Morgunblaðið - 29.03.1988, Blaðsíða 8
8 B
attwrflunMattb /ÍÞRÓTTIR ÞRJÐJUDAGUR 29. MARZ 1988
HANPKNATTLEIKUR KVENNA / BIKARKEPPNIIM || HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNÍN
Framarar réðu ekki
við einfætta Erlu!
Valur og Stjarnan mætast í úrslitum
Undanúrslit fóru fram í bikar-
keppni kvenna um helgina. Á
laugardag spiluðu Valur og FH
og sigraði Valur örugglega
28:21. Þá áttust við á sunnudag
Fram og Stjarnan og lauk leikn-
um með óvæntum sigri Stjörn-
unnar 19:17. Það verða því
Valur og Stjarnan sem leika í
úrslitum og fer leikurinn fram
miðvikudaginn 13. aprfl.
Valur-FH 28:21
Valsliðið byijaði vel í leiknum
og komst fljótlega í 3:0. Eftir
það átti FH á brattann að sækja
og naði raunar aldrei að jafna leik-
inn. Valsstúlkur
Katrín juku forskotið jafnt
Fríðriksen og þétt og um miðj-
skrifar an hálfleikinn var
staðan orðin 14:8
fyrir Hlíðarendaliðinu. Þá brugðu
FH-ingar á það ráð að taka Guð-
rúnu Kristjánsdóttir og Ernu
Lúðvíksdóttir úr umferð, en þær
höfðu verið atkvæðamiklar fram að
því og þá sérstaklega Guðrún. Við
þetta varð sóknarleikur Vals hálfr-
áðleysislegur um tíma, en FH náði
ekki að nýta sér það sem skyldi og
var staðan í leikhléi 16:11 fyrirVal.
í bytjun seinni hálfleiks kom slæm-
ur kafli hjá báðum liðum. Sóknar-
leikur Vals var bitlaus og það sem
helst kom í veg fyrir að FH næði
að minnka muninn að ráði var stór-
góð markvarsla Amheiðar Hregg-
viðsdóttur í Valsmarkinu. FH-stúlk-
umar minnkuðu þó muninn í 3
mörk um tíma, en eftir það var sem
allur vindur væri úr þeim og Valslið-
ið seig aftur fram úr. Leikurinn
endaði sem fyrr segir með öruggum
sigri Vals 28:21.
Það sem öðru fremur skóp sigur
Vals í þetta sinn var sterk liðsheild.
Þó áttu bestan leik að öðrum ólöst-
uðum þær Guðrún Kristjánsdóttir
og Amheiður í markinu. Einnig
átti Magnea Friðriksdóttir góðan
leik og reif hinar áfram með gífur-
legri baráttu bæði í vöm og sókn.
FH-iiðið hefur oftast sýnt betri leik.
Vömin og markvarslan sem hefur
verið aðall liðsins í vetur brást al-
veg og sóknin var lengst af bitlaus.
Þá virtist vanta þá baráttu og leik-
gleði sem stúlkumar hafa verið
þekktar fyrir. Systumar Eva og
Rut Baldursdætur voru atkvæða-
mestar og þá átti Heiða Einars-
dóttir góða spretti í seinni hálfleik.
Mörk Vals: Ema Lúðvflcsdóttir 7/2, Guðrún
Kristjánsdóttir 6, Kristin Amþórsdóttir og
Katrin Friðriksen 4 mörk hvor, Steinunn
Einarsdóttir 3, Magnea Friðriksdóttir og
Guðný Guðjónsdóttir 2 mörk hvor.
Mörk FH: Rut Baldurédóttir 8/4, Eva Bald-
ursdóttir 5/1, Heiða Einarsdóttir 4, Inga
Einarsdóttir 2, Helga Sigurðardóttir og
Berglind Hreinsdóttir eitt mark hvor.
Fram-Stjaman 17:19
Fæstir hefðu þorað að spá Stjöm-
unni sigri gegn íslandsmeisturum
Fram, enda hefur Garðabæjarliðið
ekki riðið feitum hesti ffa viðureign-
um liðanna í vetur. Það sem var
Framliðinu öðru fremur að falli-var
áhugaleysi og greinilegt var að
sumar Framstúlkumar voru búnar
að vinna leikiim fyrirfram.
Endurkoma Erlu Rafnsdóttir hjá
Stjömunni hefur reynst liðinu sem
vítamínssprauta. Þó Erla sé langt
fra því búin að ná sér var hún vem-
lega ógnandi og reif hinar stúlkum-
ar áfram.
Stjaman byijaði leikinn á því að
taka Guðríði Guðjónsdóttir úr um-
ferð og hélt því áfram leikinn í
gegn. Þá var Ingunn Bemótus-
dóttir útilokuð í byijun vegna mis-
taka í skýrslugerð. Sóknaraðgerðir
Fram urðu því bitlausar og lítt ógn-
andi. Þá varði Fjóla Þórisdóttir vel
í Stjömumarkinu.
Stjaman komst fljótlega yfir og í
leikhléi var staðan 10:6 fyrir Garða-
bæjarliðinu. Þegar líða tók á seinni
hálfleik reyndu Framarar að keyra
upp hraðann og setja pressu á and-
stæðingana en hinar ungu Stjöm-
ustúlkur með Erlu í fararbroddi
náðu að halda haus. Minnstur var
munurinn. 2 mörk en Fram komst
aldrei nær því að jafna. Leikurinn
endaði því sem fyrr segir 19:17
fyrir Stjömunni.
Þrátt fyrir óvænt úrslit var sigur
Stjömunnar fyllilega verðskuldað-
ur. Liðið spilaði skynsamlega og
uppskar eftir því. Fjóla var góð í
markinu og þá átti Hrund Grétars-
dóttir góðan leik. Erla skoraði góð
mörk og spilaði hinar vel uppi.
Framliðið mun vafalítið reyna að
gleyma þessum !eik sem fyrst. Það
var ekki heil brú í spili þess, hvorki
vöm né sókn. Þá var markvarslan
eftir því. Þær Guðríður og Jóhanna
áttu ágætan sprett í lok leiksins,
en hann kom alltof seint og það
varð því að staðreynd að Fram féll
út í undanúrslitum en stúlkumar
hafa unnið bikarinn síðustu 4 ár.
Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir 7/3,
Jóhanna Halldórsdóttir 6, Ama Steinsen
2, Margrét Blöndal og Hafdís Guðjóns-
dóttir eitt mark hvor.
Mörk Stjömunnar: Erla Rafnsdóttir 7/3,
Hrund Grétarsdóttir 4/1, Ragnheiður
Stephensen 4, Herdís Sigurbergsdóttir og
Drífa Gunnarsdóttir 2 mörk hvor.
HAIMDKIMATTLEIKUR / SVIÞJOÐ
Þorbergur og félagar
hiá Saab á sigurleið
orbergur Aðalsteinsson og fé-
lagar í Saab, stigu mikilvægt
skref í átt að sæti í sænsku úrvals-
deildinni á sunnudaginn, er þeir
unnu IFK Malmö
26:21 í sex liða úr-
slitakeppninni. Leik-
ur „íslendinagalið-
anna“ var mjög
skemmtilegur. Saab tók leikinn
þegar í sínar hendur, leiddi 8:4 um.
miðbik fyrri hálfleiks, en staðan í
hléi var 11:7. Vamarleikur Saab
var mjög sterkur og Anders Köhle-
vik, markvörður, varði mjög vel.
í byijun seinni hálfleiks komu
Málm-
eyingar ákveðnir til leiks, minnkuðu
muninn í 13:12, en nær komust
þeir ekki. Um miðjan hálfleikinn
var staðan 19:13 og þá má segja
að úrslitin hafi verið ráðin.
Þorbergur Aðalsteinsson var sterk-
ur í vöm og sókn og mjög góður í
seinni hálfleik. Gerði þá fimm mörk
— það síðasta er sjö sekúndur til
leiksloka, en alls setti hann átta
mörk. Köhlevik var geysisterkur,
varði m.a. tvö vfti og um 20 skot.
Hann er 20 ára og er mjög efnileg-
ur. Þá var fyrirliði Saab, Jan L.
Olsson, traustur.
Hjá Malmö bar mest á tveimur leik-
mönnum, Mario Dos Santos frá
Portúgal, sem var samt of skotglað-
ur, og Lars Nilsson, örfhentum leik-
manni, sem fékk oft að leika lausum
hala. Gunnar Gunnarsson átti ekki
sérstakan leik, en skoraði tvívegis.
Þorbjöm Jensson, þjálfari Malmö,
var að vonum óhress eftir leikinn.
Hann sagði að þetta hefði einfald-
lega ekki verið þeirra dagur. Honum
fannst sínir menn samt beijast vel,
en vöm og markvarsla Saab hefði
verið mjög sterk. „Þetta var hálf-
gerður úrslitaleikur, en við erum
ekki úr leik. Þrír leikir em eftir og
ég er vongóður fyrir leikinn heima
gegn Vikingama á miðvikudag, en
Saab er nær ömggt upp.“
Þorbergur Aðalsteinsson var án-
ægður. „Leikskipulagið gekk upp.
Við náðum að bijóta mótheijana
niður í sókninni, við það urðu þeir
örvæntingafullir og skutu úr lokuð-
um fæmm. Þá hafði heimavöllurinn
mikið að segja, en Malmö er sterk-
asta 1. deildarliðið, sem við höfum
leikið gegn,“ sagði Þorbergur.
Þorbergur AAalstelnsson er í miklum vígamóði þessa dagana.
Vignir
Vignisson ■
skrifar
Morgunblaðið/Bjarni
Þórður SlgurAsson gerði leikmönnum KR lífíð leitt og tryggði Valsmönnum farseð-
ilinn I bikarúrslitin.