Morgunblaðið - 29.03.1988, Page 10
'10 B
jHorgonbloHih /IÞROTTIR ÞRWJUDAGUR 29. MARZ 1988
KNATTSPYRNA / V-ÞÝSKALAND
Bremen skellti
Bayern Miinchen
Bremverjar hafa náð fjögurra stiga
forskoti í baráttinni um meistaratitilinn
„LEIKMENN Werder Bremen
íéku það vel í seinni hálfleik,
að þeir eru verðugir til að
hampa meistaratitilinum,"
sagði Udo Lattek, fyrrum þjálf-
ari Bayern Mtinchen og ráð-
gjafi hjá Köln, eftir að Bremen
hafði lagt Bayern Miinchen að
velli, 3:1, í Bremen. Karl-Heinz
Riedle, sem Bremen keypti frá
Blau-Weiss Berlín, var hetja
Bremen - hann skoraði tvö
mörk og fiskaði vítaspyrnu.
Frá
Alfreð
Gislasynií
V-Þýskalandi
Jean-Marie Pfaff, markvörður
Bayem, lék ekki með. Hann fór
til Belgíu til að vera viðstaddur
jarðaför systur sinnar. Bayem skor-
aði fyrst eftir nokk-
uð einkennilegt at-
vik. Bayem fékk
homspymu á 25.
mín. leiksins. Mark
Hughes ýtti þá á bakið á Frank
Neubarth, sem ætlaði skalla knött-
inn frá marki. Gunnar Sauer, fyrir-
liði Bremen, var ömggur á að það
yrði dæmt á Hughes. Hann greip
knöttinn. Dómarinn dæmdi víta-
spymu. Lothar Mattháus skoraði,
0:1, úr vítaspymu.
Leikmenn Bremen gáfust ekki upp.
Frank Odenewitz jafnaði, 1:1, úr
vítaspymu, aðeins tveimur mín.
seinna. Hans Pfliigler felldi Riedle,
sem skoraði síðan, 2:1, eftir mikinn
einleik á 39. mín. Hann skoraði
síðan sitt annað mark við geysileg-
an fögnuð áhorfenda fímm mín.
fyrir leikslok.
Ásgðir með stórieik
Ásgeir Sigurvinsson átti stórleik
þegar Stuttgart sigraði, 2:0, í
Karlsmhe. Karl Allgöwer skoraði
fyrst glæsilegt mark - sendi knött-
inn beint í netið úr aukaspymu af
30 m færi. Jurgen Klinsmann bætti
síðan öðm marki við. Hann var
mikill klaufi í leiknum. Gat hæglega
skorað tíu mörk, en honum brást
bogalistin. Klinsmann fékk margar
frábærar sendingar frá Ásgeiri,
sem hann nýtti ekki.
Klinsmann er markahæstur í V-
Þýskalandi, með 16 mörk. Frank
Odrenewitz og Riedle, báðir hjá
Bremen, hafa skorað 13 mörk,
ásamt Dieter Eckstein, Numberg
og Fritz Walter, Stuttgart.
Atli Eðvaldsson og Láms Guð-
mundsson léku ekki með liðum
sínum. Uerdingen náði jafntefli,
2:2, í Kaiserslautem. Fach, sem
Uerdingen keypti frá Diisseldorf,
skoraði bæði mörk liðsins. Matthias
Herget varð fyrir því óhappi að
skora sjálfsmark, en Axel Roos
skoraði hitt mark Kaiserslautem, á
89. mín.
Schalke vann þýðingarmikinn sig-
ur, 3:0, yfír Dortmúnd. Olaf Thon
gulltryggði sigurinn með marki á
83. mín., eftir sendingu frá Tony
Schumacher, markverði. Andreas
Möller, sem Dortmund keypti frá
Frankfurt, var rekinn af leikvelli.
Eftir misheppnaða tilraun til að
koma stjóm Mönchengladbach frá,
kom langþráður sigur hjá félaginu,
3:0, yfír Niimberg. Allir leikmenn
Gladbach vildu að stjómin, sem
hefur varið í 15 ár hjá félaginu,
yrði áfram. Það hefur verið mikið
deilt á stjómina að undanfömu,
eftir að Gladbach hafði leikið sex
ieiki í röð án sigurs. Leikmenn Glad-
bach sýndu snilldarleik. Christian
Hochstatter skoraði tvö mörk og
Hans-Jörg Criens eitt.
Tony Woodcock kom Köln á bragð-
ið gegn Mannheim, 3:0. Stefan
Engels bætti öðru marki við úr víta-
spymu, sem Woodcock fískaði og
síðan skoraði Pierre Littbarski,
einnig úr vítaspymu, sem danski
leikmaðurinn Flemming Poulsen
fiskaði.
Otto Rahagel, þjálfari Bremen.
Rætist langþráður draumur hans -
um að meistaratitillinn komi til Brem-
en í fyrsta skiptið í 23 ár?
Hamburger hélt uppteknum hætti
í Bochum og tapaði, 0:4. Pólveijinn
Ivan, Uwe Leifeld 2 og Josef Nehl
skomðu mörkin. Félögin mætast
aftur í vikunni - þá í undanúrslitum
bikarkeppninnar.
■ Úrslit B/12
■ Staðan B/12
Karl Allgövar skoraði glæsilegt mark fyrir Stuttgart. Hér sést hann ánægð-
ur ásamt Arie Haan, þjálfara Stuttgart.
KNATTSPYRNA / ITALIA
Staðan óbreytt
Napólí og Mílanó berjast um titilinn
ROMA, sem hafði sigrað í
síðustu fjórum leikjum, tapaði
um helgina fyrir Inter Mílanó
og er nánast úr leik íkeppni
um rtalska meistaratitilinn.
Napólí og AC Mílanó gerðu
jafntefli í sínum leikjum og virð-
ast ætla að berjast um titilinn,
en Napólí er með fjögurra stiga
forskot, þegar sex umferðir eru
eftir.
Napólí gerði markalaust jafn-
tefli á útivelli gegn Tórínó og
sömu úrslit urðu í ieik Avellino
gegn AC Mílanó og viðureign Ces-
ena og Juventus.
Massimo Ciocci var besti maður
'R^ílntiA % A .O
Roma. Hann skoraði tvívegis og
innsiglaði sigurinn á 69. mínútu
með langskoti. Alessandro Altobelli
kom Inter á bragðið með marki úr
vítaspymu, en Giuseppe Bergomi
setti annað markið og auk þess
gerði hann sjálfsmark. Giuseppe
Giannini skoraði fyrra mark Roma
úr vítaspymu og átti heiðurinn af
seinna markinu — tók aukaspymu
og Bergomi framlengdi í eigið
mark.
Sampdoria er í fjórða sæti, vann
Fiorentina 1:0, og gerði Fulvio
Bonomi markið úr vítaspymu.
Staðan/B12
Úrslit/B12
KNATTSPYRNA / SPANN
Markvarðahrellirinn Sanchez
með tvö möric gegn Sabadell
AHoballi, leikmaðurinn gamalkunni, skoraði mark fyrir Inter Mflanó, þegar
félagið lagði Róma, 4:2.
KNATTSPYRNA / HOLLAND
PSV braut hundrað
marka múrinn
REAL Madrid vann Sabadell
3:1 um helgina og er nú með
átta stiga forskot í 1. deild
spænsku knattspyrnunnar.
Real Sociedad vann Logrones
4:0 og er í öðru sæti, en At-
letico Madrid og Bilbao eru 13
stigum á eftir Real Madrid.
Hugo Sanchez skoraði tvívegis
fyrir Real Madrid, fyrst úr
vítaspymu og síðan eftir vamar-
mistök, og hefur gert 26 mörk á
tímabilinu. Juan Rubio minnkaði
muninn með skalla, en Emilio
Butragueno innsiglaði sigurinn eftir
góða samvinnu við Sanchez.
Real Sociedad átti ekki í erfiðleikum
með Logrones, en Loren Juarros,
Jose Bakero, Jesus Zamorra og
Jose Zuniga settu mörkin.
Atletico Madrid hefur ekki sigrað í
síðustu níu leikjum — tapaði nú 2:0
fyrir Sporting Gijon. Atletico var
án Paulo Futre og Ricardo Alemao
og Sporting átti leikinn. Joaquin
gerði fyrra markið með skalla á
sjöundu mínútu og Jose Emilio ýtti
knettinum yfir línuna skömmu fyrir
hlé eftir skalla frá Zurdi.
Miguel Pardeza jafnaði fyrir
Zaragoza gegn Bilbao þegar þijár
Hugo Sanchez hefur skoraði 26
mörk. Hann hefur verið markakóngur
á Spáni sl. þijú ár.
mínútur voru til leiksloka, en hinn
18 ára Ricardo Mendiguren gerði
mark Bilbao á þriðju mínútu.
Barcelona tapaði 1:0 heima fyrir
Real Betis, sem er í næst neðsta
sæti og hafði ekki sigrað á útivelli
síðan í ágúst.
■ Úrslit/B12
■ Staðan/b12
PSV Eindhoven vann Zwolle 6:0
í deildinni á sunnudaginn og
hefur þar með sett 106 mörk í 28
leikjum. Sex umferðir eru eftir og
er met Ajax frá 1976-77 í hættu,
en leikmenn liðsins gerðu þá 122
mörk.
Eric Gerets og Ronald Koeman
stjómuðu leiknum, en Wim Kieft
skoraði tvívegis, og Eric Viscaal,
Gerald Vanenburg og Gerets gerðu
sitt markið hver en eitt var sjálfs-
mark.
Ajax, sem er í öðru sæti átta stigum
á eftir PSV, lék sóknarleik að venju
og vann Volendam 2:1. John Bos-
man og Brian Roy gerðu mörk Ajax,
en Johan Steur minnkaði muninn á
síðustu sekúndunum.
Leik Feyenoord og Utrecht var fre-
stað, en Feyenoord heldur þriðja
sætinu á markatölu.
KNATTSPYRNA / SKOTLAND
Rangers sækir á Celtic
Ian Durrant tryggði Rangers
3:2 sigur á útivelli gegn
Dundee, þegar hann skoraði úr
vitaspymu á 87. mínútu. Áður
höfðu Graham Roberts og Mark
Walters skorað fyrir Rangers, en
Ian Angus og Tommy Coyne
gerðu mörk Dundee. Þetta var
36. mark Coynes á tímabilinu og
er hann nú markahæstur í Evrópu
í keppni um gullskó Adidas.
Celtic gerði markalaust jafntefli við
Dundee United, en Rangers er nú
flmm stigum á eftir Celtic á toppnum.
Mikc Gallowav, sem Hearts keypti frá
Halifax fyrir 40.000 pund fyrir hálfu
ári, skoraði á fyrstu og síðustu
mínútu, er Hearts vann Morton 2:0.
Þá vann Aberdeen Falkirk með sömu
markatölu og settu vamarmennirnir,
Faulkner og Miller, mörkin.