Morgunblaðið - 12.05.1988, Page 52

Morgunblaðið - 12.05.1988, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1988 Fyrirliggjandi í birgðastöð Þykktir 3.0-50 mm. Ýmsar stærðir, m.a.: 1000x2000 mm 1500x3000 mm 1500x5000 mm SINDRA^^STALHF BORGARTÚNI31, SÍMAR 27222 & 21684 Viltu taka þátt í nýsköpun íslensks landbúnaðar? Viltu læra um Ferðaþjónustu • Fiskeldi • Loðdýrarækt • Skógrækt Kanínurækt eða gömlu góðu heffibundnu kvikfjárræktina? Bændaskólinn á Hvanneyri er nútíma skóli, þar sem færustu búvísindamenn fylgjast með öllum nýjungum í landbúnaði og miðla þeim til nemenda, sem vilja takast á við heillandi verkefni. Þar er frábær aðstaða á heimavist. ---------------—rr—---—----' >7. 7■ • • 'IZ'-• _______________ Auk heíðburidinnar búnaóaríræðslu eru 12 valfög: Alifugla- og svínarækt • Ferðaþjónusta • Fiskeldi Hrossarækt • Kartöflu- oggrænmetisrækt • Loðdýrarækt Nautgriparækt • Rekstrarhagfræði • Sauðfjárrækt Skógrækt • Vélfræði • Vinnuvélarogverktækni. Búfræðinám tekur 2 ár (4 annir) en fólk með stúdentspróf eða hliðstæöa menntun getur lokið því á einu ári. Helstu inntökuskilyrði eru að umsækjendur hafí lokið almennu grunnskólaprófi með lágmarkseinkunn til inngöngu í framhalds- skóla, og að þeir hafí öðlast nokkra reynslu í landbúnaðarstörfum. Skrifleg beiðni um inngöngu ásamt prófskírteinum þarf að berast skólanum eigi síðar en 10. júní. Nánari upplýsingar í síma 93-70000. Sveinsína Baldvins- dóttir — Minning Fædd 16. júlí 1911 Dáin 1. maí 1988 Mig langar til að kvedja ömmu mína elskulega með fáeinum orðum. Það er bara svo ósköp erfitt, það leitar svo margt fram í hugann að ég gæti skrifað heila bók. Ég er elsta bamabamið hennar og er að því leyti lánsamari en hin að hafa átt hana lengst. Fyrst sem ömmu í Skáló, sem alltaf var svo gott að koma til og vera hjá og seinna sem góða vin- konu, því við ömmu var hægt að tala um allt. Mér fannst alltaf sem við væmm á svipuðum aldri, þótt árin á milli væru 47, vegna þess að hún skildi alltaf allt svo vel. Hún gat látið manni líða betur sama hvað að var. Hún hafði þennan hæfileika, sem svo mörg okkar skortir að geta gefið af sér, alltaf átt dálítinn tíma til að hlusta. Að skjótast inn í Skáló og setjast í homið í eldhúsinu og hlusta á hana segja frá gömlu dögunum þegar hún var stelpa, eins og hún orðaði það sjálf, eða af prakkarastrikum krak- kanna hennar, er kapítuli út af fyrir sig. Oftar en ekki var maður orðinn útgrátinn af hlátri þegar haldið var heim. Fáa hefi ég hitt sem geta sagt eins skemmtilega frá og hún gerði. Núna síðustu árin vora ferðimar færri í Skálagerðið vegna þess hve oft hún þurfti að dvelja á sjúkrahús- um, en alltaf átti hún eitthvað að segja manni þegar maður heimsótti hana á spítalann. Aldrei mun ég gleyma því þegar hún og afí létu sig hafa það í reglulega vondu veðri fyr- ir rúmu ári að koma á fæðingardeild- ina og kíkja á nýfædda dóttur mína. Ég reyndi eins oft og hægt var að taka litlu langömmustelpuna með í heimsókn og þannig gat hún fylgst með henni þrátt fyrir veikindi sín. Og hún fylgdist ekki bara með henni, heldur okkur öllum, stundum gat ég ekki annað en dáðst að því hversu gott minni hún hafði, allir afmælis- dagar og atvik sem maður sjálfur var búinn að gleyma var allt vel geymt hjá henni og sínu stálminni hélt hún til hinstu stundar. Ég veit að henni hefði ekki líkað löng lofræða, það stríddi á móti henn- ar sannfæringu. Látla langömmu- stelpan og ég þökkum henni af heil- um hug allt sem hún hefur gefið okkur. Elsku afi, Guð gefi þér styrk. Gunna Að kvöldi 1. maí sl. Iést tengda- móðir mín Sveinsína Baldvinsdóttir eftir langa og erfiða sjúkdómslegu. Hún var fædd norður í Fljótum í Skagafirði 16. júlí 1911, og var því 76 ára er hún lést. Sveinsína var ung tekin í fóstur af þeim hjónum Margr- Konur sem reka lítil fyrirtæki eða hyggjast stofna fyrirtæki: Námskeiðið Stof nun og rekstur fyrir- tækia verður haldið 16.-21. maí. Meðal efnis: Frumkvöðullinn, stofnáætlun, markaðsmál, fjármál, form fyrirtækja og bókhald. Námskeiðið fer fram í kennslusal Iðntæknistof nunar í Keldnaholti. Þátttaka tilkynnist í síma 687000. nlÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS rekstrartæknideild. éti Guðbrandsdóttur og Guðna Stígssyni. Á unglingsáram flyst hún með þeim til Reykjavíkur og elst þar upp í góðum systkinahópi. Hennar skólaganga var ekki löng, hún fór snemma að vinna fyrir sér og vann við afgreiðslustörf og annað sem til féll, eins og tíðkaðist á þessum árum. Um þetta leyti kynntist hún eftirlif- andi eiginmanni sínum, Óskari Gunn- laugssyni verkamanni, en þau hafa búið saman í 55 ár. Eignuðust þau sex böm, sem öll era á lífi ásamt tengdabömum, bamabömum og langömmubömunum tveim. Kynni okkar hófust fyrir 26 áram er ég kom inn á heimilið sem tilvon- andi tengdadóttir. Kynntist ég þar hæglátri og hæverskri konu, sem allt vildi fyrir mig gera. Sátum við oft langt fram á nótt og ræddum ýmislegt allt frá eilífðarmálum niður í pólitík, en hún hafði ákveðnar skoð- anir og var gaman að spjalla við hana. Sveina var mikið fyrir lestur góðra bóka, og hafði gaman af að ferðast. Á sumrin var gjaman farið austur fyrir fy'all f heimsókn í Eyja- hraunið eða í sumarbústaðinn í Grímsnesinu. Þá hafa þau hjón um árabil verið gestir í orlofshúsum Dagsbrúnar víða um land. Eftir því sem árin hafa liðið hefi ég kunnað betur að meta góðvild hennar og skilning, og fyrir það vilj- um við í Glæsibænum þakka þá er kemur að leiðarlokum. Þér, Óskar minn, og öðram að- standendum votta ég mína dýpstu samúð og vona að huggun harmi gegn verði sú góða minning sem við öll eigum um hana. Ég bið Guð að geyma Sveinu og þakka henni allt. Sigríður Friðþjófsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.