Morgunblaðið - 09.03.1988, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1988
5
Framkvæmdir við verslun Álafoss:
—----------------*----------
Komið niður á
gamla bólvirkið
VIÐ framkvæmdir við verslun
Álafoss Vesturgötu 2 síðastliðinn
mánudag kom í ljós gamla ból-
virkið sem var hluti aðalbryggju
bæjarins áður en höfnin var
gerð. Bryggjan er frá miðri 19.
öld en Bryggjuhúsið (Vesturgata
2) var reist á henni 1862 og er
kennt við hana.
Að sögn Margrétar Hallgríms-
dóttur, fomleifafræðings hjá Ár-
bæjarsafni, er líklega um að ræða
hlaðna stétt sem lá í gegnum hú-
sið. Steinarnir em úr hlöðnum
bryggjukanti sem lá í sömu stefnu
og húsið, um 5 metra frá því.
Bólvirkið verður ekki sýnilegt
þeim sem leið eiga hjá þar sem
mokað verður yfir það. Tilvist þess
var kunn áður en framkvæmdir á
lóðinni hófust. Vildi Margrét taka
fram að þeir sem að framkvæmdun-
um stóðu ættu hrós skilið fyrir að
hafa samband við borgarminjavörð
en það vildi því miður oft gleymast.
Steinar úr bryggjuhleðslu frá
miðri síðustu öld. Bryggjan lá
að bakhlið hússins þar sem jiú
er verslun Álafoss.
Keflavíkur-
flugvöllur:
Viðbúnaður
vegna lend-
ingar Fokk-
ervélar
TALSVERÐUR viðbúnaður var á
Keflavíkurflugvelli laust eftir
hádegi í gær, þegar Fokkervél frá
Flugleiðum lenti þar eftir að ljós
í mælaborði hafði gefið til kynna
að ekki væri allt með felldu með
nefhjól vélarinnar. Þegar til kom
reyndist nefhjólið hins vegar vera
í lagi og tókst lendingin með
ágætum.
Vélin var á leið frá Hornafirði til
Reykjavíkur með 16 farþega. Þegar
flugstjórínn, Kjartan Nordal, bjó sig
undir lendingu í Reykjavík gáfu nef-
hjólsljósin í mælaborðinu til kynna
að nefhjólið væri ekki niðri eða
ólæst. Þegar vélin flaug yfir
Reykjavíkurflugvöll sáu menn hins
vegar áð nefhjólið var niðri en í ör-
yggisskyni var ákveðið að lenda vél-
inni á Keflavíkurflugvelli þar sem
aðstæður til nauðlendingar eru betri.
Þar voru gerðar viðeigandi ráðstaf-
anir og var slökkviliðið á Keflavíkur-
flugvelli í viðbragðsstöðu. Nefhjólið
reyndist hins vegar vera í lagi þegar
til kom og er talið líklegast að bleyta
hafi orsakað sambandsleysi í ljósa-
búnaði nefhjólsins, en slíkt mun hafa
gerst áður.
Borgarráð:
27 milljónir tíl
íþróttafélaga
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu íþrótta- og tómstundaráðs
um að veita 27 milljónum í styrki
til íþróttafélaga í borginni, vegna
framkvæmda við mannvirki árið
1988.
Glímufélagið Ármann fær 2 millj.
til endurbyggingar og stækkunar á
grasvelli við Sigtún. íþróttafélagið
Fylkir fær 2 millj. til framkvæmda
við grasvöll í Árbæjarhverfi. Það er-
lokauppgjör vegna áfanga I og byij-
unarframkvæmdir vegna áfanga II.
íþróttafélagið Leiknir fær 2,4 millj.
vegna bað- og búningsklefa við
Austurberg og Iþróttafélag
Reykjavíkur fær 3,2 millj. vegna
grasvallar í Suður-Mjódd.
Knattspyrnufélagið Fram fær 1,2
millj. vegna lagfæringa á lóð og
umhverfi við aðstöðu félagsins við
Safamýri. Knattspyrnufélag
Reykjavíkur fær 2,2 millj. til fram-
kvæmda við áhorfendastæði, bað-
og snyrtiaðstöðu og girðingar á
svæði félagsins við Frostaskjól.
Knattspymufélagið Valur fær 4,3
millj. og er það lokauppgjör vegna
grasvallarins við Hlíðarenda.
Knattspyrnufélagið Víkingur fær
6,5 millj. og er það lokauppgjör
vegna framkvæmda við Hæðargarð
árið 1987 og vegna byijunarfram-
kvæmda við búningsklefa í Foss-
vogi. Knattspyrnufélagið Þróttur
fær 3,2 millj. vegna framkvæmda
við grasvöll og endurbyggingu á
malarvelli við Sæviðarsund.
SAAB9000
Þrautreyndur og
maimerðlmummu’
SAAB 9000 hefur hlotið ótal
viðurkenningar víða um heim. SAAB
9000 hefur meðal annars verið kosinn
besti innflutti bíllinn í Yestur-Þýska-
landi og í Bandaríkjunum. SAAB 9000
var til dæmis þrautreyndur á Talladega
reynsluakstursbrautinni í Alabama í
Bandaríkjunum. Þar var honum ekið
samfleytt í 20 sólarhringa, 100.000
kílómetra vegalengd á yfir 200
kílómetra meðalhraða. Árangurinn
varð sá að SAAB 9000 sló yfir 20
heimsmet í þessum þolakstri.
Hin virtu bílatímarit Auto, Motor und
Sport í Þýskalandi og Car and Driver í
Bandaríkjunum gefa vélinni í SAA.B
9000 eftirfarandi einkunn:
„Besta bílvél sem vélaverkfiræðingai'
hafa nokkru sinni hannað“.
Stór og kraftniikill -
sniðiim íyrir íslenskar aðstæður.
Komduogprófaðu.
G/obusi
Lágmúla 5, s. 681555
CS AUGtyS INGAPJ0NUSTA.N SIA