Morgunblaðið - 29.03.1988, Side 15
ptofflimMiiMfr /ÍÞRÓTTIR ÞRHUUDAGUR 29. MARZ 1988
B 15
SKÍÐI / HEIMSBIKARINN
Zurbriggen stóð uppi
sem sigurvegari
Alberto Tomba féll í síðasta mótinu
PIRMIN Zurbriggen vann
heimsbikarinn samanlagt í
þriðja sinn á laugardaginn.
Hann varð fjórði í síðasta
heimsbikarmóti vetrarins,
svigi, en helsti keppinautur
hans, Alberto Tomba, féll og
varð úr leik eftir að hafa haft
besta tímann eftir fyrri ferð.
Zurbriggen, sem vann gull-
verðlaun í bruni á Ólympíu-
leikunum í Calgary, náði nú að
vinna þrefalt í heimsbikarnum,
bruni, risastórsvigi og samanlagt.
Hann varð jafnframt fyrsti kepp-
andinn til að ná meira en 300
stigum í keppninni samanlagt
síðan stigagjöfínni var breytt.
„Þetta var eitt erfiðasta mótið á
ferlinum. Eg hef aldrei verið und-
ir eins mikilli pressu," sagði Zur-
briggen eftir svigkeppnina á laug-
ardaginn. „Eftir Ólympíuleikana
gekk frekar illa hjá mér, en að
undanfömu hefur þetta verið að
koma hjá mér aftur. Fyrir tvö
síðustu mótin var allt útlit fyrir
að Alberto Tomba hefði þetta í
hendi sér. En ég var ákveðinn í
að gefa ekkert eftir og beijast til
enda og það tókst - ég var hepp-
inn. Þetta var leiðinlegur endir
fyrir Tomba. Hann er góður piltur
og frábær skíðamaður."
Zurbriggen hlaut samtals 310
stig. Stenmark er sá eini sem náð
hefur fleiri stigum í heimsbikar-
keppninni, en hann hlaut samtals
339 stig þegar hann var upp á
sitt besta. Alberto Tomba hlaut
281 stig og Hubert Strolz frá
Austurríki varð þriðji með 190
stig. Zurbriggen vann aðeins tvö
brunmóti í vetur en hlaut stig úr
22 mótum af 30 og gerði það
gæfumuninn.
Alberto Tomba má vel við una.
Hann vann tvenn gullverðlaun á
Ólympíuleikunum í Calgary og
varð heimsbikarhafí í svigi og
stórsvigi þar sem hann hafði mikla
yfirburði. „Eg vissi að sigurmögu-
leikar mínir í keppninni samanlagt
voru úti eftir stórsvigið á föstu-
daginn. En þetta er storsvigsmót
sem ég kem til með að gleyma
fljótlega," sagði Tomba.
■ Úrsllt/B13
Zurbriggen
sterkari á
endasprettinum
Pirmin Zurbriggen varð fjórði í
síðasta heimsbikarmóti vetrarins á
laugardaginn og stóð uppi sem sig-
urvegari samanlagt. Hann hlaut 310
stig en Alberto Tomba 281 stig.
Þrefaldur
sigur hjá
svissneska
yygulldrengnumM
Pirmin Zurbriggen varð þrefaldur sigurveg-
ari í heimsbikarkeppninni 1988. Hann sigr-
aði í bruni, risastórsvigi og samanlagt. Hann
hlaut samtals 310 stig og hefur engum skíða-
manni tekist að komast yfír 300 stig í keppn-
inni síðan Ingemar Stenmark gerði það fyrir
nokkrum árum.
SKAUTAR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Fjórði heims-
meistaratitill
Katarínu Witt
*■>
- góður endir á frábærum ferli hennar
AUSTUR—ÞÝSKA skautadrottningin
Katarina Witt vann á sunnudaginn
heimsmeistaratitilinn í listhlaupi á
skautum ífjóröa sinn. Hún er einnig
tvöfaldur ólympíumeistari í greininni.
Liz Manley frá Kanada varð önnur og
Debi Thomas, Bandaríkjunum, í þriðja
sæti.
Eg kom hingað til að vinna gullverðlaun-
in, en þetta hefur verið erfitt keppn-
istímabil og það var erfitt að ná sér á strik
eftir Ólypíuleikana. Allar stúlkurnar gerðu
mistök og það gerði ég einnig en það nægði
mér til sigurs," sagði Katarina Witt eftir
fijálsu æfingamar við undrileik úr söng-
leiknum Carmen.
Katarina Witt, sem er 22 ára, hefur ákveð-
ið að hætta keppni í listhlaupi og mun nú
snúa sér að námi sfnu. Hún mun þó að öll-
um líkindum sýna listir sýnar eitthvað áfram
á svellinu.
„Eftir 17 ára feril minn á skautunum hef
ég þurft að neita mér um margt. Æfingarn-
ar hafa verið langar og erfiðar, en minnin-
garnar em góðar vegna þess að ég elska
skauta," sagði Witt.
Wittvann heimsmeistaratitilinn 1984, 1985,
1987 og nú 1988. Hún vann gullverðlaun
á Ólympíuleikunum 1984 og 1988 og hefur
unnið Evrópumeistaratitilinn sex sinnum.
í heimsmeistaramótinu, sem fram fór í
Budapest, hlaut Witt 2,4 stig, Elizabeth
Manley frá Kanada kom næst með 4,8 stig,
Debi Thomas í þriðja með 6,2 stigo g Clau-
dia Leistner frá V-Þýskalandi fjórða með
11,0 stig. Witt, Manley og Thomas lýstu
því allar yfir eftir keppnina að þær hyggð-
ust hætta keppni.
Katarlna Witt frá Austur-þýskalandi endaði feril sinn
með sigri á heimsmeistaramótinu í Budapest. Hún hef-
ur sex sinnum orðið Evrópumeistari, flórum sinnum
heimsmeistari og tvíveigis ólympíumeistari.
Alberto Tomba sigraði f samhliða-
svigi á sunnudaginn.
Tomba
sigraði í
samhliða-
svigi
ALBERTO Tomba endaði
keppnistímabilið með sigri í
samhliðasvigi i Saalbach á
sunnudaginn. Hann sigraði
helsta keppinaut sinn íheims-
bikarnum, Pirmin Zurbriggen, í
úrslitum.
etta var síðasta mót vetrarins
og gaf aðeins stig til landslið-
anna. Keppt var bæði í karla og
kvennaflokki. Helmut Mayer frá
Austurríki sigraði landa sinn, Leon-
hard Stock, í keppninni um þriðja
sætið. I kvennaflokki sigraði Christ-
ine Meier frá Vestur-Þýskalandi.r
Hún vann Ulrike Maier í úrslitum.
Roswitha Steinar varð þriðja og
Brigitte Oertli fjórða.
GANGA
Gunde Svan frá Svíþjóð varð sigur-
vegari í heimsbikarkeppninni í göngu.
Gunde Svan
endurheimti
heims-
bikarinn
GUNDE Svan frá Svíþjóð end-
urheimti heimsbikarinn í skíða-
göngu á sunnudaginn. Hann
varð þá í 8. sæti í 50 km göngu
og það dugði honum til sigurs
í keppninni samanlagt.
Svan hlaut samtals 110 stig, eða
10 stigum meira en landi hans
og fyrrum heimsbikarhafi, Torgny
Mogren. Sigurvegari í 50 km
göngunni, sem fram fór í Rovaniemi
í Finnlandi, varð Paal Gunnar Mik-
kelsplass frá Noregi. Hann varð
jafnfram þriðji í keppninni sam-
analgt með 99 stig.
Finnska stúlkan Maijo Matikainen
hafði áður tryggt sér sigur í heims-
bikarkeppni kvenna.