Morgunblaðið - 12.05.1988, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 12.05.1988, Qupperneq 68
FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR. Morgunblaðið/RAX LOKADAGUR Lokadagur vetrarvertíðar var og á Suðurnesjum, en I meðal- í gær samkvæmt eldra tíma- Iagi eða meira annars staðar. tall, en yfirleitt stendur vertfð Bátamir hafa þó rekið í góða nú orðið að minnsta kosti fram róðra og ýsan veiðist ennþá af í miðjan mai. Vertiðin hefur smærri bátum i Reykjavík. verið mjög léleg vestan lands Kona lést í umferðarslysi Fiskeldisstöðv- amar komast ekki í bankaviðskipti Iðnaðarbankinn: Greip seðla- búnt frá gjaldkera al annars hafa eigendur nýrra stöðva á Austfjörðum fengið neitun hjá Landsbankanum. Sig- finnur Mikaelsson framkvæmda- stjóri Strandalax hf. á Seyðisfirði segir að með þessu sé verið að biðja menn að koma ekki nálægt laxeldi. „Okkur þykir eðlilegt að sjá hvemig þær stöðvar ganga sem þegar eru komnar í gang áður en lengra er haldið,“ sagði Helgi. „Þetta er að sjálfsögðu frekar áhættusamur rekstur og mjög stór hluti atvinnugreinarinnar í viðskipt- um við Landsbankann svo okkur þykir okkar hlutur nægilega stór, í bili að minnsta kosti." Sigfínnur Mikaelsson sagði að þessi afstaða Landsbankans setti strik í reikninginn hjá þeim mönn- um sem væru að undirbúna nýjar stöðvar á Austfjörðum, en fjöldi nýrra stöðva er í undirbúningi þar, og einnig þeirra tveggja sem fyrir væru. Landsbankinn er aðal við- skiptabankinn á Austfjörðum og sums staðar eini bankinn, eins og til dæmis á Seyðisfirði, og því lítið annað hægt að leita, að sögn Sig- fínns. Strandalax hf. hefur verið starf- ræktur í eitt ár, og verið er að undirbúa stækkun stöðvarinnar í vor. Sagði Sigfínnur að búið væri að kaupa 40 þúsund seiði og sjó- kvíar sem væru komnar á staðinn. Hann sagði að bíða yrði átekta og vona að úr þessum málum rættist. BANASLYS varð þegar tveir bílar rákust saman á Vestur- landsvegi við Höfðabakka í Reykjavík i gærkvöldi. 58 ára gömul koma lést við árekstur- inn en hún var farþegi í öðrum bílnum. Bam, sem var farþegi í hinum bílnum hlaut smávægi- leg meiðsli en aðra sakaði ekki. Bílnum, sem konan var í, var ekið vestur Vesturlandsveg og síðan inn á Höfðabakka á gatna- mótunum. í sömu andrá kom ann- ar bfll austur Vesturlandsveg og ók inn í hlið fyrra bflsins. Sá kast- aðist á þriðja bílinn sem beið á gatnamótunum við umferðarljós. Slysið var tilkynnt til lögreglu klukkan 19.10. Tvennt var í bflnum sem ekið var í vesturátt og þrennt í hinum. í þriðja bflnum var ökumaðurinn Landsbankinn hefur lokað á nýjar stöðvar ERFIÐLEGA gengur hjá nýjum fiskeldisfyrirtækjum að komast í nauðsynleg bankaviðskipti. Landsbankinn hefur til dæmis ekki tekið neinar nýjar fiskeldis- stöðvar í viðskipti undanfarna mánuði. Helgi Bergs bankastjóri segir að bankinn hafi margar stöðvar í viðskiptum, m.a. marg- ar þær stærstu, og hafi ekki hug á að bæta nýjum við í bráð. Með- V estmannaeyjar: Samningam- ir samþykktir ALMENNUR fundur beggja verkalýðsfélaganna í Vest- mannaeyjum samþykkti í gær kjarasamninga við vinnuveitend- ur, sem undirritaðir voru fyrr í vikunni, með 130 atkvæðum gegn 28. Auð og ógild atkvæði voru sex. Yfirvinnubanni Verkalýðs- félags Vestmannaeyja hefur ver- ið aflýst, en það hefur verið í gildi í tæpan mánuð. „Það er ekki mikið um þetta að segja. Ég held að samninganefndin hafí gert fólki ljóst að lengra yrði ekki komist með vinnuveitendur að þessu sinni og fundurinn hafí kom- ist að sömu niðurstöðu," sagði Jón Kjartansson, formaður Verkalýðs- félags Vestmannaeyja, í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að samningurinn væri í grundvallaratriðum sam- hljóða samningunum sem gerðir voru á Akureyri við verkalýðsfélög- in, en með ákveðinni útfærslu svo kaupmáttur héldist svipaður og ef Akureyrarsamningurinn hefði verið samþykktur. Frá og með 1. maí hækka laun um 9,6%, þar sem 3,25% áfangahækkunin í júní er færð fram og 1% af hækkuninni 1. september. Afgangur september- hækkunarinnar, 1,5%, kemurálaun í júlí. Þá kemur 5 þúsund króna greiðsla á laun í tvennu lagi, í júní og júlí. MAÐUR stal peningum úr gjald- kerastúku í Iðnaðarbankanum við Lækjargötu síðdegis í gær. Hann hljóp síðan á brott og var ófundinn seint í gærkvöldi. Að sögn lögreglu var ekki endan- lega ljóst í gær hversu hárri upphæð maðurinn stal. Það var um kl. 15.40 sem ungur maður kom inn í Iðnaðarbankann við Lækjargötu. Hann vatt sér að gjaldkerastúku, sem er næst dyrun- um, og áður en gjaldkerinn hafði áttað sig á hvað um væri að vera hafði maðurinn kastað sér upp á afgreiðsluborðið og þrifið til sín peningaseðla. Hann greip í búnt, sem í voru 200 þúsund krónur, en mun ekki hafa tekist að ná nema broti af þeirri upphæð. Þá hljóp hann á dyr. Viðskiptavinir bankans voru snöggir að átta sig á því hvað væri á seyði og einn þeirra fór á eftir þjófinum, sem hljóp eftir Lækjar- götu og beygði inn Skólabrú og þaðan að Aðalstræti. Manninum, sem veitti eftirför, hafði nærri tek- ist að hafa hendur í hári hans þeg- ar þjófurinn hljóp út á Aðalstræti, en þá varð hann að hætta eftirför- inni til að forðast að verða fyrir bifreið. Þjófurinn hvarf síðan upp á milli húsa í Gijótaþorpi. Lögreglan kom að Iðnaðarbankanum skömmu síðar og var gefín greinargóð lýsing á manninum. Þá hófst þegar leit að honum, en hún hafði ekki borið árangur seint í gærkvöldi. Skaðlegt eiturefni mjög algengt í spennubreytum Egilsstöðum í LJÓS hefur komið að eitur- efnið PCB Askarell er notað mjög viða í raforkuvirkjum á íslandi. Efni þetta er nyög hættu- legt þó í litlu magni sé og getur borist út í líkamann við snertingu við húð ellegar við innöndun á gufu eða úða. Sest það aðallega að í fituvefjum líkamans en einn- ig í lifur og heila. Efnið er flokk- að krabbameinsvaldandi. PCB-efni brotna ekki niður í náttúrunni og ganga ekki í sam- band við vatn en berast með því. Það er því ljóst að slíkt eiturefni hefði mjög varanleg og skaðleg áhrif á lífríkið ef það bærist út í náttúruna í einhveijum mæli. Eiturefninu PCB Askarell er blandað saman við olíur á spennu- breytum og öðrum skyldum tækj- um. Það eykur kæligetu olfunnar verulega. Slfk tæki eru í raforkuver- um og verksmiðjum se_m nota raf- magn í miklum mæli. Á fundi sem haldinn var af Rafmagnseftirliti ríkisins á Egilsstöðum í gær fyrir rafverktaka sögðu fulltrúar vinnu- eftirlits og holiustuvemdar að tæki sem innihalda þetta efni séu mun algengari hér á landi en áður var talið. í álverksmiðjunni f Straumsvík voru þéttar sem innihéldu þetta efni en verksmiðjan hafði forgang um að skipta þeim út. Kostnaður við hreinsunina nam 16 milljónum króna. Kom í ljós að Bretar eru eina þjóðin í Evrópu sem leyfir að efni þetta sé flutt inn til eyðingar í sérstökum verksmiðjum. Hita þarf það í yfír 1400 gráður til að bijóta það niður. Tækjabúnaður Búrfells- virlq'unar inniheldur ifka þetta efni en vatn sem knýr hverfla virkjunar- innar er síðan notað sem neyslu- vatn fjölda fólks. Einnig er vitað að tækjabúnaður §ölda loðnuverksmiðja inniheldur þetta efni. Fyrir skömmu varð það óhapp við loðnuverksmiðjuna á Neskaupstað að olía sem inniheldur PCB-efni fór í höfnina og tveir menn urðu fyrir eituráhrifum. Áhrif á lffríki haftiarinnar eru ekki full- könnuð en Birgir Þórðarson for- stjóri Hollustuvemdar ríkisins og Skúli Sigurðsson fulltrúi vinnueftir- litsins á Austurlandi fóm til Nes- kaupstaðar í gærkvöldi að kanna þetta mál. Örskammt frá höfninni á Neskaupstað em laxeidiskvíar og era menn uggandi um áhrif þessa slyss á laxinn. Eftir því sem blaðið kemst næst mun innflutningur á PCB Askarell ekki vera bannaður á ísiandi. Þó mun hætt að flytja inn tæki sem innihalda þetta sterka eiturefni enda er notkun þess bönnuð víðast hvar f V-Evrópu og tæki þaðan inni- halda það því ekki lengur. Björn Morgunblaðið/Júlíus Á slysstað á gatnamótum Vesturlandsvegar og Höfðabakka. einn. lofti og taldi lögreglan ekki óhugs- Ekki var í gærkvöldi vitað um andi að það hefði átt einhvem orsakir slyssins en sól var lágt á þátt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.