Morgunblaðið - 03.07.1988, Blaðsíða 27
,r»r t tt'tt o crTT*^ í rTTTT/rr^TTn (jjn a Tp-T/rTTr><rrv?f
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 1988
a as
B 2f
Faoir verður sonur
-ogöfugt
Það hafa verið gerðar nokkrar
myndir í Bandaríkjunum undanfar-
ið sem eiga það sameiginlegt að
faðir og sonur skipta um hlutverk.
Ein þeirra er „Vice Versa", sem
sýnd verður í Stjörnubíói.
Hún segir frá feðgunum Marsh-
all og Charlie Seymour. Pabbinn
er sívinnandi yfirmaöur hjá stóru
verslunarfyrirtæki og hefur lítinn
tíma til að sinna drengnum sínum
og ef kærastan hans ynni ekki með
honum myndi hann sjálfsagt aldrei
hitta hana.
Líf feðganna tekur fyrst veru-
legri breytingu eftir verslunarferð
til Bangkok þar sem Marshall lend-
ir óvart í ráðabruggi tveggja bófa
sem ætla að smygla fornri og dul-
arfullri hauskúpu til Bandaríkjanna
og selja þar. Þegar heim til
Chicago kemur finnur Marshall
hauskúpuna ( farangri sínum og
einu sinni þegar faðir og sonur eru
að rífast heima hjá sér og óska
þess aö þeir gætu skipt um hlut-
verk lifnar yfir hauskúpunni og
búmm . . . pabbinn verður son-
urinn og sonurinn pabbinn. Nema
núna lætur pabbinn eins og 11 ára
strákur en strákurinn lætur eins
og vinnualkinn pabbi sinn.
Með aöalhlutverkin í myndinni
fara Judge Reinhold, sem er
ómissandi í „Beverly Hills Cop“-
myndirnar, Fred Savage, sem leik-
ur son hans í myndinni, og Corinne
Bohrer, sem leikur kærustuna.
„Flestir líta svo á að leikstjórinn
sé nokkurs konar hershöfðingi,
maðurinn sem hefur algera stjórn
á öllum þáttum kvikmyndagerðar-
innar," segir Brian Gilbert, leik-
stjóri „Vice Versa". „Ég sé sjálfan
mig ekki í því Ijósi. Raunar finnst
mér starf mitt líkjast meira starfi
Ijósmóðurinnar sem hefur umsjón
með fæðingunni." „Vice Versa" er
önnur mynd Gilberts.
Dustin Hoffman
bregður á leik
Það er ekki ofsögum sagt að
Dustin Hoffman er maður erfiður
viðureignar, og getur verið hreint
óþolandi þegar svo ber undir.
Hann er frægur fyrir að fara eigin
leiðir þegar hann velur sér hlutverk
og er ekkert nema gott um það
að segja, en hann hefur unun af
því að kvelja fólk sem hann vinnur
með.
Hoffman ákvað haustið 1986 að
leika í „Rainman" undir leikstjórn
Martins Brests, sem tveim árum
fyrr hlaut frægð fyrir að leikstýra
„Löggunni í Beverly Hills" með
Eddie Murphy. Hoffman var mjög
skotinn í hugmyndinni að baki sög-
unni: Það var hugljúf saga tveggja
feðga, sonar og andlega vanheils
föður, sem Hoffman hugðist leika.
Hann var svo spenntur fyrir sög-
unni að hann fór strax að skoða
heilsuhæli, meira að segja geð-
veikrahæli, áður en skrifað var
undir samninga. Á sama tíma sam-
þykkti Tom Cruise að leika soninn,
en Tom sló í gegn nokkrum mán-
uðum fyrr í „Top Gun". En Hoff-
man var samt ekki nógu ánægöur
með handritið og krafðist þess að
því yrði breytt þannig að það félli
betur að hans kröfum. Leikstjórinn
samþykkti nokkrar breytingar og
tökur áttu að hefjast í maí 1987.
Martin Brest skrifaöi nýtt hand-
rit, sem Tom Cruise sætti sig við
en Dustin Hoffman var síður en
svo ánægður með.
Þá settust þeir niður, Hoffman
og Brest, og reyndu að nálgast
sjónarmið hvor annars. En hvorki
gekk né rak. Hoffman stakk af og
lók í „Ishtar" með Warren Beatty.
Þá lokst fannst Brest nóg komið
og sagði skilið við Hoffman og
feðgana tvo. (Hann skrifaði annað
handrit og lauk nýlega við tökur á
þeirri mynd, „Midnight Run“, en
Dustin Hoffman hefur vissar
skoðanir á því hvernig kvik-
myndahandrit á að vera.
aðalhlutverkið í henni er í höndum
Roberts De Niro).
Það var kvikmyndaverið United
Artists sem stóð aö gerð „Rain-
man". Forráðamenn fyrirtækisins
höfðu tröllatrú á myndinni og leit-
uðu því að nýjum leikstjóra í
skyndi, manni sem þolað gat skap-
bresti og óútreiknanlegar kröfur
Hoffmans. Fyrst töluðu þeir við
Steven Spielberg, sem samþykkti
með semingi. En hann var fljótur
að rifta samningum því hann gat
engan veginn sætt sig við sjónar-
mið leikarans. (Spielberg sneri sér
þess í stað að „Veldi sólarinnar"
sem hann lauk við haustið 1987
og Bíóborgin hefur sýnt undan-
farnar vikur.)
Þá var röðin komin að Sydney
Pollack. Hann hafði gerst svo
djarfur að vinna með Hoffman að
„Tootsie" árið 1982, og var sú
samvinna ærið stormasöm. Þeim
tókst engu að síður að gera
skrambi góða kvikmynd. Pollack
var enn að telja Óskarsverðlaunin
sem nýjasta mynd hans, „Jörð í
Afríku", hlaut árið 1985, þegar
forráðamenn United Artists báðu
hann að leikstýra „Rainman".
Pollack reyndi hvað hann gat: las
handritið, talaði við Hoffman, las
handritið aftur til að sjá beturþær
breytingar sem Hoffman vildi gera,
fékk nokkra kvikmyndahandrits-
höfunda til liðs við sig, en allt kom
fyrir ekki, þeim tókst ekki að skrifa
söguna þannig að Hoffman gerði
sig ánægðan.
Þetta var mikiö áfall fyrir United
Artists, sem hafði þegar eytt fimm
milljónum dala í þessa mynd sem
ekki var farið að gera enn. Og það
sem verra var; aðrir kvimynda-
gerðarmenn voru farnir að gera
myndir um svipað efni. Tom Hulce,
sem lék Amadeus svo eftirminni-
lega, lék t.d. f „Dominick & Eug-
ene" sem fjallar um tvo bræður,
annan þroskaheftan.
Það síðasta sem fréttist í þessu
máli er að Barry Levinson er að
athuga möguleikann á að vinna
með Hoffman. Levinson á að baki
ágætar myndir eins og „Diner" og
„Tin Men“, og nýjasta mynd hans,
„Góðan daginn, Víetnam", naut
gífurlegra vinsælda vestanhafs fyrr
á þessu ári. Levinson ætlar að
skrifa nýtt handrit. Handritið mun
hann sýna Tom Cruise, sem bíður
enn þolinmóður, en það hefur sýnt
sig að þaö er ekki nóg aö Cruise
verði ánægður. Það þarf líka að
taka skoðanir og þarfir Dustins
Hoffmans með í reikninginn.
SOFASETT
ÍTÖLSK HÖNNUN
Kkristjan
SIGGEIRSSON
LAUGAVEGI 13, SÍMI 625870