Morgunblaðið - 12.05.1988, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ; FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1988
SAGAN UM HJÓNIN
SEM MINNKUÐU VIÐ SIG*
Þetta er sagan um hjónin, sem seldu stóru íbúðina sína í Hlíðunum, keyptu sér minni
íbúð og töluvert af Tekjubréíum hjá Fjárfestingarfélaginu. Þetta væri svo sem ekki í
frásögur færandi, ef þessar framkvæmdir hefðu ekki gjörbreytt lífi þeirra — til hins
betra! En byrjum á byrjuninni.
Einu sinni var...
Það kannast margir við hjónin. Konan heitir Dóra Guðlaugsdóttir en maðurinn Helgi
Kjartansson. Helgi var skrifstoíustjóri hjá banka í Reykjavík, en Dóra sá um
kaffistofuna í sparisjóðnum. Dóra og Helgi og börnin tvö bjuggu á 185 fermetra
sérhæð í Hlíðunum. Það má segja að þetta hafi verið ósköp venjuleg fjölskylda, -
tiltölulega ánægð með lífið og tilveruna...
En svo...
Einn góðan veðurdag, fyrir um það bil ári síðan, kom Helgi heim með bækling firá
Fjárfestingarfélaginu. Bækiingurinn var um Tekjubréf. í bæklingnum stóð, að með
Tekjubréfum gæti venjulegt fólk safnað sér sparifé og jafiivel lifað af vöxtunum —
verið þannig á föstum tekjum hjá sjálfu sér. Helga fannst þetta vera nákvæmlega það
sem þau hjónin ættu að gera, en það verður að segjast eins og er að Dóra var dálítið
efins fyrst í stað.
.. .tóku þau sig til
Helgi tók af skarið. Hann er árinu eldri en Dóra (og töluvert frekari!). í október-
mánuði 1986 seldi hann gömlu, góðu íbúðina þeirra í Hlíðunum. íbúðin fór fyrir
5.550.000 krónur, svo að segja á borðið. Hann ætlaði sér aldrei að selja Volvoinn.
En kaupandi íbúðarinnar var svo spenntur fyrir honum, að hann bauð Helga 760.000
krónur, éf hann vildi láta hann. Helgi stóðst ekki mátið. Þetta var líka kostaboð fyrir
lítið notaðan Volvo 240 GL 1986 árgerð á þeim tíma.
Áfram í vesturbæinn...
Nú var Helgi kominn í stuð. Sem gamall KR-ingur kom ekki til greina annað en að
kaupa nýja íbúð í vesturbænum, nærri sundlauginni og knattspyrnunni. Aftur fékk
hann að ráða. Þau Dóra keyptu sér stóra 3ja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi skammt
frá lauginni. Dóra hélt því fram að þau hefðu ekkert með bíl að gera á slíkum stað.
Þá kom Dóra á óvart...
Heldurðað ’ún haf ekki sagt upp vinnunni hjá sparisjóðnum. Ekki nóg með það. Hún
lét innrita sig á sundnámskeið. Þær stöllurnar í sundinu ætla síðan á matarlistarnám-
skeið hjá Elínu og Hilmari B. í Haíharfirði í næsta mánuði. Helgi er búinn að minnka
við sig vinnuna, „rýma til fýrir yngri manni,“ segir hann og glottir. Hann vinnur nú
hálfan daginn.
... en Tekjubréfin sjá fyrir sínum
Hjónin Dóra Guðlaugsdóttir og Helgi Kjartansson búa í fallegri íbúð í
vesturbænum. Það fer vel um þau, þó að plássið sé ekki mikið. Bæði börnin eru flutt
að heiman. Dóra og Helgi eru um sextugt. Þau eru við hestaheilsu og njóta þess að
vera til. Þau lifa nú þokkalegu lífi á lífeyrissjóðsgreiðslum, sem eru 28.364 krónur á
mánuði, og Tekjubréfagreiðslum, sem eru nú 137.900 krónur ársfjórðungslega.
Helgi fær 36.318 krónur á mánuði fyrir hálft starf á skrifstofúnni. Samtals eru þau
hjónin með 110.649 króna mánaðarlaun, tekjuskattfrjálst.
P.S.
Dóra er búin að panta sér Fiat Uno. „Það er svo ágætt að eiga smábíl, til þess að geta
heimsótt bömin, sem búa í Mosfellsbæ."
• Þetta cr alveg satt. Sögunni og nöfhurn hefur að vísu verið breytt — af augljósum ástæðum.
FJARFESnNCARFEAGE)
__Kringlunni 123 Reykjavík © 689700_
Leiðrétting vegna viðtals við dr.
Makhlouf í gær:
Eigum að mörgu
leyti frekar samleið
meðgyðingum . . .
Vegna tæknilegra mistaka féll
upphaf viðtals Morgunblaðsins
við dr. Makhlouf í blaðinu í gær
niður og fyrsta málsgrein
brenglaðist. Því er það birt hér
og beðist velvirðingar á þessum
mistökum.
Þjóðir heims geta ekki fylgst
aðgerðalausar með því sem er
að gerast á hernumdu svæðunum
í ísrael. Við væntum stuðnings
íslendinga við málefni Palestínu-
manna. Þið hafið jafn sterka
stöðu á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna og hinar stærri þjóðir
og okkur er ljóst, að íslendingar
eru vel að sér og leggja mikið
upp úr þvi að fylgjast með gangi
alþjóðamála. Við vonum að
minnsta kosti að þið íhugið
hvernig komið er fyrir palest-
insku þjóðinni og ég get fullviss-
að ykkur um, að skilningur ykk-
ar, svo að ekki sé nú farið fram
á meira að sinni, væri okkur
mikilsverður. Ég hygg, að menn
geti ekki leitt hjá sér þær stað-
reyndir sem við blasa; að Pal-
estínumenn eru sniðgengnir og
njóta ekki réttinda. Það var
óhugsandi annað en fólk risi upp
og krefðist réttar sins, eins og
hefur verið að gerast á vestur-
bakkanum og í Gaza. ísraelar
fást þó ekki til að horfast í augu
við vandamálið og þeir vilja ekki
skilja, að við verðum að eignast
land. Þeir kæra sig kollótta um
það þó að hundruð þúsunda
manna, kvenna og barna verði
að búa í flóttamannabúðum, inn-
an eða utan ísraels, og margir
hafa orðið að flýja tvívegis. Fæst-
ir Palestínumenn hafa fengið
ríkisborgararétt í öðrum araba-
ríkjum og eru þar misjafnlega
vel séðir aðkomumenn.
Þetta sagði dr. Eugene Mak-
hlouf, upplýsingafulltrúi. PLO í
Stokkhólmi. Hann kom hingað í
boði félagsins Ísland-Palestína og
hélt fyrirlestur á Hótel Sögu á
sunnudag, þar sem hann fjallaði
um sögu Palestínu og hugsanlega
framvindu, í ljósi þeirra atburða,
Tónlistarskóli
FÍH:
Lokaprófs-
tónleikar
í Norræna-
húsinu
TVEIR nemendur í djassdeild
Tónlistarskóla FÍH halda loka-
prófstónleika i Norræna húsinu
að kvöldi uppstigningardags kl.
21.00. Þeir eru Hilmar Jensson
rafgítarleikari og Ástvaldur
Traustason píanóleikari.
Þetta er í annað sinn sem skólinn
útskrifar nemendur en þeir fyrstu
luku námi fyrir réttu ári. Tónlistar-
skóli FÍH er nú að enda sitt átt-
unda starfsár og hélt skólinn árlega
vortónleika sína 25. og 26. fyrra
mánaðar. í vetur stunda 155 nem-
endur nám í báðum deildum skólans
— almennri og djassdeild — en
kennarar eru 25 talsins.
Efnisskrá burtfarartónleika
þeirra Hilmars og Ástvaldar er fjöl-
breytt en með þeim leika tvær djass-
hljómsveitir úr skólanum.
(Fréttatilkynning)
Dr. Eugene Makhlouf
sem hafa verið að gerast á vestur-
bakkanum og Gaza og raunar einn-
ig innan ísraels síðustu mánuði.
Dr. Eugene Makhlouf er fæddur
í Haifa, en faðir hans var meðal
æðstu embættismanna Breta, á
þeim tíma sem þeir höfðu lögsögu
í Palestínu. Fjölskyldan flutti til
Jerúsalem, en læknanám stundaði
Makhlouf í Beirút. Hann vann síðar
í sex ár við læknastörf í Kuwait,
en þegar borgarastyrjöldin braust
út í Líbanon hélt hann þangað og
vann meðal annars í samstarfi við
Alþjóðaheilbrigðisstofnunina og
Rauða krossinn. Dr. Makhlouf er
kristinnar trúar og hefur haft
líbanskt ríkisfang í mörg ár. Að-
spurður sagði hann að rösklega 22
prósent Palestínumanna væru krist-
innar trúar.
Um speki
og spá-
fræði 1
Mig langar að gera smá at-
hugasemd við þýðingu blaða-
manna á enska orðinu astro-
logy, en vegna útkomu bókar
Donalds Regans um forseta-
hjón Bandaríkjanna hefur þetta
orð verið áberandi í fréttaflutn-
ingi. í ensk-íslenskri orðabók
Amar og Örlygs er astrology
þýtt sem stjömuspeki og stjöm-
uspáfræði. Eins og gengur og
gerist með tungumálið getur
eitt og sama orðið haft fleiri
en eina merkingu og verða
menn þá að hafa þekkingu á
viðfangsefninu til að vita hvaða
merkingu orðið hefur í það og
það skiptið. í heimi „astrólóg-
íunnar" eru tvær stefnur. Ann-
ars vegar stjömuspáfræði
þeirra sem reyna að spá fyrir
um atburði, og hins vegar
stjömuspeki þeirra sem hafna
spádómum og reyna að spá í
veður og vinda náttúrunnar sér
til leiðsagnar. Þar sem berlega
hefur komið í ljós að hið síðara
á við í tilviki forsetafrúarinnar
er réttara að nota orðið stjömu-
speki og stjömuspekingur þeg-
ar um þetta mál er Qallað.
Gunnlaugur Guðmundsson