Morgunblaðið - 29.03.1988, Blaðsíða 11
B 11
|B)»rflm»MaM> /IÞROTTtR ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1988
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Sigurður Jónsson
skoraði af 25 metra
færi gegn IMorwich
Þriðja deildarmarkið fyrir Sheffield Wednesday
SIGURÐUR Jónsson stóð sig
vel með Sheffield Wednesday
á laugardaginn og setti annað
mark liðsins í 3:0 sigri gegn
Norwich.
Sigurður lék á tvo mótherja
og skoraði af um 25 metra
færi fimmtán mínútum fyrir leiks-
lok. Þetta var þriðja mark Sigurð-
ar í ensku deildinni. 31. ágúst
1985 vann Sheffield Oxford 1:0
á Manor Ground og gerði Sigurð-
ur eina mark leiksins. 13. október
sama ár setti Sigurður eitt mark
í 3:2 sigri gegn Leicester á City-
velli og á laugardaginn kom þriðja
markið á Carrow Road.
Sigurður var á 18. ári, þegar hann
fór til Sheffield haustið 1984.
Hann hefur síðan leikið nokkra
leiki á hvetju árí, en átt erfitt
með að halda föstu sæti í liðinu,
einkum vegna meiðsla. Hann hef-
ur samt eflst við mótlætið og eft-
ir að hafa verið frá í allan vetur
vegna meiðsla, fékk hann tæki-
færi á ný gegn Manchester United
fyrir skömmu, lék nú þriðja leik-
inn í röð og gerði sitt þriðja deild-
armark.
Siguröur Jónsson skoraði glæsilegt mark á Carrow Road í Norwich
ÍÞRÓmR
FOLK
■ CLIVE Allen lék ekki með
Tottenham gegn Nottingham
Forest á laugardaginn og tók Nico
Claesen stöðu hans. Ailen var seld-
ur til Bordeaux í
Frá Bob Frakklandi fyrir
Hennessy helgi fyrir milljón
ÍEnglandi pund|
en verður með
Spurs út yfírstand-
andi tímabil. Ailen, sem setti 49
mörk á síðasta tímabili og var kjör-
inn knattspymumaður ársins í Eng-
landi, hefúr aðeins gert 14 mörk
fyrir Spurs í vetur. Að undanfömu
hefur verið rætt um að Chris
Waddle væri á förum til Frakk-
lands, en Terry Venables, stjóri
Spurs, sagði að hann ætti eftir tvö
ár af samningi sínum og færi
hvergi.
■ KEVIN Hitchcock lék í marki
Chelsea gegn Southampton og var
kennt um markið. Chelsea greiddi
Mansfield 250.000 pund fyrir hann
á dögunum og er Hitchcock fjórði
markvörðurinn, sem leikið hefur
fyrir Chelsea í vetur.
■ MARK Lawrenson sat í heið-
urstúkunni á leik Charlton og
Oxford, en eins og greint hefur
verið frá, hefur verið ákveðið að
hann taki við stjóminni hjá Ox-
ford. Hins vegar hefur ekki enn
verið gengið frá öllum málum.
Lawrenson var allt annað en án-
ægður með leikinn. „Það er eins
gott að hann var ekki í beinni út-
sendingu, því auglýsingamar hefðu
vakið meiri athygli. Það er mikill
munur á þremur eða Qórum efstu
liðunum og hinum og greinilegt að
hér þarf stórátak," sagði Law-
renson. Hann hefur boðið félaga
sínum, Frank Stapledon, sem er
lánsmaður hjá Derby og lék sinn
450. deildarleik um helgina, að ger-
ast þjálfari hjá Oxford.
I TREVOR Francis lék í fyrsta
sinn á Englandi í sex ár, en hann
var með QPR síðustu 20 mínútum-
ar gegn Portsmouth. Francis var
slakur, en Smith, stjóri QPR, var
ánægður. „Francis hefur ekki
mikla jrfirferð, en hann er sem
Ardiles og MUhren, les leikinn vel
og það kemur sér vel.“
m MICHAEL Laudrup verður
ekki hjá Juvcntus næsta tímabil,
en félagið vill selja hann fyrir 1,5
milljónir punda eða rúmlega 100
milljónir íslenskra króna. Arsenal
hafði samband við Juve í síðustu
viku og vildi kaupa, en Manchester
United og Spurs hafa einnig sýnt
áhuga.
Uverpool komið á
skjurleið á ný
LIVERPOOL lék ekki vel gegn
Wimbledon á laugardaginn, en
vann samt 2:1 og tryggir sér
meistaratitilinn f Ijótlega ef
heldur sem horfir. Mikið var
um óvœnt úrslit og aðeins tvö
efstu liðin sigruðu á heimavelli.
Dalglish, sem ekki hefur leikið
með Liverpool í vetur, kom
inná, þegar þrjár mínútur vom til
leiksloka og mínútu síðar minnkaði
■^I Eríc Young muninn
Frá Bob fyrir gestina með
Hennessy skalla. Þetta var
/ Englandi fyrsti heimaleikur
Liverpool í sjö vikur,
en þrátt fyrir góðar móttökur
36.464 áhorfenda, olli leikur liðsins
vonbrigðum. Vindur var þó nokkur
og mikið var um ónákvæmar send-
ingar, en Peter Beardsley stóð upp
úr. Hann var óheppinn að skora
ekki undir lokin, en átti heiðurinn
að öðra marki Liverpool, sendi á
Johnston, sem skallaði á Bames og
eftirleikurinn var auðveldur — hans
15. mark á tímabilinu. John
Aldridge lék á ný méð Liverpool
og kom verðandi meisturam á
bragðið með skalla eftir sendingu
frá Steve Nicol.
„Leikmenn Wimbledon era líkam-
lega sterkir, þeir nota kraftinn og
það er ekki hægt að gagnrýna,"
sagði Kenny Dalglish, stjóri Li-
verpool, eftir sigurinn á Anfield.
Harvay bjartsýnn
„Ég neita að viðurkenna að ekki
sé hægt að ná Liverpool að stig-
um,“ sagði Colin Harvey, stjóri
Everton, eftir 2:1 sigurinn gegn
Watford á útivelli. Everton er 17
stigum á eftir Liverpool og á átta
leiki eftir, en Liverpool níu. Kevin
Sheedy og Wayne Clarke skoraðu
fyrir Everton, en Gary Porter setti
mark heimamanna, sem töpuðu
fjórða deildarleiknum í röð og era
á góðri leið með að falla. Þeir þökk-
uðu engu að síður 30.503 áhorfend-
um stuðninginn í leikslok með lófa-
klappi.
West Ham gaf eftir síðustu fímm
mínútumar á Old Trafford, fékk
þá á sig tvö mörk og tapaði 3:1.
Barátta gestanna var mikil, en
sóknarleikurinn ekki beittur —
fyrsta skot á mark kom eftir 52
mínútur og átti Chris Tumer ekki
í erfiðleikum með að veija. Gordon
Ray Clemence stjómar vöm Tott-
enham ekki framar.
Strachan gerði fallegt mark fyrir
heimamenn sex mínútum síðar, en
Leroy Rosenoir, sem West Ham
keypti fyrir rúmri viku frá Fulham
fyrir 275.000 pund, jafnaði á 81.
mínútu. Viv Anderson kom United
yfír á ný með skalla og Bryan Rob-
son átti síðasta orðið með góðu
skoti á 90. mínútu. Ahorfendur:
37.269.
Sigurður Jónsson skoraði
Sigurður Jónsson skoraði annað
mark Sheffield Wednesday á 74.
mínútu, er liðið vann Norwich 3:0
á Carrow Road að viðstöddum
13.280 áhorfendum. Mel Sterland,
maður leiksins, skoraði úr vfta-
spymu skömmu fyrir hlé og Lee
Chapman innsiglaði sigurinn tíu
mínútum fyrir leikslok. Norwich
fékk gullið tækifæri til að jafna um
miðjan seinni hálfleik, en Kevin
Pressman varði þá vítaspymu frá
Robert Fleck. Heimamenn vora
lengi að ákveða hver ætti að taka
vítið, en Stringer, stjóri þeirra,
sleppti sér eftir leikinn. „Kevin
Drinkell er vítaskytta okkar —
Fleck átti aldrei að taka vítið," sagði
hann.
QPR er í fjórða sæti, vann Ports-
mouth 1:0 og skoraði Dean Coney
á 11. mínútu. Eftir það einbeittu
gestimir sér að vamarleiknum og
þrátt fyrir góða baráttu náði
Portsmouth ekki að skora.
Charlton og Oxford gerðu marka-
laust jafntefli og hefur Oxford nú
leikið 17 leiki í röð án sigurs.
Southampton gerði góða ferð til
London og vann Chelsea 1:0, Gra-
ham Baker skoraði fimmtán mínút-
um fyrir leikslok. Þetta var 18.
deildarleikur Chelsea í röð án sig-
urs.
Rangstöðumaric
Nigel Clough jafnaði fyrir Notting-
Ray Clemence:
ȃg er
hættur"
„ÉG er hættur. Ég hef
verið mjög slæmur í
vinstri hásininni og eftir
varaliðaleikinn gegn
Brighton fyrir viku var
mér ráðlagt að hætta."
Þetta sagði Ray Clem-
ence um helgina, sem
hefur verið í eldlínunni
undanfarin 23 ár og
ieikið meira en 1.100
leiki með Liverpool og
Tottenham.
Clemence, sem verður
fertugur 5. ágúst, hóf
ferilinn hjá Scunthorpe
1965. Tveimur árum
síðar keypti Bill Shankly
hann til Liverpool þar
sem hann náði frábær-
um árangri með liðinu;
með Liverpool varð hann
fímm sinnum Englands-
meistari, einu sinni bik-
armeistari, þrisvar Evr-
ópumeistari meistara-
liða, tvisvar Evrópu-
meistari félagsliða og
einu sinni Evrópumeist-
ari félagsliða. Frá jan-
úar 1970 fram í ágúst
1981 missti hann aðeins
af sjö deildarleikjum
Liverpool, en 1981 var
hann seldur til Totten-
ham fyrir 300.000 pund.
Clemence, sem á 61
landsleik fyrir England
að baki, lék 21 úrslita-
leik á Wembley, en
síðasti leikur hans með
aðalliði Tottenham var
gegn Norwich í deildinni
10. október í vetur.
-
n[-.......
ham Forest á 67. mínútu gegn
Tottenham, en hann var greinilega
rangstæður, er Neil Webb sendi
knöttinn til hans. Colin Foster gerði
sjálfsmark í fyrri hálfleik.
Arsenal náði aðeins markalausu
jafntefli gegn Derby á Baseball
Ground, sem er lélegasti völlurinn,
sem leikið er á í 1. deild. „Völlurinn
var hræðilegur, en við reyndum að
leika knattspymu," sagði George
Graham, stjóri Arsenal.
■ Úrsltt/B12
■ Staðan/B12