Morgunblaðið - 27.03.1988, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27.MARZ 1988
B 13
kristilegra demókrata þess efnis að
stjóm hans sæti heilt kjörtímabil.
Þetta samkomulag varð landinu til
blessunar og stuðlaði að velgengni
í efnahagsmálum, en það fór út um
þúfur vegna þess að Craxi virtist
því mótfallinn að kristilegir demó-
kratar fengju embætti forsætisráð-
herra.
Eftir kosningamar í júní í fyrra
vissi Craxi að hann yrði að sfyðja
mann úr flokki kristilegra demó-
krata í forsætisráðherrastöðuna, en
hann vildi ekki að gert yrði sams
konar samkomulag og hafði tryggt
stjóm hans sjálfs langlífi. í raun
og vem kom hann í veg fyrir það
með neitunarvaldi að De Mita yrði
forsætisráðherra í fyrsta skipti. De
Mita vildi ekki taka að sér stjómar-
myndun nema því aðeins að hanri
gæti verið viss um að hanri yrði
ekki hrökklast frá völdum að stuttu
tíma liðnum, en Craxi vildi að
mynduð yrði veik bráðabirgða-
stjóm.
Svo fór að Giovanni Goria, 44
ára gamall kristilegur demókrati,
myndaði samsteypustjóm kristi-
legra demókrata, sósíalista, lýðveld-
issinna, sósíaldemókrata og frjáls-
lyndra. Kristilegir demókratar
höfðu talið Goria 5. vænlegasta
forsætisráðherraefni sitt og líf
stjómar hans var í höndum Di Mita
og Craxi. í nóvember baðst hún
lausnar, en fékkst til að sitja áfram.
í lok janúar ræddust De Mita og
Craxi við í aðalstöðvum sósíalista,
að því er virtist vegna þess að De
Mita hafði friðmælzt við kommún-
ista til að hræða Craxi. Eftir’fund-
inn var sagt að þeir hefðu samið
„vopnahlé" og að „þíða“ mundi taka
við. Hún varð þó ekki langlíf, því
að Goria varð að segja af sér 10.
febrúar þegar hann fyrirskipaði að
vinna skyldi hafín á ný við smíði
umdeilds kjamorkuvers þrátt fyrir
andstöðu sósíalista.
Þing kristilegra demókrata fer
fram í lok apríl og sumir leiðtogar
þeirra munu hafa viljað að De Mita
yrði forsætisráðherra í stað Goria
og að nýr leiðtogi yrði valinn á
flokksþinginu. Auk þess munu sum-
ir stuðningsmenn Giulio Andreotti
hafa grafíð undan Goria-stjóminni
vegna þess að hann mun hafa hug
á því að verða forsætisráðherra í
sjötta sinn. Craxi, sem hefur verið
kallaður „Machiavelli ítalskra
stjómmála", hefur sagt um ástand-
ið nú: „ítölsk stjómmál em orðin
alltof flókin.“
„Opnun til vinstri?“
De Meta og Craxi gruna hvor
annan um að reyna að mynda
bandalag með kommúnistum, sem
eru næst stærsti stjómmálaflokkur-
inn og hefur verið haldið utan ríkis-
stjómar í 40 ár. Á árunum 1976-
1979 gerðu kommúnistar kristileg-
um demókrötum kleift að stjórna
einir með því að sitja hjá í atkvæða-
greiðslum á þingi og Craxi óttast
að slíkt bandalag verði endurvakið.
Þá mundu stóm flokkamir líklega
ná samkomulagi um nauðsynlegar
breytingar og Craxi réði ekki leng-
ur lífi ríkisstjóma og hefði ekki
fmmkvæði að pólitískum umbótum.
De Mita hefur keppt að því verða
endurkjörinn leiðtogi flokksins til
næstu tveggja ára fjórða skiptið í
röð, sem yrði einsdæmi. En þar sem
hann reynir jafnframt að verða for-
sætisráðherra kann svo að fara að
hann verði að láta af leiðtogastarf-
inu. Enn er þó ekki útilokað að
hann verði einn örfárra forystu-
manna auk Craxis, sem hafa gegnt
báðum þessum embættum í senn.
De Mita ákvað ekki að taka að
sér stjómarmyndun fyrr en hann
taldi sig komast að því að hann
hefði möguleika á að mynda lífseiga
ríkisstjóm. Takmark hans er að
stjóma Ítalíu unz núverandi
kjörtímabili lýkur 1992 og rétta við
álit Kristilega demókrataflokksins.
Hins vegar er óvíst að hann sitji
lengi, ef honum tekst að mynda
stjóm, því að það er enn lokamark-
mið Craxis að binda enda á lykilað-
stöðu kristilegra demókrata í ítölsk-
um stjómmálum. — GH
Ert þú í húsgagnaleit?
Páskatilboð Valhúsgagna
Kóbra sófasett 3+1+1, klætt brúnu nautsleðri,
anelínsútuðu og gegnum lituðu.
Verð aðeins kr. 98.000,- afb. og 90.000,- stgr.
Athugiðaðeins 11 sófasett.
Lítið í gluggana um helgina.
VALHÚSGÖGN
Árrhúla 8, sími 82275
Líbanon:
Tveir falla
í loftárás-
A
um Israela
Sídon í Líbanon, Reuter.
ÍSRAELAR gerðu í gær fimm
loftárásir á búðir skæruliða í
Suður-Líbanon. Að minnsta kosti
tveir féllu og 15 slösuðust.
Fjórar ísraelskar þotur vörpuðu
sprengjum á. búðir tveggja palest-
ínskra skæruliðasamtaka nærri
bænum Sídon sem er um það bil
40 km fyrir sunnan Beirút. Er Abu
Nidal leiðtogi annarra samtakanna.
Árásimar í gær vom hinar þriðju
síðan 12. mars og fjórða árásin á
landsvæði Líbanons á þessu ári. í
fyrri árásum féllu 22 menn.
L—
Ingvar
Helgason hff.
Sýningarsalurinn,
Rauöagerði
Sími: 91 -3 35 60
Fullur salur af fallegum bílum.
- Verið velkomin í sýningarsal okkar
að Rauðagerði. Alltaf heitt á könnunni.
Einnig sýnum við, um helgar á sama
tíma, í nýja sýningarsalnum hjá BSV.
að Óseyri 5, Akureyri.