Morgunblaðið - 09.03.1988, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
57. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovétríkin:
Gagnrýna frétta-
flutning af óeirðum
Fórnarlambanna minnst í Jerevan
Moskvu, Reuter.
VIKURITIÐ Moskvu-fréttir gagnrýndi í gær sovésk yfirvöld fyrir
að hafa ekki gefið nægar upplýsingar um róstumar i Azerbajdzhan
og Armeníu í síðasta mánuði. í grein sem byggð er á fréttum og
upplýsingum sem blaðamenn fengu af atburðunum segir, að frétta-
fiutningur af óeirðunum hafi einkennst af „seinagangi og hiki“.
í greininni í Moskvu-fréttum sem
verið hefur framarlega í flokki blaða
sem krafist hafa aukins og ná-
kvæmari fréttaflutnings í anda
„glasnost“-stefnu Gorbatsjovs Sov-
étleiðtoga, segir meðal annars:
„Engar áreiðanlegar upplýsingar
fengust frá yfirvöldum um óróleik-
ann sem hrundið var af stað af
smáglæpamönnum í Azerbajdz-
han," og blaðið bætir því við að
ástæða uppþotanna hafi verið orð-
rómur og kjaftasögur.
Engar fréttir voru af óeirðunum
í sovéskum fjölmiðlum í gær. Sam-
kvæmt fréttum Reuters-fréttastof-
unnar tóku hins vegar þúsundir
Armena þátt í minningarathöfn í
gær í Jerevan um þá sem féllu í
óeirðunum. Að sögn sovéskra emb-
ættismanna féll 31 maður er Az-
erbajdzh önum og Armenum laust
saman í borginni Súmgajt í Az-
erbajdzh an um síðustu mánaða-
mót. Blómsveigur var lagður á
minnismerki um þá sem féllu í átök-
um við Tyrki árið 1915 og síðan
var gengið að Óperu-torginu þar
sem flutt voru ávörp. Stór hluti
þeirra sem þátt tóku í minningarat-
höfninni voru konur en í gær
var alþjóðlegi kvennadagurinn.
IRA-menn felldir á Gíbraltar:
Sprengiefni finnst
í bifreið á Spáni
Madríd, Reuter.
SPÁNSKA lögreglan fann
sprengju í gær í bifreið í bænum
Marbella. Hafði hún verið tekin
á leigu í bæ í nágrenni Marbella.
Bifreiðin er talin hafa verið á
vegum írskra skæruliða, sem
skotnir voru á Gíbraltar á sunnu-
dag.
I bifreiðinni, sem er af gerðinni
Ford Fiesta, fundust fimm pakkar
af sprengiefni og klukka sem hugs-
anlega hefur verið ætluð til að tíma-
setja sprengingu, að sögn tals-
manns lögreglunnar. Bifreiðin
fannst í neðanjarðar-bílageymslu í
miðborg Marbella, sem er 50 kíló-
metra frá bresku nýlendunni
Gíbraltar, þar sem þrír skæruliðar
voru skotnir af öryggislögreglu á
sunnudag. Lögreglan hefur leitað
að sprengiefni frá því mennirnir
þrír, sem allir voru meðlimir írska
lýðveldishersins, IRA, voru skotnir.
Breska stjómin hefur lýst því
yfír að viðbrögð öryggislögreglunn-
ar hafi komið í veg fyrir árás IRA
á Gíbraltar. Talsmaður innanríkis-
ráðuneytisins á Spáni sagði í sam-
tali við Æeuíers-fréttastofuna að
sprengiefnin sem fundust væru
samskonar og IRA notaði alla jafna
í sprengjuárásir sínar. Klukkan sem
fannst í bílnum var stillt á 11.20,
sem er sami tími og skipt var um
varðliðasveitir við bústað landstjór-
ans á Gíbraltar, athöfn sem dregur
að Qölda áhorfenda.
IRA-mennimir sem skotnir vom
skildu eftir hvita Renault-bifreið við
bústað landstjórans á Gíbraltar og
er talið að þeir hafi gert það til
þess að geta síðar komið þar með
bifreið sem hefði að geyma virka
sprengju. Telur lögregla að málið
sé að mestu upplýst.
Sjá einnig „Thatcher hvött...
á bls. 31.
Thor tekur við verðlaununum
THOR Vilhjálmsson rithöfundur tók við bókmennta-
verðlaunum Norðurlandaráðs í Tónlistarhöllinni í
Ósló í gær. Hann er þriðji íslendingurinn sem fær
verðlaunin, hinir em Ólafur Jóhann Sigurðsson og
Snorri Hjartarson. Það var Jan P. Syse, forseti
Norðurlandaráðs, sem afhenti Thor verðlaunin og
sést hann á myndinni ásamt Thor og Elsi Hátemáki-
Olander, fyrmm forseta Norðurlandaráðs.
Við afhendingu verðlaunanna sagði Ingmar Sved-
berg finnski fulltrúinn í úthlutunarnefndinni þegar
hann kynnti Thor Vilhjálmsson og ritverk hans að
verðlaunabókin, Grámosinn glóir, væri í 'senn mikil
og hrífandi íslensk skáldsaga og mikil og hrífandi
norræn skáldsaga.
í upphafi þakkarræðu sinnar sagði Thor Vil-
hjálmsson: „Við lifum á tímum hinnar upphöfnu
lágkúm. Hins íburðarmikla auvirðis. Öll skynjum
við að við þörfnumst einhvers annars. Það kemur
ekki mál við mig þótt menn séu að syngja eða láta
syngja yfir sér, eða allir í kór: la det svinge — en
mætti ég spyija: Hvað á að sveiflast og hvemig?
Kannski fest upp á hæsta gálga, eða bara dingla
eins og sprellikarl, eða hengilmæna með taktmæli?"
Sjá fréttir frá þingi Norðurlandaráðs á bls. 31
og ræður Þorsteins Pálssonar, Matthíasar Á.
Mathiesens og Thors Vilhjálmssonar á miðopnu.
Stefndi í yfirburða-
sigur Georges Bush
Washington, Reuter.
FLEST benti til þess að George
Bush, varaforseti Banda-
ríkjanna, myndi vinna yfirburða-
signr í forkosningum flokkanna
vestra þegar Morgunblaðið fór í
prentun í gær. Mikil spenna ríkti
meðal stuðningsmanna Bush
vegna þessa, en hann hafði látið
Pólland:
Lögregla réðst með kylf-
um gegn mótmælendum
Varsjá, Reuter.
TIL ATAKA kom milli lögreglu
og mótmælenda i borginni
Kraká í Póllandi í gær. Pólskir
stúdentar efndu til fjöldafunda
í fjórum borgum til að minnast
þess að 8. mars 1968 réðist lög-
regla á mótmælagöngu stúdenta
í Varsjá.
Atburðurinn í Varsjá 1968 er
talinn hafa komið af stað víðtæk-
ustu stúdentaóeirðum sem orðið
hafa í landinu. Var efnt til þeirra
vegna aðgerða yfirvalda gegn gyð-
ingum og menntamönnum. Þús-
undir háskólaborgara voru reknir
frá störfum og 20.000 gyðingar
flýðu land.
Að sögn sjónarvotta í Kraká í
gær barði lögreglan mótmælendur
með kylfum. Stúdentar, undir for-
ystu rektors háskólans, Grzegorz
Bialkowskis, hlóðu götuvígi úr
ruslatunnum og almenningsbekkj-
um og köstuðu gijóti að lögregl-
unni. Þrír slösuðust í barsmíðum
lögreglunnar og talið er að allt að
hundrað manns hafi verið hand-
teknir. Ekki kom til átaka á fjölda-
fundum í Varsjá og Gdansk.
í málgagni pólska kommúnista-
flokksins Trybuna Ludu í síðustu
viku var viðurkennt að árið 1968
hefðu stúdentar krafist lýðræðis-
legra breytinga og hefðu ranglega
verið kallaðir endurskoðunar-
sinnar. Einnig sagði í blaðinu að
aðgerðir sem beinst hefðu gegn
gyðingum og menntamönnum
hefðu verið harðneskjulegar og
valdið miklum harmi.
Reuter
hafa eftir sér að í raun gæti
valið staðið
um hver
yrði næsti
forseti
Banda-
ríkjanna.
Forkosning-
ar repúblik-
ana fóru
fram í 17
ríkjum, en
demókratar
gengu til
kjörborðs í
20 ríkjum. í George Bush‘
kosmngun-
um eru valdir fulltrúar, sem
sækja munu landsfundi flokk-
anna síðsumars, og þar verða
forsetaframbjóðendur þeirra
valdir. Talið var að meðal demó-
krata myndi Michael Dukakis,
ríkisstjóri Massachusettes, vinna
mest á, en svertinginn Jesse
Jackson fylgja honum fast á
hæla.
Samkvæmt skoðanakönnunum
sjónvarpsstöðva, sem gerðar voru
utan við kjörstaði, naut Bush
allt að þrisvar sinnum meira fylgis
en öldungadeildarþingmaðurinn
Robert Dole og ekki talið ólíklegt
að Bush sigraði í öllum ríkjunum
17. Bush var þó varkár í orðavali,
minnugur þess að í New Hampshire
var Dole spáð naumum sigri, en
Bush sigraði svo með talsverðum
mun.
Þegar Bush kaus í heimaríki sínu
Texas lét hann þau orð falla að ef
kosinn yrði „ótvíræður og sannfær-
andi sigurvegari" í forkosningum
repúblikana hefði um leið verið kjör-
inn næsti forseti Bandaríkjanna.
Hjá báðum flokkunum var til
mikils að vinna fyrir frambjóðend-
ur, því samanlögð tala þeirra full-
trúa, sem kosið var um, nemur um
einum þriðja allra landsfundarfull-
trúa.
í herbúðum demókrata voru þeir
Michael Dukakis og Jesse Jackson
sigurstranglegastir. Það kynni þó
að draga úr fylgi Dukakis að tals-
vert virtist vera um það í þeim níu
ríkjum, þar sem menn ráða í for-
kosningunum hvors flokksins þeir
kjósa, að demókratar ráðstöfuðu
atkvæði sínu í forvali repúblikana.
Það gæti hins vegar styrkt stöðu
Jesse Jacksons til muna.
Sjá ennfremur á síðu 30,
„Demókratar í val-
þröng . . . “