Morgunblaðið - 29.03.1988, Page 7
jHorairoMaMb /IÞROTTtR ÞRŒXJUDAGUR 29. MARZ 1988
B 7
SUND
Landsliðið
tfertil
Svíþjóðar
Búið er að velja sundlandslið
íslands, sem tekur þátt í
Kallott-keppninni í sundi, sem
verður haldin í Svíþjóð 23. og
24. apríl. Guðmundur Harðar-
son, landslisþjólfarí og Ólafur
Þ. Gunnlaugsson, þjálfari
Vestra, eru þjálfarar liðsins, sem
er skipað þessum sundmönnum:
Ragnheiður Runólfsdóttir,
IJMFN, Bryndís Ólafsdóttir,
HSK, Helga Sigurðardóttir,
Vestra, Þuríður Pétursdóttir,
Vestra, Ingibjörg H. Amardótt-
ir, Ægi, Lóa Birgisdóttir, Ægir,
Elín Sigurðardóttir, SH, Hugrún
Ólafsdóttir, HSK, Eðvarð Þór
Eðvarðsson, UMFN, Magnús
Már Ólafsson, HSK, Ólafur B.
Einarsson, Ægi, Ragnar Guð-
mundsson, Ægi, Amþór Ragn-
arsson, SH og Ingólfur Amar-
son, Vestra.
I
Halldór Hafsteinsson
Bjami til
Hollands og
Englands
BJARNI Ásgeir Friöriksson
og Halldór Hafsteinsson
fara til Hollands og taka
þátt í opna hollenska meist-
aramótinu í júdó, sem fer
fram í Utrecht 2.-3. aprfl.
Ær
Omar Sigurðsson hittir þá
félaga sfðan í London, þar
sem þeir taka þátt í opna breska
meistaramótinu, sem fer frarrl í
Crystal Palace-höllinni 9.-10.
apríl.
Halldór og Ómar hafa mikinn
hug á að ná góðum ártangri og
sýna fram á að þeir séu verðug-
ir fulltrúar íslands á Olympíu-
leikunum í Seoul.
KNATTSPYRNA
Belgíumenn
lögðu
Ungverja
Ungverjar, sem íslendingar
mæta í vináttulandsleik í
Búdapest 4. maí, léku vináttu-
landsleik gegn Belgíumönnum í
Briissel á laugardaginn. Aðeins
8.500 áhorfendur sáu sigur
Belgíumanna, 3:0. Jan Ceule-
mans skoraði fyrsta markið á
55. mín., en síðan skoraði Jozsef
Fitos sjálfsmark á 60. mín.
Varamaðurinn Francis Seve-
reyns skoraði þriðja markið á
81. mín., eða aðeins tíu mín.
eftir að hann kom inn á.
SUND / MEISTARAMÓTIÐ INNANHÚSS
Morgunblaðiö/SGG
Ragnheiður á ferðinni
Ragnhelður Rúnólfsdóttlr setti tvö met í Eyjum. Hún
nálgast ólympíulágmörkin og má fastlega reikna með því
að hún nái þeim í Osló eða í Kallott-keppninni í Svíþjóð.
Ragnheiður setti
tvö met í Eyjum
RAGNHEIÐUR Runólfsdóttir
setti tvö íslandsmet á meist-
aramótinu innanhúss í sundi,
sem fór fram í Vestmanna-
eyjum um helgina. Ragnheiður
synti 200 m fjórsund á 2:22,39
mín., en gamla metið hennar
var 2:22.95 mín. Þá synti hún
100 m baksund á 1:06.35 mín.
Gamla metið hennarvar
1:06.35 mín.
Þetta kom mér nokkuð á óvart.
Ég hef æft mikið undanfari
og kom því óhvíld hingað til Vest-
mannaeyjar,“ sagði Ragnheiður
Runólfsdóttir, sem
fer í æfingabúðir til
Osló í byijun apríl.
Þar mun hún reyna
við ólympíulág-
Frá
Jóhannilnga
Gunnarssyni i
Vestm.eyjum
mörkin.
Karlasveit UMFN setti íslandsmet
í 4x100 m fjórsundi - 4:10.93 mín.
Ragnheiður varð þrefaldur meistari
á mótinu í Eyjum. Magnús Már
Ólafsson, HSK, varð fjórfaldur
meistari.
■ Úrslit B/13
BLAK
Furðuleg
frestun
Bikarúrslitaleik Víkings og-
Þróttar í blaki kvenna sem
fram átti að fara á laugardaginn
var frestað á síðustu stundu.
Ástæðan er sú að Víkingar lögðu
fram læknisvottorð fyrir meiðslum
eins leikmanns og þótti formanni
Blaksambandsins það næg ástæða
til að fresta leiknum.
Mikið hefur verið um meiðsli hjá
Vfkingum í vetur. Þær eru fáliðaðar
og ekki bætti úr skák að ein þeirra
gekkst undir uppskurð nýlega og
verður ekki meira með á þessu
keppnistímabili. Önnur fór á skíði
til Austuríkis á laugardaginn og sú
þriðja meiddist á landsliðæfíngu
fyrir helgina. Þær tvær fyrstnefndu
leika varla með nema leiknum verði
frestað þar til skíðakonan kemur
frá Austurríki, eða þá þegar sú
þriðja verður búinn að ná sér að
fullu.
Rétt er að benda á að uppspilari
Þróttar meiddist skömmu fyrir úr-
slitakeppnina en engu að síður lék
Þróttur þar án hennar. Nú er spurn-
inginn bara sú hvort BLÍ ætlar að
fresta leiknum þar til allar stúlkum-
ar, í báðum liðum, verða tilbúnar
til að leika!
FRJÁLSAR
Ragnheiður
setti met
í 10.000
m hlaupi
Ragnheiður Ólafsson setti nýtt
íslandsmet í 10.000 m hlaupi
á ftjálsíþróttamóti í Alabama á
sunnudaginn. Ragnheiður hljóp á
33:35.41 mín.
Hún hljóp undir ólympíulágmarkinu
í annað sinn. Gamla metið hennar,
34:10.00 mín., var einnig undir lág-
markinu, sem er 35 mín:
Einar Vilhjálinsson kastaði spjót-
inu 80.34 m um helgina á „Texas
Op>en“ og hlaut silfur. Kast hans
er vel yfir ólympíulágmarkinu.
Hann var einnig búinn að ná því í
fyrra.
fa&mR
FOLK
■ TINDASTÓLL og UÍA áttu
að mætast um helgina í úrslitaleik
1. deildarinnar í körfuknattleik, á
Sauðarkróki. Með sigri hefði
Tindastóll tryggt sér sæti í 1.
deild. Búið var að ákveða dansleik
eftir leikinn, uppskeruhátið og búið
að leigja hús og hljómsveit. En UÍA
komst. ekki til Sauðarkróks og
heimamenn sátu eftir með sárt
ennið.
■ KAMERÚN sigraði Nígeríu,
1:0, í úrslitaleik Afríku-bikar-
keppninnar í knattspymu í Casa-
blanca um helgina. Það var Em-
manuel Kunde sem skoraði sigur-
markið úr vítaspymu á 55. mínútu,
eftir að Roger Milla hafði verið
felldur fyrir innan vítateig. Nígería
átti góð færi í leiknum, m.a. tvö
skot í þverslá. Þetta er í annað sinn
sem Kamerún sigrar í keppninni.
Alsír sigraði Marokkó í úrslitaleik
um 3. sætið, 4:3, eftir vítaspymu-
keppni.
Tennisstjarnan Staffi Graf.
■ ENZO Francescoli, frá Úr-
úgúaí er ekki ánægður í París og
hefur óskað eftir því að fá að losna
frá félagi sínu, Racing Club París.
Félagið hefur neitað og því verður
Francescoli að leika með liðinu út
samningstímann.
■ AGANEFND UEFA hefur
dæmt Real Madrid til að greiða
rúmlega hálfa milljón kr. í sekt
fyrir ólæti leikmanna og áhorfenda
í leik liðsins gegn Bayern Mlinchen
f 8-liða úrslitum Evrópukeppni
meistaraliða. Bayern fékk einnig
sekt, 200.000 kr., vegna óláta leik-
manna. Marseille frá Frakklandi
var dæmt til að greiða 120.000 kr.
vegna flugelda sem var hent inn á
leikvanginn fyrir leik þeirra gegn
fínnska liðinu Rovaniemen.
■ ANTONIO di Gennaro leik-
maður Veróna var dæmdur í fjög-
urra leikja bann fyrir gróft brot í
leik liðsins gegn Werder Bremen.
Hann var rekinn út af í leiknum
og liðið þarf að borga 300.000 kr.
í sekt.
■ HEIMSMEISTARAKEPPN-
IN í knattspymu 1990 á að fara
fram á Ítalíu, en það er þó ekki
öruggt að sögn Joseph Blatter
aðalritara alþjóða knattspyrnusam-
bandsins, PIPA. Hann segir að ef
deilur um sjónvarpsmiðstöð fyrir
keppnina verði ekki leystar fljótlega
þá gæti svo farið að keppni yrði
haldin í Mexikó eða í Vestur-
Þýskalandi. Rafael del Castillo,
forseti mexíkanska knattspymu-
sambandsins hefur sagt að Mexíkó
vilji halda keppnina. Það væri ein-
faldasta lausnin því að þar væri
allt tilbúið síðan keppnin var haldin
Íar 1986.
I KERRY Saxby frá Ástralíu
bætti heimsmet sitt um rúmar 10
sekúndur í 5 km. göngu um helg-
ina. Hún gekk á 20:55,76 mínútum
á móti í Perth í Ástralíu.
■ OLEG Blokhin er loksins
kominn til Austurríkis þar sem
hann mun leika með Vorwaerts
Steyr í 2. deild. Hann mun leika
með liðinu út keppnistímabilið og
jafnvel lengur. Hann er þriðji Sov-
étmaðurinn sem leikur í Aust-
urríki. Hinir vom Antoly Sintc-
henko og Sergei Shavlo, en þeir
léku báðir með Rapid Vín.
■ STEFFI Graf vann sér inn
rúmar fjórar milljónir kr. með sigri
yfír Chris Evert í úrslitaleik í al-
þjóðlegri meistarakeppni í tennis.
Steffi Graf sigraði 6:4 og 6:4 f
úrslitaleiknum sem fór fram í mikl-
um hita, tæplega 49 gráðum á
Celsíus.
■ ARTUR Wojdat varð um
helgina fyrsti Pólveijinn til að slá
heimsmet í sundi. Hann setti
heimsmet í 400 metra skriðsundi
á 47,38 sekúndum á bandaríska
meistaramótinu i sundi, innan-
húss. Gamla metið átti Michael
Gross frá V-Þýskalandi. Á þessu
móti setti Janet Evans frá Banda-
ríkjunum einnig heimsmet. Hún
sjmti 1.500 metra skriðsund á
15:52,10 mínútum og bætti eigið
met um rúmar átta sekúndur.
■ LUCIANO Barra, aðalritari
ítalska frjálsíþróttasambandsins
hefur boðist til að segja af sér vegna
hneykslisíns í langstökkskeppninni
í Róm í fyrra. Þá hafnaði Giovanni
Evangelisti f þriðja sæti, eftir að
stökk hans hafði verið lengt um
tæplega hálfan metra af dómurum.