Morgunblaðið - 12.05.1988, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.05.1988, Blaðsíða 13
13 JNwptnMiifcfr Áskriftarsíminn er 83033 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1988 ★ Kynning á flugi og flugkennslu. ★ Myndasýning. ★ Kynningarflug. ★ Kaffiveitingar. Allir velkomnir ! VESTURFLUG HF.? Reykjavíkurflugvelli, sími 28970, viö hliðina á innanlandsflugi Flugleiða. Kœru œttingjar, félagssystur og góÖir vinir! Ég sendi ykkur mínar innilegustu þakkir fyrir gjafir, blóm, skeyti og ykkar miklu vinsemd viÖ mig á 90 ára afmœli mínu 26. apríl sl. Ég biÖ góÖan GuÖ aÖ vernda ykkur alla ykkar œvidaga. Margrét Ásgeirsdóttir. Okkar árlegi reiðtúr verður 14. maí. Safnast verður saman við félagsheimilið kl. 20.30. og lagt af stað kl. 21.00. Pottréttur verður seldur á eftir í félagsheimilinu. Mætum allar. Kvennadelldin. BÖRN OG UNGUNGAR Glens og gaman hefst á skeiðvellinum 14. maí kl. 15.00. Mætið með hestana í boðhlaup og fleira. Grillveisla hefst kl. 17.00. Verð kr. 100.- Stjórn Í.D.F. Flugskólinn Vestur- flug kynnir flug- kennslu á opnu húsi FLUGSKÓLINN Vesturflug í Reykjavík verður með opið hús f bækistöðvum sinum á Reykjavík- urflugvelli í dag, fimmtudag, frá klukkan 11 til 18, þar sem starf- semi flugskólans verður kynnt. „Við ætlum að kynna flugkennsl- una og flugáhugafólki býðst að fara í kynningarflug. Kennaramir munu svara fyrirspumum og sýndar verða flugmyndir af myndbandi," sagði Sveinn Einarsson, hjá Vesturflugi. „Við eram ört vaxandi flugskóli, líklega sá umsvifamesti," sagði Sveinn. Hefur skólinn á að skipa fjór- um nýlegum tveggja sæta kennslu- flugvélum af gerðinni Beechcraft Skipper, þar af bættust tvær við nú í vor. Auk þess á Flugfar, sem er leiguflugfélag í eigu eigenda flug- skólans, eina 10 sæta flugvél af gerð- inni Cessna-402 til leiguflugs, m.a. til útsýnisflugs fyrir ferðamenn. Þá hefur skólinn keypt tveggja hreyfla sex sæta flugvél af gerðinni Piper Seneca til kennslu- og leiguflugs. Ennfremur leigir skólinn út fjögurra sæta flugvél af gerðinni Cessna Sky- hawk. Hjá Vesturflugi era flórir flug- kennarar í fullu starfi og fjórir eig- endur skólans, sem starfa m.a. sem flugmenn hjá Flugleiðum, kenna í hlutastarfi, og era því jafnan átta flugkennarar tiltækir. Að sögn Sveins fjölgar í þeim hópi í sumar. Að sögn Sveins verður áherzla lögð á að kynna nám til einkaflug- mannsprófs á hinum opna degi flug- skólans á uppstigningardag. Til þess að öðlast þau réttindi þarf viðkom- andi að ljúka 60 flugstundum og bóklegu námskeiði, sem fram fer á kvöldin og tekur 11 vikur. Skólinn býður flugnemum upp á „flugpakka", þ.e. bóklegt námskeið og 60 flugstundir fyrir 215 þúsund króna staðgreiðslu. Annars kostar flugtíminn 3.800 krónur, en hægt er að fá svokallað 10 tíma kort fyrir verð 9 tíma og 15 tíma kort með 12% afslætti. Flugskólinn Vesturflug hefur að- setur í nýjum húsakynnum við Reykjavíkurflugvöll vestanverðan, skammt frá afgreiðslu innanlands- flugs Flugleiða. Þar er kennslustofa, vinnuherbergi fyrir flugmenn og af- greiðsla fyrir leiguflug. Skólinn hóf starfsemi árið 1984 og hefur vaxið hægt og bítandi, að sögn Sveins. Morgunblaðið/Sverrir Tveir af fjórum aðaleigendum flugskólans, Þorsteinn Guðmundsson (t.v.) og Sveinn Einarsson. Sendi vinum og vandamönnum um land allt mínar innilegustu þakkir fyrir hlýjar kveÖjur, góöar gjafir og heillaskeyti á áttatíu ára af mœli mínu, þann 7. maí síÖastliÖinn. AlúÖar kveÖjur. Jónmundur G. Guðmundsson frá Laugalandi. Morgunblaðið/Júlíus Áhöfn vamarliðsþyrlunnar, ásamt slösuðu sjómönnunum tveimur og ræðismannsfrúnni, Svetlönu Malakovu, á Borgarspítalanum í gærdag. Eiginkona ræðismanns Sovétríkjanna: Færði vamarliðsmönnum þakkir fyrir sjúkraflug* SVETLANA Malakova, eigin- kona ræðismanns Sovétríkjanna á íslandi, færði i gær áhöfnum á þyrlu og eldneytisvél varoar- liðsins á Keflavíkurflugvelli þakkir fyrir sjúkraflug síðastlið- inn mánudag, þegar tveir slasað- ir sjómenn voru sóttir á haf út. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun þetta vera i fyrsta sinn sem sovésk yfirvöld bera opinberlega fram sérstakar þakkir af slíku tilefni. Vamarliðsþyrlan og eldsneytis- flugvél lögðu af stað frá Keflavík- urflugvelli laust eftir klukkan 15.00 á mánudag og vora.sjómenn- imir, Sovétmaður og Búlgari, sótt- ir í tvö skip sem vora stödd um 300 sjómflur suð-vestur af Reykja- nesi. Sovéski sjómaðurinn var með opið beinbrot á báðum fótum, en búlgarski sjómaðurinn hafði misst framan af tveimur fíngram. Eftir 6 klukkustunda flug lenti þyrlan með sjómennina við Borgarspítal- ann, þar sem þeir komust undir læknishendur. Áhafnir þyrlunnar og eldsneytis- vélarinnar komu á Borgarspítalann eftir hádegi í gær, þar sem ræðis- mannsfrúin, Svetlana Malakova, færði þeim þakkir og vora báðir sjómennimir viðstaddir. Vamar- liðsmenn færðu þeim á móti mynd- ir frá sjúkrafluginu og merki björg- unarsveitarinnar. KYNNING A FLUGKENNSLU HJÁ VESTURFLUGI í dag, fimmtudaginn 12. maí uppstigningardag kl. 11.00-18.00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.