Morgunblaðið - 12.05.1988, Page 34

Morgunblaðið - 12.05.1988, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1988 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1988 35 Jtttfjgp Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, - Styrmir Gunnarsson. Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúarritstjóra Þorbjörn Guömundsson, BjörnJóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 60 kr. eintakið. Lærdómur frá Danmörku Kosningamar í Danmörku á þriðjudag leiddu ekki til skýrrar niðurstöðu. Enn er ekki afdráttarlaus meirihluti að baki dönsku stjóminni. Poul Schlúter, forsætisráðherra, hefur beðist lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Stjómarmyndunarviðræður heQast og svo virðist sem Schlut- er útiloki ekki viðræður við flokk Mogens Glistmps, sem á sinn hátt markar þáttaskil í dönskum stjómmálum. Til kosninganna í Danmörku var stofnað vegna þess að vinstrisinnar með stuðningi rad- íkala samþykktu þingsályktun sem fól í sér að þrengja skil- greininguna á kjamorkuvopna- leysi í Danmörku á friðartímum. Þetta töldu þeir Schluter og Uffe-Ellemann Jensen, utanrík- isráðherra og leiðtogi Venstre, bijóta í bága við aðild Dana að Atlantshafsbandalaginu. Alykt- unin mætti einnig harðri and- stöðu samaðila Dana að banda- laginu, sérstaklega Breta og Bandaríkjamanna. Með tilliti til utanríkis- og vamarmálanna verða úrslitin ekki túlkuð á annan veg en þann, að kjósendur hafí styrkt þá flokka, sem vilja óbreytta aðild að Atlantshafsbandalaginu, svo að vitnað sé til orða Schlúters. Uffe-Ellemann Jensen sagði að kosningum loknum, að skýrt merki hefði verið gefíð um að Danir séu góðir og traustir aðil- ar að NATO. Er ljóst, að þeir sem vilja breyta afstöðu Dana til NATO ganga ekki sigurreifír frá kosningunum, samtals töp- uðu þeir 7 þingsætum. Þróun umræðnanna um ut- anríkis- og vamarmál í Dan- mörku hefur verið næsta furðu- leg á undanfomum árum. Vinstrisinnar þar hafa sífellt verið að færa sig fjær raun- veruleikanum og ákvarðanir þeirra taka í æ ríkari mæli mið af óskhyggju, sem sjaldan eða aldrei hefur verið talin góður vegvísir, þegar öryggi og vamir eru annars vegar. Iðju danskra vinstrisinna er helst hægt að líkja við athafnir manna, sem telja óhætt að taka steina úr flóðvamargarði, vegna þess að ekki hefur flætt í nokkur ár, þótt almennt sé viðurkennt að hættan á flóði sé síður en svo úr sögunni. Bamaleg röksemda- færsla þeirra, sem þessari stefnu fylgja, er oftast eitthvað á þann veg, að hættan hljóti að minnka vegna minni viðbúnaðar. Þannig töluðu einhliða afvopnunar- sinnamir á Vesturlöndum, þegar umræðumar um meðaldrægu eldflaugamar stóðu sem hæst. Sem betur fer var ekki farið að þeirra ráðum. Hér hafa lýðræðissinnar stað- ið saman í árabil að raunsærri stefnu í öryggis- og vamarmál- um, sem hvflir á tveimur megin- stoðum, aðildinni að Atlants- hafsbandalaginu og vamar- samningnum við Bandaríkin. Oft hafa orðið upphlaup og í ýmsum myndum til að hnekkja þessari stefnu, þótt hún hafí reynst okk- ur jafn farsæl og raun ber vitni. Á hinn bóginn hafa ekki verið færð fyrir því gild rök, að frá stefnunni skuli horfíð. Þeir sem stóðu að hinni um- deildu ályktun á danska þinginu hafa kröftuglega vísað til þess, að yfírbragð og stefna Sovétríkj- anna hafí breyst eftir að Mfkhaíl Gorbatsjov komst þar til valda. Þeim hefur verið svarað á þann veg, að síður en svo sé komið í ljós, hvort Gorbatsjov nái þeim markmiðum sem hann hefur kynnt. Sjálfur segir hann núna, að tillögur sínar veki umrót og ótta um öll Sovétríkin og þá ekki síður meðal valdamanna en almennings. Er skynsamlegt að vísa til slíkrar óvissu og óljósra hugmynda um hvað framundan er og segja sem svo: Vesturlönd eiga að draga úr vömum sínum? Hvemig væri að leyfa Gorba- tsjov fýrst að ná haldbærum árangri héimafýrir áður en menn krefjast þess að hann nái þeim árangri að Vesturlönd grípi til einhliða afvopnunar? Eftir að Sovétmenn höfðu um árabil bar- ist fýrir einhliða afvopnun Vest- urlanda á síðustu ámm Brez- hnevs komst Júrí Andropov, flokkslegur faðir Gorbatsjovs, til æðstu valda um skamma hríð, og sagði þá þessi fleygu orð: Sovétmenn eru ekki svo bama- legir, að þeir afvopnist einhliða! Lærdómurinn af dönsku kosn- ingunum er sá, að sé sorfíð að undirstöðum stefnunnar í öiygg- ismálum og vegið að öryggis- hagsmunum í lýðræðisríki, er sá kostur fyrir hendi að bera stefn- una og forsendur hennar undir kjósendur sjálfa. Hvað sem öðru líður má ætla, að þetta málskot Schlúters verði til þess að dan- skir vinstrisinnar hugsi sig tvisv- ar um, áður en þeir hefja að nýju ábyrgðarlausan leik sinn og upphlaup á sviði utanríkis- mála. Arleg styrkveiting Menntamálaráðs: Tæpar tvær milljónir til ým- iskonar menningarstarfsemi Menntamálaráð hefur úthlutað þeim styrkjum sem veittir eru ár hvert til menningarstarfsemi ýmiskonar. Að þessu sinni voru veittir átta dvalarstyrkir, samtals að upphæð 720 þúsund kr., og þrír tón- listarstyrkir, samtals að upphæð 130 þúsund kr. Auk þessara styrkja hefur Menntamálaráð úthlutað tuttugu ferðastyrkjum, samtals 650 þúsund kr., og styrkjum tii vísinda- og fræðimanna, samtals 220 þúsund kr. Meginhlutverk Menntamálaráðs er nú stjóm bókaútgáfu Menningar- sjóðs og úthlutun styrkja til menn- ingarstarfsemi. Menntamálaráð er kosið af Al- þingi eftir hveijar þingkosningar. Það ráð sem nú starfar var kosið síðastliðið haust og skipa það: Sólr- ún Jensdóttir, formaður, Áslaug Brynjólfsdóttir, Helga Kress, Gunn- ar Eyjólfsson og Úlfur Hjörvar. Framkvæmdastjóri ráðsins er Einar Laxness. Við úthlutun styrkjanna sagði Sólrún Jensdóttir m.a.: „Menning- arsjóður nýtur nokkurs ríkisstyrks og er því skuldbundnari en önnur útgáfufyrirtæki til þess að standa að útgáfu viðamikilla verka til efl- ingar íslenskri menningu. Styr- kveitingar úr Menningarsjóði gegna einnig því mikilvæga hlutverki að efla íslenska menningu, þó með öðrum hætti sé, en líta má á hvort tveggja sem þátt í viðleitni okkar til þess að stándast síaukinn þrýst- ing frá erlendri menningu sem verð- ur æ sterkari með tilkomu nýrrar tækni, ekki síst á sviði fjölmiðlun- ar.“ Eftirtaldir hlutu dvalarstyrki, að upphæð 90 þúsund kr. hver: Elín Pálmadóttir, blaðamaður og rithöfundur: Til dvalar í Frakklandi til að skrifa sögu franskra sjómanna við Island á skútuöld. Erlingur Gíslason, leikari: Til dvalar í Danmörku við lokatökur og gerð sýningareintaks kvikmynd- arinnar „Símon Pétur fullu nafni“ sem frumsýnd verður í júní á Lista- hátíð, en Erlingur hefur skrifað kvikmyndahandritið. Gylfi Gíslason, myndlistarmaður: Til dvalar í New York og víðar í Bandaríkjunum til að kynna sér Morgunblaðið/Bjami Frá afhendingu styrkjanna, f.v.: Sólrún Jensdóttir, formaður Menntamálaráðs, Rúrí, Þórarinn Eldjárn, Birgitta Spur f.h. Hlífar Siguijónsdóttur, Elín Pálmadóttir, Björgvin Þ. Valdimarsson, Adda Bára Sigf- úsdóttir f.h. Kolbeins Bjarnasonar og Róbert Arnfinnsson. myndlist. Hlíf Siguijónsdóttir, fiðluleikari: Til dvalar í Hollandi til undirbún- ings og þátttöku í alþjóðlegri fíðlu- keppni í Sviss í ágúst nk. Kolbeinn Bjamason, flautuleik- ari: Til dvalar í Hollandi til undir- búnings og æfinga vegna einleiks- tónleika á Listahátíð í júní nk. Róbert Amfinnsson, leikari: Til dvalar í Þýskalandi og Bretlandi til að kynna sér leiklist og sækja leik- listarhátíðir. Rúrí (Þuríður Fannberg), mynd- listarmaður: Til dvalar í Kaup- mannahöfn vegna vinnu við gerð listaverks á íslandsbryggju þar í borg. Þórarinn Eldjám, rithöfundur: Til dvalar í Englandi við ritstörf og að kynna sér enskar bókmenntir. Tónlistarstyrki Menntamálaráðs hlutu: Ágústa Ágústsdóttir, söngkona: Til að láta vinna hljómplötu með íslenskum og skandinavískum söng- lögum, 30 þúsund kr. Björgvin Þ. Valdimarsson, tón- listarmaður. Til að gefa út hefti með eigin píanólögum, 70 þúsund kr. Gunnar Bjömsson, sellóleikari: Til að láta vinna hljómplötu með einleiksverkum Bachs fyrir kné- fíðlu, 30 þúsund kr. Samkvæmt sérstakri fjárveitingu Alþingis, samtals kr. 220 þúsund, hlutu eftirtaldir fræðimenn styrki: Guðrún Kristín Magnúsdóttir, rithöfundur og teiknari, 40.þúsund kr. Aðrir hlutu kr. 20 þúsund. Það vom: Ingólfur Jónsson, rithöfundur, Játvarður Jökull Julíusson, rithöf- undur, Jón Gíslason, fyrrv. póst- fulltrúi, Jón Guðmundsson, Fjalli, Pálmar Kristinsson, trésmiður, Skúli Helgason, Reykjavík, Valgeir Sigurðsson, Þingskálum, Þorsteinn Matthíasson, rithöfundur, og Þórð- ur Kárason, fyrrv. varðstjóri. Fugl í búri hlaut íslensku barnabókaverðlaunin 1988: Sigurvegarinn 19 ára mennta- skólamær ÍSLENSKU. barnabókaverðlaunin voru afhent í þriðja sinn í gær. Undrun gesta við verðlaunaafhendinguna leyndi sér ekki er verð- launahafinn steig fram og reyndist vera nítján ára feimnisleg stúlka að nafni Kristín Loftsdóttir, sem stundar nám við Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Bók Kristínar ber heitið Fugl í búri og er fyrsta ritsmíð hennar, sem birtist á prenti. Hingað til hefur þessi ungi rithöfundur einkum samið fyrir sjálfa sig og skrifborðsskúffuna, að eigin sögn. Það virðist þó ekki koma að sök, þvi að í umsögn dómnefndar um bókina segir meðal annars: „Vel samin saga og leiftrar af frásagnar- gleði.“ Morgunblaðið/Sverrir Rithöfundar tveggja kynslóða takast i hendur. Armann Kr. Einars- son, sem gaf út fyrstu bamabók sina fyrir um 50 árum, afhendir Kristinu Loftsdóttur 100.000 krónur úr Verðlaunasjóði íslenskra bamabóka. Kristín fékk 100.000 krónur úr Verðlaunasjóði íslenskra bama- bóka, sem bókaútgáfan Vaka og fjölskylda Ármanns Kr. Einarsson- ar rithöfundar stofnuðu árið 1985. Henni var auk þess afhent viður- kenningarskjal og fyrsta eintakið af bókinni, sem kom út í gær hjá Vöku-Helgafelli. Tuttugu handrit bárust alls í samkeppnina um verð- launin. Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, var viðstadd- ur verðlaunaafhendinguna og ávarpaði gesti. Hann sagði marga óttast að bókin væri á undanhaldi, fólk horfði bara á sjónvarp og myndbönd eða skoðaði í besta falli myndablöð. „Að nítján ára gömul stúlka skuli fara með sigur af hólmi í harðri samkeppni við nítján aðra höfunda sýnir okkur að ungt fólk er ekki fráhverft bókinni," sagði menntamálaráðherra. „Ungt fólk les ekki aðeins bækur heldur skrifar þær líka og þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur." Bók Kristínar „fjallar um áhrifa- mikla viðburði í lífi tápmikilla skóla- nemenda", eins og segir á bók- arkápu. Sagt er frá Elíasi, sem er nýr nemandi í skólanum, og Kittu bekkjarsystur hans, en þeim verður vel til vina og glíma við iífsgátuna saman. „Ég er harðákveðin í að leggja þetta fyrir mig,“ sagði Kristín í samtali við Morgunblaðið. „Ég hef haft gaman af því að setja saman sögur frá því ég var lítil, en þær hafa flestar verið samdar í hugan- um, ég er enn svo ung.“ Aðspurð sagðist Kristín ekki hafa ákveðið á hvaða nám hún hygðist leggja stund. „Ég hef mikinn áhuga á allri Iistsköpun og get vel hugsað mér að leggja eitthvað slíkt fyrir mig. Skriftimar munu líka eflaust skipa stóran sess í lífí mínu.“ Flugslysið við Blönduós: Orsökin tal- in flug í ófæru sjón- flugsveðri ORSÖK flugslyssins, þegar einka- flugvél hrapaði til jarðar nálægt Blönduósi í júlí á síðasta ári með þeim afleiðingum að 4 menn fór- ust, er að mati flugslysanefndar sú að flugmaður vélarinnar, sem ekki kunni blindflug, hóf flug i ófæru sjónflugsveðri og missti vald á flugvélinni í skýjum, með þeim afleiðingum að hún ofreis og spann til jarðar. Flugvélin var ekki búin til blindflugs. Aðdragandi slyssins var sá að fjór- ir menn fóru á flugvél af gerðinni Piper PA-28-180 frá Reykjavík norð- ur 4 Ólafsfjörð, 22. júlí á síðasta ári, til að horfa á knattspymuleik. Einn í hópnum var einkaflugmaður og einn eiganda vélarinnar. Veður versnaði er leið á kvöldið og flugmað- urinn áræddi ekki suður yfír heiðar heldur lenti á Blönduósi þar sem gist var. Um hádegisbil daginn eftir var ákveðið að reyna að komnast suður. Var veður þá lélegt á flugvellinum, lágskýjað, lélegt skyggni og fór versnandi. Flugvélin hóf flugtak og fór flug- radíómaðurinn á flugvellinum út og horfði á eftir flugvélinni þar sem hún hvarf í þokuna í á að giska 400 til 500 feta hæð. Skömmu sfðar kallaði flugmaðurinn í radíómanninn á Blönduósi og sagðist vera villtur og nokkra síðar kom flugvélin í mjög brattri dýfu til jarðar, um 4 kíló- metra frá flugvellinum. Þá vora 9 mínútur liðnar frá flugtaki. í skýrslu sinni um slysið gerir flug- slysanefnd m.a. þá tillögu S öryggis- átt að setja eigi í starfsreglur flug- umferðastjóra og flugradíómanna að ef þeir verða varir við að flugmenn bijóta flugreglur, eða hyggjast fara í flug þegar veðurskilyrði era lakari en tilgreind sjónflugslágmörk, þá geri þeir flugmönnum ljóst að þeir muni tilkynna það strax til flugmála- stjómar og skrifa skýrslu sem verði send til yfírmanns flugumferðar- þjónustunnar. Morgunblaðið/Ól.K.M. Frá þinglausnum í gær. Forseti íslands, frú Vigdfs Finnbogadóttir gengur í þingsalinn. Þinglausnir: Helming'i fleiri lög voru felld úr gildi en samþykkt „Ovenjumörg mikilvæg mál afgreidd,“ sagði Þorvaldur Garöar Kristjánsson, forseti sameinaðs þings FORSETI íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, sleit Alþingi, 110. lög- gjafarþingi, með hefðbundnum hætti í gær. Þorvaldur Garðar Kristj- ánsson, forseti sameinaðs þings, sagði i yfirliti um þingstörfin, að þó „þingið hafi verið óvenju athafnasamt í setningu nýrrar löggjafar þá er það með eindæmum, að á þessu þingi voru felld brott helmingi fleiri lög en þingið samþykkti og stafar það af timabærri lagahreins- un sem fram hefur farið í kjölfar ályktunar Alþingis þar um“. Forseti sameinaðs þings sagði í þingslitaræðu að óvenju mörg mál hafí hlotið afgreiðslu á þessu þingi, sem stóð frá 10. október til 11. maí, eða í 215 daga. 66 stjómar- framvörp vóra afgreidd sem lög en 16 urðu ekki útrædd. 11 þing- mannafrumvörp vóra samþykkt sem lög, 12 var vísað til ríkisstjóm- arinnar, 3 kölluð aftur en 52 vóru ekki útrædd. 31 þingsályktun var samþykkt, 5 vísað til ríkisstjómar, 3 kallaðar aftur, 86 vóru ekki út- ræddar. 17 skýrslur vóru lagðar fram. 164 fyrirspumum var svarað munnlega og 52 skriflega. 522 mál vóru til meðferðar í þinginu; þar af afgreidd 335. Tala þingskjala var langleiðina í 1.200. Það kom og fram f máli forseta að mikil þáttaskil hafa orðið á síðustu misserum sem varða stöðu og hlutverk Alþingis. Sett hafa ver- ið lög og samþykkt þingsályktun um starfsemi umboðsmanns Al- þingis, sem tekur formlegatil starfa um næstu mánaðamót. Ríkisendur- skoðun lýtur ekki lengur fram- kvæmdavaldinu, heldur löggjafar- valdinu, svo að eftirlit með fram- kvæmd fjárlaga er á vegum Al- þingis sjálfs. Blaðberar Morgunblaðsins á landsbyggðinni: 400 blaðberum boðið á skemmtanir 1.000 blaðberar fá Morgnnblaðsklukku í tilefni 75 ára afmælis blaðsins Morgunblaðið/Sigurgeir Blaðberar Morgunblaðsins í Vestmannaeyjum brugðu sér út á Stakkagérðistun eftir veislu á Hóteí Þórs- hamri sl. sunnudag, en með Jieim á myndinni eru lengst til hægri þau Jóhanna Víborg verkstjóri á af- greiðslu Morgunblaðsins og Arni Johnsen blaðamaður. FYRSTA Morgunblaðshátíðin af alls sex samkomum fyrir blað- bera Morgunblaðsins úti á lands- byggðinni var haldin í Vest- mannaeyjum um síðustu helgi, en á næstunni verða fjölmennar blaðberasamkomur t öllum lands- fjórðungum. Skemmtanimar verða_ á Akur- eyri, í Stykkishólmi, á ísafírði, á Selfossi og Egilsstöðum. Blaðberar frá nærliggjandi stöðum munu mæta á mótsstað í rútum, en á Morgunblaðshátíðunum er blað- berum boðið upp á veitingar, skemmtiatriði, sýnd er kynnismynd um starfsemi Morgunblaðsins og meðal annars fá blaðberamir sér- stakar Morgunblaðspeysur. Á blaðberamótinu í Vestmanna- eyjum vora um 30 blaðberar mætt- ir með þeim Jakobínu Guðlaugs- dóttur og Sigurgeir Jónassyni, sem sjá um dreifíngu blaðsins þar, og Bjama Sighvatssyni fréttaritara Morgunblaðsins í Eyjum. Einnig vora mætt f veisluna Jóhanna Víborg verkstjóri í dreifíngu Morg- unblaðsins og Ámi Johnsen blaða- maður sem tók lagið með blað- beranum svo undir tók í Heima- kletti. Það er Hanna Björk Þrastar- dóttir í útbreiðsludeild Morgun- blaðsins sem hefur skipulagt blað- berasamkomumar úti á lands- byggðinni. Alls era um 1.000 blaðberar sem bera út Morgunblaðið daglega, en þar af eru um 600 á Stór- Reykjavíkursvæðinu og um 400 úti á landi. Blaðberam á Stór- Reykjavíkursvæðinu var boðið til sérstakra skemmtana á Hótel Sögu fyrir tveimur áram og nú er röðin komin að skemmtunum fyrir blað- berana á landsbyggðinni, en þess má geta að í tilefni 75 ára afmælis Morgunblaðsins á þessu ári fá allir blaðberar blaðsins sérstaka Morg- unblaðsklukku í afmælisgjöf á sínum eigin aftnælisdegi á árinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.