Morgunblaðið - 15.05.1988, Blaðsíða 7
MQRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1988
B 7
Ljósmynd/BS
Tími hinna miklu
uppljómana
Fyrir sfðustu jól sendi Megas
frá sér hljómplötuna Loftmynd,
sem seldist betur en nokkur önn-
ur plata sem hann hefur gefið út
fram að þessu. Hann lætur þó
ekki þar við sitja, því tveimur
mánuðum síðar var hann kominn
í hljóðver á ný til plötugerðar og
sú plata, sem ber heitið Höfuð-
lausnir, kemur út f dag eða á
morgun.
Plötuna vinnur Megas með
Guðlaugi Óttarssyni, sem vann að
Loftmynd með honum, og Hilmari
Erni Hilmarssyni og leika þeir þrír
á öll hljóðfæri. Raddir sjá þær syst-
ur Björk og Inga Guðmundsdætur
um og Rose McDowell, sem sung-
ið hefur með Strawberry Switch-
blade og kom fram með 93 Curr-
ent 93 í Hótel íslandi í vetur.
Rokksíðan náði viðtali við Megas
rétt áður en hann hélt af landi brott
til Thailands, en þar hefur hann
dvalist síðustu þrjá mánuði.
Þegar þetta viðtal birtist, Meg-
as, verður platan komin út, eða
í þá mund að koma út. Ertu
ánægður með hana?
Ég er mjög hamingjusamur yfir
þessari plötu, ég er mjög ánægður
með hana. Hún var meira spurn-
ingarmerki en annað sem ég hef
verið að gera.
Er ekki of stutt um liðið síðan
síðasta plata kom frá þór? Ætlar
þú að fara að gefa út tvær til
þrjár plötur á ári?
Þetta er náttúrulega fífldirfska
því það er alltaf staðreynd að
markaðurinn hér er lítill. Annars
var þetta ekki þannig ferli að það
hafi verið ákveðið að byrja á að
gera stóra plötu. Þetta byrjaði allt
með því að ég heyrði Crowley-
messu Hilmars og þá varð ég lost-
inn; ég fékk skyndilega beint sam-
band því þar var kominn sá hljóm-
ur sem ég var að leita að á lag sem
ég var með og sem ekki voru á
leiðinni á neina plötu, lagið sem
heitir núna Drengirnir í Bangkok.
Það var þessi stóri hljómur með
rafeindaheilatrommum og miklu
af synþum. Þetta lag var ekki á
leiðinni á neina plötu því ég fann
aldrei það sem ég var að leita að
fyrr en ég heyrði Crowleymessuna.
Eg var kominn að þessum dyrum
og þær opnuðust skyndilega. Ég
varpaði því fram, bæði í gamni og
alvöru, við Hilmar hvort hann hefði
ekki tíma til að vera mér innan
handar við að vinna þetta lag og
önnur sem ég átti sem ekki voru
heldur á leiðinni á plötu. Ég hugs-
aði með mér að það væri gaman
í ellinni, þegar maður er kominn í
hjólastólinn við arininn, að eiga
þessi lög í unninni útgáfu. Hugsun-
in var sú að við myndum nota tíma
þegar hljóðverin væru lítið potuð
og vinna þau á ódýran hátt.
Síöan líður tíminn og þegar
komið var fram i desember var séð
fram á að það væri að losna ein-
hver tími. Þá hittumst við Hilmar
og viö urðum sammála um aö ekki
tæki því að vera bara að vinna eitt
lag, svo ég dró fram nokkur lög
sem ég átti og gerði af þeim
demó-upptöku sem ég lét Hilmar
fá. Til stóð in var að velja úr þeim
sex lögum og gera kannski svokall-
aða tólftommu. Það kom hinsveg-
ar aidrei dauður tími hjá hljóðver-
unum, það kom eurovision-tími,
og það var því ekki fyrr en komið
var fram í janúar að við byrjuðum
á þessu. Við vorum ákveðnir í að
leika á flest hljóðfæri sjálfir og fá
bara Guðlaug til viðbótar. Svo voru
stelpurnar fengnar í þetta líka, því
þegar þú ert kominn með gítarista
og stelpur þá er hægt að halda
partí. Þegar við vorum búnir að
spila inn sex grunna dró ég fram
lög sem ég hafði haft í fórum
mínum síðan fyrir í góðri trú, lög
sem ég hafði aldrei ætlað að setja
á plötu, lögin Borðið þér orma frú
Norma og Álfossúlpuna. Þá hófst
tími hinna miklu uppljómana og
þegar upp var staðið var orðin til
plata.
Þú notar allskyns hljóðgerfla
og tæki á plötunni; hefur þig
kannski alltaf langað til að gera
slíkt? Horfir þú með trega til
hinna glötuðu ára?
IMei, nei, alls ekki. Núna átti það
heima og því nota ég það núna.
Hvað vilt þú segja um lögin?
Nú þykist ég vita að t.d. Álafoss-
úlpan eigi eftir að vekja mikla
athygli og jafnvel óhug. Hvað
finnst þér um lagið?
Þetta er ósköp sætt lítið lag um
mannlegar frústrasjónir og að-
draganda þeirra. Ég er mjög
ánægður með þetta lag.
Þó að á plötunni verði lög sem
kannski hafa ekki verið á leiðinni
á plötu og þó það sé einhver óhefl-
aður tónn í þeim, Álafossúlpan var
til að mynda ritskoðuð að nokkru
leyti á sínum tíma, þá er ég með
svo mikið af mjúkri tónlist að það
er við hæfi að nota texta sem er
kannski svolítið grófur til að ná
fram gullinsniði í laginu. Raddirnar
eru einnig til þess ætlaðar.
Raddirnar eru svolítið öðruvfsi
en á Loftmynd.
Þær eru kannski ekki svo mjög
öðruvísi, en það er kannski meiri
breidd í þeim, þú heyrir mörg mis-
munandi afbrigöi af bakröddum
sem eru orðnar svo gildandi að
það er varla hægt að kalla þær
bakraddir lengur. Ég hugsa þetta
svolítið þannig að þetta sé eins-
konar kvenraddakonsert.
í sumum tilvikum verður þetta
kannski leikhúslegt og maður gæti
hugsað sér þetta sem hluta af
söngleik, að lögin væru sprottin
úr söguþræði. Borðið þór orma frú
Norma er t.d. þannig lag.
Hver er frú Norma?
Frú Norma er engin sérstök.
Textinn er byggður upp eins og
blús, þannig að hvert erindi dregur
upp mynd yfir undirliggjandi þema.
Rauði þráðurinn er frú Noma, sem
stendur fyrir hinn breiða kven-
massa. Norma sem normalkona.
Þetta er Freudísk spurning um
ormana, hálfgerð klámsymbólík.
Texti: Ámi Matthíasson
SNYRIISfRfRA.ÐINGARNIR RÚNA GUOMUNDSDÓTTlR OG
SÁRA TMtXANÐtRSDCniR SJÁ UM KYNNtNGUNA
ELIZABETH ARDEN
KYNNINGARVIKA
MÁNUDAGUR: 16/5
SNYRTIVÖRUV. SPES, KLEIFARSELI
18, BREIÐHOLTI. FRÁ KL. 13-18.
APÓTEK GARÐABÆJAR. FRÁ KL.
13-18.
ÞRIÐJUDAGUR: 17/ 5
NAFNLAUSABÚÐIN, STRAND-
GÖTU 34, HAFNARFIRÐI. FRÁ KL.
13-18.
SNYRTIVÖRUV. NANA, VÖLVU-
FELLI 15, BREIÐHOLTI. FRÁ KL. 13-
18.
MIÐVIKUDAGUR: 18/5
SNYRTIVÖRUV. DÍSELLA, MIÐ-
VANGI 41, HAFNARFIRÐI. FRÁ KL.
13-18.
SNYRTIVÖRUV. SERÍNA í KRINGL-
UNNI. FRÁ KL. 13-18.
FIMMTUDAGUR: 19 / 5
SNYRTIVÖRUV. ÓCULUS, AUSTUR-
STRÆTI 3. FRÁ KL. 13-18.
SNYRTIVÖRUV. RÓMA GLÆSIEÆ.
FRÁ KL. 13-18.
FÖSTUDAGUR: 20/5
SÁPUHÚSIÐ, LAUGAVEGI 17. FRÁ
KL. 13-18.
SNYRTIVÖRUV. GLORÍA, KEFLA-
VÍK. FRÁ KL. 13-18.
—<áíp*/e7Zv fl/lde*t
Qáiídársd
Kaldársel
eru sumarbúðir KFUM og
KFUK í Hafnarfirði. Þær eru
um 7 km fyrir austan Hafn-
arfj'örð og hafa verði starf-
ræktar frá árinu 1925.
í hverjum dvalarflokki eru
um 35 börn, í viku til 14
daga í senn. Staðurinn býð-
ur upp á mjög fjölbreytta
náttúru sem óspart er notuð
til skoðunar og skemmtun-
ar, íþróttir eru stundaðar
og áin og hraunið eru vinsæl
til leikja. Á hverjum degi er
einnig kvöldvaka og hug-
leiðing á orði Guðs.
Dvalarf lokkar veröa sem
hór segir sumariö 1988:
Fyrir drengi 7-12 ára
30. maf - ð.Júní
9. júní-23.Júní
30.júní- 7.JÚIÍ
7.JÚIÍ — 21. Júlf
21. júlí-28. júlí
Fyrir stúlkur 7-12 ára
28.JÚIÍ - 7. ágúst
7.ágúst-17. ágúst
17. ágúst-24. ágúst
Til Reykjavikur
t
Innritun og nánari upplýsingar eru
veittar eftir 1. maí á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum kl.
17—19 að Hverfisgötu 15 í Hafnarfirði,
sími 53362.
K.F.U.M.
K.F.U.K.
Hellisgata
Hverfisgata
Höfnin