Morgunblaðið - 27.03.1988, Blaðsíða 19
Aðalfundur
Hins íslenska
náttúru-
fræðifélags
AÐALFUNDUR Hins íslenska
náttúrufræðifélags var haldinn
20. febrúar sl. Ur stjórn gekk
Eva Þorvaldsdóttir en núverandi
stjórn er þannig skipuð: Formað-
ur er Þóra EUen Þórhallsdóttir,
varaformaður Hreggviður Norð-
dahl, ritari Björg Þorleifsdóttir,
gjaldkeri Ingólfur Einarsson og
meðstjórnandi Ingibjörg Kaldal.
í varastjórn sitja Gyða Helga-
dóttir og Einar Egilsson.
Hið íslenska náttúrufræ'ðifélag
er félag áhugamanna um íslenska
náttúru og allar greinar náttúru-
fræða. Það var stofnað árið 1889
og er því með elstu starfandi félög-
um landsins. Félagar eru nú tæp-
lega 1.840 talsins. Félagið gefur
út tímaritið Náttúrufræðinginn sem
komið hefur út síðan 1931, en rit-
stjóri þess er Ámi Einarsson. Á
vetrum eru reglulega haldnir
fræðslufundir. Á sumrum eru
skipulagðar dagsferðir sem og
þriggja til fjögurra daga ferðir und-
ir leiðsögn kunnugra náttúrufræð-
inga. Þá hefur félagið gengist fyrir
námskeiðum, svo sem í sveppa-
tínslu.
Hið íslenska náttúrufræðifélag
er félag leikra sem lærðra og ættu
allir sem áhuga hafa á íslenskri
náttúru eða náttúrufræðum al-
mennt að finna þar eitthvað við sitt
hæfí. Frekari upplýsingkr um starf-
semi félagsins og fyrirhugaðar ferð-
ir og námskeið í sumar veitir Einar
Egilsson á Náttúrufræðistofnun ís-
lands.
(Fréttatilkynning)
HEIISUVERND
Áskriftarsímar
16371 -28191
w
Sanitas býður PEPSI, DIET PEPSI, APPELSÍN
og 7UP í 2 lítra flöskum á sérstöku hátíðaverði
Hagstæð kaupf/rirhátíðirnar
Stöndum saman um landsliðið okkar
Al'l'):'
)
10 SUZUKIFOX-JEPPAR - með drifi á öllum, eins og landsliðið okkar
40 SUZUKISWIFT - tískubíllinn í ár
50 BILAR
Dregið 11. apríl og 9. maí nk.
FLUGLEIDIR
^aðalstuðningsaðili HSÍ
STRIK/SlA