Morgunblaðið - 29.03.1988, Qupperneq 3
B 3
jBwgnnMoMft /IÞROTTIR ÞREXnJDAGUR 29. MARZ 1988
HREYSTI
Það er talið heilsuspillandi að vera of feitur (of feit)
Reglulegt trimm getur hjálpað
Offita er aigengt vandamál
í vestrænum þjóðfélögum.
Tíska getur ráðið einhvetju um
það hveijir eru taldir of feitir á
hvetjum tíma, en lengi hafa þó
verið til ábendingar um það hvað
er óæskilegt fitu-
magn. Töflur, sem
bera saman hæð og
þyugd manna segja
ekki alla söguna, því
að beinastærð og
vöðvamassi manna
ráða miklu um
líkamsþyngd. Við
rannsóknir á offítu
er oft miðað við það,
að æskilegt fitu-
magn sé nálægt
15% af líkamsþyngd
hjá karlmönnum og
25% hjá konum, en
visst lágmark fítu-
efna er nauðsynlegt
í öllum líffærum.
Margar aðferðir
hafa verið notaðar
til að mæla og áætla
fitumagnið. Nákvæ-
mustu mælingarnar
fara þannig fram að
rúmmál líkamans er
mælt með því að
sökkva honum í vatn
og síðan eru eðlisþyngdin og
fítumagnið reiknuð með sérstök-
um formúlum. Það er hins vegar
algengast og einfaldast f fram-
kvæmd að gera ummálsmæling-
•ar. Þá er máibandi brugðið um
nokkra staði á líkamanum, til
dæmis upphandlegg, bijóst,
maga, mjaðmir og læri, og nið-
urstöður mælinganna notaðar
til að reikna út hundraðshlutfall
fítu af líkamsþyngd. önnur ein-
föld aðferð er sú, að mæla þykkt
húðfellinga á nokkrum stöðum,
t.d. á upphandlegg, baki, síðu,
maga og læri. Þessar niðurstöð-
ur má á svipaðan hátt setja inn
f formúlu og reikna út fítuhlut-
fall líkamans. Fita er talin
óæskilega mikil þegar karlmenn
reiknast með meira en 20% og
konur meira en 30% af þyngd.
Offita tengist ýmsum sjúk-
dómum og er talin skaðleg
heilsu manna. Það hefur hins
vegar reynst erfítt að sanna að
offíta valdi öllum þeim sjúk-
dómum, sem henni fylgja. Það
er of langt mál að fara út í þá
sálma hér, en hplstu sjúkdóm-
amir eru: æðakölkun, hár blóð-
þrýstingur, sykursýki hjá full-
orðnum, slitgigt, gallblöðrusjúk-
dómar, þvagsýrugigt, vissir
nýma- og lungnasjúkdómar,
geðtruflanir og sumar tegundir
krabbameins. Megrun getur
komið að gagni við meðferð á
háum blóðþrýstingi og sykur-
sýki fullorðinna, en mestu máli
skiptir þó að forðast þá lifnaðar-
hætti, sem leiða til offitu. í þessu
sambandi er vert að nefna það,
að bæði dýratilraunir og rann-
sóknir á mönnum benda til þess
að offíta í æsku auki hættu á
offitu síðar á ævinni. Menn hafa
jafnvel beint sjónum sínum að
meðgöngutímanum og velt því
fyrir sér hvort böm mæðra, sem
þyngjast mikið í meðgöngunni,
séu ekki í meiri hættu en önnur
böm hvað varðar offítu. Talið
er að fítufrumum Kkamans fjölgi
fyrst og fremst við upphaf
ævinnar, og að þeir, sem hafa
fleiri fitufrumur í líkama sínum
frá bamæsku, geti fítnað meira
en aðrir.
Offíta er talin eiga sér ýmsar
orsakir, t.d. erfðir og efna-
skiptatruflanir, en ofát og hreyf-
ingarleysi skipta sennilega
mestu máli, því að hvoru tveggja
er hægt að breyta í einhvetjum
mæli. Mikilvægt er fyrir þá, sem
hættir til offitu, að temja sér
réttar neysiuvenjur, þ.e. að
borða einungis á matmálstímum
og að forðast fæðutegundir sem
eru sérstaklega orkuríkar, t.d.
sykur, sælgæti, kökur, hnetur,
sultur, þykkar og feitar sósur,
þykkar og feitar súpur, sykraða
gosdrykki, feitt kjöt, feita osta,
ijóma, hunang o.s.frv.
Líkamshreyfing og trimm eru
mikilvæg til viðbótar réttu mat-
aræði. Nauðsynlegt er að fara
varlega af stað í megrunar-
trimm, og að byggja upp þrekið
hægt og varlega þangað til við-
komandi getur trimmað rösk-
lega hálfa klst. í senn.
Jóhann Heiðar
Jóhannsson
Offlta
iMnM 5SRSBHWÍ HKl
HANDKNATTLEIKUR / V-ÞÝSKALAND
„Erum að missa
af lestinni“
- sagði Páll Ólafsson, eftirjafnteflisleik, 17:17, gegn Gross-
wallstadt. Gummersbach er í efsta sæti ásamt Kiel
„VIÐ töpuðum stigi hór á eigin
mistökum og allt bendir til að
við höfum misst af lestinni í
baráttunni um méistaratitilinn.
Markatala okkar er lakari held-
uren Gummersbach og Kiei.
Við gefum þó ekki upp alla
von,“ sagði Páll Ólafsson, eftir
að Dusseldorf gerði jafntefli,
17:17, gegn Grosswallstadt í
Elsenfeld.
Frá
Skapta
Hallgrímssyni
íV-Þýskalandi
Geysileg stemmning var. Leik-
urinn var þó ekki skemmtileg-
ur. Baráttan var mjög hörð og var
leikurinn því harður. Staðan var
jöfn í leikhléi, 11:11.
Tékkneski landsliðs-
markvörðurinn Mic-
hael Barda kom í
mark Grosswall-
stadt í seinni hálfleik og varði hann
eins og berserkur - lokaði markinu
og Grosswallstadt komst í, 16:11.
Þá tóku Páll og félagar góðan
sprett og minnkuðu mininn í, 17:15.
Barda varði þá vítakast frá Páli.
„Þegar ég lék með Þrótti gegn
Dukla Parg í Evrópukeppninni
1982, skoraði ég tvo mörk úr víta-
köstum gegn Barda, með því að
senda knöttinn fram hjá höfði hans.
Ég ætlaði að endurtaka það núna.
Ég breytti þeirri ákvörðun og skaut
út við stöng. Það voru mistök,"
sagði Páll, sem skoraði síðan
sextánda mark Dússeldorf á glæsi-
legan hátt - fór inn úr vinstra hom-
inu, 17:16. Þá voru fímm mín. til
leiksloka. Dússeldorf jafnaði síðan,
17:17, þegar 3.30 mín. voru tií
leiksloka.
Páll lék mjög vel - var sterkur í
vöminni. Mikill leikaraskapur var
hjá leikmönnum liðanna og fékk
þjálfari Dússeldorf, Horst Brede-
meier, að sjá rauða spjaldið. Hann
■hefur fimm sinnum fengið að sjá
rauða spjaldið í vetur. Martin
Schwalb lék ekki með Grosswall-
stadt, en aftur á móti lék Manfred
Páll Ólafsson átti mjög góðan leik
með Dússeldorf.
Freisler aftur með, eftir að hann
hefur verið frá vegna meiðsla í öxl.
Gummersbach lagöi Lemgo
Áður en leikur Grosswallstadt og
Dússeldorf fór fram, fengu leik-
menn Dússeldorf fréttir um að
Gummersbach hafði lagt Lemgo að
velli, 18:16. Kristján Arason skor-
aði tvö mörk fyrir Gummersbach
og Sigurður Sveinsson þijú fyrir
Lemgo - öll úr vítaköstum.
Kiel sigraði Milbertshofen örugg-
lega, 21:14. Gummersbach og Kiel
hafa 33 stig þegar fjórar umferðir
eru eftir, en Dússeldorf hefur 32
stig.
Kristján Arason og félagar eru í
efsta sæti.
AHreö skoraðl sox möric gegn
Japan
Alfreð Gíslason og félagar hans
léku vináttuleik gegn japanska
landsliðinu, sem er á keppnisferð
um V-Þýskaland. Alfreð skoraði sex
mörk í leiknum, sem endaði með
sigri Essen, 24:22.
H STEFÁNHalldórsson, knatt-
spymumaður hjá Víkingi, verður
frá keppni í tvo til þijá mánuði.
Hann meiddist á öxl þegar hann
var á skíðum um helgina. Liðpoki
og liðband rifnaði.
■ TVEIR leikmenn Vals, sem
koma frá Jamaíku í dag, Steinar
Adolfsson og Einar Páll Tómas-
son halda til Skotlands í vikunni.
Þeir æfa þar með unglingaliðiCeltic
og fara síðan með því til Sviss, þar
sem þeir leika með Celtic.
■ BREIDABLIK sigraði
Augnablik, 5:2, í næst síðasta leik
Alison-bikarsins í Kopavogi. Viðar
Gunnarsson náði forystunni, fyrir
Augnablik, en Björn Þór Egilsson
og Grétar Steinþórsson komu
Breiðblik yfir fyrir léikhlé. Heiðar
Breiðfjörð jafnaði fyrir Augna-
blik, en Þorsteinn Hilmarsson,
Andrés Davíðsson og Benedikt
Guðmundsson bættu þremur
mörkum við fyrir Breiðablik á
síðustu mínútunum. Breiðblik er í
efsta sæti, en úrslitin ráðast í
síðasta leiknum, þegar lK og
Stefán Halldórsson
Breiðblik mætast. Logi Berg-
mann Eiðsson, markvörður
Augnabliks, varði vítaspyrnu í
leiknum.
■ PETER Frain, 23 ára enskur
miðvallarleikmaður hefur gengið til
liðs við Þrótt í Reykjavík. Hann
lék 17 ára með enska unglinga-
landsliðinu og var á samning hjá
W.B.A. Þaðan var hann lánaður til
Mansfield og lék nokkra leiki með
liðinu. í fyrra lék hann svo í Fær-
eyjum. Hann lék æfíngaleik með
Þrótti gegn ÍK fyrir skömmu.
Þróttur sigraði 3:1 og Frain skor-
Elnar Páll Tómasson
aði eitt markið og lagði upp hin
tvö.
■ MALCOLM Aliison, fram-
kvæmdastjóri Setubal í 1. deildinni
í Portúgal, skrifaði um helgina
undir nýjan eins árs samning við
liðið. Setubal sigraði Covilha um
helgina 5:1.
■ KNATTSPYRNULIÐIÐ
Fluminense í Brasilíu hefur mik-
inn áhuga á að ráða Cezar Luis
Menotti fyrrum þjálfara Atletico
Madrid.. Fluminense hefur haft
samband við Menotti og samninga-
viðræður hefjast bráðlega.