Morgunblaðið - 29.03.1988, Page 16
88GX SHAM .GS ÍIUDAaUU3Ifl<í ,GIG/UaUUOflOM
íH$niR
JÓHANN INGI GUNNARSSON
Loksins orðinn
alvöruþjálf-
ari — búið
að reka þig!
JÓHANN Ingi Gunnarsson,
handknattleiksþjálfari, hefur
dvalið hér á landi undanfarna
daga og átt viðræður við for-
ráðamenn nokkurra félaga.
Miklar líkur eru á að hann
þjálfi hér á landi næsta vetur
og hefur Jóhann nú afskrifað
þann möguleika aðtaka að
sér þjálfun í Sviss, eins og
honum stóð til boða.
m
Eg talaði við Amo Ehret, sem
er fyrrum landsliðsmaður
Vestur-Þýskalands en nú lands-
-, liðsþjálfari Sviss, og hann réð mér
frá því að þjálfa í Sviss. Sagði
að Svisslendingar æfðu aðeins
þrisvar í viku og ég gæti allt eins
átt von á því að þegar ég kæmi
á æfingu væru einhveijir úr liðinu
famir í skíðaferð!" sagði Jóhann
í samtali við Morgunblaðið. Það
eina sem ég hef lofað að gera
eftir að ég kem út aftur er að
ræða við foiráðamenn Dankersen,
en það er ljóst að liðið verður
áfram í 2. deild og óljóst er
hvemig stjórn þess verður skipuð
næsta vetur, þannig að ég á síður
von á að ég fari þangað.“
Essen hefur gengið vel eftir
að þú hættir sem þjálfari liðs-
ins. Hefur ekki verið sárt að
horfa upp á það?
„Eg held að ég væri ekki mann-
legur ef mér hefði ekki fundist
það sárt, sérstaklega vegna Evr-
ópukeppninnar. Ég þjálfaði liðið
er við unnum Rostock í haust, en
ég hafði einmitt spáð því liði sigri
í Evrópukeppninni. En ég vissi
að Essen ætti möguleika. Á
síðasta keppnistímabili töpuðum
við naumlega í keppninni fyrir
sovéska liðinu Minsk, sem flestir
telja besta félagslið í heimi, þrátt
fyrir að fjórir úr byrjunarliðinu
hjá okkur væm meiddir. Mér þyk-
ir því súrt í broti að fá ekki að
klára dæmið í Evrópukeppninni.
Essen mætir lítt þekktu spánsku
liði í undanúrslitunum og því er
Stjórnandinn
Jóhann Ingl Gunnarsson, handknattleiksþjálfari, sem
hefur þjálfað Kiel og Essen í V-Þýskalandi - undanfarin ár.
Hann er nú á heimleið.
ljóst að liðið fer í úrslit og þar
treysti ég því til að sigra. Er ég
hætti var Essen í 4.-6. sæti deild-
arkeppninnar og er nú í 4. sæti.
Nú em allir lykilmenn heilir, öfugt
við það þegar ég var við stjóm-
ina. Það var vitað mál að liðið er
mjög gott þegar allir þeir bestu
em með, eins og sannaðist gegn
Rostock fyrr í vetur, en í þeim
deildarleikjum sem við spiluðum
þegar ég var enn þjálfari vom
allir bestu mennirnir aðeins með
í 3 af 14 leikjum.
Þú lentir í 3. sqpti í kjöri Hand-
ball Magazine um þjálfara árs-
ins meðal lesenda. Er þetta kjör
mikils virði?
„Já, ég varð efstur í fyrra, en nú
fékk Ivanescu landsliðsþjálfari
flest stig. Ég varð hins vegar
þriðji rétt á eftir Heiner Brandt,
þjálfara Gummersbach, þrátt fyrir
að ég væri hættur. En Ivanescu
var á sínum tíma rekinn frá Essen
er liðið varð meistari. Það er því
greinilegt að þó menn séu ekki
nógu góðir fyrir Essen koma þeir
vel út úr kosningu sem þessari!
Það er einfaldlega þannig með
þjálfara í atvinnuíþróttum í
Þýskalandi að stóll þeirra er púð-
urtunna. Það hefur ekkert með
hæfileika þjálfara að gera hvort
kviknar í púðrinu. Aðstæðurnar
ráða því. Og þegar forseti, sem
hefur lofað stuðningsaðilum fé-
lagsins meistaratitli þrátt fyrir að
leikmenn hafi yfirgefið liðið og
mikið sé um meiðsli, sér að hann
getur ekki staðið við orð sín, er
það þjálfarinn sem er látinn axla
ábyrgðina. Þetta er hefð. Þjálfari
er eins og skipstjóri sem fer út —
hann vill alltaf koma með full-
fermi að landi, en það er ekki
raunhæft. Þjálfari vill auðvitað
vinna alla leiki en raunveruleikinn
er oft annar en það sem maður
óskar sér. Að mörgu leyti hefur
verið erfítt að sætta sig við það
að hætta sem þjálfari Essen-liðs-
ins. Ég hef hugsað mikið um þetta
en tel mig ekki fínna neitt sem
ég gerði rangt."
Og örfá orð í lokin frá Jóhanni
Inga: „Það hefur verið gaman að
heyra hvað sumir hér heima hafa
sagt við mig undanfama daga:
Nú ertu loksins orðin alvöru þjálf-
ari. Þú hefur verið rekinn!"
KNATTSPYRNA
Valsmenn náðu ekki að
veiða ..hákarlana"
Hörður
manna.
Halgason, þjálfari Vals-
„ÉG er mjög ánægður með
ferðina, þrátt fyrir að við höfum
ekki náð að veiða hákarlana
(Miami Jaws) í Kingston. Strák-
arnir hafa fengið góða reynslu
og þessi ævintýraferð, þar sem
við kynntumst f ramandi um-
hverfi, hefur þjappað hópnum
saman," sagði Hörður Helga-
son, þjálfari íslandsmeistara
Vals, sem koma heim frá Jam-
aíku í dag.
Valsmenn léku sinn síðasta leik
á sunnudáginn og máttu þá
þola tap, 1:2, fyrir Miami Jaws.
Hákarlarnir fengu mark á silfurfati
eftir aðeins 40. sekúntur. Þá hand-
samaði Guðmundur Baldursson,
markvörður, knöttinn örugglega.
Þegar hann var að fara að sparka
knettinum fram, flautaði dómarinn
og dæmdi óbeina aukaspyrnu á
hann við markteig. Dómarinn sagði
að hann hafi tekið of mörg skref.
„Þessi dómur vakti mikla athygli,
enda út í hött. Við fengum mark á
okkur upp úr aukaspyrnunni," sagði
Hörður.
Jón Gunnar Bergs jafnaði, 1:1, fyr-
ir Valsmenn á 20. mín. og Tryggvi
Gunnarsson var nær því að bæta
marki við. Nokkur harka færðist í
leikinn í seinni hálfleik. Þegar tíu
mín. voru til leiksloka skoruðu leik-
menn Jaws sigurmarkið - með
góðu skoti af átján metra færi.
yp
Mi
Bjöm Rafnsson
KNATTSPYRNA
KR sigraði
Morton
Bjöm Rafnsson
skoraði eftir 20 sek-
úndur
„ÞETTA var góður leikur og
sérstaklega stóðu ungu
strákarnir sig vel og það er
ánægjulegt," sagði lan
Ross, þjálfari fyrstu deildar
liðs KR, við Morgunblaðið
eftir 3:1 sigur f æfingaleík
gegn skoska úrvalsdeildar-
liðinu Morton á sunnudag-
inn.
KR-ingar byijuðu vel og eftir
20 sekúndur var staðan 1:0
— Bjöm Rafnsson skoraði úr
einu af sínum kunnu þrumuskot-
um. Pétur Pétursson bætti öðru
marki við úr vítaspyrnu slTömmu
eftir hlé, en síðan minnkuðu
heimamenn muninn. Heimir
Guðjónsson innsiglaði sigurinn
með góðu marki eftir sendingu
frá Hilmari Bjömssyni.
Ross sagði að flórir eða fimm
fastamenn hefðu verið S liði
Morton, en Willum Þór Þórsson,
Loftur Ólafsson og Sæbjöm
Guðmundsson léku ekki með
KR að þessu sinni. Annað kvöld
leika KR-ingar við aðallið Glas-
gow Rangers.
„Norrænu
víkingamir“
Þjálfari 1860 Miinchen er
mjög ánægður með
„norrænu víkingana,“ eins og
hann kallar Guðna Bergsson og
Ragnar Margeirsson. „Guðni
hefur mjög góða yfírsýn, er
snöggur og sterkur skallamað-
ur. Ragnar er klókur upp við
markið. Hann gæti orðið geysi-
legur markaskorari,“ segir þjálf-
arinn um þá félaga.
Guðni og Ragnar léku sinn
fyrsta leik með félaginu á laug-
ardaginn - gegn Augsburg.
Leiknum lauk með jafntefli, 2:2.
Ragnar lék fyrri hálfleikinn, en
Guðni var með allan leikinn.
Guðni var nær búinn að tryggja
1860 Miinchen sigur rétt fyrir
leikslok. Hann átti skot í stöng
af aðeins eina metra færi.
Guönl Bergsson
GETRAUNIR: X 2 X 1X2 2X2 1X1
LOTTO: 8 12 13 16 27