Morgunblaðið - 03.07.1988, Blaðsíða 13
opor r n'n e íiiirrkniTl/r/TT? rfldA.iaVflTQHONÍ
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JUU 1988
a sí
B 13
iðari. Leiðin mun liggja yfír læví-
sar ár, brött fjöll, heiðar, sanda
og hraun. Veður eru skjót að skip-
ast í lofti á hálendinu svo Leifur
og Vaskur meiga eiga von á að
fínna fyrir fjölbreytni íslensku
veðraflórunnar.
Öryggi þeirra Vasks er tiyggt
eins og kostur er. Hann verður í
sambandi við björgunarsveitar-
menn, sem munu koma honum til
aðstoðar ef þörf krefur og feija
hann yfír ófærar ár, og koma fyr-
ir vistum og öðrum búnaði á fyrir-
fram ákveðnum stöðum. Hann
hefur bæði farsíma og neyðartal-
stöð svo hann á auðvelt með að
gera vart við sig. Þeir munu gista
á bæjum og skálum á leiðinni, en
Leifur reiknar með að þeir þurfí
að láta fyrir berast úti undir beru
lofti um það bil helming náttanna.
Leiðin var að sögn Leifs valin
með öryggi í huga. Frá Reyðar-
fírði fara þeir yfír Hallormsstaðar-
háls og Fljótsdalsheiði, um Fiski-
háls hjá Upptyppingum að Öskju.
Þá fara þeir Gæsavatnaleið norður
Sprengisand að Laugafelli, norður
fyrir Hofsjökul upp að Blönduvaði
norðan Hveravalla. Svo liggur
leiðin norður fyrir Langjökul, yfír
Arnarvatnshéiði í Norðurárdal.
Loks ganga þeir eftir Snæfells-
nesi endilöngu, upp á jökulinn og
enda á Snæfellsássmótinu á Am-
arstapa 6. ágúst.
„Það verður mikill félagsskapur
af hundinum og ég treysti honum
fullkomlega að fara þessa ferð.
Hann er duglegur og sundhvatur
ef því er að skipta," sagði Leifur
aðspurður hvort ekki væri mikið
á hundinn lagt í þessari ferð.
Krýsuvíkursamtökin voru
stofnuð á sumardaginn fyrsta
1986 með það markmið í huga
að að setja á fót meðferðarstofnun
fyrir unglinga í vímuefnavanda. í
því skyni var Krýsuvíkurskólinn
keyptur, en þá stóð hann ónotaður
og hálfkláraður. Að sögn forráða-
manna Krýsuvíkursamtakanna
vantar nú aðeins herslumuninn á
að hægt verði a’ taka fyrsta
áfanga hússins í notkun og steftit
'f-
Ráðstefna norrænna
fræðirita- og kennslu-
bókahöfunda:
Tryggja þarf
réttindi höf-
unda sam-
hliða aukinni
tölvunotkun
SJÖTTI fundur fulltrúa norr-
ænna fræðirita- og kennslubóka-
höfunda var haldinn hér á landi
í lok júnímánaðar. Þátttakendur
komu frá öllum Norðurlöndun-
um. Helsta verkefni þessa fundar
var að ræða stöðu kennslubóka-
höfunda og réttindi á timum örra
tæknibreytinga. Ólögleg dreif-
ing kennslugagna bitnar hvað
harðast á höfundum þessara rita.
Með aukinni tölvunotkun reynist
æ auðveldara að fjölfalda verk án
vitundar höfunda. Rétthafasam-
bönd hafa verið mynduð í öllum
löndunum til að annast samninga
fyrir hönd höfunda. Á fundinum
kom fram að mikið skortir á að
samræmi sé í þeim greiðslum sem
höfundar fá fyrir vinnu sína. Var
samþykkt að mynda starfshóp með
fulltrúum allra félaganna til að
samræma aðgerðir sem tryggt
gætu réttindi fræðirita- og kennslu-
bókahöfunda.
Tuttugu og einn höfundur mætti
til fundarins sem Hagþenkir, félag
höfunda fræðirita og kennslu-
gagna, skipulagði að þessu sinnni.
(Úr fréttatilkynningu.)
er að því að taka á móti fyrstu
unglingunum næsta vetur. Til
þess þarf 3 milljónir og vonast er
til að söfnunin nú fari jafnvel
ríflega upp fyrir það. Markmiðið
er 10.000 krónur fyrir hvem km,
sem Leifur og Vaskur ganga, eða
5,6 milljónir króna.
Fjáröflunin verður með þeim
hætti að fyrirtæki, félagasamtök
og einstaklingar geta hringt til
Krýsuvíkursamtakanna og styrkt
gönguna með því að fjármagna
einn eða fleiri kflómetra. Útvarps-
stöðin Stjaman verður í daglegu
sambandi við Leif og sagt verður
frá þeim sem leggja málefninu lið.
Gangan nýtur einnig stuðnings
Félags sporvömkaupmanna, sem
hafa meðal annars lagt til allan
göngu- og viðleguútbúnað, sem
þarf til.