hann sagðist ekki hafa farið með
það eitt að markmiði að komast út
þó að innst inni hefði hann auðvitað
vonað að hann fengi að fara, fyrr
eða síðar. „Það breytir því ekki að
ég er ánægður með námskeiðið, það
stendur vel undir þeim væntingum
sem ég hafði og mig langar meira'
til Eþíópíu núna þegar ég veit að-
eins meira um landið og hvað sjálf-
boðaliðunum er ætlað að gera.
Hvað fannst þér athyglisverðast?
Margt sem kom fram um lífshætti
fólks fannst mér áhugavert, enda
nýtt fyrir mér.
Ég er ánægður með að námskeið-
ið skuli fara fram á ensku, það er
góð æfing. Annars er erfítt að
dæma þennan hluta námskeiðsins
því í rauninni er verið að veita okk-
ur gífurlegt magn upplýsinga á
mijög stuttum tírna."
Einarsnes
SELTJNES
Látraströnd
Hrólfsskálavör
MIÐBÆR
Tjarnargata 3-40
Tjarnargata 39-
Lindargata 39-63 o.fl
Hverfisgata 4-62
Laugavequr1-33o.fl
Sogavegur101-156
Sogavegur158-210
Sæviðarsund hærri tölur
Efstasund 2-59
Kambsvegur
KOPAVOGUR
Sunnubraut
Kársnesbraut 77-139
VESTURBÆR
Hringbraut 37-77
ÚTHVERFI
SKERJAFJ.
AFMÆLISTILBOÐ GELLIS!
STÓRKOSTLEG VERÐLÆKKUN Á ÍSSKÁPUM OG SJÓNVARPSTÆKJUM
C£
OPIÐ LAUGARDAGA TIL KL. 16.00
GÆÐI A GÓÐU VERÐI
0)M
F SKIPHOLT 7 S: 20080 - 26800
20
Ara
ORUGG
ÞJÓNUSTA