Morgunblaðið - 12.05.1988, Blaðsíða 55
þar sem Sigurður, bróðir Eggerts
bjó og einnig foreldrar þeirra
bræðra. Þama var þröngt setinn
bekkurinn, eins og víðar í þennan
tíma. Á Freyjugötunni fæddist Jón-
as. Þegar verkamannabústaðimir
við Ásvallagötuna vom byggðir
fluttist fjölskyldan á Ásvallagötu
53.
Eggert Guðmundsson var hin
mesta perla af manni, flest gott við
hann, og þótti mér alltaf mikið til
um hann og saknaði hans, þegar
hann lézt fyrir aldur fram. Hann
var mikill verkalýðssinni, Eggert,
en frænka mín öllu lausari í fylk-
ingu; mér fannst hún alla tíð taka
stjómmál og trúmál fremur lausum
tökum. Ætli hún hafí ekki verið
dálítið mædd á pólitískri umræðu.
Einn vandamanna hennar, tíður
gestur, var mjög hægri sinnaður,
annar harður kommúnisti, en mað-
ur hennar jafnaðarmaður. Almenni-
legar húsmæður í gamla daga létu
karla sína um að æsa sig í pólitík;
konur hafa sett ofan í seinni tíð
með því að leita niður á við til okk-
ar karlanna, þær mældu hæð okkar
skakkt, þessar nútímakonur.
Eggert var glettinn á sinn stilli-
lega hátt. Það kom fyrir að frænku
minni þótti ástæða til að lesa mér
pistilinn og þá kímdi hann og sagði
rólega: „Hún frænka þín kann að
koma orðum að því.“ Þá var Egg-
ert mjög hlýr í sér og ég saknaði
hans þegar hann dó um aldur fram.
Þeim fer fækkandi þessum sjálf-
menntuðu greindu verkamönnum,
sem voru of skynsamir og of mann-
legir í sér til að verða ofstækisfullir
í skoðunum, þótt aðstæðumar biðu
uppá slíkt. Þeir höfðu einnig af sinni
líkamlegu vinnu nógu heilbrigðar
taugar til að geta hugsað rólega.
Þetta var áður en mannlífíð vél-
væddist. Ég held, að þetta hafi ver-
ið heilbrigðustu menn á sinninu sem
ég hef þekkt. Ég ætla ekki að nefna
þetta voðalega orð taó. Það var
mikið gott, að það skyldi vera japl-
að á því þar til það var eyðilagt.
Orðið var svo heimskt og ljótt, líkast
orðinu hala um allar gerðir skotta.
Frænka mín átti snemma í hjóna-
bandinu við veikindi að stríða, það
var löngu áður en ég kynntist
henni, og ég spurði aldrei um þau
veikindi, hafði grun um að henni
væru þau leið minning, en allan
síðari hluta ævinnar var hún mjög
heilsugóð; og hress andlega og
líkamlega á níræðisafmælinu, en
uppúr því fór henni að hraka. Böm
hennar og ekki síður tengdaböm,
kona Jónasar og maður Pálínu,
voru henni ljúf og hugsunarsöm.
Þetta get ég vottað með minni al-
mennu samvizku án þess þó ég
meini nokkuð illt með þessum orð-
um um hina hentugu eftirmælasam-
vizku. Með frænku minni er mikil
' ágætiskona gtóngin. 1
\ Ásgeir Jakobsson
Síðustu árih dvaldi Amjjór á
1 Dvalarheimilinu Lundi, Hellu. Hann
virti heimilið og var þakklátur heim-
ilisfólki og starfsfólki fyrir árin þar.
Heima í Laridsveit geymist minn-
ing um góðan dreng, sem bömunum
gleymdi aldrei. Sveitungar sakna
vinar og senda samúðarkveðjur til
systra hans og fjölskyldna þeirra.
Við þökkum samfylgdina með
ljóðlínum Einars Benediktssonár.
Af eilífðar ljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri, en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
Sigriður Theodóra
Sæmundsdóttir
Hótel Saga Simi 1 2013
Blóm og
skreytingar
við öll tœkifœri
8801 ÍAM .SI HUOAGUTMMr? .QIOAJaVIUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1988 55
ÁSTA HANNESDÓTTIR,
Freyjugötu 5,
lést á Hrafnistu, 10. maí.
Aðstandendur
t
Faðir okkar og tengdafaðir,
ÁRNI HARALDSSON
verslunarmaður,
til heimilis á Laugavegi 126,
lést á Reykjalundi að kvöldi 10. maí.
Jarðarförin tilkynnt síðar.
Haraldur Árnason, Jóna Hermannsdóttir,
Bjarni j. Árnason, Sigrún Oddsdóttir,
Björn Árnason, Heiður Gunnarsdóttir.
+
Eiginmaöur minn, faðir okkar og tengdafaðir,
EIRÍKUR BJÖRGVIN LÁRUSSON,
Hvassaleiti 6,
andaöist í Borgarspítalanum að morgni þriðjudagsins, 10. maí.
Kristfn Gfsladóttir,
synir og tengdadœtur.
+
Bróðir okkar,
GUÐMUNDUR JÓNSSON
fró Kaldbak,
Ránargötu 6,
Reykjavfk,
andaðist í Landspítalanum þriðjudaginn 10. maí.
Arnþrúður Jónsdóttir, Hólmfrfður Jónsdóttir,
Snjólaug Guðrún Jónsdóttir, Kristín Friðrikka Jónsdóttir,
Egil Jónsson, Jón Frfmann Jónsson,
Þórhalla Jónsdóttir, Sigurveig Jónsdóttir Austford.
+
Eiginmaður minn,
HJÖRLEIFUR SIGURBERGSSON,
Baldursgötu 26,
lést í Landakotsspítala aðfaranótt þriöjudags 10. mai.
Ingveldur Ámundadóttir.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir
MARVIN JÓNAS GUNNARSSON,
kaupmaður, Akurgerði 34,
lést í Vífilstaðaspítala 8. maí. Útförin fer fram frá Bústaöakirkju
miövikudaginn 18. maí kl. 15.00.
Sigrfður Þórarinsdóttir,
synir og tengdadœtur.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
VALDIMAR R. GUÐMUNDSSON
Frakkastfg 14B,
lést 30. apríl. Útförin hefurfariö fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sigurbjörg Jósfasdóttir,
Þröstur Valdimarsson, Ágústa K. Sigfúsdóttir,
Sigmar Þrastarson.
+
Útför móður okkar og tengdamóður,
KRISTfNAR ÁRNADÓTTUR
fyrrum húsfreyju f Hjallanesi, Landsveit,
fer fram frá Hallgrímskirkju í Reykjavík föstudaginn 13. maí kl.
13.30. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Jón Vigfússon,
Árni Vigfússon,
Bárður Vigfússon,
Sigurður Vigfússon,
Guðrún Karlsdóttir,
Ragnheiður Magnúsdóttir,
Sigrún Árnadóttir,
Guðrún Guðjónsdóttir.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN HJÁLMSDÓTTIR,
Kornsá, Vatnsdal,
verður jarðsungin frá Þingeyrakirkju laugardaginn 14. maí kl.
14.00. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Krabba-
meinsfélag íslands.
Sætaferð verður frá BSÍ kl. 8.30 sama dag.
Gestur Guðmundsson,
Birgir Gestsson,
Guðrún Gestsdóttir,
Hjálmur St. Flosason,
Gunnhildur Gestsdóttir,
Þórunn Ragnarsdóttir og börn,
Einar Jónasson og börn,
Marfa Snorradóttir og börn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
UNNUR SVEINSDÓTTIR
frá Álafossi,
Blómsturvöllum, Mosfellsbæ,
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju, laugardaginn 14. maí kl.
11.00 fyrir hádegi.
Frfmann Stefánsson,
Sveinn Frfmannsson, Sædfs Vigfúsdóttir,
Ásdfs Frfmannsdóttir, Jónas Björnsson,
Halldór Vignir Frfmannsson, Lilja Dóra Victorsdóttir
og barnabörn.
+
Maöurinn minn, faðir, fósturfaöir, tengdafaðir og afi,
MAREL EIRÍKSSON,
Vfkurbraut 26,
Grindavfk,
verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 14. maí
kl. 14.00.
Guðbjörg Guðlaugsdóttir,
Lára Marelsdóttir, Gunnlaugur Hreinsson,
Guðlaugur Gústafsson, Kristfn M. Vilhjálmsdóttir,
Guðni Gústafsson, Guðbjörg Torfadóttir
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
STEINN EGILSSON,
Hátúni 8,
sem andaðist föstudaginn 29. apríl síðastliðinn, verður jarðsung-
inn frá Stórólfshvolskirkju, laugardaginn 14. maí kl. 14.00.
Jónfna Jóhannsdóttir,.
Eyþór Steinsson, Sigrún Ingibergsdóttir,
Jóhann B. Steinsson, Hildur Magnúsdóttir
og sonarsynir.
+
Þökkum auðsýnda vinsemd og virðingu við andlát og útför,
INGIBJARGAR SVEINSDÓTTUR
frá Felli, Biskupstungum.
Sérstakar þakkirtil hjúkrunarfólks á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
Sveinrún Árnadóttir, Stefán Haraldsson,
Elín Á. Jenssen, Bjarne Jenssen,
Sigrfður Helga Árnadóttir, Hjörleifur Friðriksson,
Stella Arnadóttir, Böðvar Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför móöur okkar,
INGIBJARGAR JÓNSDÓTTUR,
Huldulandi 9,
Reykjavfk
sem lést í Landspítalanum 3. maí sl. fer fram frá Bústaöakirkju
þriðjudaginn 17. maí kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hinnar
látnu, er bent á Krabbameinsfélagiö.
Björn Einar Árnason,
Brynhildur Árnadóttir,
Ásgeir Þór Árnason,
Jón Loftur Árnason.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför
JÓNS HELGA JAKOBSSONAR
vólvlrkja,
Túngötu 4, Húsavík.
Fanney Danfelsdóttir,
Rannveig A. Jónsdóttir, Guðmundur A. Jónsson,
Daníel A. Jónsson, Steinunn Harðardóttir,
Bergljót Jónsdóttir, Þorvaldur M. Vestmann,
Jakob Jónsson, Sigurbjörg Guðjónsdóttir,
Örn Á. Jónsson, Anna Gerður Richter,
barnabörn og barnabarnabörn.