Morgunblaðið - 12.05.1988, Side 50
. 50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1988
Margrét Þormóðs-
dóttir - Minning
Fædd 7. nóvember 1896
Dáin 29. april 1988
Hún var fædd í Holtakotum í Bisk-
upstungum, dóttir Þormóðs Þor-
móðssonar bónda þar og Vigdísar
Björnsdóttur konu hans. Var hún
einkadóttir þeirra, en 1894 höfðu þau
eignast son, Halldór, sem lifði aðeins
tvær vikur.
Þormóður var f. 14. desember
1862 og var yngsti sonur hjónanna
Þormóðs Magnússonar (1830—1896)
og Sigríðar Gísladóttur (1821—
1905), sem bjuggu fyrst að Dísastöð-
um, en síðan i Votmúla-Norðurkoti
í Flóa. Hafði Sigriður áður verið gift
Halldóri bróður Þormóðs og misst
hann frá mörgum bömum í ómegð.
Vigdis var f. 21. nóvember 1867
í Helludal í Biskupstungum, dóttir
Bjöms Bjömssonar (1828—1915)
bónda á Galtalæk og fyrri konu hans,
Margrétar Guðmundsdóttur (1842—
1876). Eru niðjar þeirra hjóna taldir
í Bergsætt, því að Bjöm var fjórði
maður frá Bergi Sturlaugssyni.
Margrét Guðmundsdóttir var dóttir
Guðmundar bónda og hreppstjóra í
Bræðratungu og síðast lengi á Krók,
Guðmundssonar, dannebrogsmanns
í Bræðratungu, Jónssonar og konu
hans, Vigdísar Þórðadóttur (1822—
1876), en hún var dótturdóttir
Vigdísar Pálsdóttur, prests á Torfa-
stöðum Högnasonar, prestaföður á
Breiðabólstað í Fljótshlíð, Sigurðs-
sonar. Hefur Vigdísamafnið haldist
í ættinni óslitið fram á þennan dag
og mun komið frá Vigdísi, dóttur
Olafs prests og sálmaskálds á Sönd-
um í Dýrafirði, um aldamótin 1600.
Þormóður, faðir Margrétar, var
sjö ára gamall þegar foreldrar hans
brugðu búi, og var honum þá ráðstaf-
að til vandalausra. Ólst hann upp
næstu ár við slæmt atiæti, svengd
og klæðleysi. Varð hann heilsuveill
þegar í æsku og aldrei sterkbyggð-
ur. Eftir fimm ára búskap i Holtakot-
um urðu þau Vigdfs og Þormóður
að segja jörðinni lausri vegna veik-
inda hans, en vom áfram til heimilis
á ýmsum bæjum í Biskupstungum
með Margréti dóttur sína. Var Vigdís
víkingur til vinnu og því eftirsótt til
starfa. Sumarið 1909 hafði heilsu
Þormóðs hrakað svo mikið, að hann
neyddist til að leita sér lækninga i
Reylq'avík. Var hann lagður á Landa-
kotsspítala og andaðist þar eftir
skamma legu.
Á ellefta ári fór Margrét fyrst frá
foreldrum sínum. Hefur hún lýst því
eftirminnilega í frásöguþætti, sem
hún nefndi „Á Reykjum" og birtist
í riti Félags Biskupstungnamanna í
Reykjavík, Inn til fjalla. Þessi frá-
sögn hennar hefur tvívegis verið les-
in i útvarpi. í sex ár var hún síðan
á Torfastöðum hjá sira Eiríki Stef-
ánssyni og konu hans, Sigurlaugu
Erlendsdóttur, en fór þá aftur til
móður sinnar, sem þá var gift seinni
manni sínum, Guðna bónda Þórarins-
syni á Kjaransstöðum í Biskupstung-
um. Eignuðust þau Vigdís og Guðni
eina dóttur, Guðbjörgu, sem lézt inn-
an við tvitugt. Stjúpi Margrétar
reyndist henni vel og minntist hún
hans jafnan með hlýhug.
Um þetta leyti kynntist Margrét
ungum manni, sem síðar varð eigin-
maður hennar og lífsförunautur í
sextiu ár. Það var Haraldur Péturs-
son, sem fæddur var að Amarstöðum
í Flóa 15. ágúst 1895, sonur Péturs
kennara á Eyrarbakka Guðmunds-
sonar og Ólafar Jónsdóttur, bónda í
Uppsölum í Flóa, Guðmundssonar.
Þau Margrét og Haraldur voru
fyrst eitt ár i húsmennsku á Kjarans-
stöðum (1921—22), bjuggu í Borgar-
holti í Biskupstungum eitt ár
(1922—23) og tvö ár í Stekkholti
(1923—25), en fluttust þá til
Reykjavikur. Fengu þau fyrst leigða
kjallaraíbúð á Laugavegi 75, þar sem
nú stendur Austurbæjarútibú Lands-
bankans, en þvi næst risíbúð í Hans-
húsi, sem kennt var við Hans póst
og stóð suðaustan við Skólavörðuhol-
tið, þar sem Leifsgata er nú. Stund-
aði Haraldur á þessum árum alla
almenna verkamannavinnu. Árið
1936 gerðist hann húsvörður í Safna-
húsinu við Hverfisgötu og gegndi því
starfi til ársloka 1965, er hann lét
af störfum fyrir aldurs sakir, sem
opinber starfsmaður, þá sjötugur að
aldri. Jafnframt aðalstarfi tók hann
að sér ýmis tímafrek önnur verkefni
og í tómstundum sinnti hann fræði-
störfum. Var Haraldur iðjumaður
mikill og féll sjaldan verk úr hendi
á meðan hann hélt heilsu.
Böm þeirra Margrétar og Harald-
ar eru: Pétur Þórir, fæddur 1922 í
Borgarholti, en dáinn 1924 í Stekk-
holti. Pétur, kaupmaður í Reykjavík,
en búsettur í Dýjahlíð á Kjalamesi,
f. 1925. Hans kona er Halldóra Her-
mannsdóttir frá Siglufírði. Guðbjörg,
húsmóðir í Danmörku, f. 1928, gift
Axel Bay, prentmyndasmið. Þormóð-
ur, starfsmaður Alafoss hf., f. 1932.
Sambýliskona hans er Ágústa Jóns-
dóttir úr Reykjavík. Bamabömin
urðu sjö og bamabamabömin eru
orðin fimm.
Störf Margrétar voru fyrst og
fremst þau að gæta bús og bama.
Hún var stoð og stytta manns síns
og bjó honum jafnan gott heimili,
þótt efnin væru lítil framan af. Hún
var vandvirk hannyrðakona og hafði
yndi af garðrækt og gróðri jarðar.
Báru garðamir við húsin á Grettis-
götu 51 og síðan í Sólheimum 34
þess óræk merki. Hún var athugul
og næm. Margsinnis kom hún auga
á ýmislegt í ríki náttúrunnar, sem
öðrum sást yfir. Amma var einnig
fróð og víðlesin og fylgdist jafnan
vel með atburðum líðandi stundar.
Hún var ólík mörgu eldra fólki að
því leyti að hún fylgdist vel með
nýjungum, hvort sem þær voru á
sviði tækni eða þjóðfélagsmála.
Þau Margrét og Haraldur áttu það
sameiginlegt ( æsku að vera fátæk
og búa hjá vandalausum. Fyrstu
búskaparár þeirra voru heldur ekki
farsæl. Stuttu eftir að þau misstu
frumburðinn flosnuðu þau upp af búi
sínu og urðu að flytjast til Reykjavík-
ur. Þrátt fyrir þetta létu þau ekki
hugfallast en mótlætið og óöryggið
herti þau í baráttunni fyrir efnalegu
sjálfstæði. Með ráðdeild og vinnu-
semi náðu þau því markmiði sínu að
eignast varanlegan samastað í eigin
húsnæði.
Árið 1932 voru þau á meðal þeirra
fyrstu sem eignuðust íbúð í verka-
mannabústöðunum á Bræðraborg-
arstíg 53. Bjuggu þau þar til vors
1939, en þá keyptu þau lítið hús á
Grettisgötu 51 og bjuggu þar í tvo
áratugi. 1959 reistu þau hús ásamt
Pétri syni sínum í Sólheimum 34 og
bjuggu þar alla tíð síðan, unz heilsa
Haraldar tók að bila, 1981. Brugðu
þau þá á það ráð að flytjast á Hrafn-
istu I Reykjavík. Þar lézt Haraldur
1. janúar 1982 á 87. aldursári. Mar-
grét lifði mann sinn f sex ár. Heilsa
hennar, bæði andleg og lfkamleg, var
góð eftir aldri þar til í marz sl., að
hún varð fyrir því óhappi að lær-
brotna. Náði hún sér ekki eftir það
og lézt 29. apríl sl., 91 og hálfs árs
að aldri.
Nægjusemin var þeim Haraldi og
Margréti báðum f blóð borin og þau
leyfðu sér vart annan munað en gest-
risni og bókasöfnun. Aldrei áttu þau
bíl, en amma brá sér þó til Dan-
merkur til að heimsækja Boggu dótt-
ur sína og fjölskyldu hennar. Þær
mæðgur héldu ávallt nánu sambandi
og heimsóknir Boggu og hennar fólks
hingað til lands voru ömmu ávallt
mikill gleðigjafi. Synir Margrétar og
tengdadætur sýndu henni mikla
ræktarsemi og sjaldan leið sá dagur
eftir að hún fluttist á Hrafnistu að
hún fengi ekki heimsókn þeirra.
Þar sem ég og systkini mín bjugg-
um í sama húsi og amma og afi fór
ekki hjá því að þau tækju mjög virk-
an þátt í uppeldinu. Vart leið nokkur
dagur, í þau tuttugu ár sem þetta
sambýli varði, án þess að ég færi
yfir til þeirra. Þar var mikið rætt,
hlustað á sögur frá gamla tfmanum,
spilað, teflt, litið í blöðin og oft
gluggað f allar bækumar sem voru
mesta prýði heimilisins. Amma stakk
líka alltaf að okkur einhverju góð-
gæti eða hressingu og átti það sinn
þátt í því að heimsóknimar urðu
býsna tfðar. Þrátt fyrir það minnist
ég þess ekki að okkur hafí nokkm
sinni verið vísað á bug í því húsi.
Ekki hefði ég viljað missa af þess-
um nánu kynnum við fólk sem í
æsku bjó við hlutskipti, sem er svo
ólíkt þvf sem við þekkjum að það er
sem aldir skilji að, en ekki nokkrir
áratugir. Ég og systur mfnar kveðj-
um ömmu okkar nú með miklum
söknuði. Blessuð sé minning hennar.
Margeir Pétursson
Útför Margrétar Þormóðsdóttur
fer fram frá Fossvogskirkju á morg-
un, föstudaginn 13. maf, kl. 13.30.
t
Ástkær fósturdóttir, móðir, tengdamóóir og amma,
NÍELSÍNA HELGA HÁKONARDÓTTIR,
áðurtil heimilis aö Hofteig 6,
lóst í Heilsuverndarstöðinni 11. maí.
Petrína Narfadóttir,
bðrn, tengdabörn og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR,
Túngötu 17,
Patreksfiröl,
veröur jarðsungin fró Patreksfjarðarkirkju, laugardaginn 14. maí
kl. 11.00.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
GUÐMUNDUR J. GfSLASON
múrarl,
varð bráðkvaddur þriðjudaginn 10. maí.
Sigurbjörg Sigurðardóttir
og börn.
*, rf /, * 4
u það gott
minurn
Hótel Stykkishólmur gerir þér freistandi
hvítasunnutilboð.
Qisting í tvær nætur með morgunverði
fyrir 2980 krónur á mann í 2ja manna
herbergi.
Möguleikar á sjóstangaveiði og siglingu
um BreiðaQörð, ef veður leyfir.
Vandaður matseðill.
Stykkif
Sími 93-81330
Telex 2192
Vistlegt hótel í fögru umhverfi.