Morgunblaðið - 12.05.1988, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1988
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÁRNÝ ÁRNADÓTTIR,
verður jarðsungin frá Hólskirkju í Bolungarvík, laugardaginn 14.
maí, kl. 14.00. Þeir, sem vildu minnast hennar eru beðnir að láta
líknarstofnanir njóta þess.
Hólmfrfður Hafliðadóttlr, Sigurður E. Friðriksson,
Sigrfður Norðkvist, Hálfdán Ólafsson,
Elfas H. Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu
HALLDÓRU WALDORFF
frá Neskaupsstað,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. maí kl. 16.30.
Þórður Waldorff, Edda M. Einarsdóttir,
Skúli Waldorff, Margrót Elnarsdóttir,
Margrét Lára Bouranel,
og barnabörn.
Útför t ARNDÍSAR ÞORVALDSDÓTTUR
kaupkonu
veröur gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 13. maí kl. 15.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minn-
ast hennar, er bent á minningasjóð Hvítabandsins eða aðrar
líknarstofnanir. Jóna Erlendsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
STEINUNN G. KRISTINSDÓTTIR
Fellsmúla 6,
verðurjarðsunginfrá Bústaðakirkju föstudaginn 13. maíkl. 13.30.
Eggert Jóhannesson, Halldóra Jóhannesdóttir,
Þorvaldur Jóhannesson, Pétur Jóhannesson,
Guðbjörg Jóhannesdóttlr, Jón T ryggvason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
■ Bálför móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR ÞORMÓÐSDÓTTUR,
sem andaðist 29. apríl síðastliðinn, fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 13. maí kl. 13.30.
Pétur Haraldsson, Halldóra Hermannsdóttir,
Guðbjörg Haraldsdóttir Bay, Axel Bay,
Þormóður Haraldsson, Ágústa Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
LAUFEY SIGURGARÐSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 13. maí
kl. 15.00.
Esther Brltta Vagnsdóttir,
Atli Vagnsson, Kristbjörg Hjaltadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn. %
t
Eiginkona mín,
JÓNEA HELGA ÍSLEIFSDÓTTIR,
Heiðarbraut 1,
Garði,
verður jarðsungin frá Útskálakirkju laugardaginn 14. maí, kl. 15.00.
Fyrir mfna hönd, barna minna og annarra ættingja,
Sigurður Hallmannsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURRÓS JÓNASDÓTTIR,
Ásvallagötu 53,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. mai kl. 3 e.h.
Pálfna Eggertsdóttir, Pálmi Guðmundsson,
Jónas Eggertsson, Ólöf Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kristín Árna-
dóttir - Minning
Fædd 25. apríl 1895
Dáin 1. mai 1988
Mig langar að minnast minnar
ágætu vinkonu með nokkrum orð-
um.
Kristín var fædd í Hvammi í
Skaftártungu 25. apríl 1895, og var
hún því nýorðin 93 ára er hún lést.
Hún var dóttir hjónanna Áma
Gunnsteinssonar bónda í Hvammi
og seinni konu hans, Ragnhildar
Gestsdóttur. Kristín var eina bam
þeirra hjóna, en átti 5 hálfsystkin
sem öll voru eldri en hún. Þau em
nú löngu látin. Hún ólst upp hjá
foreldrum sínum og síðar bróður í
Hvammi. Fór hún fljótt að hjálpa
til við bústörfin sem þá voru mörg
eins og nú, en erfið því engar vélar
voru þá komnar til að létta undir.
Árið 1921 giftist hún Vigfúsi
Gestssyni frá Ljótarstöðum í sömu
sveit. Hófu þau búskap á föðurleifð
hans og bjuggu þar til ársins 1944.
En það ár ákváðu þau að flytjast
búferlum út í Rangárvallasýslu og
kaupa iörðina Hjallanes I i Land-
sveit. I Hjallanesi hófu þau upp-
byggingu og ræktun mikla og
breyttu öllu sem best þau máttu til
hins betra. Vom þau hjón bæði
mjög samhuga í því. Fljótt færðust
ýmis félagsmál, nefndarstörf og
annað yfir á Vigfús. Þurfti hann
því oft að heiman til að sinna þeim
störfum. Kristín sá þá um búskap-
inn ásamt sonum þeirra, á meðan.
Mikið var um gestakomur og vom
þau hjón sótt heim oft langt að.
Var þá vinnudagur húsfreyjunnar
oft langur, því hennar hugsun var
alltaf sú, að taka sem best á móti
hveijum þeim sem að garði bar.
Árið 1963 selja þau hjón jörð
sína og flytja til Reykjavíkur.
Kaupa sér þægilega íbúð á Skarp-
héðinsgötu 10, og eyddu þar elli-
dögum. Ekki slitnuðu vináttubönd
við sveitunga úr Landsveit og
Skaftártungu við búferlaflutning-
ana. Tíðar heimsóknir vom til
þeirra, enda fundu allir, sem til
þeirra komu. hversu hlýlegt viðmót
og umhyggja einkenndi þau bæði.
Stína, eins og hún var alltaf kölluð
af vinum og vandamönnum, hafði
í mörgu að snúast. Alltaf var heitt
á könnunni og meðlæti mikið og
gott.
1979 veiktist hún mjög mikið og
um tíma var henni vart hugað líf.
Missti hún bæði mál og mátt að
hluta. En smátt og smátt fór hún
að hressast og komst á fætur aft-
ur. Með æfingum og óbifanlegri trú
á lífið tókst henni að yfirvinna sjúk-
dóm sinn að mestu. Hún fékk aftur
mál og gat tjáð sig með ágætum.
Ekki efa ég, að umhyggja Vigfúsar
hefur flýtt fyrir bata hennar. Leið
aldrei sá dagur að hann kæmi ekki
til hennar á sjúkrahúsið. Hún komst
heim og gat dvalið þar um tíma.
En vorið 1981 lést Vigfús og nokkru
síðar fluttist Kristín á hjúkrunar-
heimili. Hefur hún lengst verið á
Heilsuverndarstöðinni við Bar-
ónsstíg. Þótt aldur hennar væri
orðinn hár, fylgdist hún vel með
öllu. Alltaf þegar ég heimsótti hana,
spurðist hún fyrir um fólkið í Land-
sveitinni, líf þess og störf. Hafði
hún gaman af að vita hvað þar
væri að gerast.
Þau Stína og Fusi eignuðust 4
syni, þeir eru: Jón, forstjóri, Víði-
nesi á Kjalamesi. Hans kona er
Guðrún Karlsdóttir. Ámi, trésmíða-
meistari Reykjavík. Hans kona er
Ragnheiður Magnúsdóttir. Bárður,
bifreiðastjóri, Selfossi. Hans kona
er Sigrún Ámadóttir. Sigurður, bif-
reiðastjóri, Reykjavík. Hans kona
er Guðrún Guðjónsdóttir. Bama-
böm þeirra hjóna, Stínu og Fúsa,
eru 9.
Nú að leiðarlokum þakka ég
Stínu minni alla hennar umhyggju
og ástúð við mig, sem staðið hefur
síðan ég var bam að aldri.
Vil ég færa sonum hennar,
tengdadætrum og öðrum ættingjum
innilegar samúðarkveðjur.
Pálmar Kristinsson
Útför Kristínar fer fram á morg-
un, föstudag, frá Hallgrímskirkju
kl. 13.30.
t
Útför systur minnar,
RANNVEIGAR HULDU MOGENSEN
frá Árnanesi,
verður gerð frá Bjarnaneskirkju, laugardaginn 14. maí kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á að hringja í sjúkrasjóð
Vífilsstaðaspítalans, Garðabæ.
Guðný J.G. Vilmundsdóttir.
t
Vinur minn,
MARTEINN DALBERG,
sem andaðist á Garðvangi 28. apríl, verður jarðsettur frá Útskála-
kirkju laugardaginn 14. maí kl. 11 f.h.
Fyrir hönd vina og vandamanna.
Baldvin Njálsson.
t
Alúðarþakkir til hinna fjölmörgu, sem auðsýndu okkur samúö og
vinarhug við andlát og jarðarför
GUNNARS INGÓLFSSONAR
bónda,
Hámundarstöðum, Vopnafirði.
Eygló Svava
Linda Dröfn Gunnarsdóttir,
Anna Halldórsdóttir,
Björg Eyjólfsdóttir,
Gunnhildur Jónsdóttir,
Eygló Bjarnþórsdóttir,
Auður Ingólfsdóttlr,
Trausti Ottar Steindórsson,
Gunnarsdóttir
Erla Björg Gunnarsdóttir,
Ingólfur Guðmundsson,
Vilhjálmur Ólafsson,
Einar Ingólfsson,
Stefán Daði Ingólfsson,
Valgeir Valgeirsson,
Pétur Vilhjálmsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og jarð-
arför sambýliskonu minnar, móður okkar, tengdamóöur og ömmu
ERLU KRISTJÁNSDÓTTUR
frá Súgandafirði,
Álftahólum 4.
Laufey Torfadóttir,
Gfsli Karlsson,
Katrfn Karlsdóttir,
Kristfh Karlsdóttir,
Karl Karlsson,
Skarphéðinn Lýðsson,
Axel Ketilsson,
Slf Hauksdóttir,
Guðmundur Þ. Guðmundsson,
Ágúst Sigmarsson,
Sigrún Helgadóttir,
barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
elskulegs sonar okkar og bróður,
KRISTINS HALLVARÐSSONAR,
Kleifarseli 10.
Guö blessi ykkur öll.
Sesselja Jónsdóttir, Hallvarður Ferdinandsson,
Ágúst Hallvarðsson, Hildur Guðlaug Hallvarðsdóttir
Legg ég nú bæði líf og önd
ljúfí Jesú, í þína hönd
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfír mér.
(Hallgr. Pét.)
Á morgun er til grafar borin frá
Hallgrímskirkju kl. 13.30 tengda-
móðir mín, Kristín Ámadóttir, fædd
í Hvammi í Skaftártungu, 25. apríl
1895. Foreldrar hennar voru Ragn-
hildur Gestsdóttir og Ámi Gunn-
steinsson. Ólst hún upp hjá foreldr-
um sínum og bróður í Hvammi og
átti hún þar heima til ársins 1921,
er hún giftist Vigfúsi Gestssyni á
Ljótarstöðum. Þar hófu þau búskap
og bjuggu síðan í 23 ár.
Á Ljótarstöðum eignuðust þau
flóra syni: Jón, kvæntan Guðrúnu
Karlsdóttur; Ama, kvæntan Ragn-
heiði Magnúsdóttur; Bárð, kvæntan
Sigrúnu Ámadóttur og Sigurð,
kvæntan Guðrúnu Guðjónsdóttur.
Bamabömin em 9 og bamabama-
bömin 8 talsins.
Árið 1944 festa þau kaup á jörð-
inni Hjallanesi í Landsveit, Rang.
og búa þar til ársins 1963 er þau
þfegða búi og flytja til Reykjavík-