Morgunblaðið - 27.03.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.03.1988, Blaðsíða 1
fltogmilrifafcift PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 27.MARZ 1988 BLAÐ Á SLÓÐ BISKUPA YFTR ÓDÁÐAHRAUN OG GNÚPA-BÁRÐAR UM YONARSKARÐ ÍSLENSK náttúra heillar margan hestamanninn og verða ferðalög á hestum um hálendi íslands sifellt vinsælli. Æ fleiri telja þessi ferða- lög vera það sem gefur hestamennskunni mest gildi. Síðastliðið sum- ar fóru fjórir menn í óvenjulegt mánaðarlangt ferðalag með 20 hross. Ferðinni var heitið um ókunnar slóðir, annars vegar hina svokölluðu Biskupaleið yf ir Ódáðahraun og hins vegar leið Gnúpa-Bárðar land- námsmanns um Vonarskarð milli Tungnafellsjökuls og Vatnajökuls, sem talið er að Bárður hafi farið er hann flutti búferlum úr Bárðardal í Fljóts- hverfi. é- 6>/ »1 I Snapadal. Skraúti í baksýn. Eins og sjá má var gróður nægur þarna í 1.100 metra hæð. ■'i' c ■ X)'4» vl> , • * v * '-r. - éjmt. , ■ >* .. * • & ' . tÁ* ’Ó' i *V K ? 1 ';f* Vonarskarð. Hníflar í baksýn. Fjórir fjallhressir“, þeir Ámi Pálmason kennari, Jón Stefánsson organisti, Grettir Bjömsson sem frægastur er fyrir harm- onikuleik og Karl Benediktsson fyrrum handboltakappi, sem meðal hestamanna er þekktastur fyrir hrossarækt að Gerðum í Landeyj- um, hófu ferðina á Blikastöðum 11. júlí 1987. Aðdragandi ferðarinnar var lang- ur. Árni Pálmason hafði lengi haft áhuga á að reyna að fara þessar leiðir og hafði hann m.a. fylgst með skipulegri leit félaga í Ferðafélagi Akureyrar að vörðum og vörðubrot- um á leiðinni yfir Ódáðahraun sem þeir merktu inn á kort. Áður en lagt var af stað var þetta allt skoð- að vel ásamt öllu sem skrifað hefur verið um þetta svæði. Margir höfðu lýst áhuga sínum á að fara í ferðina, en ljóst var að hún tæki langan tíma og þar sem hlutar hennar voru ókannaðir var gert að skilyrði að vika til eða frá skipti ekki máli. Þannig atvikaðist það að fjórmenningamir, sem aldrei höfðu ferðast saman áður, lögðu af stað út í óvissuna. Of langt mál yrði að rekja ferð- ina frá upphafí, svo hér verður stikl- að á stóru þar til komið er á fáfam- ari slóðir. Er þó rétt að geta þess að farið var um Þingvelli, Uthlíð í Biskupstungum, Tungufellsdal og Hólaskóg. Frá Hólaskógi var ætlun- in að fara í Þóristungur, en þess í stað var ákveðið að gista við kláfínn yfír Tungnaá. Daginn eftir þurfti að feija hestana yfír á kláfnum og gekk það vel. Síðan var haldið gömlu Sprengi- sandsleiðina og var næsti áfanga- staður í Þúfuveri. Jón skrifaði í dagbókina sína að þeir félagarnir sátu steinþegjandi úti í hálftíma, teiguðu öræfakyrrðina og virtu fyr- ir sér útsýnið yfír Þjórsárverin og jökulinn. Þama borðuðu þeir ágæt- SJÁ BLS. 4B OG 5B. Þar sem nýtt hraun hefur runnið yfir Ódáðahraun var víða erfi yfirferðar, eins og sjá má á þessari mynd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.