Morgunblaðið - 09.07.1988, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1988
25
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi:
Leyfi gef ið til
byggingar nýs
ammoníaksgeymis
BORGARSTJÓRN hefur fallist á
erindi Áburðarverksmiðjunnar í
MinniMut-
inn er á
móti Foss-
vogsbraut
MINNIHLUTINN í borgarstjórn
gerði bókun á fundi borgar-
stjórnar á fimmtudagskvöld og
sendi frá sér eftirfarandi frétta-
tilkynningu, sem er að mestu
samhljóða bókuninni:
„Að undanförnu hafa hugmyndir
um hraðbraut um Fossvogsdal verið
mikið í fréttum og þess þá jafnan
getið að borgarstjórn Reykjavíkur
sé þeirri hraðbraut hlynnt.
Af þessu tilefni viljum við borgar-
fulltrúar Alþýðubandalags, Alþýðu-
flokks, Framsóknarflokks og
Kvennalista koma því á framfæri
að við erum þeirrar skoðunar að
Fossvogsdalurinn eigi að vera úti-
vistarsvæði og erum því andvíg
hugmyndum um Fossvogsbraut.
Við teljum mikilvægt að slíta
ekki það samfellda útisvistarsvæði
í sundur sem nú nær frá Tjörninni
í miðborginni um Hljómskólagarð,
Öskjuhlíð, Fossvogsdal og Elliða-
árdal að Elliðavatni. Slík samfelld
keðja útivistarsvæða er einstök í
höfuðborg og að auki er Fossvogs-
dalurinn eitthvert ákjósanlegasta
útivistarsvæði á höfuðborgarsvæð-
inu, fyrir margra hluta sakir.
Við afgreiðslu aðalskipulags
Reylqavíkur í borgarstjóm hinn 2.4.
1987 lögðum við fram bókun, þar
sem við mótmæltum Fossvogsbraut
og framhaldi hennar Hlíðarfæti.
Það er skoðun okkar að umferðar-
vanda borgarinnar verði að leysa á
annan hátt en með eyðileggingu
þessa einstaka útivistarsvæðis."
Gufunesi um byggingu nýs kælds
ammoníaksgeymis við verksmiðj-
una. Að sögn Hákonar Björns-
sonar, framkvæmdasljóra verk-
smiðjunnar, hefur undirbúning-
ur að útboði jarðvegsvinnu þegar
farið fram og verður fljótlega
byrjað á framkvæmdum.
Nýi geymirinn verður búinn kæli-
búnaði, sem verður í húsi við hlið
hans. Ammoníakið verður kælt svo
að það verði ekki undir þrýstingi.
Þannig er stórlega dregið úr
sprengihættu og hættu á eiturleka
úr geyminum.
Geymirinn mun rúma sama magn
og gamli geymirinn, um 1000 tonn
af ammoníaki. Kostnaðaráætlun
hljóðar upp á 61 milljón króna og
er fyrirhugað að taka geyminn í
notkun í júní á næsta ári að sögn
Hákonar Björnssonar.
Morgunblaðið/Bjami
Á þessari loftmynd, sem tekin er yfir Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi úr vestri, má sjá gamla kúlu-
laga ammoníakstankinn til vinstri, hjá tveimur öðrum hráefnistönkum. Nýja geyminum er ætlaður stað-
ur nokkur hundruð metrum vestar, nálægt lágu byggingunni með skúrþakinu niður við fjöruna lengst
til vinstri á myndinni. Geymirinn verður eins í laginu og sívölu geymamir tveir efst til vinstri og kæli-
búnaðurinn í sérstöku húsi við hlið hans.
Borgarstjorn
fer í sumarfrí
FUNDUR borgarstjórnar á
fimmtudagskvöld var sá síðasti
fyrir sumarfrí borgarfulltrúa.
Borgarstjórn kemur saman á ný
15. september næstkomandi.
Borgarstjóm samþykkti að fela
borgarráði að afgreiða fundargerðir
byggingamefndar og aðrar fundar-
gerðir og mál, sem berast til borgar-
ráðs meðan á fríi borgarstjórnar
stendur.
Fundurinn á fimmtudagskvöld
var jafnframt síðasti borgarstjóm-
arfundur Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur, borgarfulltrúa Kvenna-
listans. Utan dagskrár fundarins
baðst hún lausnar frá störfum borg-
arfulltrúa. Beiðni hennar sam-
þykktu Alþýðubandalag og Fram-
sóknarflokkur, en fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks sátu
hjá. Davíð Oddsson borgarstjóri
gerði grein fyrir hjásetu sinni og
sagði að með því að hafa manna-
skipti á miðju kjörtímabili teldi hann
lög og reglur sveigð til hins ítrasta.
Allir borgarfulltrúar þökkuðu þó
Ingibjörgu samstarfið og kom sam-
an að hún hefði verið verðugur
andstæðingur eða góður samherji
eftir því hvar í flokki menn stóðu.
1989 árgerðirnar af MAZDA eru nú væntanlegar innan
skamms og þess vegna lækkum við verðið á síðustu
bílunum af árgerð 1988.
Dæmi um verð:
MAZDA121 L 3 dyra 1.1 I................................
MAZDA 323 LX 3 dyra 1.3 I..............................
MAZDA 323 LX 5 dyra 1.3 I..............................
MAZDA 323 GLX 5 dyra 1.5 I ............................
MAZDA 626 LX 4 dyra/vökvast. 1.8 I ....................
MAZDA 626 GLX 4 dyra sj.sk./vökvast. 2.0 I.............
MAZDA 626 LX 5 dyrá sj.sk./vökvast. 1.8 I .............
MAZDA 626 GLX 5 dyra sj.sk./vökvast. 2.0 I.............
MAZDA 626 GTI 2 dyra vökvast. álfelgur vinsk. og sóllúga
Júlíverð Tilboðsverð nú
537.000 464.000
539.000 499.000
594.000 543.000
636.000 590.000
871.000 731.000
1.008.000 889.000
937.000 845.000
1.026.000 905.000
1.225.000 1.088.000
Op'ð
ö \auðaíóa9
Þetta eru án efa bestu bílakaupin í dag. Tryggið ykkur
bíl strax, því aðeins er um takmarkað magn bíla að
ræöa!
BILABORG H.F.
FOSSHÁLS11 ,SÍMI 6812 99